Morgunblaðið - 28.08.1997, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 1997 23
ALLTAF FETI
FRAMAR
BMW 3 línan með ABS sem staðalbúnað
VERÐ FRÁ 2.288.000
B&L Suðurlandsbraut 14, sími 553 8636
o
ERLENT
Tilnefna
Brundtland
sem for-
stjóra WHO
Ósló. Morgunblaðið.
NORSKA stjómin tilnefndi í gær Gro
Harlem Brundtland, fyrrverandi for-
sætisráðherra, til embættis forstjóra
Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar
(WHO, sem hefur aðsetur í Genf.
Brundtland er læknir að mennt og
með meistaragráðu í heilsugæslu-
fræðum. Hún fær harða keppni um
starf það sem Japaninn Hiroshi
Nakajima nú gegnir. Pakistanar
bjóða fram Nafis Sadik, sem stjórnar
mannfjöldaáætlun Sameinuðu þjóð-
anna (SÞ), en hár aldur gæti þó unn-
ið gegn honum. Bólivíumenn leggja
til Fernando Antezana Aranibar, nú-
verandi aðstoðarforstjóra WHO, og
Gambía tilnefnir Ebrahim Samba
sem er svæðisstjóri WHO í Afríku.
Gro Harlem Brundtland segist
myndu stjórna WHO í anda þess að
heilbrigðir og vel menntaðir íbúar
séu stærsta auðlind hverrar þjóðar.
Stjórn stofnunarinnar mun í janúar
nk. gera tillögu um hvern hún kýs
sem eftirmann Nakajimas og fer síð-
an atkvæðagreiðsla um nýjan for-
stjóra stofnunarinnar fram á aðal-
fundi hennar í maí 1998.
Fyrir þá sem vilja ná lengra...
+ þá er núna rétti tíminn til að margfalda lestrarhraðann...
+ þá er núna rétti tíminn til að stórauka námsgetuna...
þá er núna rétti tíminn til að auka vinnuaflcöstinn.
Ef þú vilt ná lengra, skaltu skrá þig strax á næsta hrað-
lestrarnámskeið sem hefst 28. ágúst. Lestrarhraði þátt-
takenda fjórfaldast að jafnaði. Við ábyrgjumst árangur!
Skráning er í síma 564-2100.
HRAÐLJESrnRARSKÓLINN
Börnum haldið heima í Tana í N-Noregi
Foreldrar mótmæla
samískri kennsluskrá
NOKKRIR tugir foreldra í bænum
Tana í Norður-Noregi hafa haldið
bömum sínum heima undanfarna
daga vegna deilna um kennslu í sa-
mísku máli og menningu í barnaskól-
um á svæðinu. Telja foreldrarnir
vægi samískunnar allt of mikið og
krefjast þess að dregið verði úr því,
að því er fram kemur í Aftenposten.
Yfirvöld í menntamálum settu for-
eldrunum úrslitakosti í gær, að þeir
hlíttu ströngum lagasetningum sem
gilda um heimakennslu, eða sendu
börnin í skólann.
Tana er í Finnmörku og hefur
lengi verið deilt um hvort að bærinn
teljist samískur eður ei. Foreldrafé-
lög í þremur skólum, svo og sveita-
stjórnin samþykktu fyrr í ár að fylgt
yrði norskri kennsluskrá í grunn-
skólum í Tana en menntamálaráðu-
neytið ógilti þá ákvörðun og úrskurð-
aði að Tana væri samískt sveitarfé-
lag og þar ætti því að fylgja sam-
ískri kennsluskrá.
„Við erum norsk, við búum í Nor-
egi og viljum að börnin okkar læri
norskt mál og um norska menn-
ingu,“ segir Jan Olsen sem er í for-
svari fyrir samtökin „Samaland nei
takk - Finnmörk fyrir alla“. Gripu
foreldrarnir til þess ráðs að kenna
börnunum heima í þessari viku í
mótmælaskyni. Ekki er ljóst hversu
mörgum börnum er haldið heima,
yfirvöld segja þau 25, foreldrarnir
fullyrða að þau séu 50-60. Olsen
segir samtökin ekki vilja ganga svo
langt að skipta Finnmörku í tvennt,
á milli Norðmanna og Sama, en
minnir á að eitt af baráttumálum
þeirra sé að þing Sama í Noregi
verði lagt niður. Framfaraflokkurinn
norski hefur lýst yfir stuðningi við
baráttu foreldranna.
Allianz_____________
eftirlaunasparnaður
Hefur þú
eitthvað að hlakka til
í ellinni, eins og Páll?
Hafðu samband og
kannaðu hvernig dæmið
gæti litið út hjá þér.
PjII hót cftirlaunasparnað hja Allian; 30 ára
gamall og hyggst lcycia ul hliðav 10.000 kr. a manuði.
Auk þcirrar :it öxtunar scm hann a i vændum cr
liann, mcú þcssu sparnaðartormi. littrvggður tyrir
5.010.120 kr.' \ ið upphat samnings.
' Mcð þvi að b.vt.i við ’.ict: tipph.vð. stctut' r.síl tvöta:.J..ið •
wtnvcl þvctaidað uppluvð Itttt yggtngarinnat.
Ivgar Páll vcrður 62 ara a hanrt von a 10. 1.4S0
krðnum i skatUrjálsri cinyrciðslu, scm cr á.vtluð avðxu:
tramtiðar. tt hann kvs hins vcyai að avaxta upph.A'ðma.
lengut . a hann von a..
Allianz (B)
Stðumula 32, simi 5SS 3060
Dæml þetta miðnst við að aldur trvagingartaka er 30 ar við upphaf sofnunar og reiknað er með ,ið tiann gretði 10 000 kr. a maiuiði
Reiknað er eftir verðskra Ailianz i:m Abruftarif 5 ar. Gengi marksins miðast við 1 ÐM ■ 40 kr
Ofangreindar tólur byggiast a útreiknlngum framtiðaravoxtunnr tija Alliam
11.712.600 kr. 63 ára
eða 12.726.320 kr. 64 ára
eða 13.818.080 kr. 65 ára
eða 13.914.000 kr. 66 ára
eða 16.260.480 kr. 67 ára