Morgunblaðið - 11.09.1997, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1997 47
Sértilboð til
London
6. okt. frá kr.
19.
Flug og Itótel
kr. 21.990
Síðustu 23
sætin 6. okt.
Nú seljum
við síðustu sætin til London
þann 6. og 13. október og bjóðum þér
nú glæsilegt tilboð um leið og þú tryggir
þér lægsta verðið á Islandi. Þú bókar í
dag eða á morgun og tryggir þér sæti til
London á hreint ótrúlegu verði. Við
bjóðum nú sérstakt kynningartilboð á
einu af vinsælustu hótelum í London,
Regent Palace, sem staðsett er við
Piccadilly Circus og er frábær valkostur
fyrir þá sem vilja einfalt hótel vel
staðsett. Að auki bjóðum við frá-
bært úrval af afbragðshótelum og
þú nýtur þjónustu reyndra farar-
stjóra Heimsferða allan tímann.
Regent Palace
Verð kr. 19.990
Verð með flugvallarsköttum, 6. okt.,
3 nætur.
Verð kr. 21 .990
M.v. 2 í herbergi með morgunmat,
Regent Palace, 6. okt., 3 nætur.
okt. —. po S3e^
9- Okt. —. pn Sæti
19 okt^ ?iSæti
23. okt _ í1 sa*
27. okt J' s*t/
M-ottTjSPW
fnn er , sæti
FOLKI FRETTUM
Kvikmyndir/Háskólabíó sýnir bandarísku stór-
myndina Ghosts from the Past með þeim Alec
Baldwin, Whoopi Goldberg og James Woods í
aðalhlutverkum.
sœtir sofar-
Verð kr. 27.990
Regent Palace hótel, 4 nætur, 9. okt.,
2 í herbergi.
ItSTi (E)
Austurstræti 17, 2. hæð • slmi 562 4600
Síðbúið uppgjör
SKÖMMU eftir miðnætti hinn
12. júní árið 1963 féll
blökkumaðurinn Medgar
Evers fyrir kúlu launmorðingja.
Evers var framarlega í mannrétt-
indabaráttu blökkumanna í heima-
ríki sínu Mississippi. Banamaður
hans var hvíti öfgamaðurinn Byron
De La Beckwith (James Woods) og
var hann látinn laus að loknum
tvennum réttarhöldum
í málinu þar sem kvið-
dómur gat ekki komist
að sameiginlegri nið-
urstöðu. Tæplega 31
ár leið þar til réttlætið
náði fram að ganga
fyrir Medgar Evers en
vegna harðfylgni og óbilandi sann-
færingar hans nánustu var málið
tekið fyrir á nýjan leik. Það er að-
stoðarsaksóknarinn Bobby De-
Laughter (Alec Baldwin) sem býr
yfir því hugrekki að opna málið á
ný, en að allra áliti var ógjörningur
að fá Beckwith sakfelldan. Myrlie
Evers (Whoopi Goldberg), eigin-
kona fórnarlambsins, er hatursfull
en hefur alla tíð barist fyrir endur-
upptöku málsins og liggja leiðir
hennar og DeLaughters saman í
lokatilrauninni til að láta Beckwith
gjalda fyrir glæp sinn.
Leikstjóri Ghosts from the Past
er Rob Reiner sem síðast leikstýrði
myndinni The American President.
Meðal annarra mynda hans eru A
Few Good Men, Misery, The Princ-
ess Bride og Stand By Me.
James Woods var tilnefndur til
óskarsverðlaunanna síðastliðið vor
fyrir túlkun sína á illmenninu Byron
De La Beckwith. Hann hefur fyrir
löngu skipað sér sess sem einn af
helstu skapgerðarleikurum Holly-
wood, en hann hefur þó einna helst
leikið ofstopamenn af einhveiju
tagi. Mörgum hefur þótt hann eiga
skilið frekari viðurkenningar en
honum hafa fallið í skaut fyrir
frammistöðu sína til þessa, en stór-
leikur hans í myndum á þessu ári
hefur glætt vonir aðdáenda hans
um að nú loksins fái hann þá viður-
kenningu sem hann eigi skilið.
Woods er fæddur 18. apríl 1947
í Utah-fylki í Bandaríkjunum. Faðir
hans var hermaður að atvinnu og
ólst Woods upp á herstöðvum víðs
vegar um Bandaríkin og á eyjunni
Guam. Þetta var greindarpiltur og
stundaði hann nám við einhveijar
bestu menntastofnanir Bandaríkj-
anna, MIT og Harvard. Þar hófst
leikferillinn og á skólaárunum tróð
Woods upp í 36 leikritum með skóla-
félögunum og einnig með leikfélagi
í Boston. Leiklistarbakterían heltók
hann gjörsamlega og stuttu áður
en hann átti að Ijúka lokaprófi árið
1969 við MIT þar sem hann var
meðal þeirra efstu í sínum bekk
hætti hann náminu og hélt til New
York að freista gæfunnar. Þar
reyndist leiðin inn í leikhúsin við
Broadway vera honum greið og
fljótlega hafði hann hlotið Bieverð-
laun, Óskarsverðlaun sviðsleikara
þar í borg.
Frumraunina á hvíta tjaldinu
þreytti Woods undir stjóm Elia Kaz-
an í The Visitors, en vakti fyrst at-
hygli fyrir leik á móti John Savage
í The Ónion Field. Framan af hlaut
hann gjaman hlutverk manna sem
börðust fyrir réttlæti gegn ofurefli,
svo sem aðalhlutverkið í Salvador
eftir Oliver Stone, en það hlutverk
færði honum Óskarsverðlaunatil-
nefningu. Undanfarin ár hefur Wo-
ods þó verið við það að festast í
hlutverkum illmenna og um tíma
mátti halda að hann hefði einkarétt
JAMES Woods leikur Byron De
La Beckwith sem sakaður er um
að hafa myrt blökkumannaleið-
togann Medgar Evers.
TÆPLEGA 31 ári eftir morðið á Medgar Evers er Byron De
La Beckwith mættur í réttarsalinn á nýjan leik.
MÁLI Beckwiths var á sínum tíma vísað frá þar sem kviðdómur-
inn komst ekki að samhljóða niðurstöðu.
á hlutverkum leigumorðingja. Einn
hápunkturinn á ferli Woods er á
hinn bóginn frammistaða hans í titil-
hlutverki hinnar margverðlaunuðu
sjónvarpsmyndar, Citizen Cohn, þar
sem hann lék smásálarlega og
hrokafulla hægri hönd McCarthy’s,
bandaríska öldungadeildarþing-
mannsins, sem stóð fyrir ofsóknum
á hendur meintum vinstrimönnum i
Bandaríkjunum á sjötta áratugnum.
James Woods hefur nú leikið í
um 60 kvikmyndum fyrir hvíta
tjaldið eða sjónvarp og meðal þeirra
helstu eru: Bestseller, endurgerð
The Getaway, The Way We Were,
The Hard Way, Straight Talk,
Immediate Family, Diggstown,
True Believer, The Boost, Joshua,
Then and Now, The Choirboys,
Cop, Eyewitness, Against All Odds,
Videodrome, Once Upon a Time in
America, Night Moves, Curse of the
Starving Class, Nixon, Casino og
nú síðast Ghosts of the Past. Innan
skamms verður svo frumsýnd hér
á landi nýjasta myndin sem Woods
leikur í, en það er Contact með
Jodie Foster í aðalhlutverki.
sos
BARNAÞORPIN Á ÍSLANDI
--K-------------------------------------X—~
Vinsamlegast sendið mér bækling um
SOS BARNAÞORPIN, mér að kostnaðarlausu LJ
Já takk,
Ég vil styrkja BARN frá fyrrum Júgóslavíu með
1000 kr. á mánuði
Ég vil styrkja ÞORPIN í Sarajevo, Mostar eða
Tuzla í fyrrum Júgóslavíu með 1000 kr. á mánuði
Nafn _____________________________________________
Heimilisfang _____________________________________
Bæjarfélag _______________________________________
Kennitala ________________i
Sími
Greiðslufyrirkomulag:
Gíró Q VISA/EURO □ Kortnr.
...............................-Ȥ-
SOS BARNAÞORPIN HAMRABORG 1
200 KÓPAVOGUR SÍMI 564 2910
□
□
Frumsýning
v
5-
C