Morgunblaðið - 11.09.1997, Qupperneq 32
32 FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1997
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Bj armagr einin
um spíritismann
ÞORSTEINN Sch.
Thorsteinsson sendi
frá sér grein í Mbl.
þann 2. júlí síðastliðinn
þar sem hann fór hörð-
um orðum um greinina
„Getur spíritisminn
talist kristindómur?"
sem birtist í tímaritinu
Bjarma fyrr á árinu.
Þar ásakaði hann okk-
ur sem að greininni
stóðum um rangfærsl-
ur, hroka og mikla
vanþekkingu og bætti
því við að við værum
„að ofsækja aðra með
ekki nægilega góðum
skilgreindum kenning-
um“. Þá fór hann fram á að athuga-
semdum sínum og spurningum yrði
svarað.
Tilgangurinn með Bjarmagrein-
inni var tvíþættur. Annars vegar
átti að varpa ljósi á hvers vegna
spíritisminn varð svo vinsæll sem
raun varð á innan þjóðkirkjunnar á
fyrri hluta aldarinnar en í þvi skyni
var saga hans rakin bæði hér heima
og erlendis auk þess sem ýmsar
? félagsfræðilegar tilgátur voru
kynntar. Hins vegar var leitað svara
við því hvers vegna spíritisminn
teldist nú að mestu liðin tíð innan
prestastéttarinnar og ýmsir kenni-
menn vöruðu jafnvel við honum.
Margar ástæður voru tilgreindar í
því sambandi enda þótt þær gætu
sumar haft mismikið vægi hjá
hveijum og einum.
(1) Á það var bent að Biblían
líkir því við framhjáhald frá Guði
þegar menn leita til framliðinna eða
^ annarra anda. Menn eigi aðeins að
leita til Guðs enda hafi
Jesús ávallt beðið beint
til Guðs föður og kennt
lærisveinunum að gera
slíkt hið sama (sbr.
bænina Faðir vor). (2)
Að mati flestra guð-
fræðinga hafa kenn-
ingar spíritista verið í
litlu samræmi við
kristna trú eins og hún
birtist í Biblíunni, hjá
kirkjufeðrunum og í
trúaijátningunum. (3)
Vísindalegt gildi sálar-
rannsókna hefur verið
dregið í efa vegna
rannsóknalegra vand-
kvæða og tíðra svika.
(4) Óviðeigandi hefur þótt að leita
frétta af framliðnum. (5) Þá hafa
ýmsir bent á að engin trygging sé
fyrir því að þeir andar sem komi
fram á miðilsfundum séu í raun
þeir sem þeir segjast vera.
Það voru einkum fyrstu tveir lið-
imir sem ÞST gerði athugasemdir
við. Hann gengur út frá því að Jes-
ús hafí verið „miðill milli tveggja
heima, hins andlega og hins verald-
lega“ og vísar í því sambandi í I.
Tm. 2:5 þar sem segir að Jesús sé
„meðalgangarinn milli Guðs og
manna“. Þegar ritningartextinn er
skoðaður nánar kemur í ljós að Jes-
ús er nefndur meðalgangari vegna
þess að hann „gaf sig sjálfan til
lausnargjalds fyrir alla“ (v. 6). Þetta
merkir að Jesús dó fyrir syndir
mannanna til þess að þeir gætu eign-
ast eilíft líf til samfélags við Guð.
Jesús er því vegurinn sem menn
þurfa að feta til Guðs vegna þess
að það er í honum sem Guð birtist
Bjarni Randver
Sigurvinsson
"V
Skrifstofutækni
Markmið námsins er að þjálfa nemendur til starfa á
skrifstofum og er áhersla lögð á tölvugreinar og bókfærslu.
Námið er mjög hagnýtt og byggist að verulegu leyti á
verklegum æfingum. Námið eykur samkeppnishæfni
nemenda og býr þá undir krefjandi störf á vinnumarkaði.
Helstu námsgreinar eru:
■ Handfært bókhald
■ Tölvugrunnur
■ Ritvinnsla
■ Töflureiknir
■ Verslunarreikningur
■ Glærugerð
■ Mannleg samskipti
■ Tölvubókhald
■ Internet
■ Lokaverkefni
STARFSMENNTUN
fjárfesting til framtíðar
Mig langaði að vera vel samkeppnisfær í
öllum almennum skrifstofustörfum og eftir
vandlega umhugsun valdi ég Tölvuskóla
Islands. Þar bætti ég kunnáttuna í Word-
ritvinnslu og Exceltöflureikni og lærði
hand- og tölvufært bókhald, glærugerð,
verslunarreikning ásamt
undirstöðuatriðum í mannlegum
samskiptum og Interneti.
Námið er var vel skipulagt og kennsla
frábær. Kennt var 3 kvöld í viku í 4 mánuði
og enginn heimalærdómur. Nú finnst mér
ég vera fær í flestan sjó!
Guðrún Skúladóttir, deildarstjóri,
íðnaóar- og viðskiptaráðuneyti.
. Öll námsgögn innifalin
Tölvuskóli íslands
Bíldshöfða 18 Sími 567-1466
þeim (Jh. 1:1-18, 14:6). Að kalla
Jesúm miðil er því rangtúlkun á ritn-
ingartextanum.
ÞST vísar einnig til frásögu sam-
stofnaguðspjallanna af því þegar
Jesús fór með þremur lærisveina
sinna upp á fjall þar sem hann
ummyndaðist fyrir augum þeirra
og ræddi við þá Móse og Elía fram-
liðna. Það er ekki rétt hjá ÞST að
lærisveinarnir hafi talað við þá
Móse og Elía eða þeir yrt á þá.
Sömuleiðis verður það að teljast
oftúlkun að Jesús hafi leitað til
þessara framliðnu manna „í stað
þess að leita til Guðs í bæn“. Frá-
sagan er á þá leið að Jesús fór upp
á fjallið til að biðjast fyrir en meðan
á því stóð „varð yfirlit ásjónu hans
annað, og klæði hans urðu hvít og
skínandi". Guðspjöllin ganga út frá
því að Jesús hafi ekki bara verið
Það er eðli trúar-
bragðanna, segir
Bjarni Randver Sigur-
vinsson, að þau skil-
greini sig út frá eigin
forsendum.
eins og hver annar maður. Þau
kalla hann Drottin og segja að Guð
hafi orðið hold í persónu hans. Þess
vegna er Jesús líka sagður sonur
Guðs því enda þótt hann væri mað-
ur var hann einnig Guð að eðli til.
Öll þau tákn og undur sem maður-
inn Jesús gerði gat hann gert vegna
þess að hann var Guð. Þegar hann
ummyndaðist birtist hann í guð-
dómlegri dýrð sinni og það var í
henni sem hann ræddi við þá Móse
og Elía um dauða sinn og upprisu.
Hvort svo sem við tökum frásöguna
bókstaflega eða táknrænt þá er
merking hennar sú að Guð faðir
leyfði fulltrúum löggjafanna og spá-
mannanna að staðfesta að Jesús
væri sá sem þeir höfðu vænst.
Lærisveinarnir létu sér nægja að
ávarpa Jesú en við Móse og Elía
töluðu þeir ekki. Raunar trúðu Gyð-
ingar á þessum tíma því að hvorki
Móse né Elía hefðu dáið heldur
hefði Guð hrifið þá beint upp til
himna. Þessi frásaga á því ekkert
skylt við miðilsfundi.
ÞST mótmælti því sjónarmiði að
„spíritisminn hafni öllum helstu
grundvallaratriðum kristinnar trúar
eins og guðdómi Jesú Krists, hjálp-
ræðisverki hans og upprisu" og
krafðist tilvitnunar. Eins og fram
kom í Bjarmagreininni eru skoðanir
spíritista um margt skiptar. Það
hefur engu að síður einkennt rit
þeirra að þeir afneita því að Guð
hafi gerst maður í persónu Jesú
Krists til þess að friðþægja fyrir
syndir manna með lífi sínu og dauða
á krossi svo þeir gætu eignast eilíft
líf til samfélags við hann í upprisu-
líkama af holdi og blóði. Boðskapur
andanna fyrir handan er allur á
þann veg að algjör óþarfi virðist
vera að gera iðrun og fá fyrirgefn-
ingu fyrir milligöngu Jesú. í ritinu
Ljós yfir landamærin greinir spírit-
istinn Jónas Þorbergsson frá þeim
meginatriðum sem séu viðurkennd
af spíritistum „hvarvetna á okkar
jörð“ en þar segir m.a.: „Sérhveij-
um einstaklingi ber að vera sinn
eigin frelsari en getur með engum
rétti varpað því yfir á neinn annan
að líða fyrir eigin syndir og mis-
gerðir." Ritið ABC of Spiritualism
sem gefið er út af National Spiritu-
alist Association of Churches segir
auk þess að dauði Jesú hafi ekkert
hjálpræðislegt gildi. Hann sé ekki
önnur persóna þrenningarinnar og
geti því ekki talist jafn föðurnum á
himnum.
Dæmi eru reyndar um að þeir
spíritistar sem reynt hafa að aðlaga
spíritismann kristinni trú tali um
mikilvægi upprisunnar en þeir segja
hana þá aðeins vera andlega upp-
risu sem taki við eftir iíkamsdauð-
ann og sé upphaf þroskaferils sálar-
innar fyrir handan. Upprisa Jesú
hafi því verið áþekk upprisu þeirra
anda sem koma fram á miðilsfund-
um. Að kristnum skilningi reis Jes-
ús hins vegar upp í líkama sínum
(Lk. 24:39) og vann þannig sigur
á dauðanum. Þess vegna geta menn
líka vænst þess að verða reistir upp
frá dauðum á efsta degi enda skap-
aði Guð þá af holdi og blóði til sam-
félags við sig hér á jörðu. Sjálfur
virðist ÞST gera lítið úr upprisu
holdsins en að kristnum skilningi
er skapari heimsins engu að síður
fær um að mynda nýja jarðneska
dýrðarlíkama handa þeim sem hann
reisir upp frá dauðum. Sú upprisa
verður til eilífs lífs ólíkt upprisu
þeirra einstaklinga sem voru reistir
upp frá dauðum á tímum Jesú. Hún
var tímabundin en sýndi fram á
vald hans yfir dauðanum.
Enda þótt flestir guðfræðingar
séu ósammála spíritistum í trúar-
efnum þá vil ég ekki segja að eng-
inn sá geti talist kristinn sem ein-
hvern tímann hafi leitað á vit spírit-
ismans. Niðurstaða greinarinnar
var nefnilega sú að enda þótt spírit-
isminn geti ekki talist kristindómur
þá blandi almenningur saman ólík-
um trúarhugmyndum í því fjöl-
hyggjuþjóðfélagi sem við búum við
í dag. Dæmi eru um að fólk sem
ekki gerir greinarmun á spíritisma
og kristinni trú og leitar til hug-
lækna og miðla biðji engu að síður
til Drottins Jesú Krists og kenni
börnum sínum að gera slíkt hið
sama. Þó svo að færa megi rök
fyrir því að þessi leit í spíritismann
geti verið óráðleg þá gæti þetta
fólk samt sem áður trúað á Jesúm
sem frelsara sinn. Við kristnir menn
hljótum a.m.k. að treysta því fyrir-
heiti Biblíunnar að þeir sem játi
með munni sínum að Jesús sé Drott-
inn, ákalli nafn hans og trúi í hjarta
sínu að Guð hafi reist hann upp frá
dauðum muni hólpnir verða (Rm.
10:9-11). Rannsóknir á fyrirbrigð-
um spíritismans geta auk þess átt
rétt á sér þegar unnt er að koma
þeim við með vísindalega viður-
kenndum aðferðum en varhugavert
er að taka öllu því gagnrýnislaust
sem er sagt vera komið að handan.
ÞST hefur verið tíður gestur á
síðum Mbl. um langt skeið og gagn-
rýnt þjóðkirkjumenn óspart fyrir
meintar rangfærslur um önnur trú-
arbrögð og trúarviðhorf. Vissulega
ber að vanda til allrar umfjöllunar
um þau sjónarmið sem menn aðhyll-
ast ekki sjálfir en um leið er nauð-
synlegt að geta tekið gagnrýni.
Bjarmagreinin var í raun samantekt
á viðhorfum þeirra sem telja spírit-
ismann ekki eiga samleið með krist-
inni trú. Slík viðhorf hljóta að eiga
rétt á sér. Það er eðli trúarbragð-
anna að þau skilgreini sig út frá
sínum eigin forsendum og leggi
mat á önnur trúarviðhorf, einkum
þau sem virðast vera í mótsögn við
þau. Sé það gert málefnalega ætti
það að geta stuðlað að auknum
skilningi á milli manna en það er
einmitt mikilvæg forsenda þess
heimsfriðar sem flestir þrá. ÞST
segist vera í „Samstarfsnefnd trúfé-
laga fyrir heimsfriði". Fróðlegt
væri að fá að heyra meira um hana,
hvaða trúfélög eigi aðild að henni
og í hveiju starfsemin sé fólgin.
Er hún byggð á hugsjón sr. Sun
Myung Moons?
Höfundur er guðfræðingur.