Morgunblaðið - 28.08.1997, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 1997 39
Fyrsta alþjóðasýning á vest-
urströnd Bandaríkjanna
HÉR sjást menn í langri biðröð á leið að sölubás póststjórnarinn-
ar i Hong Kong.
FRÍMERKI
San Francisco
PACIFIC 97
150 ár eru liðin frá útgáfu fyrstu
frímerkja Bandarílqanna.
EINS og fram kom í síðasta
þætti, voru á liðnu vori haldnar
tvær alþjóðafrímerkjasýningar,
NORWEX 97 og PACIFIC 97, þar
sem íslenzkir frímerkjasafnarar
voru þátttakendur. Nú verður í
þessum þætti fjallað nokkuð um
seinni sýninguna, sem fram fór
vestur á Kyrrahafsströnd Banda-
ríkjanna.
Dagana 29. maí til 9. júní var
haldin i San Francisco vegleg al-
þjóðafrímerkjasýning til þess að
minnast þess, að 150 ár eru liðin
frá því, er fyrstu frímerki Banda-
ríkjanna voru gefin út með mynd-
um af tveimur forsetum þeirra, 5
centa frímerki af Benjamín
Frankiín og 10 centa frímerki af
George Washington
Höfundur þessara frímerkja-
þátta Mbl. var umboðsmaður
PACIFIC 97 hér á landi, en jafn-
framt þátttakandi í sýningunni.
Þess vegna var haldið fiugleiðis
vestur um haf og yfir þver Banda-
ríkin og verið á sýningunni, meðan
hún var opin.
Sýningarhöllin er í miðri borg
og heitir Moscone Center. Er hún
svo nálægt þeim hótelum, sem
okkur var komið fyrir á, að ekki
varð betur á kosið. Er þessi bygg-
ing stór og mikil og einkar þægi-
leg í alla staði, enda nýleg og
auðsæilega hönnuð fyrir margs
konar sýningar. Var allt skipulag
og aðbúnaður á PACIFIC 97 með
miklum ágætum. Mátti ljóst vera,
að margra ára undirbúningur sýn-
ingarnefndar hefur skilað sér vel.
Á PACIFIC 97 varð fjöldi sýn-
ingarramma um 3.600, en hafna
varð rúmlega 4.000 römmum. Af
þessu má ljóst vera, hversu erfitt
getur verið að komast að með
sýningarefni á stórsýningar. Þrátt
fyrir tilraunir mínar reyndist t.d.
ekki unnt að koma héðan nema
tveimur söfnum á sýninguna.
Annað safnið átti Indriði Páls-
son, en það er íslenzkt safn frá
1836-1902, þar sem hann rekur
póstþjónustu á Islandi með ums-
lögum og stimplum fyrir daga frí-
merkja hér á landi. Síðan frá 1870
með dönskum og íslenzkum frí-
merkjum, bæði stökum, í tvennd-
um og ijórblokkum og eins á bréf-
um til loka aurafrímerkjanna árið
1902. Er þetta tvímælalaust hið
bezta íslenzka frímerkjasafn, sem
nokkurn tímann hefur verið sett
saman frá þessu tímaskeiði, enda
hlaut það að sjálfsögðu gullverð-
laun.
Hitt safnið átti greinarhöfund-
ur, en það er safn danskra tvílitra
frímerkja, sem notuð voru í Dan-
mörku frá 1870 og fram yfir síð-
ustu aldamót. Eru frímerkin sýnd
í flestum prentunum og eins öll
verðgildi þeirra á bréfum. Hefur
þetta söfnunarsvið verið einkar
vinsælt meðal safnara, ekki sízt
danskra, og margir hlutir í því
mjög torgætir, ef langt er til seilzt
í söfnuninni. Fékk safnið stór gyllt
silfurverðlaun. Er það mjög góður
árangur á alþjóðasýningu. Því
verður ekki heldur neitað, að í
þessu safni er saman komið flest
það, sem skiptir verulegu máli í
sambandi við þessa skemmtilegu
útgáfu.
Sýningin var í kjallara sýn-
ingarhallarinnar, sem er loftkæld-
ur, og var flugrúmt milli sýningar-
rammanna. Þá var þarna einvörð-
ungu rafmagnslýsing, mjög góð,
svo að engin hætta var á upplitun
frímerkja af völdum dags- eða
sólarljóss. Eins var aðstaða frí-
merkjakaupmanna og póststjóma
mjög góð og merkingar allar í
salnum þess eðlis, að auðvelt var
að rata, þegar menn höfðu áttað
sig á þeim. Kom það sér líka vel
í þessu mikla flæmi, sem lagt var
undir sýninguna.
Aðsókn að PACIFIC 97 var
ótrúlega mikil eða rúmlega 100
þús. manns. En vegna þess, hversu
rúmt var um rammana, urðu menn
ekki svo mjög varir við mannfjöld-
ann. Helzt varð það þá í kringum
bása kaupmanna og póststjórna,
enda er ljóst, að margur safnarinn
notfærir sér frímerkjasýningar til
þess að viða að sér efni í söfn sín.
Mynduðust oft biðraðir hjá sumum
póststjórnum, þó hvergi eins og
hjá Hong Kong, enda mikil breyt-
ing að verða þar í póstmálum sem
og öðrum málum, svo sem alkunna
er.
Af sjálfu sér leiðir, að sýningar-
efni var mjög fjölbreytt. í póst-
sögulegu deildinni voru 144 söfn,
í hefðbundnu deildinni 82 söfn.
Þá voru 25 söfn með stimpilmerki
og þess háttar efni, en söfnun
þeirra er mjög algeng í Ameríku.
I bókmenntadeild voru 244 bæk-
ur, stórar og smáar. Er ljóst, að
mikið er skrifað um frímerki og
annað, sem þeim tengist. Mátti sjá
þar mjög vandaðar og fallegar
bækur um hin margvíslegustu
efni.
Eitt var það, sem vakti sérstaka
athygli okkar Indriða Pálssonar.
Það voru sýningarrammamir.
Urðum við mjög hrifínir af því,
hversu auðvelt var að koma blöð-
unum fyrir og síðan loka römmun-
um. Hið sama gildir um niðurtekn-
ingu safnanna. En það, sem snýr
þó helzt að sýningargestum, er
það, hversu þægilegt er að horfa
á frímerki og umslög á neðstu
blöðum rammanna. Er það vegna
þess, að þeir eru hallandi á stat-
ífunum. Rammarnir, sem við
þekkjum bezt, eru hins vegar bein-
ir niður. Af því leiðir, að menn
verða næstum því að bogra við
að skoða neðsta efnið. Loks virðist
læsing þessara ramma bæði traust
og auðveld. Þá eru þeir úr létt-
málmi og því auðveldir í meðför-
um.
Ég tel sjálfsagt, að Landssam-
band íslenzkra frímerkjasafnara
og Póstur og sími kynni sér þessa
ramma nánar og fái a.m.k. sýnis-
horn til skoðunar. Því segi ég frá
þeim hér í þættinum.
Meðan á sýningunni stóð, voru
á hverjum degi haldnir í hliðarsöl-
um fundir ýmissa nefnda FIP og
eins frímerkjaklúbba.
Vönduð sýningarskrá var gefin
út með margvíslegu efni.
Virtist í engu hafa verið til spar-
að, að allt færi sem bezt og skipu-
legast fram á PACIFIC 97. Enginn
aðgangseyrir var að sýningunni,
og hefur það vafalaust ekki dregið
úr aðsókninni. Er það sama
reynsla og við þekkjum héðan úr
fámenni okkar.
Jón Aðalsteinn Jónsson.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, er
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför konu minnar, móður okkar og ömmu,
VILBORGAR JÓNU
SIGURJÓNSDÓTTTUR.
Jón Pálsson,
Steinunn E. Jónsdóttir, Hallgrímur Hallgrímsson,
Pálmar Jónsson,
Þorsteinn Jónsson, Sólveig H. Þorsteinsdóttir,
Unnar Jónsson, Ingibjörg A. Brynjarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og hlý-
hug við andiát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
STEINGRÍMS NIKULÁSSONAR
matsveins,
Þórufelli 20.
Svala Þyri Steingrímsdóttir, Heimir Gíslason,
Þórarinn Smári, Elínbjörg Stefánsdóttir,
Jónína Steiney Steingrímsdótttir, Helgi fvarsson,
Annie K. Steingrímsdóttir,
Margrét Lísa Steingrímsdóttir, Helgi Þorgils Friðjónsson,
Nikulás Ásgeir Steingrímsson,
Friðfinnur Árni Steingrímsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
ATVINNUAUGLÝSiNGAR
Staða
framkvæmdastjóra
við Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðina á
Patreksfirði erlaustil umsóknar. Umsækjandi
skal hafa lokið háskólaprófi í viðskiptafræði
eða hafa sambærilega menntun.
I Launakjör eru samkvæmt úrskurði kjaranefnd-
i ar um störf framkvæmdastjóra sjúkrahúsa
ríkisins. Framkvæmdastjóri erskipaðuraf
I ráðherra til 5 ára í senn.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu, Laugavegi 116, 150 Reykja-
vík, eigi síðar en 29. september nk. Öllum um-
sóknum mun verða svarað þegar ákvörðun
liggur fyrir. Nánari upplýsingar um starfið eru
veittar í heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytinu í síma 560 9700.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
27. ágúst 1997.
Saumakonur
Saumastofa verslunarinnar Sautján óskar
eftir vönum saumakonum sem fyrst í
framleiðslu.
Einnig vantar saumakonur í breytingar.
Nánari upplýsingar gefa Yvonne og Lovísa
í síma 511 1719 í dag og á morgun.
Þverflautukennari
Tónlistarskóli Stykkishólms óskar að ráða þver-
flautukennara sem allra fyrst.
Nánari upplýsingar gefa formaður skólanefnd-
ar, Jóhanna Guðmundsdóttir, í síma 438 1322
og Daði Þór Einarsson, skólastjóri, í síma
438 1565 heima og í síma 438 1661 í Tónlistar-
skólanum.
Götugrillið
óskar eftir starfsfólki í sal og eldhús í 50 og
100% vinnu. Verður að geta byrjað strax.
Upplýsingar í síma 564 3421 eða 898 5403.
Afgreiðslustörf
Hressir starfskraftar óskast í hálfs- og heils-
dagsstörf í dömuverslun í Kringlunni.
Aldur 25—45 ára.
Upplýsingarsendisttil afgreiðslu Mbl. merktar:
„Hressar — 52421", fyrir 1. september nk.
Grunnskólar ísafjarðarbæjar
Suðureyri
Kennarar!
Einn kennara vantartil starfa næsta skólaár.
Um er að ræða kennslu í 4.-7. bekk. Við bjóðum
flutningsstyrk, lága húsaleigu og launauppbót.
Umsóknarfrestur ertil 30. ágúst.
Nánari upplýsingar gefur skólastjóri í síma
456 6119 (heima) og 456 6120 (skóli).
Launadeild
Starfsmann vantar strax í 50% vinnu í launa-
deild. Þarf að hafa reynslu í tölvufærðu launa-
bókhaldi.
Umsóknir óskast sendar fyrir 5. september nk.,
merktar: „G — 1906".
Tvo vana menn
vantará hjólbarðaverkstæði í Reykjavík strax.
Góð vinnuaðstaða og öruggt vinnuumhverfi.
Mötuneyti á staðnum.
Vinsamlegast sendið umsóknirtil afgreiðslu
Mbl. fyrir9. september, merktar: „H — 123".