Morgunblaðið - 10.09.1997, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 1997 37 •
>
)
?
>
>
t
>
I
I
>
I
I
I
>
I
I
I
I
I
I
I
I
<
ÍDAG
SKÁK
llmsjón Margcir
Pctursson
Staðan ko_m upp í úrslita-
einvíginu á íslandsmótinu í
blindskák_ á sunnudaginn.
Helgi Áss Grétarsson
(2.475) var með hvítt og
átti leik, en Hannes Hlífar
Stefánsson (2.545) hafði
svart og lék síðast 30. —
Dc7—c6? sem gaf færi á
laglegum vinningsleik.
Helgi Áss missti hér af
gullnu tækifæri til að
tryggja sér öruggan sigur í
einvíginu. Lokin urðu: 31.
Hff2?? - d3 32. Hel -
Bxf2 33. Dxf2 - Hxe6 34.
Hxe6 — Dxe6 35. Dxa7 —
Dc6 36. Db8+ - Re8 37.
Rf3 - Kg8 38. Dd8 - h6
HVÍTUR leikur og vinnur.
mát) 31. —
Hxe2 32.
Bxc6 —
Bxc6 33.
Dc8+ Rg8
34. Dxc6 og
vinnur auð-
veldlega.
Hannes
jafnaði met-
in með þess-
um sigri og
var kominn
með unna
stöðu í
bráðabana-
skák, en lék
þá riddara
beint í dauð-
39. Kgl — De6 og hvítur
gafst upp.
Rétti leikurinn var 31.
Bd7! (Nú tapar svartur
drottningunni eða verður
ann _ og
Helgi Áss var fyrsti íslands-
meistarinn í blindskák.
Það er erfitt að tefla án
þess að sjá skákborðið fyrir
framan sig!
Ljósmyndastofa Sigriðar Bac-
hmann
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 19. júlí í Seltjarnar-
neskirkju af sr. Áma Bergi
Sigurbjörnssyni Sunna
Gunnlaugsdóttir og
McLemore. Þau eru búsett
í Bandaríkjunum.
MORGUNBLAÐIÐ birt-
ir tilkynningar um af-
mæli, brúðkaup, ættar-
mót o.fl. lesendum sínum
að kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að ber-
ast með tveggja daga fyr-
irvara virka daga og
þriggja daga fyrirvara
fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælis-
barns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum og
eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer.
Fólk getur hringt í síma
569-1100, sent í bréfsíma
569-1329. Einnig er hægt
að skrifa:
Dagbók
Morgunblaðsins,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
O pf ÁRA afmæli. í dag,
OtJmiðvikudaginn 10.
september, er áttatíu og
fimm ára Hildur E. Páls-
son, húsmóðir, Stigahlíð
4, Reykjavík. Hún tekur á
móti gestum í Skagfirðinga-
búð, Stakkahlíð 17, milli kl.
17.30 og 20 í dag, afmælis-
daginn.
Ljósmyndastúdíó Pétur
Pétursson
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 12. apríl í Þorláks-
kirkju af sr. Svavari Stef-
ánssyni Þorbjörg Magnús-
dóttir og Valdimar
Bjarnason. Heimili þeirra
er á Egilsbraut 24, Þorláks-
höfn.
Ljósmyndastofa Sigríðar
Bachmann
BRÚÐKAUP. Gefín voru
saman 12. júlí í Laugarnes-
kirkju af sr. Páima Matthí-
assyni Hrund Rúdólfsdótt-
ir og Kristján Óskarsson.
Þau eru búsett í Danmörku.
BRUÐKAUP. Gefin voru
saman 9. ágúst í Hraun-
gerðiskirkju af sr. Kristni
Agústi Friðfinnssyni Ásdís
Finnsdóttir og Bergur
Ingi Ólafsson. Heimili
þeirra er í Hjálmholti,
Hraungerðishreppi.
Árnað heilla
Ást er...
...keðja sem tengir tvö
hjörtu.
TM Reg. U.S. Pat. 0«. - all rights resetved
(c) 1997 Los Angoles Trnes Syndicate
HÖGNIHREKKVÍSI
,/ /Ytércr mtíniitcc t/f&þcÁ b eqar siHvusn'nn
er c! bzervurvC: "
STJÖRNUSPÁ
cftir Franccs Drakc
MEYJA
Afmælisbarn dagsins:
Þú hefur stjórnunarhæfi-
leika og ættir að sérhæfa
þig á því sviði.
Hrútur
(21. mars- 19. april)
Þér verður mest úr verki
fyrri part dags. Þú ættir að
ræða fjármálin við félaga
)inn í kvöld og leggja öll
spilin á borðið.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Heimboðin streyma til þín
úr öllum áttum svo þú hefur
nóg að gera á næstunni.
Njóttu þess og hafðu ekki
óþarfa áhyggjur.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 5»
Gættu þess að eyða ekki um
efni fram. Hlustaðu á félaga
þinn, sem hefur ákveðnar
hugmyndir um sparnað og
ávöxtun.
Krabbi
(21. júnf — 22. júlí) HÍg
Þú hefur ákveðnar hug-
myndir um hvernig best sé
að ávaxta sitt pund, en ekki
er víst að ástvinur þinn sé
þér sammála. Vertu umburð-
arlyndur.
Ljón
(23. júlf — 22. ágúst)
Þótt þú sért vinsæll í góðra
vina hópi, skaltu muna að
ekki eru allir viðhlæjendur
vinir, séu viðskipti annars
vegar.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) &£
Þú þarft að hafa meiri trú á
sjálfum þér. Treystu orðum
vina þinna, um að þú sért
sérstakur og eigir það skilið,
sem þú færð.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Láttu það ekki slá þig út af
laginu, þó eitthvað fari öðru-
vísi en þú ætlaðir. Njóttu
þess að eiga notalega stund
með ástvini í kvöld.
Sporddreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú getur það sem þú ætlar
þér, svo þú ættir að bretta
upp ermarnar. Öll fram-
ganga þín er þér til fram-
dráttar.
Bogmaöur
(22. nóv. - 21. desember) m
Þú mátt ekki slaka á fyrr
en þú hefur gengið frá öllu
sem þú lofaðir að yrði gert
í dag. Lofaðu ekki meiru en
þú getur staðið við.
Steingeit
(22. des. - 19.janúar)
í stað þess að láta sig
dreyma, skaltu framkvæma.
Bjóddu heim gestum í kvöld,
eða skelltu þér í heimsókn.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Þér verður mest úr verki ef
þú bytjar daginn snemma.
Þú þarft að ræða við félaga
þinn um sameiginlegt hags-
munamál.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þú átt ekki í erfiðleikum með
að skipuleggja hlutina í sam-
ráði við félaga þinn. Líklega
þarftu að skipuleggja stutta
ferð á næstunni.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Matargerð - mál
fjölskyldunnar
Matur o g matargerð eru sívinsælt umræðu-
efni, enda mikilvægt þar sem fjölbreytt,
næringarrík fæða er nauðsynleg fyrir vöxt
og þroska bama og vellíðan einstaklinga á
öllum aldri. Margrét Þorvaldsdóttir hefur
kynnt sér nýjar leiðir til að örva áhuga
allrar fjölskyldunnar á matargerð.
ORÐTAKIÐ - þú ert það sem
)ú borðar - þýðir að heilbrigði
fólks og heilla þjóða getur ráðist
af því hvað það leggur sér til
munns. Þessi sannindi voru Frakk-
landskonungi ljós um miðja síðustu
öld er hann fékk þekktan franskan
næringarfræðing til að finna að-
ferð til að vinna til neyslu feiti sem
gat komið í staðs smjörs. Óttast
var að skortur á mikilvægum orku-
efnum, sem var
viðvarandi í
Frakklandi á
þessum tíma,
gæti haft afdrifa-
ríkar afleiðingar
á þrek og úthald
Frakka ef til
stríðs kæmi við
hina öflugu ná-
granna þeirra.
„Margarínið" sá
dagsins ljós og
var nefnt smjör
fátæka manns-
ins.
Nú, hundrað
og tuttugu árum
síðar, líða Vest-
urlandabúar ekki
vegna skorts á
feitmeti heldur
ofneyslu. Offita
sem áður var að-
allega tengd
eldra fólki er í
vaxandi mæli að
verða vandamál
yngra fólks og
jafnvel barna. Öregla á matmáls-
tímum og neysla á fitandi skyndibit-
um eiga þar án efa mikla sök.
Fræðsla og áróður fyrir matargerð
virðist þurfa að vera stöðugt í gangi
til að vekja áhuga fólks á mikil-
vægi reglubundinna næringarríkra
máltíða.
Nú á haustdögum stendur
„Klúbbur matreiðslumeistara" og
„Matreiðsluskólinn okkar“ fyrir
merku framtaki. Þeir vinna að gerð
sjónvarpsþátta í samvinnu við Rík-
issjónvarpið, um matreiðslu fyrir
börn. Gissur Guðmundsson hjá
„Matreiðsluskólanum okkar“ sagði
aðspurður að gerð þessara þátta
ætti sér eins árs aðdraganda. Hilm-
ar B. Jónsson hafi vakið athygli á
sjálfboðaliðsstarfi matreiðslumanna
í Bandaríkjunum, sem gefa vinnu
sína einn dag í mánuði í þágu heim-
ilislausra. í kjölfarið kom fram hug-
mynd um að gefa vinnu í þágu ein-
hverra sem ekki hafa allt til alls,
og urðu börnin fyrir valinu. Við
gerð þáttanna gefur Klúbbur mat-
reiðslumeistara alla vinnu sína og
Ríkissjónvarpið fær ótakmarkaðan
sýningarrétt á þeim. Fyrsta útsend-
ingin verður 5. október og verða
þættirnir sýndir í Ríkissjónvarpinu
á sunnudögum fram til jóla.
Hvað verður börnum kennt að
matbúa í þessum þáttum?
„Við setjum þá upp eins og
þriggja rétta máltíð og verðum með
salat, kjöt, fisk, pastarétti, skúffu:
köku og ískrap," sagði Gissur „í
síðustu útsendingu í desember
útbúum við ostabakka fyrir foreldr-
ana sem ætti að henta vel þegar
allir er eru önnum kafnir við jó-
laundirbúninginn.
Þessir matreiðsluþættir ættu að
koma öllum að gagni, foreldrar í
dag hafa takmarkaðan tíma til að
vera með börnum sínum þar sem
þau vinna mikið sjálf.“ Hann sagð-
ist vilja hvetja foreldra til að vera
meira með börnum sínum og leyfa
þeim að vera þátttakendur í matar-
gerðinni í eldhúsinu. Að gefnu til-
efni var Gissur spurður hvort börn-
unum yrði ekki kenndir borðsiðir í
þessum þáttum. Hann sagði að þau
mál hefðu verið mikið til umræðu
við upptöku þess-
ara þátta, og vel
gæti komið til
greina að slíkur
þáttur, þar sem
fólki væri kennt
að leggja á borð
og helstu borðs-
iði, kæmi eftir
áramót.
Samhliða þess-
um sjónvarps-
þáttum verður
„Matreiðsluskól-
inn okkar“ með
matreiðslunám-
skeið fyrir börn
annan hvern
sunnudag fram í
miðjan nóvember
og verða þeir
kallaðir „Pabba-
dagar“. „Við
erum tveir mat-
reiðslumeistarar
sem sjáum um
kennsluna og
tökum okkar eig-
in böm með á
námskeiðin," sagði Gissur. „Við
aðstoðum börnin við að elda og
kennum þeim umgengni í eldhúsi,
borðum síðan saman, þvoum upp
og göngum frá.“ Gissur sagði að
þeir gæfu vinnu sína, en nemendur
greiddu hráefniskostnaðinn, sem er
1.000 krónur fyrir hvert námskeið
sem er 4 klukkustundir.
í okkar nútíma jafnréttissamfé-
lagi þar sem hjón þurfa bæði að
vinna utan heimilis að sjá fjölskyldu
farborða, er mikilvægt að karlinn
geti einnig séð um daglega matar-
gerð til jafns við aðra á heimilinu.
Matreiðsluskólinn okkar hefur
lausnina - kennslu í matreiðslu fyr-
ir karla. Auglýsing frá skólanum í
Morgunblaðinu um slíka kennslu
vakti athygli og var raunar kveikjan
að þessari grein. Því hefur verið
haldið fram, að fullkomnunarárátta
kvenna hafi hrakið margan karlinn
frá eldhúsbekknum. Þeir þoli illa ef
konan á heimiiinu líti yfir öxl þeirra
og segir þeim til eða gerir athuga-
semdir. Þessvegna hafí margir talið
góða lausn að leika hinn hjálpar-
lausa. Okkur lék því forvitni á að
vita hvort þessi námskeið væru snið-
in fyrir hina hjálparlausu, þá sem
hefðu einhveija reynslu í elda-
mennsku eða einlæga áhugamenn
um matargerð. Gissur segir að þessi
námskeið virðist höfða til karla á
öllum aldri og hafí verið mjög vin-
sæl. Hópamir væm mjög skemmti-
legir, stemmning væri mikil, menn
elduðu og fengju uppskriftir. Eld-
húsumræður héldu síðan áfram við
borðhaldið eftir hveija kennslustund,
þá spyrðu menn gjaman spuminga
sem þeir telja sig ekki geta spurt
annars staðar.
Höfundur er blaðamaður.
Morgunblaðið/Jim Smart
MATREIÐSLUMENNIRNIR
Gissur Guðmundsson og Ei-
ríkur Friðriksson hafa um-
sjón með „Pabbadögum" hjá
Matreiðsluskólanum okkar.