Morgunblaðið - 11.09.1997, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 11.09.1997, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR __ 34. þing SUS Asdís Halla ein í for- manns- framboði ÁSDÍS Halla Bragadóttir aðstoðar- maður menntamálaráðherra er sú eina sem hefur lýst yfir framboði til embættis formanns Sambands ungra sjálfstæðismanna, en 34. þing SUS verður sett á morgun, föstudag, í félagsheimilinu Stapa í Reykjanesbæ. Frestur til að bjóða fram til formanns og stjómar renn- ur hins vegar út kl. 19 á laugar- dag. Kosning fer fram eftir hádegi á sunnudag og hafa 464 þingfull- trúar kosningarétt. Guðlaugur Þór Þórðarson fráfar- andi formaður SUS setur þingið kl. 18, en yfirskrift þess er Frelsi. Davíð Oddsson forsætisráðherra flytur síðan ávarp og situr fyrir svörum seinna um kvöldið ásamt öðrum ráðherrum Sjálfstæðis- flokksins. Á laugardag hefjast mál- efnastörf nítján nefnda og mun þeim ljúka um hádegi á sunnudag. Verður þá gengið til kosninga en að þeim loknum verður þingi slitið. Morgunblaðiö/Eyjólfur M. Guðmundsson STEYPUVINNA við biðhlöð á Keflavíkurflugvelli. Endurnýjun biðhlaða á Keflavíkur- flugvelli Vogum. Morgunblaðid. UM tvö þúsund og fjögur hundruð rúmmetrar af steypu hafa farið í endurnýjun tveggja biðhlaða fyrir flugvélar á Keflavíkurflugvelli í sumar að sögn Karls Karlssonar, verkstjóra hjá Dverghömrum sf. sem eru undirverktakar hjá íslensk- um aðalverktökum sem sjá um framkvæmdina fyrir vamarliðið. Að sögn Friðþórs Eydal, blaða- fulltrúa Vamarliðsins er kostnaður við framkvæmdina ásamt uppsetn- ingu aðflugkerfis 62 milljónir króna. Landsbankinn selur skipin Aðalvík og Njarðvík Morgunblaðið/Kristinn ÚTGERÐARMENN spá í spilin á fundi Landsbankans og Útvegsmannafélags Suðurnesja. „Suðumesjamenn sitja fyrir að öllu jöfnu“ LANDSBANKINN auglýsir í dag til sölu tvö fiskiskip í eigu dótturfyrirtækis síns, Regins hf. Þetta em skipin Aðalvík og Njarðvík og er sameiginlegt aflamark þeirra um 1.500 þorskí- gildistonn. Skipin voru áður í eigu íslenzkra aðalverktaka, en urðu eign Landsbanka íslands fyrr á þessu ári. Sverrir Hermannsson, banka- stjóri Landsbankans, sagði á kynningarfundi í Reykjanesbæ í gær vegna sölu skipanna, að það væri vilji fyrir því hjá stjórnendum Lands- bankans að skipin yrðu áfram gerð út frá Suður- nesjum, en bezta tilboðinu í skipin yrði að sjálf- sögðu tekið. „Suðumesjamenn sitja fyrir að öllu jöfnu,“ sagði Sverrir. Áætla má að sameig- inlegt verðmæti skipanna og aflaheimilda þeirra sé nálægt einum milljarði króna. Það vom Landsbankinn á Suðumesjum og Útvegsmannafélag Suðumesja sem boðuðu til þessa kynningarfundar. Þorsteinn Erlingsson, formaður Útvegsmannafélagsins, sagði það mikilvægt að halda þessum aflaheimildum inn- an kjördæmisins. Hann taldi það til dæmis ágætan kost að einhverjar útgerðir sameinuð- ust um kaupin og gætu þær síðan skipt afla- heimildunum með sér. Einnig ræddi Þorsteinn um sameiningu fyrirtækja á Suðurnesjum við fyrirtæki í öðmm landshlutum og taldi hann nauðsynlegt að menn stöldruðu við og athug- uðu þann möguleika hvort frekari samvinna fyrirtækja innan svæðisins væri ein leiðin til að halda þessum aflaheimildum. Unnið fyrir opnum tjöldum Sverrir Hermannsson rakti fyrir höns bank- ans mikilvægi sjávarútvegsins í viðskiptunum við bankana og hve mikla samleið bankinn og útvegurinn ættu saman. Hann sagði að við sölu skipanna yrði unnið fyrir opnum tjöldum. Þau yrðu auglýst til sölu og hvert tilboð skoð- að, en hann útlokaði ekki að leitað yrði eftir tilboðum. Hann sagði margt koma til greina en ljóst væri að það skipti máli hvort viðkom- andi fyrirtæki væru í viðskiptum við Lands- bankann eða ekki og hver fjárhagslegur styrk- ur þeirra væri. Sverrir sagði það ekki skilyrði að fyrirtæki sameinuðust vegna kaupa á skip- unum, enda væru fjárhagslega sterk fyrirtæki á Suðumesjum. Ljóst væri að lána þyrfti veru- legar upphæðir í þeim til langs tíma, en hann vildi engar tölur nefna um hugsanlegt heildar- verð eða lánakjör. Nauðsynlegt að standa saman Nokkrar umræður urðu á fundinum um sameiningu fyrirtækja og kom fram í máli Kristjáns Pálsspnar, Árna Ragnars Árnasonar og Hjálmars Árnasonar, alþingismanna, að nauðsynlegt væri að Suðurnesjamenn stæðu saman um að halda þessum aflaheimildum á svæðinu. Andlát MÍNERVA JÓNSDÓTTIR MÍNERVA Jónsdóttir, íþróttakennari, andað- ist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur síðdegis þriðjudaginn 9. sept- ember sl., 64 ára að aldri. Mínerva fæddist 31. ágúst 1933 í Hafnar- firði, dóttir Jóns Snorra Guðmundssonar bak- ara og konu hans Guðnýjar Ólafsdóttur. Hún tók íþróttakenn- arapróf frá Laugar- vatni 1952 og stundaði framhaldsnám í Art of Movement Studio, Addleston, Sur- rey á Englandi frá 1954-1957 þar sem aðalgreinar henn- ar voru dans í uppeldi barna og menntun. Á þessum tíma sér- hæfði hún sig í skrán- ingu hreyfinga með sérstakri táknskrán- ingu og var meðal 5-6 fyrstu einstaklinga í Evrópu sem það gerðu. Mínerva kenndi hjá Fimleikafélaginu Björk í Hafnarflrði 1952-3 og íþróttafélagi kvenna í Reykjavík 1953. Hún var forfallakennari í Flensborg 1954, stundakennari við Melaskóla og Gagnfræðaskólann við Hringbraut frá 1957-59. Kenndi hjá Þjóðdans- afélagi Reykjavíkur í nokkur ár frá 1957, auk þess að kenna á fjölda námskeiða hjá íþróttakennarafélagi íslands. Mínerva var einn af aðalkennur- um við íþróttakennaraskóla íslands að Laugarvatni frá árinu 1959- 1997 með dans, leikfimi og rytmisk- ar hreyfingar sem aðalkennslu- greinar. Á þessum tíma kenndi hún einnig við aðra skóla á Laugarvatni og sá um mikinn hluta íþrótta- kennslu við þessa skóla. Frá 1958 til 1993 starfaði hún með dr. Sig- ríði Valgeirsdóttur við söfnun og skráningu allra dansa sem þekktir eru á íslandi. Mínerva skráði í því sambandi 150 dansa með tákn- skráningu. Bók með safni þeirra Sigríðar, Gömludansarnir í tvær aldir, kom út 1994. Auk þess var Mínerva ötul við að safna smáleikj- um, leikfimisæfíngum og öðru efni sem hún gaf út til nemenda sinna við Iþróttakennaraskólann. Mínerva Jónsdóttir var ógift og barnlaus.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.