Morgunblaðið - 11.09.1997, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 11.09.1997, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1997 25 JUKKA Suvilehto, 1990. Augnablik... MYNPLIST List og hönnun Norræna húsiö a n d d y r i LJÓSMYNDIR FRÁ SAMA- BYGGÐUM FINNLANDS Jukka Suvilehto. Opið alla daga á timum Norræna hússins. Til 14. sept- ember. Aðgangur ókeypis. .. .AUGNABLIK í tímans straumi, nefnist sýning Norður- Finnans með fjarræna nafnið Jukka Suvilehto. Hann nam við Lahtis Design Skole á árunum 1981-84, en sneri aftur til heimaslóðanna og býr í Rovaniemi. Hefur starfað við Héraðssafnið í Lapplandi frá 1985, sem naut þess mikla heiðurs að hljóta verðlaun Evrópuráðsins, Safn ársins í Evrópu, 1993. Framkvæmdin er afrakstur gagn- gerðrar heimildasöfnunar um lífs- hætti _Sama í nútíma samfélagi og veitti íslenzk-finnski menningarsjóð- urinn styrk til sýningarinnar. Það sem Suvilehto gengur til, að eigin sögn, er að festa nútímann á filmu, mynda daglegt líf almennings fyrir komandi kynslóðir. Fer mörgum sinnum á þá staði, sem hann hyggst afla heimilda um og segir að síðasta myndin sé ávallt sú besta, fólkið venj- ist ljósmyndavélinni smám saman. Um er að ræða framúrskarandi vel teknar og unnar ljósmyndir, þar sem áhersla er lögð á fegurð hins sjónræna í umhverfinu, þannig að gerandinn gengur mun lengra en að taka einungis heimildarmyndir. í honum býr auðsjáanlega ríkur metn- aður til að ná fram sem myndræn- ustum árangri og það tekst honum með miklum ágætum í nokkrum myndanna. Einkum á þetta við um hin sértæku sjónarhorn og nefni sem dæmi myndirnar „Sodankyl" (2), „Eystri landamærin" (3), „Enotekiö" (13), Hús fiskimannsins" (15) og „Hreindýrahirðir 11“ (17). í fyrra skiptið sem rýnirinn skoð- aði sýninguna var margt um mann- inn í anddyrinu, en í seinna skiptið var hann aleinn. Tók vel eftir að myndirnar nutu sín betur í marg- menni líkt og þær þörfnuðust félags- skapar, mannlegrar nándar, og þær lyftu sömuleiðis upp stemmningunni kringum fólkið. Þetta stafar af því að anddyrið er takmarkað og naum- ast vel fallið til sýninga sem þurfa hnitmiðaða innsetningu í sveigjan- legt rými. En veigurinn er þó, að hér er afar vönduð ljósmyndasýning á ferðinni, sem rýnirinn hafði mikinn ávinning af að nálgast, og telur ástæðu til að vekja sérstaka athygli á. Bragi Asgeirsson Nýjar bækur • AF tvennu illu er eftir dr. Kristján Kristjánsson heimspeking, dósent við Háskólann á Akureyri. Hún er safn rit- gerða um fjöl- breytt efni: sið- ferði, stjórnmál, heilbrigðismál, menntun og listir. í kynningu segir: „Kristján er skel- eggur og skorin- orður og skrifar til þess að hreyfa við lesendum sín- um, leikum ekki síður en lærðum, þoka skoðunum þeirra um set eða stía þeim í önd- verða stefnu. Verk hans eru byggð á traustum fræðilegum grunni en efni og efnistök eru slík að þau höfða til breiðs lesendahóps.“ Ritgerðasafn Kristjáns, Þroska- kostir, var tilnefnt til íslensku bók- menntaverðlaunanna árið 1992, og fyrir skömmu hlaut hann Hvatning- arverðlaun Rannsóknarráðs íslands fyrir framúrskarandi árangur og afköst á svið heimspekirannsókna. Útgefandi er Heimskringla, Há- skólaforlag Máls og menningar. Bókin er 328 bls., prentuð íSvíþjóð og kápu gerði Erlingur Páll Ing- varsson. Verð bókarinnar er 3.880 kr. Nýjar hljómplötur • ÚT er komin hljómplatan Þrír heimarí einum, með frumsaminni raftónlist eftir Kjartan Ólafsson. Á plötunni er að finna þrjú tónverk, Samantekt, Tvíhljóð II og Skamm- degi, sem voru samin á síðustu árum í Finnlandi og á íslandi. Flytj- endureru auk Kjartans, Pétur Jóns- son, klassískurgítarleikari, Hilmar Jensson, jassgítarleikari, og Matthí- as Hemstock, trommu- og slag- verksleikari. í kynningu segir að tónlistin sé unnin með ólíkum aðferðum, allt frá tölvureiknuðu efni að frjálsum spuna og kennir þar áhrifa frá nú- tímatónlist, jass, rokki og klassískri tónlist. Útgefandi er ErkiTónlist sf. og sérJapis um dreifinguna. Verð kr. 1.999. Kristján Kristjánsson þannig séð næst endurminning- unni um gróðurmögn heimalands- ins. Ragna Ingimundardóttir, sem sýnir í kjallararýminu hefur haldið nokkrar einkasýningar og jafn- aðarlega hefur hún verið með stóra og fyrirferðamikla hluti. Hún bregður ekki út af vananum að þessu sinni, og er mætt til pataldurs með heil 26 stór ker og 8 borð, sem hún hefur skreytt leir- flísum og eru þau nýjung frá hennar hendi. Kerin eru yfirleitt þakin skreyti og hér ferst Rögnu misvel að tengja það lögun kerj- anna. því einfaldara og hreinna sem skreytið er þeim samræmdari verður heildarárangurinn. Það er um leið sláandi, að þar sem kerin eru formhreinust í sinni sígildu útfærslu er skreytið einfaldast og hrifmest. Nefni helst nr. 19, 30 og 33, sem öll eru einföld og form- sterk og hér hygg ég að sé vett- vangur hennar. Vísa til og minni á, að fegurð leirkera byggist sjaldnast á skreyti ytra byrðis heldur tærleika formsins, hvort heldur það er létt hárnákvæmt og leikandi líkt og hjá Alev Siesbye eða þungt og kröftugt eins og hjá Thorvald Bindesböll, en Ragna getur mikið sótt í smiðju þeirra beggja. Borðin eru afar almenns eðlis og hér bætir Ragna engu við list sína að rnínu viti, rétt að vísa til þess að handverk er eitt, listiðn- aður og skapandi hönnun annað, þótt hvorutveggja geti trauðla án hins verið. „ . ; Bragi Asgeirsson L. F Y R I R * * «inoi 'j A L L A Allir almennir dansar fyrir börn, unglinga og fullorðna. Byrjendur og framhald. Samkvæmiidanfar Rokk Kántrý Gömlu dantarnir Hópæfinvar með dantkennara ffifinvaaðftaða Íkemmtilevt fólk Félavfftarf Ath. opið hús á laugardagskvöldum Innritun og upplýsingar ísíma 564 -1111 Fa^nernsia ífyrirrmi Dfln«KÓLI Sigurðar Hákonarsonar Dansfélagið Hvönn Auðbrekku 17 - Kópavogi Krakkabrawðið hcfur bragð og útlit ftna brauðsins cn hollustu |>css grófu. Nœringurcfnum sem tattast oið fínmölun korns cr bu:U aftur út í brattðið og l-ví cr |,uð ríkt uf trcfjwm, steincfnwm og B-vítamíni. Æg Skól )!<«• ikk.u- biuf i \ fullii oíku siiini ið tt.il.l i ril ið kl.fi.i l.uig.i skóliiligi. Ki.ikkr- bv.iuðið ov ÍVollt O't b otiofoiiikt o’oví tilvilioo kostiti í skól toostið Ss.iiiU iiijólkiooi oði Jv.ixtis.if.iilóro. ________ ...................v. -vir íÖ3jca.r-vM»í-j Nú tuðvolt fytii ill i ki tkk t tð oigmst skoiorotilogt fcox fyiii sk.Sl toostið. BilH ÍOIO ÍMif \6 goí \ oí \ð loyr \ i lðgúimm l\ói \ð of írt, fyll \ og klipp út ioið\oo Íióí .\«5 itoðoo og soit'l \ Stii|fí}luí?ik\íti fí iirtt 3 K< \kk \biouðiiiiotkjniit sont 'pú klippii \f itirtbúðrtitmrt Allif 'pUtt\koit‘l'ti fí itostii'.’ox H -soitt iioint fytii 1. itóv, og oiit ítoppiit íjólskyM \ vioit>ic 500.000 kf. úttokt tð •-':t''t v-’li í IKiiA. .rfrrríN Svar: Nafn: Heimilisfang: Póstnúmer: _ Sveitarfélag: — Svarið gátunni, setjið svarscðitinn í uinslng ásumt 1 Krakkabrauósmcrljum scm fið ktippió at' umbúðunum og sendið til: Samsölubakari, Lynghálsi 7, 130 Reykjavík fyrir 15. október.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.