Morgunblaðið - 11.09.1997, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Milli andláts Díönu og útfarar hennar lék Tony Blair lykilhlutverk
Konung-
dæmið mun
breytast
í heila viku hríkti í stoðum breska konung-
dæmisins. Á meðan almenningur sýndi and-
úð sína á konungsfj ölskyldunni, sem þótti
koma harðneskjulega fram og ríghalda í
siðareglur og hefðir, gerðist ýmislegt að
tjaldabaki og þurfti Tony Blair forsætisráð-
herra að taka af skarið í samvinnu
við Karl Bretaprins.
FORSÍÐUR nokkurra breskra blaða þar sem farið er fram á að
konungsfjölskyldan láti tilfinningar sínar í ljós.
ELÍSABET drottning minnist Díönu í ávarpi sem
sjónvarpað var beint.
HART var deilt á bresku konungsQöl-
skylduna eftir að Díana prinsessa af
Wales lést í bílslysi í París fyrir rúmri
viku. Voru köllin eftir því að flölskyld-
an, og þá sérstaklega Elísabet drottn-
ing, sýndi að þar bærðust tilfinningar
en ekki aðeins harðbrjósta áhersla á
siðareglur og venjur, orðin svo hávær
að farið var að boða endalok konung-
dæmisins á Bretlandi. Þótti það bera
því vitni að konungsfjölskyldan væri
ekki í sambandi við almenning, að
meðan alls staðar á Bretlandi var
flaggað í hálfa stöng stóð flaggstöng-
in ofan á Buckingham-höll ber. Vik-
una eftir slysið gerðist ýmislegt bak
við tjöldin og virðist Tony Blair for-
sætisráðherra hafa leikið þar lykil-
hlutverk. Eftir útförina undirstrikaði
hann að konungdæmið myndi breyt-
ast.
Blair vissi um leið og honum hafði
verið sagt frá andláti Díönu aðfara-
nótt sunnudagsins 31. ágúst að búast
mætti við því að ástandið yrði alvar-
legt: „Þetta á eftir að leiða til slíkrar
sorgar meðal almennings að það er
erfítt að ímynda sér það,“ sagði for-
sætisráðherrann við blaðafulltrúa
sinn, Alastair Campbell.
Gerði sér strax grein fyrir
afleiðingum
Snemma morguns var komið á
samráði milli skrifstofu forsætisráð-
herra, konungshallarinnar og sendi-
ráðsins í París. Fyrsta mál á dagskrá
forsætisráðherra hefði átt að vera að
gera sér ljóst hvaða áhrif andlát Dí-
önu mundi hafa á pólitísk mál á borð
við atkvæðagreiðsluna um aukið sjálf-
dæmi Skota í dag, eða hvort boða
ætti til vopnahlés milli stjómmála-
flokkanna. A skrifstofu hans varð
hins vegar brátt ljóst að viðbrögð
konungsfjölskyldunnar gætu dregið
dilk á eftir sér.
Blair birtist í sjónvarpi á sunnu-
dagsmorgni og var greinilegt að hon-
um var brugðið. Hann sagði að Díana
hefði verið „prinsessa fólksins og
þannig munum við varðveita hana í
hjörtum okkar og minningu að eilífu".
Frá konungsfjölskyldunni barst
hins vegar einungis yfirlýsing þar sem
aðeins var sagt að dauði Díönu væri
áfall.
Vildi halda í hefðir
Konungsfjölskyldan ákvað að láta
eins og ekkert hefði í skorist eins oe-
gert hafði verið um aldir og hafði
borið styrkleika vitni í heimsstyijöld-
inni síðari þegar þurfti að stappa stál-
inu í bresku þjóðina meðan á linnu-
lausum loftárásum nasista stóð. Nú
var krafan hins vegar önnur, en kon-
ungsfjölskylduna óraði ekki fyrir því
að litið yrði á „reisn“ hennar sem til-
litsleysi og grimmd.
Áður en jarðneskar leifar Díönu
höfðu verið fluttar til Bretlands frá
Frakklandi var kominn upp ágrein-
ingur um það hvemig útfór hennar
ætti að fara fram.
Spencer-fjölskyldan
vildi einkaathöfn
Pjölskylda Díönu undir forustu
Charles Spencers jarls, bróður henn-
ar, vildi að um einkaathöfn yrði að
ræða og engin ástæða væri til að hún
yrði opinber viðburður. Fyrstu við-
brögð drottningarinnar voru að verða
við ósk Spencer-fjölskyldunnar. Díana
og Karl væru skilin og því bæri Spenc-
er-fjölskyldunni, en ekki konungsfjöl-
skyldunni, að sjá um útför hennar.
Þess utan ætti Díana strangt til tekið
ekki rétt á sérstakri meðferð. Hún
bar ekki titilinn „hennar konunglega
hátign“ iengur, jafnvel þótt almenn-
ingur liti ekki svo á, og útför hennar
yrði ekki opinber.
Samkvæmt frásögnum ýmissa
blaða gerði Blair Karli prins það ljóst
að almenningur mundi ekki sætta sig
við slíka jarðarför. Karl játti því og
þá var hafist handa við að finna
málamiðlun, sem lyktaði með því að
ákveðið var að fram færi „einstök
útför fyrir einstaka manneskju".
Með hjálp sir Roberts Fellowes,
ritara drottningarinnar og eigin-
manns lafði Jane Spencer, systur Dí-
önu, var Spencer-ijölskyldan talin á
það að útförin yrði að fara fram með
opinberum hætti að einhveiju leyti,
þótt ekki yrði hún formlega opinber.
Þetta samkomulag treysti sambandið
milli Blairs og Karls, sem sagt var
gott fyrir. Hins vegar undirstrikaði
það bilið milii Karls og móður hans,
sem hafði meira að segja verið því
andsnúin í fyrstu að prinsinn færi til
Northolt-herflugvallarins til að taka
á móti Díönu, hvað þá að hann héldi
til Parísar að sækja jarðneskar leifar
hennar. Karl var hins vegar þeirrar
hyggju að það mundi ekki leggjast
vel í almenning ef enginn úr konungs-
fjölskyldunni yrði viðstaddur og hafði
sitt fram.
Útgáfa Channel 4
Því var reyndar haldið fram að
heiftarlegur ágreiningur hefði komið
upp milli Karls og Elísabetar í fréttum
í upphafi þessarar viku. í frétt sjón-
varpsstöðvarinnar Charmel 4 var gef-
in önnur mynd af ágreiningnum um
útför Díönu. Sagði þar að Karl hefði
orðið æfur af bræði þegar móðir hans
krafðist þess í fyrstu að um einkaút-
för yrði að ræða, konungsfjölskyldan
kæmi ekki nálægt henni og ekki
kæmi til greina að líkið lægi í ein-
hverri af höllum konungsíjölskyld-
unnar. Það hefði ekki verið fyrr en
Karl hefði ausið úr skálum reiði sinnar
yfir Fellowes og sagt honum að hann
gæti „rekið sig á hol á flaggstöng“
sinni að drottningin lét undan. I frétt-
inni sagði jafnframt að þegar Spenc-
er-fjölskyldan hefði frétt af afstöðu
drottningar hefði hún ákveðið að eiga
ekki frekari samskipti við konungs-
fjölskylduna. Sættir hefðu ekki náðst
fyrr en með milligöngu Blairs. Bæði
konungsfjölskyldan og Spencer-fjöl-
skyldan lýstu yfir því að frétt Chann-
el 4 væri þvættingur.
Þegar ákveðið hafði verið að Díana
fengi „einstaka útför“ kom í ljós að
ekki var einfalt að hrinda því í fram-
kvæmd. Til eru leiðarvísar um það
hvað skuli gera við andlát drottning-
armóðurinnar eða drottningarinnar.
Þeim fylgja listar, sem eru uppfærðir
reglulega, yfir það hveijum skuli
bjóða. Líkfylgd drottningarmóðurinn-
ar er meira að segja æfð árlega.
Erfiður undirbúningur
Ekkert slíkt var til í þessu tilfelli
auk þess sem Díana hafði svo tak-
markað starfslið eftir að hún misti
hátignartitilinn að erfitt var að henda
reiður á hveijum skyldi bjóða til útfar-
arinnar. Mikil vinna var lögð í að
undirbúa útförina og tóku þrír aðstoð-
armenn Blairs þátt í undirbúningnum.
Skrifstofa forsætisráðherra hefur
ekki viljað gera mikið úr þætti sínum
í að útförin var skipulögð með þeim
hætti, sem raun bar vitni. Hins vegar
hefur komið fram að í Downing-
stræti ríkti mikil óánægja með stífni
og stöðnun hjá konungsfjölskyldunni
og starfsliði hennar.
Það var strax ákveðið að drottning-
in yrði viðstödd útförina, en fyrstu
tvo dagana eftir andlát Díönu neitaði
hún að leyfa að fáninn yrði dreginn
í hálfa stöng yfir Buckingham-höll.
Hún vildi ekki heldur að leiðin, sem
líkfylgdin færi, yrði lengd. Hermt er
að starfsmenn forsætisráðherra hafi
varað við því að almenningur kynni
að bregðast ókvæða við ef konungs-
fjöiskyldan léti fyrirberast í Balmoral-
höll í Skotlandi fram að útförinni og
myndi ekki skilja að samkvæmt siða-
reglum mætti ekki flagga á Bucking-
ham-höll nema konungur eða drottn-
ing væri í höliinni og þá aðeins í heila
Síðustu
orð
Díönu
París, Los Angeles. Reuter.
FRANSKA dagblaðið Le Parisien
sagði í frétt í gær að síðustu orð
Díönu prinsessu hefði verið
beiðni um að láta sig í friði. Blað-
ið hefur eftir ónafngreindum
lækni á slysstaðnum að hún hefði
látið orðin falla er sjúkraliðar
beindu sterkum Ijósum að henni.
í blaðinu kom einnig fram að
Díana hefði verið hálfmeðvitund-
arlaus er Iæknirinn kom á slys-
staðinn og ljósmyndarar verið
að taka nærmyndir af henni. Þá
kom fram að læknir á slysstaðn-
um hefði gefið þau fyrirmæli að
sjúkrabílnum væri ekið lötur-
hægt til sjúkrahússins þannig að
forðast mætti óþarfa hristing og
að hjarta hennar hefði hætt að
slá í sjúkrabílnum en ekki eftir
að komið var á sjúkrahúsið eins
og talsmaður þess hélt fram.
Bílsljórinn undir áhrifum
áfengis og lyfja
Tilkynnt var í París í gær að
nýjar rannsóknir á blóði bílsljór-
ans Henri Paul staðfestu að
áfengismagn í blóði hans hefði
verið þrisvar sinnum hærra en
leyfilegt er í akstri. Einnig kom
þar fram að fluoexetine, sem er
meginefnið í þunglyndislyfinu
Prozac, hefði fundist í blóði hans
auk róandi lyfs að nafni tiaprine.
Báðum þessum lyfjum eiga að
fylgja aðvaranir um aukna
áhættu í akstri. Einnig er í mörg-
um löndum varað við neyslu
áfengis samhliða notkun lyfj-
anna.
Dauði Diönu söluvara
Unnið er að því að koma bók-
um um ævi Díönu á markað og
er búist við að fyrstu bækurnar
komi í bókabúðir í Bandaríkjun-
um í næstu viku. Útgáfufyrirtæk-
ið The Running Press í Fíladelfíu
mun gefa út myndabók um ævi
Díönu í 450.000 eintökum. Bókin
er unnin af breska útgefandan-
um Quadrillion sem best er
þekktur fyrir útgáfu myndabók-
ar um brúðkaup þeirra Karls og
Díönu árið 1981. Einnig munu
margir útgefendur hyggja á end-
urútgáfu fyrri bóka um Díönu
með viðbót um dauða hennar.
í Hong Kong baðst umboðsað-
ili Yolvo afsökunar á auglýsingu
sem birtist í Macau í byrjun vik-
unnar. Auglýsingin fjallaði um
öryggi Volvo-bifreiðanna og vís-
aði til dauða Díönu.
stöng vegna þess að konungdæmið
væri aldrei höfuðlaust samanber orðin
„konungurinn er látinn, lengi lifi kon-
ungurinn".
Blair var hins vegar mjög áfram
um að hella ekki olíu á eldinn. Á
miðvikudag fyrir viku gaf hann út
stutta yfirlýsingu í Downing-stræti
og varði þar konungsfjölskylduna og
rétt hennar til að fá að syrgja í friði.
En hann virtist einnig vera að gefa
konungsfjölskyldunni vísbendingu um
það hvemig ætti að gera hlutina þeg-
ar hann gekk að hliðinu fyrir enda
götunnar og talaði stuttlega við al-
menning.
Blair og Bretaprins
ræða ástandið
Sama dag ræddi Blair við Karl um
það að allt virtist vera að fara á ann-
an endann. Þeir komust að þeirri nið-
urstöðu að drottningin yrði að ávarpa
bresku þjóðina og flagga yrði í hálfa
stöng yfir Buckingham-höll. I sam-
tali þeirra kom fram að sá möguleiki