Morgunblaðið - 11.09.1997, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 11.09.1997, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1997 33 ÁS FRÁ Syðri-Brekkum og Sigrún Erlingsdóttir tókst EFTIR jafna keppni sigruðu Prins frá Hörgshóli og ENN eru þeir Farsæll frá Arnarhóli og Ásgeir Svan að velgja Farsæli og Ásgeiri Svan undir uggum. Sigurður Sigurðarson í A-flokki gæðinga. ósigraðir þótt tæpt hafi það staðið nú. Metin stóðust metamótið Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson FÖNGULEGIR B-flokksgæðingar að loknum úrslitum. Frá vinstri talið Erling á Rökkva, Sigríður á Rómi, Fríða á Djákna, Hugrún á Blæ, Alexander á Kveik, Sigurbjörn á Oddi, Sigrún á Ás og Ásgeir á Farsæli. HESTAR K j óavc11 i r METAMÓT MEÐ DYGGRI aðstoð veðurguðanna stóðust íslandsmetin Metamótið sem haldið var nú í þriðja sinn á Kjóavöll- um í Garðabæ. Hafi einhverntíma verið góð von á meti á þessum mót- um var það nú. Bæði Snarfari frá Kjalarlandi og Lúta frá Ytra-Dals- gerði hafa nýlega höggvið nærri metinu í 150 metra skeiði en bæði rokið og rigningin sáu til þess að ekki yrði í fyrsta skipti sett met á metamótinu. Met í þátttöku En þrátt fyrir þetta andóf nátt- úruaflanna verður ekkki annað sagt en mótið hafi tekist vel miðað við aðstæður. Keppt var í A- og B- flokki gæðinga á beinni braut og var þar samankomið mikið gæðingaval. Einkunnir voru í samræmi við það og þátttakan í báðum flokkum hreint ótrúlega mikil. Sextíu hestar voru skráðir í A-flokk og fjörutíu og fímm í B-flokk. Eina met metamótsins var því þátttökumet sett áður en sjálft mótið hófst. Þetta mót sýnir svo ekki verði um villst að gróskan í hestamennskunni er mikil og ein- dreginn hugur manna að lengja keppnistímabilið. Að lokinni forkeppni voru efstir og jafnir Váli frá Nýjabæ sem Elías Þórhallsson sýndi og Prins frá Hörgs- hóli og Sigurður Sigurðarson með 8,64. Jafnir í þriðja og fjórða sæti voru Sveinn Ragnarsson með Reyk frá Hoftúni og Sigurbjörn Bárðarson með nýjan hest, Hyl frá Efri Múla, báðir með 8,58. Af þessu má sjá að spennan var mikil og enginn öruggur með sigur. í úrslitum brást skeiðið hjá Vála, vantaði kraftinn þegar á reyndi, en Sigurði gekk allt í haginn með Prins og sigurinn var þeirra og farmiði til framandi landa. Tæpt þjá Farsæli í B-flokki gerðust þau tíðindi að yfirburðahesturinn Farsæll sem Ás- geir Svan Herbertsson sýndi að venju var í öðru sæti eftir forkeppni á eftir Ási frá Syðri Brekkum og Sigrúnu Erlingsdóttur. Ás vakti mikla athygli á reiðhallarsýningu síðastliðinn vetur en lítið hefur borið á honum síðan og kemur nú sterkur til leiks. Sigurbjöm var skammt undan með Odd frá Blönduósi. í úrslitum hafði Farsæll og Ásgeir betur og hlutu farmiða og fyrsta sætið. Það var fyrst og fremst brokk- ið sem færði Farsæli og Ásgeiri sig- urinn að þessu sinni en yfirferðar- töltið var nú sem fyrr frábært hjá Ási. í töltkeppninni var allt samkvæmt bókinni. Sigurbjörn í fyrsta sæti á Oddi og Fríða kona hans skammt undan á Hirti frá Hjarðarhaga. Hugrún Jóhannsdóttir er að gera það gott með nýja hestinn sinn Blæ frá Sigluvík og hafnaði í þriðja sæti. Keppt var í þremur skeiðgreinum að þessu sinni. Auk 150 og 250 metranna var boðið upp á hið bráð- skemmtilega flugskeið þar sem ein- ungis er mældur skeiðhraði. Hest- arnir koma á fullri ferð á skeiði þar sem tímataka hefst og eiga að liggja 100 metra vegalengd. Athyglisvert er hversu sjaldan hefur verið boðið upp á þessa grein í sumar því hún er skemmtileg á að horfa, engar tafír við ræsingu og ekkert hnoð á rásmarki. Þórður Þorgeirsson og Lúta voru með besta tímann, 7,78, en Viðar Halldórsson og Prins frá Hvítárbakka komu næstir á 7,97, Sigurbjörn og Ósk frá Litladal á 8,0 og Logi Laxdal á Hraða frá Sauðár- króki á 8,20. Ósk frá Litladal sigraði í 250 metrunum á 23,10 sekúndum en þar setti veðrið strik í reikninginn því Ósk er nokkuð örugg að öllu jöfnu undir 23 sekúndunum. Glaður frá Sigríðarstöðum sem Hafsteinn Jóns- son sat er að sækja sig, varð annar og Auðunn Kristjánsson með Elvar Sig í þriðja sæti. Tímamir í skeiðinu voru mun lakari en efni stóðu til vegna veðursins. Launalausir dómarar Eins og áður sagði gekk fram- kvæmd mótsins ágætlega fyrir sig, tímasetningar stóðust prýðilega að því undanskildu að fresta varð hluta af skeiðkeppninni vegna veðurs þár til í mótslok. Athygli vakti hversu vel var mætt á mótið. Á það bæði við um áhorfendur og einnig hversu vel skráðir keppendur létu sig hafa það að fara út á völlin þegar veðrið var sem verst. Oft vill það brenna við þegar illa viðrar að keppendur skili sér illa í keppnina. Mót þetta er fyrst og fremst byggt upp á fram- taki nokkurra einstaklinga. Hesta- mannafélagið Andvari leggur til að- stöðuna og vissulega mæða móts- störfin mest á félögum úr Andvara eins og gefur að skilja. Verðlaun eru vegleg, gefin af ýmsum fyrirtækjum sem eru tilbúin að leggja hesta- mennskunni lið. Athygli vekur að á þessu móti gefa dómarar vinnu sína öfugt við það sem tíðkast hefur á mótum undanfarin ár. Sagði Ágúst Hafsteinsson, einn af framkvæmda- raðilum mótsins, að með því væri tryggt að ekki yrði halli á mótinu. Viðburður á Víðivöllum Um aðra helgi halda Fáksmenn, í samvinnu við Stöð tvö, Sýn og Skeiðmannafélagið, mót á Víðivöll- um og verður það væntanlega loka- punkturinn á lengsta keppnistíma- bili hestamanna til þessa. Stendur til að sjónvarpa beint frá mótinu og verður fróðlegt að fylgjast með hvernig til muni takast. Það er gam- all draumur hestamanna að komast í beina útsendingu en slíkt hefur verið gert einu sinni áður. Vonandi er að veðurguðirnir verði búnir með þetta geðillskukast sem þeir hafa verið í undanfarna daga því mikil- vægt er að vel takist til í þessari spennandi tilraun. Úrslit urðu annars sem hér segir: A-flokkur gæðinga: 1. Prins frá Hörgshóli, eig. Þorkell Traustason, kn. Sigurður Sigurðarson, 8,64 2. Váli frá Nýjabæ, eig. og kn. Elías Þórhallsson, 8,64 3. Reykur frá Hoftúni, eig. og kn. Sveinn Ragnarsson, 8,58 4. Hylur frá Efri-Múla, eig. og kn. Sigur- björn Bárðarson, 8,58 5. Demantur frá Bóistað, eig. og kn. Elsa Magnúsdóttir, 8,45 6. Kjarkur frá Ásmúla, eig. Ragnar Gunn- arsson, kn. Þórður Þorgeirsson, 8,51 7. Ás frá Háholti, eig. Már Haraldsson, kn. Magnús Benediktsson, 8,45 8. Prins frá Hvítárbakka, eig. og kn. Viðar Halldórsson, 8,43 B-flokkur gæðinga 1. Farsæll frá Amarhóli, eig. og kn. Ásgeir Svan Herbertsson, 8,60 2. Ás frá Syðri-Brekku, eig. Bjami Fri- mannsson, kn. Sigrún Erlingsdóttir, 8,65 3. Oddur frá Blönduósi, eig. og kn. Sigur- bjöm Bárðarson, 8,59 4. Kveikur frá Ártúni, eig. Óiöf Guð- mundsdóttir, kn. Alexander Hrafnkels- son, 8,49 5. Blær frá Sigluvík, eig. og kn. Hugrún Jóhannsdóttir, 8,44 6. Djákni frá Litla-Dunhaga, eig. og kn. Fríða H. Steinarsdóttir, 8,46 7. Rómur frá Bakka, eig. og kn. Sigríður Pjetursdóttir, 8,45 8. Rökkvi frá Fíflholti, eig. Sigurður Ragnarsson, kn. Erling Sigurðsson, 8,43 Tölt 1. Sigurbjöm Bárðarson á Oddi frá Biönduósi, 97,60 2. Fríða H. Steinarsdóttir á Hirti frá 'í ' Hjarðarhaga, 90,40 3. Hugrún Jónasdóttir á Blæ frá Siglu- vik, 89,80 4. Sævar Haraldsson á Glóð frá Hömlu- hoiti, 89,20 5. Erling Sigurðsson á Rökkva frá Fífl- holti, 87,00 6. Vignir Siggeirsson á Hvönn frá Torfu- nesi, 77,20 150 metra skeið 1. Lúta frá Ytra-Dalsgerði, eig. Hugi Kristinsson, kn. Þórður Þorgeirsson, 14,04 sek. 2. Bendill, eig. Helgi Sigurðsson, kn. Ragnar Hinriksson, 14,77 sek. 4k 3. Áki frá Laugarvatni, eig. Þorkell Bjamason, kn. Þórður Þorgeirsson, 14,81 sek. 4. Hraði frá Sauðárkróki, eig. Sigurbjöm Bárðarson, kn. Logi Laxdal, 14,93 sek. 5. Tangó, eig. og knapi Axel Geirsson, 15,13 sek. 250 metra skeið 1. Ósk frá Litladal, eig. og kn. Sigur- björn Bárðarson 23,01 sek. 2. Glaður frá Sigríðarstöðum, eig. og kn. Hafsteinn Jónsson, 23,40 sek. 3. Elvar Sig. frá Búlandi, eig. og kn. Auðunn Kristjánsson, 23,87 sek. 4. Hjörtur frá Ketilsstöðum, eig. Hjörtur Bergstað og Ragnar Hinriksson, kn. Ragnar Hinriksson, 24,04 sek. 5. Eldur frá Ketilsstöðum, eig. og kn. Einar Ö. Magnússon, 24,20 sek. Flugskeið lOOm 1. Lúta frá Ytra-Dalsgerði, kn. Þórður Þorgeirsson, 7,78 2. Prins frá Hvítárbakka, kn. Viðar Hall- dórsson, 7,97 3. Ósk frá Litladal, kn. Sigurbjöm Bárð- arson, 8,0 4. Hraði frá Sauðárkróki, kn. Logi Lax- dal, 8,20 5. Glaður frá Sigríðarstöðum, kn. Jón K. Hafsteinsson, 8,30 Valdimar Kristinsson Erling og Hinrik áskrif- endur að sigri í tölti HESTAR Ilrísholt GÆÐINGAMÓT LOGAMENN í Biskupstungum héldu sitt árlega hestamót um versl- unarmannahelgina í Hrísholti en þar er verið að byggja upp góða félags- aðstöðu. Risið er myndarlegt hest- hús sem eftir er að ganga frá að innanverðu og utan einnig. Fyrir er á svæðinu veitingaskúr og er í ráði að nýta svæðið í framtíðinni sem áningarstað fyrir hestamenn. Einnig er hugmyndin að nota hesthúsið þegar haldin eru reiðnámskeið á vetrum og vori og sömuleiðis vetrar- mót. Rigning setti nokkum svip á mót- ið í Hrísholti eins og oft áður sem er bæði kostur og galli þegar haldin eru mót upp til sveita á heyskapar- tíma. Hestakostur mótsins var svona allþokkalegur en tímabært er fyrir Logamenn að fara að huga að hring- vellinum svo gæðingarnir njóti sín sem best í sýningum. Um árabil hefur verið boðið upp á opna tölt- keppni í Hrísholti og svo var einnig nú. Erling Sigurðsson hafði þar sig- ur nú eins og undanfarin ár og hafði þulur á orði að líklega væri hann kominn með sigurlaunin í áskrift eins og reyndar Hinrik Þór Sigurðs- son sem sigraði í flokki unglinga og hefur gert undanfarin ár. Úrslit urðu sem hér segir: A-flokkur gæðinga 1. Sokkadís frá Bergsstöðum, eig. Hauk- ur Daðason, kn. María Þórarinsdóttir, 7,77. 2. Blesi frá Hólum, eig. og kn. Jóhann B. Guðmundsson, 7,90. 3. Blíða frá Kjamholtum, eig. Gísli Ein- arsson, kn. María Þórarinsdóttir, 7,64. 4. Hekla frá Gunnarsholti, eig. og kn. Kristinn Antonsson, 7,74. 5. Adam frá Skarði, eig. Sigurlína Krist- insdóttir, kn. Kristinn Antonsson, 7,70. B-flokkur gæðinga 1. Eva frá Skarði, eig. og kn. María Þór- arinsdóttir, 8,27. 2. Hergill frá Kjamholtum I, eig. Magnús Einarsson og Einar R. Magnússon, kn. Guðný Höskuldsdóttir, 8,12. 3. Mósi frá Einiholti, eig. Hrefna og Har- aldur, Einiholti, kn. Vilhjálmur Þor- grímsson, 8,20. 4. Starri frá Fellskoti, eig. og kn. María Þórarinsdóttir, 8,26. 5. Ögn frá Torfastöðum, eig. Drífa Krist- jánsdóttir, kn. Eldur Ólafsson, 8,10. Opin töitkeppni (eink. úr forkeppni) 1. Erling Sigurðsson á Kópi frá Krossi, 6,9. 2. Sævar Öm Sigurvinsson á Flaumi, 6,3. 3. Valdimar Kristinsson á Létti frá Krossamýri, 6,6. 4. Theodór Ómarsson á Rúbin frá Ög- mundarstöðum, 6,1. 5. Jens Einarsson á Skmggu frá Hala, 5,7. 6. Magnús Benediktsson á Garpi frá Búð- arhóli, 5,7. Ungmenni 1. Fannar Ólafsson og Eldjárn frá Hólum. Unglingar 1. Björt Ólafsdóttir á ísari frá Torfastöðum. Barnaflokkur 1. Eldur Ólafsson á Framari frá Árgerði. 2. Tinna Dögg Tryggvadóttir á Stormi frá Kjarnholtum I. 3. Fríða Helgadóttir á Vini frá Hrosshaga. 4. Ragnhildur Kjartansdóttir á Litla-Glóa frá Torfastöðum. Tölt - Unglingar 16 ára og yngri - Opið 1. Hinrik Þór Sigurðsson á Hug frá Skarði. 2. Rakel Róbertsdóttir á Hersi frá Þverá. 3. Anna Þórdís Rafnsdóttir á Pílu frá Hvammi. 4. Ragnar Gyifason á Létti frá Laugar- vatni. 5. Bryndís K. Sigurðardóttir á Þokka frá Hrólfsstöðum. Skeið, 150 m 1. Áki frá Laugarvatni, kn. Gylfi Þorkels- son, 15,7. 2. Ölver frá Stokkseyri, kn. Jón K. Haf- steinsson, 18,0. 3. Skári frá Laugarvatni, kn. Gylfí Þor- kelsson, 18,2. Skeið, 250 m 1. Glaður frá Sigríðarstöðum, kn. Jón K. Hafsteinsson, 25,8. C 2. Geisli, 26,8. 3. Asía frá Gmnd, kn. Magnús Benedikts- son, 27,8. Brokk, 300 m 1. Nari á 39,4. 2. Dropi frá Fjalli, kn. Björg M. Þórsdótt- ir, 47,3. 3. Spök á 56,5. Unghrossahlaup 1. Glói frá Reykjarhóli, kn. Stígur Sæ- land, 21. 2. Þota frá Efstadal, kn. Valdimar Kjart- ansson, 22,5. 3. Skömngur frá Efstadal, kn. Valdimar Kjartansson, 28,8. Stökk 300 m. 1. Vinur á 25,3. 2. Rösk á 25,8. 3. Randver, kn. Gyða H. Þorvaldsdóttir, 26,5. Knapi mótsins var valin María Þórar- insdóttir. Ásetuverðlaun fékk Eldur Ólafsson. Valdimar Kristinsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.