Morgunblaðið - 11.09.1997, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 11.09.1997, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1997 19 ERLEIMT Reuter Dýrar veigar PAUL Bowker, forstöðumað- ur breska uppboðsfyrirtækis- ins Christies sýnir hér rauð- vínsflösku af jeroboam-stærð, Mouton Rothschild 1945, en hún er úr vínkjallara í einka- eigu en hann verður boðinn upp í næstu viku. Jeroboam- flaskan svarar til sex venju- Iegra flaskna og tekur 4,5 lítra. Er hún dýrasta flaskan í safninu og þykir líklegt, að hún fari á allt að 4,5 milljónir íslenskra króna. Aðeins er vit- að um tvær jeroboam-flöskur af þessum árgangi í heiminum. Skotar greiða atkvæði um stofnun þjóðþings Sigur fylgj- enda þykir vís Edinburgh, Brighton. Reuter, The Daily Telegraph. SKOTAR greiða í dag atkvæði um hvort stofna eigi skoskt þing, og niðurstöður skoðanakannana, sem kynntar voru í gær, benda til að svarið verði eindregið já. Þing hef- ur ekki setið í Skotlandi í 300 ár. Einnig verða greidd atkvæði um hvort þingið, verði það stofnað, skuli hafa takmarkað vald til skatt- lagningar. Andstæðingar stofnunar þings í Skotlandi telja að með því að Skot- ar fái aukið sjálfdæmi í eigin málum séu tekin fyrstu skrefin í átttil sjálf- stæðis frá Bretlandi. Skoðanakönn- un á vegum blaðsins Glasgow Her- ald leiðir í ljós, að 61% aðspurðra er hlynnt stöfnun þingsins, sem á yrðu 129 sæti og aðsetur þess yrði í Edinburgh. Tuttugu af hundraði eru andvíg þingsstofnuninni og 19% óákveðin. Línurnar eru ekki eins skýrar er varðar spurninguna um vald tii skattlagningar. Fjörutíu og fimm af hundraði hyggjast segja já, 32% nei og 24% hafa ekki gert upp hug sinn. Verkamannaflokkurinn stendur við bakið á þeim sem hlynntir eru stofnun þingsins, og stóð ásamt Fijálslynda demókrataflokknum og Skoska þjóðarflokknum, að sam- komu í Edinburgh í gær, og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hitti kjósendur í Glasgow og Edin- burgh. Sérstök þjóðþing í Skotlandi og Wales eru kjarninn í áætlunum Blairs um stjórnarskrárumbætur. Almenn atkvæðagreiðsla fer fram í Wales 18. september. William Hague, leiðtogi íhalds- flokksins, hvatti Skota til að hafna stofnun þingsins. Flokkurinn tap- aði í öllum kjördæmum í Skotlandi í kosningum til breska þingsins í maí sl. Sagði Hague að þeir, sem andvígir væru stofnun þingsins, væru hinar sönnu sjálfstæðishetjur Skotlands, og að framtíð Bret- lands - Englands, Skotlands, Wal- es og Norður-írlands - væri í húfi. Hague nefndi einnig að hætt væri við því, að skattar myndu hækka í Skotlandi ef þingið yrði scofnað. Skotland var sameinað Bretlandi 1707, en hefur haldið mörgum ein- kennum þjóðríkis, og eru réttar- og menntakerfi þar önnur en eru í Bretlandi. Stuðningur við Ihalds- flokkinn hefur ætíð verið lítill í Skotlandi, og jókst fylgi við aukið sjálfdæmi í 18 ára stjórnartíð íhaldsflokksins í Bretlandi. Efnt var til atkvæðagreiðslu um stofnun þings 1979, og voru þá 33% fylgj- andi því en 31% andvígt. Ekki náð- ist því það 40% lágmarksfylgi sem stjórnvöld höfðu ákveðið að þyrfti. Blair sagði á þriðjudag að ótti við hækkun skatta væri ástæðu- laus. Hét hann því að tekjuskattar yrðu ekki hækkaðir í Skotlandi næstu fimm árin, jafnvel þótt sam- þykkt yrði í atkvæðagreiðslu stofn- un þings sem hefði takmörkuð völd til skattlagningar. Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands, hafði viðurkennt á mánudag að skoska þingið myndi hækka skatta innan tveggja ára frá stofnun þess, ef til hennar kæmi. Benti fjármálaráðherrann á, að bann við skattahækkunum myndi renna út um leið og fyrsta kjörtíma- bili Verkamannaflokksins. Nýtt krabbameins- lyf úr baunum? BAUNATEGUND, sem vex á Suð- ur-Tævan, virðist geta hjálpað til við baráttuna gegn krabbameini. Tung Ta-cheng, heiðursprófessor við Tævan-háskóla, greindi frá því nýlega að rannsóknir hefðu sýnt fram á að prótein, sem unnið er úr baunategundinni Canavalia ensiformis, geti minnkað eða jafn- vel hindrað vöxt krabbameinsæxia í tilraunamúsum. Frá þessu er greint í The Free China Journal Að sögn Tungs styður próteinið, sem nefnt er Comcanavalin A, eitil- frumur í blóðinu við framleiðslu svo- kallaðra „drápsfruma“, sem ónæm- iskerfi líkamans getur ekki verið án. Kostur baunapróteinsins sem krabbameinslyfs er því ekki sízt fal- inn í því að það styrkir ónæmiskerf- ið, sem vinnur á illkynja frumum eingöngu en skemmir ekki heilbrigð- ar frumur eins og mörg hefðbundin krabbameinslyf gera. Játning í póst- ránsmáli STARFSMAÐUR svissnesku póstþjónustunnar hefur játað að hafa verið viðriðinn stærsta peningarán í sögu Sviss, sem framið var 1. september sl. í miðju bankahverfi Zúrich. 53 milljónum svissneskra franka, hátt í 2,6 milljörðum króna, sem voru í eigu svissneska póstsins, var stolið þegar til stóð að flytja féð i banka. Nú hefur 24 ára gamall ítali, sem vann hjá póstinum í tvö ár, játað að hafa aðstoðað ræn- ingjana, sem voru fimm talsins og vopnaðir. Lögregla handtók 13 manns vegna málsins um síðustu helgi, en þetta var fyrsta játningin. Meginhluti ránsfjárins, 33 milljónir franka, eru enn ófundnar. Hreinsanir í Mongólíu KOMMÚNISTAR, sem voru við völd í Mongólíu á tímum Jósefs Stalíns, myrtu að minnsta kosti 20.000 manns í landinu á fýrstu 18 mánuðun- um sem pólitískar „hreinsanir" voru stundaðar þar, sem hóf- ust er slíkar hreinsanir stóðu sem hæst í Rússlandi 1937 en var haldið áfram um 20 ára skeið. 42° vetrarhiti ÍBÚAR Rio de Janeiro þurftu í fyrradag að þola heitasta vetrardag sem komið hefur þar um slóðir í heilan manns- aldur. Brasilískir veðurfræð- ingar greindu frá því í gær að hitinn hefði mælzt 42 gráð- ur á Celsíus, sem er hærra hitastig en mælzt hefur að vetri til í 75 ár. „Þriðjudagur- inn var heitasti vetrardagurinn frá 1922 og heitasti dagurinn yfirleittfrá 1984,“ sagði Marc- os Massari, veðurfræðingur. Sagði hann orsaka þessa óvenjulega veðurs vera að rekja til „E1 Nino“-sjávar- straumsins í Kyrrahafi. Leiðandi merki í þurrkurum LL " r 4 ára reynsla á Islandi Líttu á verðið! Creda Reversair. Tekur 5 kg„ snýst í báöar áttír, tvö hitastig. knjmpuvöm, Tímastillir altt að 120 mín, barki (2 m. fylgir) Cneda Sensair Cíð erum i r>æsta hUS' '"ð "<£4 . !./ Tekur 5 kg., snýst í báðar áttir, tvö hitastig, krumpuvöm, rakaskynjarí, barki (2 m. fylgir) Creda Condensair. Tekur 6 kg., snýst í báðar áttir, tvö hrtastig, krumpuvöm, Tímastillir alít að 120 mín, barkalaus, þéttir gufuna. Greiðslukjör við allra hæfi VERIÐ VELKOMIN I VERSLUN OKKAR á íslandi Stœrsta heimilis-OQ rattækjaverslunarkeöja I Evrópu Söluaðilar: Reykjanes • Rafbúð Skúla Þórs, Hafnarfirði • Stapafell, Keflavík • Rafborg, Grindavík • Raft.Sig. Ingvars., Garði Vesturland • Rafþjðnusta Sigurdórs, Akranesi • Blómsturveilir, Hellissandi • Guðni E. Hallgrímsson, Grundarf. Vestfirðir • Ástubúð, Patrekslirði ® Laufið, Bolungarvík • Húsgagnaloftið, ísalirði Norðurland • KVH, Hvammstanga • KH, Blönduósi ® Rafsjá, Sauöárkróki « Rafbær, Siglufirði • Ljósgjafaverslunin, Akureyri • KÞ, Húsavik Austurland • Rafey, Egilsstöðum • Rafaldan, Neskaupsstað • Rafás, Höfn Suðurland • Rafmagnsverkst. KR. Hvolsvelli • Geisli, Vestmannaeyjum • Rás, Þorlákshöfn R(irMk](ll)[RZLUN iSLflNDSir - ANNO 1 929 - Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.