Morgunblaðið - 11.09.1997, Side 23

Morgunblaðið - 11.09.1997, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR VERK eftir Kristberg O. Pétursson. Verk unnin í Cuxhaven „Hlutverk mitt að vera í stjórnar- andstöðu“ RITHÖFUNDURINN Hilmar Jónsson hefur sent frá sér annað bindi í safni eig- in ljóða, leikrita og skáldsagna. Það er bók- menntaklúbbur Suðurnesja sem gefur ritsafnið út. Árið 1991 kom út safn greina sem höf- Hilmar undur nefnir Jónsson Slagurinn við rauðu mafíuna. I Ritsafni 2 er m.a. að finna leik- ritið Útkall í Klúbbinn frá 1979 og nýtt leikrit um eldklerkinn Jón Steingrímsson. „Ég hef verið að fást við skrif á leikverki um Jón Steingrímsson í 20 ár,“ segir Hilmar. „Það var þó ekki fyrr en ég lét af störfum sem bókavörður í Keflavík fyrir 5 árum sem ég gat gefið mig að skrifunum af alvöru. Þá fór ég að púsla saman brotunum og nú er leikritið loks fullunnið." Hilm- ar á ættir að rekja til Meðallands og segir ekkert svæði á Islandi hafa haft meiri áhrif á sig. „Lakasvæðið er alltaf jafn til- komumikið og fallegt," segir Hilmar. „Ætli það sé ekki meðal annars þess vegna sem ég hef verið svo gagntekinn af sögu eldklerksins." I ritsafninu er einnig að finna skáldsögurnar Hundabyltingin, sem rithöfundurinn Gunnar Dal lýsir í inngangi sem sérkennilega abstrakt skáldverki, og Foringj- ar falla, pólitiska skáldsögu sem Hilmar segir lýsa vandræða- ástandi í lögreglumálum í heimabæ sínum, Keflavík, fyrir 20 árum. Hilmar dregur oft upp drungalega mynd af íslensku samfélagi í verkum sínum. „Mér finnst að rithöfundur hljóti alltaf að vera í andstöðu við þá sem stjórna,“ segir Hilmar. „Það er hlutverk rithöfundar að vera gagnrýnandi í þjóðfélaginu. Því dýpra sem hann kafar ofan í þjóðfélagið því varanlegri og betri verða verk rithöfundarins." Mitt ljóð er ekki um vorið né haustið hinn ljóðræna tima vonar og saknaðar. mitt ljóð er ekki um konur ungar og fagrar og albúnar til ásta mitt ljóð er ekki um hesta horaða eða feita og fegurri en málverk eftir Kjarval mitt ljóð er um frelsið, frelsið í landi mínu ekki frelsi meðal framandi þjóða í Víetnam eða Bandaríkjunum í Rússlandi eða Kina, heldur frelsi vina minna þeirra sem þora að tala þeirra sem trúa á hamingjuna þeirra sem vinna við þorskinn þeirra sem spenna greipar í bæn þeirra sem eru ofsóttir vegna skoðana sinna. (Ur ljóðinu Frelsi) SÝNING á málverkum eftir Krist- berg 0. Pétursson hefst í dag, fimmtudag, á veitingastaðnum Jómfrúnni, Lækjargötu 4. Verkin á sýningunni voru unnin í júlí og ágúst sl. meðan Kristbergur dvaldi í gestavinnustofunni „Kunstler- KVIKMYNPIR Rcgnboginn, Kringlubíö ÁSTARFÍKLARNIR „ADDICTED TO LOVE“ ★ ★ Vi Leikstjóri: Griffin Dunne. Handrit: Robert Gordon. Tónlist: Rachel Port- man Aðalhlutverk: Matthew Brod- erick, Meg Ryan, Kelly Preston, Tcheky Karyo. Wamer Bros. 1997. RÓMANTÍSKA gamanmyndin „Addicted to Love“ eða Ástarfíkl- arnir reynir að finna nýja fleti á gamalli sögu og tekst að vera öðru- vísi, stundum fyndin og stundum jafnvel frumleg í leikstjórn Griffin Dunnes. Matthew Broderick og Meg Ryan leika fólk sem sagt er upp af ástvinum sínum en neitar að viðurkenna orðinn hlut. Kær- asta Brodericks hittir nýjan elsk- huga á ferðalagi í New York og sendir honum bréf þess efnis. Kærasti Meg Ryans er hinn mikli elskhugi og eðlari, sem fer að vera með kærustu Brodericks, og yfir- gefur Ryan. Broderick og Ryan hittast af tilviljun þar sem þau njósna um hið nýja par og taka höndum saman og njósna um þau dag og nótt og leggja á ráðin um að eyðileggja fyrir þeim hið nýja og fullkomna ástarsamband. Brod- erick er stjörnufræðingur og stillir upp speglum og linsum þannig að líf nýju ástarfuglanna speglast úr íbúð þeirra og á vegginn í húsinu gegnt þeim, þar sem Broderick og Ryan hafa tekið sér aðsetur. Þann- hus“ í Cuxhaven í Þýskalandi og sýndi hann þau þar í lok dvalarinn- ar. Sýningin er opin kl. 11-22 eða lengur meðan á Rúrek-jasshátíð- inni stendur, en kl. 11—18 að henni lokinni. ig geta þau fylgst með hverri hreyfingu þeirra; gægjufíknin er óstöðvandi. Svört gamansemi myndarinnar tengist að miklu leyti örlögum hins mikla og óseðjandi elskhuga, sem Ryan sér svo eftir, Kelly Preston fær nú notið og Broderick greyið öfundar stórlega. Tcheky Kayro leikur þennan nútíma Kasanóva og segja má hann steli senunni þegar líða tekur á myndina og líf hans, fyrir tilverknað njósnaranna, verð- ur æ ömurlegra og jafnvel skelfi- legra. Kayro gerir úr honum skemmtilega ráðgátu og hortugan, sjálfumglaðan, skapheitan og óþol- andi Frakka, lífsnautnamann sem kannski og kannski ekki notfærir sér saklausar konur. Hann gæti líka sem best verið þessi ekta, ástríðufulli elskhugi, sem hann lít- ur út fyrir að vera á veggnum hjá Broderick. Hinn jarðbundni Brod- erick heldur myndinni innan marka hins trúverðuga þegar hún ætlar að taka strikið út í tóma vitleysu og Ryan heldur henni þar á mörk- unum sem bæði hatursfull og ill- gjörn mótorhjólagella. Handritið er ágætlega samið og frumlegt miðað við það sem geng- ur og gerist í rómantísku gaman- myndunum. Persónusköpunin er góð og fyndnin eins og sprettur af sjálfri sér og tengist ekki svo lítið gægjufíkninni, því myndin er jafnmikið um hana og ástarfíkn- ina. Ástarfíklarnir er lítil, snotur gamanmynd um hinar mörgu hlið- ar ástarinnar. Mynd sem leynir á sér. Arnaldur Indriðason Hefnd ástar- fíklanna ÞÆR skemmta í Kaffileikliúsinu: F.v. Guðrún, Anna Sigga og Aðalheiður. Söngskemmtun í Kaffileikhúsinu SÖNGSKEMMTUNIN „Alla, Gunna og Anna Sigga á ferðalagi" verður flutt í Kaffileikhúsinu í Hlað- varpanum á morgun, fimmtudag kl. 21, og sunnudagskvöldið 14. september kl. 21. Á efnisskránni eru m.a. léttir dúettar og dægurflugur auk létt- klassískra laga. Þær stöllur Guðrún Jónsdóttir sópran, Anna Sigríður Helgadóttir mezzósópran og Aðal- heiður Þorsteinsdóttir píanóleikari, hafa gert víðreist um landið og haldið sex slíkar söngskemmtanir. Húsið opnar kl. 20.30 og miða- verð er kr. 1.000. FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1997 23 Stöðvaðu tímann næstu með því að nota CELLULAR DEFENSE SHIELD KYNNING í dag og á morgun, föstudag. 10% kynningarafsláttur og fallegur kaupauki. Uymfp H Y G E A d ny r 11vöru. verd lu n Kringlunni Húð þín endurheimtir æskuljómann á ný — þökk sé stórkostlegri virkni CELLULAR DEFENSE SHIELD — frá DANSSKÓLI ASTVALDSSONAR Njóttu þessÁA— læra að dansa— REYKJAVIK* MOSFELLSBÆR* KEFLAVIK GRINDAVÍ K®GARÐLR©SANDGERÐI KENNSLA HEFST MANUD 15 SEPT LÁTTU SKRÁ ÞIG Kennum alla dansa fyrir alla aldurshópa BARNAHÓPAR, YNGST 3 ÁRA UNGLINGAHÓPAR ALLIR NÝNUSTU DANSAR IJÓNA -OG PARAHÓPAR EINKATÍIMAR HiL M SPICE OIRLS §álsa jjmm _i — HUSTLE Þúgeturkomia «ma °8 Þarft ekki dansfélaga 'BOKIN 21 LÍNUDANS STREET DANCING INNRITUN DAGLEGA í BRAUTARHOLTI 4 MILLI KL 19-23 ÍSÍMI: 552-0345 - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.