Morgunblaðið - 28.08.1997, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 28. AGUST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ásdís
Nítján ára tví-
burakettir
Afgreiðslumanni
ógnað með hnífí
Grímu-
klæddir
rændu
skiptimynt
TVEIR menn hlupu inn í Select-
verslun bensínstöðvar Skeljungs við
Suðurfell í fyirinótt. Þeir ógnuðu af-
greiðslumanni með hnífí, gripu
skiptimynt úr afgreiðslukassa og
hlupu á brott. í framhaldi af þessum
atburði hefur verið ákveðið að íjölga
starfsmönnum að næturlagi úr ein-
um í tvo.
Ránið var framið rétt fyrir kl. 5
um nóttina. Ræningjarnir voru með
nælonsokkabuxur yfir höfði til að
gera andlitið á sér torkennilegt.
Guðmundur Guðjónsson, yfirlög-
regluþjónn rannsóknardeildar, sagði
í samtali við Morgunblaðið að- ræn-
ingjamir hefðu ekki haft háa fjár-
hæð á brott með sér. 'Hann sagði
málið í rannsókn, en síðdegis í gær
hafði enginn verið handtekinn vegna
hugsanlegrar aðildar að ráninu.
Slapp ósár
Gunnar Kvaran, upplýsingafull-
trúi Skeljungs, sagði að fyrir mestu
væri að starfsmaðurinn hefði sloppið
ósár. „Ræningjarnir höfðu ekki mik-
ið upp úr krafsinu enda er þess vel
gætt að sem allra minnst reiðufé sé í
verslununum."
TVÍBURAKETTIRNIR Friðrik
og Blíða eru 19 ára í dag og bera
aldurinn vel. Friðrik er heims-
borgari, hann fæddist í Kópa-
'vogi, en fluttist á sínum mektar-
árum til Danmerkur þar sem
hann bjó ásamt eigendum sínum
í 8 ár. Friðrik hefur snúið aftur
heim og eyðir ellinni í Garða-
bænum. Oft er miðað við að eitt
ár hjá köttum sé eins og sjö hjá
mönnum. Ef til vill er eðlilegra
að miða við meðalaldur, en kett-
ir verða gjarnan 12-14 ára.
Reyndar var Friðriki gefíð
nafnið Fríða þegar hann fædd-
ist sem rímaði við nafn systur
hans. Eftir um níu mánuði
komst eigandi kattarins, Auður
Matthíasdóttir, hins vegar að
því hvers kyns hann var og
nafninu var snarlega breytt í
Friðrik.
„Friðrik stjórnar tíkinni á
heimilinu og þegar hann hittir
systur sína sýnir hann ósvikna
karlrembutakta," segir Auður.
Ekki vildi hún meina að Friðrik
stjómaði öðrum á heimilinu
enda mun hann farinn að róast
og orðinn morgunsvæfur með
aldrinum.
Davíð Oddsson um siðareglur ráðherra j
Framandi og
eiga illa við hér s
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðhen-a kom hér í opinbera heimsókn gáf- r
telur enga þörf á að setja ráðherr- um við henni salatskál og hún gaf I
um á Islandi siðareglur líkt og mér veiðihníf, sem er vandaður og j
Tony Blair, forsætisráðhen-a Bret- gæti kannski kostað eitthvað um
lands, hefur nýverið sett fyrir ráð- tíu þúsund krónur. Þegar Poul
herra í ríkisstjóm Verkamanna- Nyrup Rasmussen kom hér gaf
flokksins.
Davíð segir að siðareglur
breska forsætisráðherrans séu
mjög framandi á íslandi vegna
þess að þau atriði sem þar sé verið
að fjalla um eigi ekki við hér á
landi. „Þar er til að mynda verið
að tala um að menn eigi að hafa
samband við sérstakar nefndir ef
þeir taka við störfum hjá stórfyr-
irtækjum, eftir að þeir láta af
embætti ráðherra. Það hefur ekki
tíðkast hér. Þvert á móti þykir
mönnum sjálfsagt hér á landi að
stjórnmálamenn eigi helst ekki að-
gang að neinni vinnu, eins og ég sá
í grein Þorvaldar Gylfasonar á
dögunum," segir Davíð.
Hætt að gefa stórar gjafír
Davíð segir að gjörbreyting hafi
orðið hér á landi frá því sem áður
var á að ráðherrum væru gefnar
stórar gjafir. „Það er hætt að gefa
þessar gjafir sem gefnar voru fyrir
áratugum. Ég get nefnt sem dæmi
að þegar Gro Harlem Brundtland
hann konunni minni slæðu og mér
ermahnappa. Núorðið er þetta í
þessum dúr,“ segir Davíð.
„En um leið og Blair er að setja
þessar reglur hjá sér má sjá í er-
lendum blöðum að hann getur ver-
ið niðri á Italíu í höllum vina sinna,
sem láta fljúga með kokka og þjón-
ustufólk á staðinn. Það flokkast
ekki undir þessar 16 þúsund króna j
gjafir að hámarki sem þeir setja |
reglur um. Þetta er því allt dálítið
sérkennilegt og sérstakt,“ segir j
Davíð.
„Við sjáum einnig frá írlandi að j
þar eru menn að velta fyrir sér >
hvort eigi að lögsækja forsætisráð-
herra sem hefur þegið gjafir upp á
120 milljónir, vegna þess að hann |
gaf þetta ekki upp til skatts. Það |
yrði vonandi ekki hik á mönnum j
hér á landi ef einhver forsætisráð- j
herra fengi 100 milljónir að gjöf og :
gæfi það ekki upp til skatts. Þetta ;
sýnir hvað þetta er allt framandi
og á illa við hér á landi,“ sagði Dav- j
íð að lokum.
Morgunblaðið/Golli
Arnar Jensson um „Furugrundarmálið“
Fór hefðbundna leið
úr fíkniefnadeild
ARNAR Jensson, aðstoðaryfírlög-
regluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra
og fyrrverandi lögreglufulltrúi í
fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík, segir í grein sem birt er
á blaðsíðu 35 í blaðinu í dag að svo-
nefnt Furugrundarmál, sem snerist
um 200 grömm af hassi sem Frank-
lín Steiner játaði fyrir lögreglu að
hafa átt og 200 grömm af am-
fetamíni, hafi verið fullrannsakað og
hafi farið hefðbundinn og eðlilegan
farveg út úr fíkniefnadeild í hendur
þess aðila innan embættis lögregl-
unnar í Reykjavík sem tók ákvarð-
anir um afgreiðslu mála, s.s. niður-
fellingu eða framsendingu til
ákæruvalds eða dómstóla.
Orðrétt segir í greinargerð Am-
ars: „Ég tek undir það að hafi þetta
mál ekki borist dómstólum er það
grafalvarlegt mál en hvorki lögreglu-
fulltrúinn í fíknieínadeildinni né aðrir
rannsóknarar þar báru ábyrgð á af-
drifum fullrannsakaðra mála, niður-
fellingum, ákæru- eða dómsmeðferð,
það höfðu aðrir starfsmenn embætt-
isins með höndum. Asakanir Hrafns
[Jökulssonar] í minn garð eru því út í
hött og ég held meira að segja að
hann viti það sjálfur."
Málið gekk ekki til dóms en Arn-
ar segist fyrst hafa frétt af þessari
stöðu málsins þegar honum var tjáð
það í rannsókn Atla Gíslasonar,
setts rannsóknarlögreglustjóra til
að rannsaka samskipti fíkniefnalög-
reglu við Franklín Steiner.
Böðvar Bragason lögreglustjóri |
sagðist í samtali við Morgunblaðið
ekki telja rétt að ræða þessi mál
meðan beðið væri niðurstöðu ríkis-
saksóknara en ríkissaksóknari hef-
ur nú rannsóknarskýrslur Atla
Gíslasonar til meðferðar og ákvörð-
unar um framhald málsins.
Guðjón St. Marteinsson, fyrrver-
andi deildarlögfræðingur fíkniefna- |
mála hjá lögreglustjóranum í J
Reykjavík og héraðsdómari í I
Reykjavík, sagðist í samtali við |
Morgunblaðið ekki vita annað um
Furugrundarmálið en að sér skild-
ist að það hefði komið upp um það
leyti sem hann hætti störfum hjá
embætti lögreglustjóra um áramót-
in 1988-1989.
Kalli kan-
ína slapp
ÞESSIR strákar voru að byggja
kofa í Grafarvogi í gær fyrir
nokkrar kanínur sem þeir halda. í
miðjum byggingaframkvæmdun-
um slapp ein þeirra, sem kölluð er
Kalli, frá þeim og hélt á vit ævin-
týranna. Kalli gegnir þó ekki nafni
sínu og þurftu strákarnir að hafa
mikið fyrir því að handsama hann
og koma honum í hin nýju híbýli
sín.
-------------
Veist að
unglingspilti
VEIST var að unglingspilti í Voga-
hverfi í gærkvöldi. Pilturinn var
fluttur á slysadeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur þar sem hann gekkst
undir rannsókn, en samkvæmt upp-
lýsingum frá slysadeildinni eru
meiðsli hans ekki talin alvarleg.
Málið er í rannsókn.
Hörð deila risin milli borgarinnar og Framsóknar vegna ræstinga í skolum
Skólahald fyrir 14 þúsund
grunnskólanema gæti lamast
FÉLAGSKONUR í Verkakvennafélaginu Fram-
sókn sem gegnt hafa ræstingastörfum í skólum
borgarinnar ætla ekki að mæta til starfa frá og
með 1. september nema búið verði að leysa deilu
sem uppi er milli félagsins og Reykjavíkurborgar
um breytingar á ræstingum og öðrum störfum
borgarinnar. Rúmlega 14.000 nemendur eiga að
mæta í grunnskóla borgarinnar næstkomandi
mánudag en ljóst er að skólahald mun lamast ef til
verkfalls ræstingakvennanna kemur, skv. upplýs-
ingum Gerðar G. Óskarsdóttur, fræðslustjóra.
Hún sagðist þó ekki geta sagt til hvenær skólamir
myndu stöðvast ef hreingemingar legðust niður.
Deilan snýst um störf og félagsaðild svokall-
aðra skólaliða sem er nýtt starf í þremur grunn-
skólum sem gert hefur verið ráð fyrir að greiði
félagsgjöld til Starfsmannafélags borgarinnar.
Störf skólaliða voru áður unnin af starfsmönnum
skóla, gangavörðum, baðvörðum o.fl. sem vom í
Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar og ræst-
ingafólki, sem var í Framsókn. Framsókn sendi
öllum skólastjómm gmnnskóla í borginni bréf í
gær þar sem þeir eru hvattir til að sjá til þess að
ekki verði gengið í störf starfsmanna félagsins í
skólunum.
Val um félagsaðild
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri seg-
ist ætla að beita sér fyrir því að ágreiningur um
félagsaðild skólaliða verði leystur með því að
starfsmennirnir, sem hafa ráðið sig í störf skóla-
liða og em félagsmenn í Framsókn, geti haldið
áfram að greiða stéttarfélagsiðgjöld sín þangað.
Hún segist ekki geta fallist á þá skoðun Fram-
sóknar að félagið hafi forgang að þessum störfum
því hér sé um ný störf að ræða.
Ingibjörg Sólrún sagði að samþykkt Fræðslu-
ráðs væri í 10 liðum og aðeins einn liður fjallaði
um ræstingu. Hinir fjölluðu um margháttaða að-
stoð við nemendur og kennara í daglegu skóla-
starfi.
„Þama var verið að slengja saman tveimur
ólíkum störfum. Þannig var að vinnumagnið var
meira Starfsmannafélags megin og stöðugilda-
fjöldinn sömuleiðis. Einstaklingarnir vom hins
vegar fleiri í Framsókn, sem vom í tímamældri
ákvæðisvinnu við ræstingar. Það varð því niður-
staðan að semja við Starfsmannafélagið um þessi
störf. Ef við hefðum samið við Framsókn værum
við hugsanlega í þessari deilu við Starfsmannafé-
lagið.“