Morgunblaðið - 10.09.1997, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 1997 35
,
I
I
i
:
l
J
!
í
I
I
I
BREF
HL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Rimaskóli tekur
forystuna
Frá Vali Óskarssyni:
Á SÍÐASTA vetri skrifaði ég grein
í Morgunblaðið varðandi það að nú
þyrfti að gera átak í stærðfræði
og það sem allra fyrst. Nokkru
seinna var svo birt niðurstaða könn-
unar sem sýndi hversu aftarlega
við erum á merinni miðað við aðrar
þjóðir.
Eg vissi tæpast hvort ég átti að
hlæja eða gráta þegar fjölmiðlafólk
fór að tala við ýmsa spekinga um
þessi mál því margir þeirra töldu
bráðnauðsynlegt að stofna nú
nefndir og ráð til að fjalla um vand-
ann. Var það furða þótt mér ofbyði
því í grein minni benti ég á að enn
í dag er verið að kenna stærðfræði-
hefti númer 1 í 7 ára bekkjum.
Hvers vegna skyldu þau vera núm-
er eitt? Jú, þau voru samin fyrir 7
ára krakka meðan þeir voru fýrsti
bekkur, þ.e.a.s. á meðan 6 ára
krakkar voru ekki skólaskyldir.
Þetta hefti inniheldur bytjenda-
námsefni og því er í raun fáránlegt
að kenna það ekki srax í núverandi
1. bekk, enda er tímafjöldi 6 ára
krakkanna orðinn slíkur að það er
ekkert vit að nýta hann ekki betur.
í grein minni benti ég jafnframt á
að menntamálaráðuneytið þyrfti að
gefa út tilmæli um að þetta yrði
gert í öllum grunnskólum landsins
svo ekki kæmu upp vandamál þeg-
ar nemendur eru að flytja milli
skóla. Að sjálfsögðu hefur ekki
heyrst bofs frá ráðuneytinu, enda
átti ég raunar ekki von á því. Nýver-
ið las ég í Morgunblaðinu grein um
það að í skóla úti á landi væru
menn að samþætta myndmennt og
stærðfræði. Skyldi virkilega vinnast
betur með því að hræra stærðfræð-
inni saman við aðrar greinar?
Við í Rimaskóla í Reykjavík
nenntum ekki að bíða lengur eftir
tilskipunum heldur ætlum nú að
reyna að brúa það mikla bil sem
nú er milli bóka sem kenndar eru
í 12 ára bekkjum og þeirra sem
kenndar eru á fyrsta ári unglinga-
stigs. Við höfum gert áætlun sem
miðar að því að eftir tvö ár höfum
við náð þeim áfanga að 11 ára
krakkarnir klári það námsefni sem
nú er kennt í 12 ára bekkjum og
sérstakt námsefni verði tilbúið fyr-
ir 12 ára krakkana. Með þessu
móti ættu nemendur okkar að vera
mun betur undirbúnir þegar kemur
að stærðfræðiprófi i 10. bekk.
Aðeins eitt að lokum: Þið hjá
Heimili og skóla og Samfok. í
guðanna bænum standið nú með
okkur í þessu máli. Allt of mikil
orka hefur hingað til farið í það
hjá fólki í landinu að hamra á því
að við kennarar séum alltaf í fríi.
Auðvitað þarf ekki að ræða það
því allir kunna þetta ágæta stærð-
fræðidæmi.:
Kennari er í fríi næstum 3 mánuði
á sumrin = 84 daga
Kennari er í fríi laugardaga og
sunnudaga =104 daga
Kennari er í jólafríi u.þ.b. hálfan
mánuð =14 daga
Kennari er í páskafríi =10 daga
Kennari í einsetnum skóla kennir
ekki nema ca 5 klukkutíma á dag
og þessir 19 tímar sem afgangs
eru í sólarhringnum gera = 289
daga
Samtals dagar í fríi á hverju ári
501 dagur
í rauninni má kennari aldrei
hætta sér á skemmtistað eða í
heimboð því áður en hann veit af
þá er einhver farinn að ræða
hyskni kennara. Það er þó því
miður ekki hægt að mótmæla því
að dæmið hér fyrir ofan sannar
öllum sem vit hafa á stærðfræði
að kennarar vinna greinilega miklu
minna en ekki neitt.
VALUR ÓSKARSSON,
Leiðhömrum 15, Reykjavík.
Prófkjör
sjálfstæðismanna
í Reykjavík
Frá Rannveigu Tryggvadóttur:
í FRÉTT í Morgunblaðinu 3. sept.
segir að stjórn Fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík muni
í næstu viku ákveða hvort hún
leggur fram tillögu fyrir fulltrúar-
áðsfund um að haldið verði próf-
kjör fyrir borgarstjórnarkosning-
arnar að vori. Baldur Guðlaugsson,
formaður ráðsins, segir að verði
prófkjör haldið séu mestar líkur á
að það verði í október.
Vitræn ákvörðun kjósenda um
það hveija velja skuli á lista í próf-
kjöri er undir því komin að glögg
mynd af valmöguleikum komi fram
í greinaskrifum frambjóðenda fyrir
prófkjörsdag. Því finnst mér frá-
leitt að gefa fólki ekki lengri tíma
en t.d. sex vikur til að gera upp
hug sinn um það hveija velja skuli.
Frambjóðendur til prófkjörs
geta ekki gert glögga grein fyrir
sjálfum sér í greinaskrifum á svo
stuttum tíma. Róleg yfirvegun
kjósenda skilar Sjálfstæðisflokkn-
um betri mönnum og betri árangri
í kosningum til borgarstjórnar að
vori. Því vona ég að prófkjör verði
ekki haldið fyrr en í nóvember.
RANNVEIG TRYGGVADÓTTIR
Bjannalandi 7, Reykjavík
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Koykjavik. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBKÉF: Ritstjórn 569 1329, fréttir 669 1181, Iþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG:
MBL@CENTRUM.IS / Áskriftargjald 1.800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið.
Dýraglens
Grettir
Ljóska
Smáfólk
Hafið þið félagar Við fundum ekki eyði- Við fengum vinnu sem sleða-
verið að ráfa um mörkina... Við enduðum hundar... Vissuð þið að
í þrjá mánuði?! norður í Alaska ... „Rósa-knappur“ var sleði?