Morgunblaðið - 28.08.1997, Qupperneq 44
MORGUNBLAÐIÐ
44 FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 1997
Heildarjóga (grunnnámskeíð)
Námskeið fyrir þá sem vilja kynnast jóga.
Kenndar verða hatha-jógastöður, öndun,
slökun og hugleiðsia.
Einnig er fjallað um jógaheimspeki, mataræði
o.fl. Þri. og fim. kl. 20.00. Hefst 7. september.
Leiðbeinandi: Daníel Bergmann.
■
H
Y0GA$>
KANARI
veisla Heimsferða
í vetur frá kr.
39.932
Fáðu spennandi ferðaáætlun Heimsferða til
Kananeyja og Brasilíu í vetur í beinu vikulegu
flugi. Aldrei fyrr hafa viðtökumar verið svona
stórkostlegar, nú þegar uppselt á mörgum
gististöðum og jólaferðin 23. desember uppseld.
Þú getur valið um þá ferðalengd sem þér best
hentar og nýtur þjónustu okkar reyndu fararstjóra
á meðan á dvölinni stendur. Beint flug með
glæsilegum Boeing 757 vélum án millilendingar
og við kynnum nú
Fyrstu ferðirnar
uppseldar
Nú eru fyrstu
ferðirnar
uppseldartil
Kanarí í vetur og
aldrei fyrr hefur
jafnmikiö veriö
bókað.
Sabusttax
20.000 w.
4S5íB5«-
10.000 W.
glæsilega nýja gististaði í hjata
Ensku strandarinnar og verðið hefur
aldrei verið lægra en nú í vetur.
Lenamar Gististaðir á ensku ströndinni.
Verðlækkun frá því í fyrra
39.932
Verð kr.
Vikuferð til Kanarí 30.des., hjón með 2 börn,
Tanife.
Verð kr.
49.932
Ferð í 3 vikur, 13.janúar, m.v. hjón með 2
börn, Tanife ef bókað er fyrir lö.sept.
Verð kr. 64■ 960
M.v. 2 í smáhýsi, Green Sea, 3. mars, 2 vikur
ef bókað er fyrir 16. sept. Innifalið í verði.
Flug, gisting, ferðir til og frá flugvelli, íslensk
fararstjórn, flugvallarskattur.
Fdðu baklinginn
sendan fyrir
I6.sept,
Brottfarir
í vetur
Veldu ferðina scm
hentar þér best
22. október
18. nóvember
16. desember
23. desember -
uppselt
30. desember
6. janúar
13. janúar
3. febrúar
10. febrúar
24. febrúar
3. mars
17. mars
24. mars
31. mars
7. apríl
14. apríl
21. aprfl
Sigurður
Austurstræti 17,2. hæð • Sími 562 4600 Guðmundsson
IDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-13 frá mánudegi til föstudags
Vonbrigði
MIKIÐ var ég búin að
hlakka til, loksins átti að
fara til að sjá Evítu með
hinum snjöjlu íslensku flytj-
endum. í miðri viku
snemma dags hringdi dóttir
mín og pantaði ijóra miða
á sýninguna sunnudaginn
24. ágúst. Henni var tjáð
að til væru stúkumiðar
uppi, ágætt sagði hún, við
tökum þá. Svo var gengið
frá greiðslu með korti
þarna í símanum fyrir fjóra
ntiða sunnudaginn 24. ág-
úst. Við fórum snemma að
heiman eða um klukkan
sex. Það átti að borða úti,
gera þetta að hátíðlegu
Evítu-kvöldi en fyrst var
stoppað við Gamla bíó og
miðarnir sóttir. Laust fyrir
klukkan átta erum við
komin aftur og ætlum inn.
En þegar miðamir eru rétt-
ir að dyraverði segir hann,
þessir gilda ekki núna held-
ur laugardaginn 30. ágúst.
Hann vísar okkur inn að
tala við fólkið í miðasöl-
unni. Þar er sagt, já því
miður, þið eigið enga aðra
miða en þessa næsta laug-
ardag. Eftir nokkurt þóf
og andmæli frá dóttur
minni, og mér þykir það
leitt frá miðasölustúlkunni,
fékk hún okkur til að taka
við miðum á 15. bekk niðri,
hægra megin. Og marg-
bauð okkur rauðvín, fáið
ykkur rauðvín, það átti víst
að bæta okkur skaðann.
En þegar við vorum sest
varð okkur ljóst að við
myndum sama og ekkert
sjá af sýningunni svo við
stóðum upp aftur og fóram
fram. Dóttir mín fékk mið-
ana endurgreidda því laug-
ardaginn 31. ágúst getur
hún alls ekki farið. En það
er vegna anna. Svo að við
missum þvl miður af þess-
um góða söngleik. En
hvemig miðar á sýningu
sunnudag 24. ágúst geta
breyst í miða laugardag 30.
ágúst þætti mér gaman að
vita því fyrr má nú gera
mistökin. Og ekki þáðum
við rauðvínið.
Elín.
Blossi og slæmar
fyrirmyndir
KRISTÍN skrifaði harðort
bréf sem beint var til okk-
ar, aðstandenda myndar-
innar Blossi/810551. Meg-
ininnihaldi bréfsins varði
Kristín í að tala um að
dreift hefði verið póstkorti
á okkar vegum með mynd
af þekktum handbolta-
kappa að neyta_ eiturlyfja.
Þetta er rangt. Á umræddu
póstkorti sést Úlfur, sögu-
persóna úr Blossa/810551
neyta eiturlyfla. Það_ vill
hins vegar svo til að Úlfur
er leikinn af þekktum hand-
knattleikskappa, Finni Jó-
hannssyni. Kristín gerir
þau mistök að rugla saman
leikara og sögupersónu,
sem eru skiljanleg og al-
geng. Á þeim forsendum
tóku aðstandendur kvik-
myndarinnar Blossi/
810551 kortið úr umferð.
Það er alls ekki markmið
aðstandenda Blossa að
hvetja ungt fólk til eitur-
lyflaneyslu, heldur einmitt
öfugt eins og kemur skýrt
fram í myndinni.
Aðstandendur
Blossa/810551.
ÍRIS hafði samband við
Velvakanda og vildi hún
vita hvort einhver hefði
tekið upp þátt sem var í
Ríkissjónvarpinu mánu-
daginn 25. ágúst kl. 20.30
og er franskur framhalds-
myndaflokkur sem heitir á
íslensku Blómaflóð. Þeir
sem gætu liðsinnt henni eru
beðnir að hringja í
Irisi í síma 587-8187.
Tapað/fundið
Regnhlífar
í óskilum
HJÁ upplýsingaþjónustu
Ráðhúss Reykjavíkur eru
margar regnhlífar í óskil-
um eftir Menningarnótt
16. ágúst sl. Þeir sem
gætu átt regnhlífar þar eru
vinsamlega beðnir um að
sækja þær í upplýsinga-
þjónustuna.
Karlmanns-
reiðhjól
fannst
KARLM ANN SREIÐ-
HJÓL, svart, 18 gíra,
fannst í síðustu viku við
Seilugranda. Uppl. í síma
561-4442.
Gleraugu
í óskilum
GLERAUGU, mjög sér-
stök, brotin saman í miðju,
fundust í Hafnarfirði á
milli Einarsbúðar og Hafn-
arfjarðarkirkju sl. föstu-
dag. Eigandi getur fengið
upplýsingar í síma
555-2557 eftir kl. 17 á
daginn.
Dýrahald
Kettlingur óskar
eftir heimili
8 VIKNA loðinn, grár og
hvítur, kettlingur óskar
eftir góðu heimili. Uppl. í
síma 552-7949.
SKAK
Umsjön Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á
franska meistaramótinu
sem nú stendur yfir í Nar-
bonne. Marc Santo-Roman
(2.385) var með hvítt og
átti leik gegn B. Lepelleti-
er (2.480)
17. Bxh5! - gxh5 18. Rf5!!
- exf5 19. Bxb6 - Dd7
(Eða 19. - Dxb6 20. Rd5
- Dd8 21. Rf6+ og vinn-
ur.) 20. Rd5 - He6 21.
Rf6+ - Hxf6 22. gxf6 -
Bh6 23. Dxh5 og svartur
gafst upp.
Staðan á mótinu var
þessi, þegar tefldar höfðu
verið níu umferðir af 13:
1.-3. Christian Bauer,
David Marciano og Anatoly
Vaiser 6‘A v., 4. Eloi Re-
lange 6 v., 5. Darko Anic
5/2 v. o.s.frv.
Yngsti stórmeistari
heims, Etienne Bacrot, 14
ára, er ekki með að þessu
sinni.
HVITUR leikur
og vinnur.
Víkveiji skrifar...
MYND á baksíðu Morgunblaðs-
ins sl. fimmtudag af drengj-
um í vatnsbyssuleik vakti athygli
nokkurra lesenda blaðsins sem
töldu að þarna væri óvarleg fyrir-
mynd að óæskilegum leik þar sem
grínast var með hvort ekki mætti
skola úr eyrunum með slíku tæki.
Víst eru vatnsbyssur kannski ekki
hentugasta tækið til slíks en háls-,
nef- og eyrnalæknir sem Víkveiji
bar þetta undir taldi vatnsbyssur
ekki stórhættulegar eyrum - frekar
væru þær varasamar fyrir augu.
Hlustin væri nefnilega bogin þannig
að jafnvel þótt sprautað væri inní
eyra ætti það ekki að valda skaða.
Við getum því áfram litið á vatns-
byssur sem skemmtilegt leikfang
og sjálfsagt að nota þær í saklaus-
um hrekkjum eða venjulegum
vatnsslag við náungann. En um
leið mætti minna á varnaðarorð
læknisins (þótt ekki sé „réttur“ árs-
tími) að kínveijar eru stórhættuleg-
ir fyrir heyrnina og hreint engin
leikföng.
XXX
LOKIN á Islandsmótinu í knatt-
spyrnu ætla að verða æsi-
spennandi bæði í karla- og kvenna-
flokki. Breiðablik hefur undanfarin
ár verið með langbezta liðið í
kvennaflokki en hefur í sumar feng-
ið mikla keppni frá KR, sem stend-
ur reyndar betur að vígi fyrir loka-
slaginn. Gaman verður að fylgjast
með því hvort KR tekst að ijúfa
margra ára sigurgöngu Breiðabliks.
Þá verður ekki síður spennandi
að sjá hvort einhveiju Iiði tekst að
ijúfa margra ára sigurgöngu Akur-
nesinga í karlaflokki. Staða Eyja-
manna er óneitanlega sterk, því
þeir hafa þriggja stiga forystu þeg-
ar fjórum umferðum er óiokið.
En ekki er allt sem sýnist, því
Eyjamenn eiga eftir tvo mjög erfiða
útileiki gegn KR og Leiftri auk
þess sem þeir þurfa að leika úrslita-
leik gegn ÍBK í bikarkeppni KSÍ
og eru enn með í Evrópukeppni
bikarhafa. Það mun því mikið mæða
á Eyjamönnum næstu vikurnar en
þeir hafa margoft sýnt að mikill
töggur er í liðinu.
xxx
EYJAMENN hafa einu sinni
orðið íslandsmeistarar, árið
1979. Víkveija er sú stund minnis-
stæð. Eyjamenn höfðu leikið sinn
leik í lokaumferðinni á laugardegi
en Valsmenn áttu leik á Akureyri
á sunnudegi. Með sigri í þeim leik
hefðu Valsmenn hampað titlinum.
En þeir náðu aðeins jafntefli og
Eyjamenn voru krýndir meistarar
á Laugardalsvelli, þar sem þeir
voru meðal áhorfenda á deildarleik
á sunnudeginum. Þeir höfðu ætlað
út í Eyjar á laugardeginum en
ekki komist vegna ófærðar. Gleði
Eyjamanna var ósvikin þegar úr-
slitin voru tilkynnt í leiknum á
Akureyri,
xxx
NÚ hefur reglum íslandsmóts-
ins verðið breytt þannig að
allir leikir í tveimur síðustu umferð-
unum fara fram á sama tíma. Þau
tvö lið sem mesta möguleika eiga
á sigri leika hvort í sínum landshlut-
anum, Eyjamenn mæta Leiftri á
Ólafsfirði og Skagamenn mæta ÍBK
í Keflavík. Það kann því að fara
svo að Eggert Magnússon, formað-
ur KSÍ, þurfi að vera með íslands-
bikarinn í þyrlu mitt á milli þessara
tveggja kaupstaða, sem yrði norð-
vestur af Langjökli!
Svipuð staða var uppi árið 1991.
Þá áttu Víkingur og Fram mögu-
leika á titlinum. Fram var að leika
gegn ÍBV í Reykjavík en Víkingur
gegn Víði í Garði. Eggert formaður
hringsólaði með bikarinn yfir
Reykjanesinu en stefnan var svo
tekin í Garðinn þegar ljóst var að
Víkingur yrði meistari.
En allt skýrist þetta í síðustu
umferðinni sem fram á að fara laug-
ardaginn 27. september.