Morgunblaðið - 11.09.1997, Blaðsíða 48
v- 48 FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Stutt
"Chelsea lát-
in í friði
► RITSTJÓRI skólablaðs Stan-
ford-háskóla hefur heitið því að
taka Chelsea Clinton, dóttur for-
setahjónanna, ekki sérstaklega
fyrir þegar hún hefur námsferil
sinn við skólann í haust.
Eins og aðrir fjölmiðlar mun
skólablaðið gera því skil þegar
forsetahjónin verða við skóla-
setninguna með dóttur sinni 19.
september næstkomandi, en eftir
það verður komið fram við hana
eins og „venjulegan nemanda“.
Það þýðir að þáttur hennar í fé-
lagslífinu verður ekki undir smá-
sjá blaðsins.
„Ef hún stendur fyrir frétt-
næmum atburði munum við auð-
vitað gera því skil,“ segir Caro-
lyn Sleuth, ritsljóri blaðsins. „Til
dæmis ef hún stofnar félag
demókrata í Stanford.“ A hinn
bóginn ef hún verður sektuð fyr-
BILL Clinton faðmaði dóttur
sína að sér þegar þau fóru frá
eyjunni Martha’s Vineyard sl.
sunnudag eftir þriggja vikna
sumarleyfi.
ir hraðaakstur eða brýtur minni-
háttar reglur á heimavistinni
verður því ekki gert skil á síðum
blaðsins.
Þá verða starfsmenn blaðsins
reknir ef þeir blaðra um Chelsea
í aðra fjölmiðla.
Gæðamyndir
• /
ur sjonvarpi
HBO
NÚ NÝLEGA gerði myndbandaút-
gáfan Bergvík samning við kapal-
sjónvarpsstöðina HBO [Home Box
Office] um dreifingu á myndum
hér á landi. HBO hóf útsendingar
sínar árið 1972, en útsendingin
náði til 365
áskrifenda
hjá
„Service
Electric
Cable TV“.
í fyrstu
var efni stöðvarinnar mest megnis
bundið við útsendingar af íþrótta-
viðburðum og gamlar kvikmyndir
og var HBO fyrsta sjónvarpsstöðin
til að notast við gervihnött í út-
sendingum sínum, en það gerðist
árið 1975 þegar sjónvarpað var
frá viðureign Muhamed Ali og Joe
Frazier í Manila.
.1 —
Ert þú tilbúin aó gera eitthvaó í því núna?
Ef svo er, leyfð’u okkur þá aó hjálpa þér.
Tímar fyrir konur sem eru alltaf aó tala um aó losa sig vió síóustu 5 kg.
og hafa bara ekki haft tíma til þess, fyrr en nú.
Stig 1: Fyrir þær sem þurfa aó missa 5-15. kg.
Stig 2: Fyrir þær sem þurfa aó missa 15 kg. eóa meira.
Okkar eftirsóttu 8 vikna
fitubrennslunámskeió
hefjast 15. og 16. sept.
• 3x í viku
• Fitumælingar
• Ráógjöf um mataræói
• Matardagbækur
• Girnilegar mataruppskriftir
• Verólaun fyrir ástundun
• Markmióssetningar
• Frjáls mæting í aóra tíma
561-3535
| ...og kílóin fjúka burt í
>mBót
- UKAMSRÆKTARSTOP
FROSTASKJÓU 6 - SÍMI: 561 3535
OPIÐ HÚS
Við bjóóum þér ókeypis
líkamsrækt í 4 daga!
í dag fimmtudaginn 11. sept, og fram á sunnudag 14. sept
bjóóum vió þér aó koma og kynna þér stundaskrána,
fara í tíma hjá okkar frábæru kennurum, prófa
CYBEX-tækjasalinn og okkar áhrifaríku Spinning-hjól.
Árið 1981 þreytti stöðin frum-
raun sína í gerð sjónvarpsmynda
og var það „The Terry Fox Story“.
Árið 1988 fékk HBO þrenn
Emmy-verðlaun fyrir þættina
„Dear America: Letters Home
From Vietnam“ og „Jackie Mason
on Broadway“, en þetta var í
fyrsta skipti í sögu bandarísks
sjónvarps sem Emmy-verðaunin
voru veitt kapalstöð.
HBO hefur framleitt margar
gæðamyndir eins og „Barbarians
at the Gate“ með Jonathan Pryce
og James Garner í aðalhlutverk-
um, „Tuskegee Airmen“ með
Laurence Fishburne og „Crime of
the Century“ með Stephen Rea
og Isabellu Rosselini, en sú mynd
þykir ein af betri myndum sem
komið hafa út á myndbandi á
þessu ári.
Nýlega voru útnefningar til
Emmy-verðlaunanna birtar og
vakti það athygli að HBO fékk
fleiri útnefningar en NBC, ABC
og hinar stóru sjónvarpsstöðvarn-
ar, en stöðin fékk 90 útnefningar
alls. NBC tókst að lokum að næla
sér í 3 útnefningar í viðbót og
skaust þar með uppfyrir HBO með
92 útnefningar.
Margar af útnefningum HBO
fara til sjónvarpsmynda sem stöð-
in hefur látið framleiða eins og
„Crime of the Century“, sem hlaut
5 útnefningar og „Miss Evers
Boys“ sem hlaut 13 útnefningar.
„Miss Evers Boys“ kom út á mynd-
bandi í fyrradag og leika Laurence
Fishburne og Alfre Woodward
aðalhlutverkin í henni.
MYNDBOND
Þar sem leikar-
arnir njóta sín
Drengir fröken Evers
(Miss Evers ’ Boys)____________
D r a m a
★ ★ ★ Vi
Framleiðendur: Derek Kavanagh,
Kip Konwiser. Leikstjóri: Joseph
Sargent. Handritshöfundur: Walter
Bernstein. Kvikmyndataka: Donald
M. Morgan. Tónlist: Charles Bern-
stein. Aðalhlutverk: Alfre Wood-
ard, Laurence Fishburne, Craig
Sheffer, Joe Morton, Obba Babat-
undé, E.G. Marshall. 113 mín.
Bandaríkin. Bergvík 1997. Útgáfu-
dagur: 9. september. Myndin er
bönnuð börnum innan 12 ára.
TITILL myndarinnar dregur
nafn sitt af svertingjahljómsveit
einni sem skírði sig í höfuðið á
^hjúkrunarkonu
(Alfre Wood-
ard), en þeir,
ásamt mörgum
öðrum, héldu að
fröken Evers
væri að hjálpa
þeim að lækna
hið svokallaða
slæma blóð
þeirra, en það
var orðið sem þeir notuðu yfir
sárasótt. Raunin var sú að Evers
var einungis að fylgja eftir stórsk-
rítinni hugmynd yfirvalda um að
athuga sárasótt í svertingjum, því
að talið var að líffræðileg upp-
bygging blökkumanna væri ekki
eins og hvíta mannsins. Fröken
Evers trúði því nær alla sína
starfstíð að hún væri að hjálpa
mönnunum, þrátt fyrir að lyf hefði
komið á markaðinn 1942, sem
hélt sárasóttinni í skefjum, en „til-
raunadýrin“ fengu þau ekki vegna
þess að vísindin þurftu að fylgjast
með þróun sjúkdómsins.
Hlutverk fröken Evers myndu
margar góðar leikkonur selja sálu
sína fyrir að leika. Það reynir á
allar hliðar Woodard í túlkun
hennar á þessari sterku en jafn-
framt tilfinninganæmu persónu og
slær hún enga feilnótu í hlutverki
sínu og sömu sögu er að segja um
Laurence Fishburne, sem leikur
manninn sem hún elskar en örlög-
in leyfa henni ekki að fá. Aðrir
leikarar standa sig frábærlega og
verður að minnast á læknana tvo
sem eru leiknir af Craig Sheffer
og Joe Morton. Sheffer, sem hefur
ekki verið svona góður síðan hann
lék í „River Runs Through It“, er
senditík yfii-valdanna en hann nær
einnig að sýna á sér mannlegar
hliðar eins og þegar hann minnist
þess að hafa farið á „Cotton Club“.
Joe Orton, sem er aðdáendum leik-
stjórans John Sayles („Lone Star“)
kunnur, leikur svarta lækninn sem
missir trúna á læknavísindin þegar
hann þarf að samþykkja þessa
ómannúðlegu tilraun á mönnun-
um. Handrit Walter Bernstein er
byggt á leikriti David Feldshuh
og er oft á tíðum dálítið leikhúss-
legur bragur á myndinni en það
fór ekki í taugarnar á mér. Leik-
stjórinn Joseph Sargent leyfir leik-
urunum að njóta sín því þetta er
fyrst og fremst myndin þeirra.
Ottó Geir Borg