Morgunblaðið - 11.09.1997, Blaðsíða 50
50 FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
0 R I G I N A L|
Levrs
S T O R E
MIKILL AFSLÁTTUR
- í nokkra daga -
LEVI’S BÚÐIN - LAUGAVEGI 37 - REYKJAVÍK - S. 561 8777 - RÁÐHÚSTORGI 9 - AKUREYRI - S. 461 1858
Morgunblaðið/Kristinn
EGILS STRAUME er afkastamikið tónskáld og kunnur
hljóðfæraleikari, auk þess að vera virkur í félagsmálum tón-
listarmanna. Hann er stofnandi Tónlistarmiðstöðvar Lett-
lands, sem skipuleggur vinsæla og sérstæða listviðburði.
Tónsmíðar hans eru flestar einleikskonsertar fyrir ýmis
hljóðfæri, svo og kórtónlist.
ÚTSALAN
HEFST í DAG KL. 10.00
HÚN er þekkt meðal þeirra sem
hlusta á kröftugt og óháð rokk í
Þýskalandi en síður hér á landi.
Nafn hennar er Þrettán og höfuð-
paurinn er Hallur Ingólfsson.
Kraftbirtingin verður í Tunglinu í
Lækjargötu í kvöld, 11. september.
Þrettán er hugarsmíð Halls.
Hann semur lög og texta, syngur og
spilar á gítar, aðrir í hljómsveitinni
núna eru Birgir Jónsson á tromm-
um, Ingvar Jónsson hljómborði,
Sigurður Geirsson bassa.
I Þýskalandi er nokkur gróska í
svokölluðu óháðu rokki sem fetar
sig ekki upp vinsældalista dægur-
laganna - og mun hljómsveitin 13
fara í tónleikaferð um Þýskaland til
að sinna þyrstum rokkurum. Ferðin
mun standa frá 22. september til 4.
október og verða tónleikar meðal
annars í Berlín, Stuttgart og Ham-
borg.
„Við höfum fengið góðar viðtökur
í Þýskalandi," segir Hallur Ingólfs-
son, „og hafa tveir geisladiskar ver-
ÞRETTÁN:
Hallur Ingólfs-
son spilar og
syngur í Tungl-
inu í kvöld.
ið gefnir út undir nafninu Þrett-
án. Sá fyrri var gefínn út árið
1995 og hinn núna í vor.“
Útgáfu- og dreifingarfyrir-
tækið í Þýskalandi heitir Sema
Phore sem meðal annars dreifír
diskum þekktra hljómsveita
eins og Offspring. Fyrirtækið er
þekkt fyrir að grípa efnilega
tónlistarmenn og gefa þeim
tækifæri.
Verður á þýskum afmælis-
disk The Cure til heilla
Hallur segir fleira í bígerð,
því honum hefur verið boðið að
vera með á afmælisdisk hljóm-
sveitarinnar The Cure sem gef-
inn verður út í Þýskalandi í des-
ember. „Um er að ræða 20 ára
afmæli hljómsveitarinnar og
ætla ég að flytja lagið Lullaby
eftir hana,“ segir Hallur.
Þótt aðdáendahópur 13 hafí
ekki verið jafnljölmennur á Is-
landi og í Þýskalandi gæti hann
ef til vill stækkað í Tunglinu í
kvöld.
Þrettán er nafn og tákn yfír
það sem Hallur er að gera. Það
getur verið hljómsveit og það
getur líka verið eitthvað annað,
a.m.k. er Hallur sjálfur ævin-
lega til staðar og tónlistin sem
hann spilar er kröftug og óháð
vinsældum.
Námskeið um kristna trú í
allan vetur fyrir 5.000 krónur!
Kennsla hefst 17. september.
Hringdu og við sendum
þér bækling.
Leikmannaskóli kirkjunnar
S/mi 562 1500
Á hátíðinni í dag:
Kt. 17.00 síðdegisjazz á
Jómfrúnni við Lækjargötu:
Djazzklúbbur RúRek;
Hljómsveit Gunnars
Hrafnssonar og Andrea
Gylfadóttir
Kl. 21.00 Trió Egils Straumes
i Sunnusal Hótel Sögu
Kt. 21.00 Off-Off Teater í
Tjarnarbíói fyrri sýning á
djassverkinu Gagarín -
síðasta hetjan
Kl. 23.00 RúRek á miðnætti:
Spuni í tali og tónum á
Jómfrúnni við Lækjargötu
Miðasala
i Japis Brautarhotti
Miðapantanir
í sima 551 0100.
- kjarni malsins
Djasshátíðin
V7
•r
Leik mér eftir að
ég varð fullorðinn
„VIÐ leikum samtímadjassverk
sem samið var til minningar um
kvikmyndagerðarmanninn
Andres Slapens,“ segir Egils
Straume. Hann leikur með tríói
sínu í Sunnusal Hótels Sögu í
kvöld.
„Slapens var vinur minn og
lést í sjálfstæðisbaráttu Lett-
lands. Hann tók þátt í átökum
við einn af vegatálm- _________________
unum sem Lettar Flutningur
höfðu komið fyrir og verksins tekur
var skotmn til bana
af KGB. Flutningur
verksins tekur 80
80 mínútur
Vildirðu ekki frekar vera úti
að leika við hina krakkana?
„Nei, það held ég ekki. Eg
hafði ekki nógan tíma. En ég
reyni að leika mér núna eftir að
ég varð fullorðinn.“
Af hverju hrífstu af djass-tón-
list?r
„Astæðan er sú að hver tón-
smíð hefst á spuna. Öll helstu
________ tónskáld sögunnar,
frá Bach til Beet-
hoven, byrjuðu dag-
inn þannig og skrif-
uðu svo nótur. Tón-
verk eru alltaf eins,
mínútur og er það byggt á fimm
þjóðlögum frá Lettlandi.“
Hvenær byrjaðir þú að læra
tónlist?
„Þegar ég var fjögurra eða
fimm ára. Það var reyndar ekki
mín ákvörðun heldur ákváðu for-
eldrar mínir það fyrir mig.“
en spuni er nýr af nálinni í hvert
skipti. Orgelleikarar eru dálítið
svipaðir djassleikuram að þessu
leyti. Þeir færa tónverk í þann
búning sem æskilegur er hverju
sinni með spunavinnu. Þannig
gefa þeir verkinu af sálu sinni
með hljóðfærinu."