Morgunblaðið - 28.08.1997, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 1997 21
ERLENT
Reuter
Hagsmunasamtök
flytja til Berlínar
Nýkomin so-ndiny a!
Hja okkur eru Visa- og
Euro-raösamningar
ávísun á staðgreiðsiu
usgogn
Armúla 8 - 108 Reykjavík
Sími 581-2275 ■ 568-5375 ■ Fax 568-5275
HELMUT Kohl, kanzlari Þýzka-
lands, leggur hér með hjálp Eber-
hards Diepgen, borgarstjóra Berlín-
ar, og ónafngreinds byggingaverka-
manns hornsteininn að nýjum höf-
uðstöðvum hagsmunasamtaka at-
vinnurekenda. Þau munu öll flytja
skrifstofur sínar frá Bonn til Berlín-
ar samtímis ráðuneytum ríkisstjórn-
arinnar árið 1999.
Klaus Töpfer, byggingamálaráð-
herra þýzku stjórnarinnar, greindi
frá því í gær að kostnaður við flutn-
ing stjórnarsetursins frá Bonn til
Berlínar 1999 muni að líkindum
verða um einum og hálfum milljarði
marka lægri (um 60 milljörðum
króna) en áætlanir hafa hingað til
gert ráð fyrir. „Átján og hálfur
milljarður [marka] sýnist mér vera
raunhæf upphæð,“ sagði ráðherr-
ann í viðtali við Berliner Zeitung.
Heildarkostnaður við flutningana
hafði áður verið áætlaður um 20
milljarðar marka, eða um 800 millj-
arðar króna. Töpfer sagði mögulegt
að notast verði við meira húsnæði
sem þegar er fyrir hendi í Berlín
en upprunalega hafði verið reiknað
með. Kanzlarinn sjálfur hefur fallizt
á að verði nýja kanzlarahöilin
steinsnar frá Brandenborgarhliðinu
ekki tilbúin á réttum tíma 1999
geti hann flutzt tímabundið í austur-
þýzku stjórnarráðsbygginguna í
gömiu miðborg Berlínar, þar sem
Erich Honecker, leiðtogi Austur-
Þýzkalands, hafði sitt embættisað-
setur.
Svíar og
Frakkar í
hár saman
SÆNSK stjórnvöld hafa miklar
áhyggjur af innflutningi á salmon-
ella-smituðu kjöti frá Frakklandi og
íhuga að taka aftur upp heilbrigði-
seftirlit á frönskum kjötinnflutningi.
Rannsóknir hafa leitt í ljós að rúm-
lega helmingur alls salmonella-smit-
aðs kjöts, sem berst til Svíþjóðar
kemur frá Frakklandi. Því hefur
sænska matvælaeftirlitið í hyggju
að heíja eftirlit með innflutningnum
að nýju en það var fellt niður er
Svíar gengu í Evrópusambandið.
„Annars staðar í heiminum elda
menn matinn þannig að hitinn drepur
salmonelluna," sagði Francois Aillet,
landbúnaðarfulltrúi franska sendi-
ráðsins í Stokkhólmi við Svenska
Dagbladet.
Annika Ahnberg landbúnaðrráð-
herra Svíþjóðar hyggst taka málið
upp í ráðherraráði ESB og hefur rit-
að hinum franska kollega sínum
harðort bréf. „Ég er ekki reiðubúin
að gefa eftir í þessu máli. Ummæli
franska landbúnaðarfulltrúans eru
dæmigerð fyrir það kæruleysi er virð-
ist einkenna meðhöndlun þeirra á
málinu.“
íS
KRINGLUNNI - LAUGAVEGI 66
L