Morgunblaðið - 28.08.1997, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 28.08.1997, Blaðsíða 38
"68 FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Móðir okkar, SIGURBORG EYJÓLFSDÓTTIR, Sörlaskjóli 44, Reykjavík, lést á Landspítalanum að kvöldi þriðjudagsins 26. ágúst. Jarðarförin verður auglýst síðar. Börnin. + Elskulegur bróðir okkar, GUÐJÓN EINARSSON frá Ási, Bárustíg 13, Sauðárkróki, sem lést fimmtudaginn 21. ágúst, verður kvadd- ur frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 30. ágúst nk. kl. 11.00. Jarðsett verður að Ríp í Hegranesi, Systkini hins látna. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÚLÍANA SVEINSDÓTTIR, sem lést á dvalarheimilinu Barmahlíð, Reyk- hólum, 22. ágúst síðastliðinn, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 29. ágúst kl. 15.00. Guðlaug Guðmundsdóttir, Grímur Arnórsson, Hafsteinn Guðmundsson, Ólína Jónsdóttir, Sveinn Guðmundsson, Dóra Jónsdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir, Karl Þórðarson, Kristrún Guðmundsdóttir Bryndís Guðmundsdóttir, Steinn Baldvinsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BERGÞÓRA M. HARALDSDÓTTIR frá Tjörnum, Vestur-Eyjafjöllum, Tunguseli 1, Reykjavík, sem lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sunnudag- inn 24. ágúst, verður jarðsungin frá Áskirkju föstudaginn 29. ágúst kl. 13.30.. Sigurður E. Þorsteinsson, Guðbjörg Þorsteinsdóttir, Gunnar Andrésson, Hólmfríður Lára Þorsteinsdóttir, Guðrún Þorsteinsdóttir, Paul Erik Jensen, Haraldur Þorsteinsson, Hulda Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför, GÍSLA KRISTINS GUÐBRANDSSONAR, skipstjóra, Laugateigi 10, Reykjavík. Sverrir Gislason, Guðbjörg H. Guðbrandsdóttir, Hrafnhildur Guðbrandsdóttir, Þorbjörg Jósefsdóttir, Gunnar Pétursson, Gunnar Richardson, Þórarinn Óskarsson. I f + Þökkum af alúð öllum, er sýndu okkur hlýhug og vináttu við andlát og útför bróður og frænda, BJARNA GUNNARSSONAR, Auðbjargarstöðum. Karólína Gunnarsdóttir og systrabörn. FINNUR SIG URJÓNSSON -I- Finnur Sigur- ' jónsson var fæddur í Vest- mannaeyjum 14. nóvember 1919. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur h. 18. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Helga Finnsdóttir, kjóla- meistari, f. 28. september 1895 á Stóru-Borg, Aust- ur-Eyjafjalla- hreppi, d. 25. apríl 1989 í Reykjavík, og Sigurjón Pálsson, sjómaður og verka- maður, f. 12. ágúst 1896 í Hjörtsbæ í Keflavík, d. 12. ágúst 1975 í Reykjavík. Finnur og tvíburabróðir hans, Sigurjón Helgi, voru elstir sex systkina, en Sigurjón Helgi lést h. 24. desember 1936 í Reykjavík. Systur þeirra voru fjórar: Henný Dagný, f. 29. apríl 1922, Ólöf Ingibjörg, f. 4. október 1923, d. 28. september 1994, Pálína Þuríður, f. 17. júní 1931, og Jóhanna Kristín, f. 31. maí 1935. Finnur var ókvæntur og barn- laus. Finnur vann lengi í bókabúð Æskunnar í Kirkju- hvoli í Reykjavík og einnig vann hann hjá Ragnari Þórðarsyni sem þá rak tískuverslanir í Reykjavík; Mark- aðinn og Gullfoss. Einnig vann hann hjá varnarliðinu, bæði á skrif- stofum þess á Keflavíkurflug- velli og í mötuneyti hjá hern- um vestur á Gufuskálum. Síð- ustu 25 ár starfsævi sinnar var Finnur bókavörður í bókasafn- inu vestur á Seltjarnarnesi og starfaði þar til ársins 1990 að hann fór á eftirlaun. í apríl 1995 flutti Finnur á Hrafnistu í Reykjavík og átti þar heimili eftir það. Útför Finns fór fram í kyrr- þey fimmtudaginn 21. ágúst. Finnur Siguijónsson, móður- bróðir minn, var maður sem tekið var eftir hér í Reykjavík á árum áður, á þeim árum þegar hann og félagar hans voru ungir og margir þeirra upprennandi skáld, lista- menn og spekingar af ýmsum toga. Hann var alltaf vinamargur og hafði oft um sig heila hjörð af skemmtilegu og gáfuðu fólki. Var hann þá hrókur alls fagnaðar þeg- ar sá gállinn var á honum og var meinfyndinn, sjófróður og skemmtilegur. Hann var sérstak- lega vel lesinn og mér fannst hann alltaf vita alla skapaða hluti, hann + Bróðir okkar, mágur og frændi, EINAR ODDGEIRSSON bóndi, Dalseli, Vestur-Eyjafjöilum, verður jarðsunginn frá Stóra-Dalskirkju laugar- daginn 30. ágúst kl. 14.00. Símon Oddgeirsson, Ólafur Oddgeirsson, Dóra Ingvarsdóttir, Þórunn Ólafsdóttir. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför GUÐRÚNAR JÓNSDÓTTUR, Ytra-Laugarlandi, Eyjafjarðarsveit. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 5-A á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, krabbameinsdeildar 11-E á Landspítalanum og háls-, nef- og eyrna- deildar F.S.A. Tryggvi Jóhannesson, Hjörleifur Tryggvason, Vilborg G. Þórðardóttir, Aðalbjörn Tryggvason, Guðrún Finnsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. I stórum og rúmgóðum sýningarsal okkar eigum við ávallt fyrirliggjandi margar gerðir legsteina og minnisvarða. Hvergi meira úrval. Yfir 45 ára reynsla Yerið velkomin til okkar, eða fáið myndalista. SKÉMMUVEGI 48, 200 KÖP.TSIMI: 557-6677/FAX: 557-8410 hafði alltaf svör á reiðum höndum og skoðanir á flestu. En veraldar- gengið gat verið svolítið valt hjá honum. Líklega var hann bóhem, maður hugleiðir það ekki þegar maður elst upp með fólki. Líklega hefur hann ekki verið af sömu gerð og við flest. Það var svo margt í fari hans og lífi sem' ekki var eins og hjá okkur hinum. Hann streðaði aldrei við að eign- ast þak yfir höfuðið heldur safnaði að sér málverkum og bókum og öðrum fögrum munum. Hann var listrænn í sér, gekk alltaf afar vel til fara, og það var alltaf stíll yfir honum og reisn. Hann var heimilismaður hjá mér og manninum mínum fyrrverandi í þrjú ár suður í Njarðvíkum á árunum 1965 til 1968. Hann kom í heimsókn eina kvöldstund milli jóla og nýárs og varð innlyksa. Við áttum fjögur lítil börn og hann tók að sér heimilisreksturinn eftir skamma dvöl og gerði mig brott- ræka úr eldhúsinu og sagði að við þessar ungu stelpur kynnum ekki að elda mat fyrir siðað fólk, ég skyldi sjá um þvottinn og börnin á daginn og svo komst bara á sjálf- virk verkaskipting. Okkur kom alltaf svo vel saman á meðan ég hlýddi honum. Hann fór í utanlandsferðir hve- nær sem hann hafði tækifæri til og ferðaðist til staða sem íslend- ingar voru ekki vanir, m.a.s. fór hann til Kína fyrir um 20 árum sem ekki var algengt þá. Síðasta haust fór hann í rútuferð austur á Skeiðarársand til að skoða þar eyðilegginguna eftir hlaupið mikla en starfsfólkið á Hrafnistu gerði honum það kleift og með hjálp þess komst hann upp í þessa stóru rútu því hann var engin léttvara, hann Finnur frændi, og þurfti tvo og jafnvel þijá til að hjálpa honum en hann tók öllu með stóískri ró og lét það hnoðast þetta með sig til að ná settu marki. Og komst austur á Skeiðarársand sem hann hafði áður farið svo oft yfir þegar hann var drengur að fara austur að Hofi í Öræfum til sumardvalar. Svo liðu árin og að því kom að Finnur gat ekki lengur búið einn og flutti inn á Hrafnistu. Ekki þótti hann félagslyndur þar fyrst. Honum varð það töluvert áfall að þurfa að flytja á stofnun en svo jafnaði hann sig á því eins og lang- flest fólk gerir og samlagaðist svo lífinu á staðnum og fór að kynn- ast fólkinu svona eins og gengur. Hann veiktist í kvöldboði á fögru sumarkvöldi h. 15. ágúst heima hjá systur sinni vestur í bæ, var fluttur í sjúkrabíl upp á Borgar- spítala. í ljós kom að hann hafði fengið heilablóðfall og fékk hann hægt andlát mánudagsmorguninn 18. ágúst. Ég vil að lokum kveðja þennan sérstæða og góða frænda minn og þakka honum fyrir sam- fylgdina í bráðum 55 ár. Sigrún Dúfa Helgadóttir. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski- legt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínu- bil og hæfilega línuleng — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Erfidrykkjur H H H H H H H H H u Sími 562 0200 u [IIIIIXXIIXll
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.