Morgunblaðið - 11.09.1997, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1997 11
FRÉTTIR
Míkíll bolti
veiddist í
Haffjarðará
MIKILL boltalax veiddist á loka-
degi laxveiða í Haffjarðará á
Snæfellsnesi á sunnudaginn.
Laxinn vó reyndar „aðeins“ 20
pund, en hann var 106 senti-
metra langur en reynslan hefur
hjálpað mönnum að gera þumal-
puttareglu sem er á þá leið að
laxar á bilinu 104-106 sentimetr-
ar eru um það bil 24 punda þeg-
ar þeir ganga úr sjó í fullum
holdum. Laxinn sem um ræðir
var grútleginn.
„Þetta var feiknalax og veiði-
maðurinn, Ragnar Gíslason, var
klukkustund að ná honum á land.
Laxinn veiddist í Urðinni og tók
rauða Frances númer 8,“ sagði
Einar Sigfússon, einn eigenda
Haffjarðarár, í samtali við blaðið
í gærdag. Sagði Einar að .veiði-
skýrslur sumarsins væru í yfir-
lestri, en lokatalan lægi ekki enn
fyrir. „Þetta eru hátt í 600 laxar
í sumar og við erum ánægð með
það. Það var mikill lax í ánni og
aldrei dauður punktur í veiðinni
þótt hún væri misjöfn frá degi
til dags,“ bætti Einar við.
Hörkugöngur hafa
komið í Geirlandsá
Lífleg sjóbirtingsveiði hefur
verið í Geirlandsá þegar veður
hefur leyft að undanförnu. Til
marks um það veiddi eitt hollið
30 birtinga og einn lax á tveimur
dögum fyrir skömmu. Sást mikið
af fiski og var mikið af honum
stór. Fimm fiskar voru 10 punda.
Góðar skorpur komu í hollinu,
þannig lenti einn veiðimaðurinn
í göngu í Ármótunum og veiddi
9 fiska í beit.
RAGNAR Gíslason með stórlaxinn úr Urðinni í Haffjarðará,
20 punda.
Skot í Hítará
Skot kom í Hítará um helgina
að sögn Bergs Steingrímssonar
hjá SVFR. „Hann hringdi í mig
hann Haraldur Eiríksson, ungur
strákur sem hefur verið leiðsögu-
maður í Kjósinni í sumar. Hann
var að veiða í einn og hálfan dag
í Hítará um helgina og fékk fimm
laxa og átta bleikjur. Laxarnir
voru allir grálúsugir og upp í rúm
8 pund. Stærsta bleikjan var 5
pund og sú smæsta 2 pund.
Haraldur sagðist hafa séð mikið
af nýjum laxi, mest þó á Breið-
inni, en einnig í Langadrætti þar
sem laxinn stökk viðstöðulaust.
Vonandi veit þetta á góðan enda-
sprett í ánni, því veiðin hefur
ekki verið upp á það besta það
sem af er,“ sagði Bergur. Áin
hefur nú gefið rétt um 180 laxa.
Laugardalsá örlítið
betri en í fyrra
Veiði lauk í Laugardalsá við
Djúp í gærdag og sagðist Sigur-
jón Samúelson á Hrafnabjörgum
ekki vera búinn að telja saman
úr veiðibókinni enn. „En þetta
eru milli 130 og 140 laxar í sum-
ar. Það er betra en í fyrra, þá
veiddust 112 laxar. Það er reyt-
ingur af laxi um alla á, en hefur
tekið illa að undanförnu. Þetta
er ekkert á við það sem var hér
á árum áður, þá var áin full af
laxi og fyrir kom að holl /engu
á annað hundrað laxa. Áin er
að framleiða nóg af seiðum, en
það er greinilegt að það kemur
lítið eða ekkert af þessu heim
úr hafínu,“ sagði Siguijón.
Stærsti laxinn í sumar var 16
pund, en aflinn var þar fyrir utan
af öllum stærðum.
Ný langbylgjustöð Ríkisútvarpsins
á Gufuskálum
Áður en húð þín verður mínútu eldri.
Almenningur
hvattur til að eiga
langby lgj uútvarp
TIL þess að fullum árangri af upp-
byggingu langbylgjustöðva Ríkisút-
varpsins verði náð er nauðsynlegt
að sem flestir íslenskir útvarpsnot-
endur eigi viðtæki með langbylgju-
sviði. Þetta kom m.a. fram í ræðu
sem Markús Örn Antonsson, fram-
kvæmdastjóri Ríkisútvarpsins,
flutti þegar ný langbylgjustöð var
tekin í notkun á Gufuskálum á
mánudag.
í máli sínu lagði Markús Örn
mikla áherslu á öryggi í útvarps-
sendingum og mikilvægi langbylgj-
unnar fyrir almannavarnir. Hann
rakti hvernig langbylgjusendingar
Útvarpsins hefðu verið óviðunandi
frá því að langbylgjumastrið á
Vatnsenda féll í ofsaveðri í febrúar
1991, fyrst hefðu þær fallið niður
með öllu en síðan verið hafnar að
nýju með mjög skertri sendiorku.
Nú sæi hins vegar fyrir endann á
því ástandi og Ríkisútvarpið hefði
aldrei átt jafn öflugan sendibúnað
og þann sem nú hefði verið tekinn
í notkun.
„Aðstæður á íslandi og umhverf-
is landið kalla á öryggi í útvarps-
sendingum. Með uppbyggingu lang-
bylgjustöðvanna til hliðar við FM-
kerfið er tryggt að dagskrárefni
Ríkisútvarpsins, veðurfregnir og
önnur áríðandi boð berist um landið
allt, inn á hálendið og á haf út.
Langbylgjan er einnig til vara ef
FM-sendar bila. Til þess að fullum
árangri af þessum aðgerðum verði
náð, er tímabært að brýna fyrir ís-
lenskum útvarpsnotendum að eiga
viðtæki með langbylgjusviði á heim-
ilum, í farartækjum og sem hluta
af ferðabúnaði," segir m.a. í ræð-
unni.
Margfalt sendiafl á við
gömlu Vatnsendastöðina
Sendiorka nýju stöðvarinnar er
300 kílóvött og er sent út á tíðn-
inni 189 kHz. Sendiaflið er marg-
falt á við það sem verið hefur í
gömlu stöðinni á Vatnsenda, en hér
er um að ræða nýja kynslóð lang-
bylgjusenda sem bandaríska fyrir-
tækið Harris hefur hannað og smíð-
að. Byggt er á tölvutækni með
möguleikum fyrir stafræna útsend-
ingu í framtíðinni.
Auk nýju langbylgjustöðvarinnar
á Gufuskálum verður innan
skamms tekinn í notkun nýr og
öfiugur langbylgjusendir á Eiðum
en hann mun senda út á tíðninni
207 kHz. Þar með batna móttöku-
skilyrði á langbylgju um austanvert
ísland og á hafsvæðunum austur
af landinu. Heildarkostnaður vegna
hinna tveggja nýju stöðva er um
300 milljónir króna.
Á langbylgjunni verður í boði
blandað efni af báðum rásum Ríkis-
útvarpsins og verður því útvarpað
allan sólarhringinn.
SNYRTISTOFAN
GUERLAIN
IÓðingata 1 • 101 • Reykjavík I
Sími 562 3220 « Fax 552 2320|
Estée Lauder kynnir
Nutritious
Bio-Protein Moisture Complex
Dag einn tekur þú eftir því. Húð þín er ekki lengur eins heilbrigð og fersk og hún var. Fínar línur hafa
myndast. Þá er tími til kominn að nota Nutritous, nýja gerð af rakakremi. Létt, auðugt af styrkjandi
mjólkurpróteinum, ásamt nauðsynlegum vítamínum og steinefnum. Allt þetta gefur húð þinni það
sem hún þarfnast til að vera heilbrigð og geislandi.
Eftir 8 vikna notkun á Nutritious sýna rannsóknir eftirfarandi:
• Rakahlíf húðarinnar styrkist um allt að 80%
• Húðin þéttist, fínar línur og hrukkur minnka um allt að 35%
• Nutrituous ver húðina gegn sýnilegum öldrunareinkennum í framtíðinni.
Nutrítious Bio-Protein Moisture Complex kr. 3.600.
Kannaðu málið í Hygeu, Laugavegi.
Ráðgjafi frá Estée Lauder verður í versiuninni í dag
og á morgun, föstudag.
OtttttO
H Y G E A
jnyrtivðruver<ilun
Laugavegi 23
Sími 511 4533.