Morgunblaðið - 11.09.1997, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 11.09.1997, Blaðsíða 56
<Ö> NÝHERJI Fyrstir meö “entkam 11 HP Vectra PC Whp% hewlett mLnÆ packard Sjádu meira á www.hp.is MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3010, NETFANG MBL@RITSTJ.1S AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Hagnaður Haraldar Böðvarssonar hf. af reglulegri starfsemi minnkaði um 39% Afkoma batnaði um 30 milljónir Morgunblaðið/RAX Fræsað á hringveginum HAGNAÐUR Haraldar Böðvars- sonar hf. á Akranesi nam 208 millj- ónum króna á fyrri árshelmingi þessa árs. Þetta er um 30 milljóna króna betri afkoma en á sama tíma- bili á síðasta ári og sami hagnaður og varð af rekstri félagsins allt sið- asta ár. Hagnaður af reglulegri starfsemi félagsins var hins vegar 39% minni en í fyrra og nam 109 milljónum króna. Kemur þar til veruleg aukn- l^ng á afskriftum og fjármagnsgjöld- um. A móti kemur hins vegar 99 milljóna króna hagnaður vegna sölu eigna. Sturlaugur Sturlaugsson, aðstoð- arframkvæmdastjóri HB, segist nokkuð ánægður með afkomu fyrir- tækisins. Verið sé að sameina tvö fyrirtæki og enn sé verið að ná fram hagræðingu vegna sameiningarinn- ar. Hins vegar megi alltaf gera bet- STOFNFUNDIR hlutafélaganna Landsbanka Islands hf. og Búnaðar- banka Islands hf. voru haldnir í gær en félögin munu taka við rekstri samnefndra banka um áramót. Jafn- framt var í gær haldinn framhalds- stofnfundur Fjárfestingarbanka at- vinnulífsins hf. um leið og stjórn Ný- ■Hsköpunarsjóðs atvinnulífsins tók til starfa. Finnur Ingólfsson viðskiptaráð- herra hefur ákveðið að beina sér- stökum tilmælum í sex liðum til stjórnenda nýju hlutafélaganna varðandi umræddar breytingar. Þar á meðal vill viðskiptaráðherra að stefnt verði að skráningu hlutafé- lagsbankanna á Verðbréfaþingi Is- lands. Lagaheimild til útboðs og sölu á nýju hlutafé verði nýtt að hluta í þessu skyni. Þá hyggst viðskiptaráðhen-a leggja áherslu á það við stjórn nýju hlutafélagsbankanna að ráðinn verði einn aðalbankastjóri sem ásamt tveimur bankastjórum fari með meg- ^^nábyrgð á daglegum rekstri bank- ”ans og ákvörðunarvald. Hins vegar ur og stefnt sé að því að gera það. Hann segir að í endurskoðaðri rekstraráætlun fyrir yfirstandandi ár sé gert ráð fyrir um 380 milljóna króna hagnaði, en upphaflega hafí verið gert ráð fyrir því að hagnaður ársins myndi nema 230 milljónum króna. Selja 4% hlut í SH Á fundi stjómar HB í gær var gengið frá sölu á 4% hlut fyrirtæk- isins í Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna til Kaupþings hf. Er tilgangur þessarar sölu m.a. sá að fjármagna sameiningu HB og Miðness, að sögn Sturlaugs. Hann segir bréfin hafa verið seld á genginu 5,5 og hafi sölu- verðmæti þeirra numið um 330 milljónum króna. Eftir þessa sölu á HB 8% hlut í SH. Hagnaður/Bl marka verksvið yfirstjórnarinnar. Viðskiptaráðhema segist síðan ætlast til þess að bankaráð hlutafé- lagsbankanna setji skýrar reglur um starfskjör yfirstjórnar og taki ákvörðun um heildarlaun í ráðning- arsamningi. I því felist m.a. að bankastjórar þiggi ekki laun fyrir setu í stjórnum, nefndum og ráðum fyrirtækja og stofnana á vegum við- komandi banka. Eitt meginmarkiniðið/B3 VERIÐ er að fræsa og styrkja hringveginn austan við Selfoss þessa dagana. Að sögn Oskars Sigvaldasonar hjá Borgarverki, eru þetta um 6,6 km sein gert verður við í tveimur áföngum, 5 km ntí í haust en næsta vor verð- ur gert við 1,6 km. Áætlaður kostnaður við verkið í heild er um 30 inilljónir. Sverrir Hermannsson bankastjóri Utvegs- menn verða að fínna sáttaleið SVERRIR Hermannsson, banka- stjóri Landsbanka Islands, varaði ís- lenzka útvegsmenn við því að þverskallast við'áleitinni umræðu í þjóðfélaginu um eignarhald á afla- heimildum og auðlindagjald á fundi með útvegsmönnum í Keflavík í gær. Sverrir sagði að útvegsmenn þyrftu að skynja tímanna tákn og verða fyrri til að finna sáttaleið í þessari hættulegu stöðu. Ella kynni að leiða til ófæru. Sverrir vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið, en á fundinum kynnti hann ásamt öðrum starfsmönnum Landsbankans sölu bankans á skip- unum Aðalvík KE og Njarðvík KE, sem nú hafa verið auglýst til sölu. Fram kom vilji stjórnenda bankans fyrir því að skipin yrðu áfram gerð út frá Suðurnesjum eða aflaheimildir þeirra nýttar þaðan. Áætla má að sameiginlegt verðmæti skipanna og aflaheimilda þeirra sé nálægt einum milljarði ki'óna. Suðurnesjamenn/6 --------------- Skákþing Islands Hannes og Jóhann efstir HANNES Hlífar Stefánsson og Jóhann Hjartarson eru efsth- með tvo vinninga eftir tvær umferðir á Skákþingi Islands á Akureyri. Jón Viktor Gunnai'sson og Jón G. Viðarsson hafa llÆ vinning hvor. Jón Viktor vann Rúnar Sigurpálsson, Jóhann vann Arnar Þorsteinsson, Þröstur Þórhallsson vann Braga Þorfinnsson, Jón G. vann Áskel Örn Kárason, Þorsteinn Þorsteinsson vann Gylfa Þórhallsson og Hannes Hlífar vann Sævar Bjarnason. Samkeppnisráð telur hættu á markaðsyfirráðum Pósts og síma Keppinautar fái aðgang að gagnagrunni símaskrár Viðskiptaráðherra á stofnfundi hlutafélaga í stað ríkisbanka í gær Verði skrásett á V erðbréfaþingi verði starfsheitin aðstoðarbanka- stjóri og framkvæmdastjóri ekki notuð í stjórnskipulagi bankanna. Með þessu er ætlunin að einfalda stjómkerfi bankanna og skýra og af- SAMKEPPNISRÁÐ hefur ákvarðað að Póstur og sími hf. veiti þeim keppi- nautum sem þess óska aðgang að gagnagrunni símaskrár Pósts og síma hf. og skuli aðgangurinn veittur með sambærilegum kjömm og skilmálum sem gilda munu fyrir tölvutæka símaskrá Pósts og síma hf. Blendin sigurgleði hjá KR- MEISTARATITLI í knattspyrnu var fagnað í Vesturbænum í gær þegar KR-stúlkur tryggðu sér sigur á Islandsmótinu með 6:0 sigri á Stjörnunni. Sigurgleðin var þó blendin því hugur stúlknanna var hjá Rögnu Lóu Stefánsdóttur, leikmanni og þjálfara liðsins. Hún fótbrotnaði illa í landsleik á móti Úkraínu á sunnudag og gekkst undir aðgerð á mánudagsmorgun. stúlkum Aðgerðin tókst mjög vel en Ragna Lóa liggur á gjörgæsludeild Sjúkrahúss Reykjavíkur vegna íferðar í lungum í kjölfar svæfingarinnar fyrir fyrmefnda aðgerð. KR-stúlkur höfðu á orði að sigurinn í gær væri kveðja til Rögnu Lóu og um leið afmælisgjöf. Afmælisgj öf/B8 Fyrirtækið Alnet kvartaði yfir því til Samkeppnisstofnunar síðastliðið vor að fyiártækinu hefði verið synjað um aðgang að símaskrá Pósts og síma hf. á tölvutæku formi, en Alnet hóf útgáfu hugbúnaðar sem kallast Tölvusímaskráin árið 1995 og setti á almennan markað. í upphafi árs 1997 tilkynnti Póstur og sími hf. að fyrirtækið hygðist sjálft setja á markað tölvuvædda símaskrá og í kjölfar þess fór Alnet þess á leit að fyrirtækinu yrði seldur aðgangur að tölvutæku formi símaskrárinnar til þess að jafna samkeppnisskilyrðin á markaðnum en þeirri beiðni var hafnað. Sú staðreynd að eingöngu Póstur og sími hf. hefur aðgang að ski'á yfir öll starfandi fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga á Islandi skapar að mati samkeppnisráðs verulega hættu á því að fyrirtækið noti styrk sinn á markaði fyrir almenna símaþjón- ustu, sem á rætur sínar að rekja til áralangs einkaleyfis, til þess að ná yfirráðum á tengdum mai'kaði í mót- un, þ.e. markaðnum fyrir tölvutækar símaskrár. Að mati ráðsins getur þessi aðstaða í raun komið í veg fyrh' möguleika á samkeppni á jafnræðis- grundvelli í útgáfu umræddra skráa. í ákvörðun samkeppnisráðs kemur fram að með heimild í 17. grein sam- keppnislaga og með vísan til stöðu Pósts og síma hf. telji ráðið að nauð- synlegt sé að grípa til aðgerða sem girði fyrh' hættuna á því að Póstur og sími hf. raski samkeppninni á markaðnum fyrir tölvutækar skrár yfir íslensk fyi-irtæki, stofnanir og einstaklinga. „Eigi útgáfu- eða hugbúnaðarfyr- h'tæki að geta keppt við Póst og síma í útgáfu tölvutækra skráa telur samkeppnisráð nauðsynlegt að keppinautar sem eftir því óska fái aðgang að gagnagrunni Pósts og síma,“ segir í ákvörðuninni. ------♦-♦-♦--- Leikskólakennarar Sáttafundur fram á nótt SÁTTAFUNDUR leikskólakennara og viðsemjenda þeiira hófst um kl. 20 í gærkvöldi hjá ríkissáttasemj- ara. Á tólfta tímanum var engar fregnir að hafa af viðræðum en Þór- ir Einarsson ríkissáttasemjari bjóst við að nýr fundur yrði boðaður um næstu helgi. Yfir/28
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.