Morgunblaðið - 11.09.1997, Síða 36

Morgunblaðið - 11.09.1997, Síða 36
MORGUNBLAÐIÐ ^36 FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1997 MINNINGAR Ástkær eiginmaður minn, sonur okkar, faðir, tengdafaðir, bróðir og tengdasonur, SKARPHÉÐINN MAGNÚSSON, verður jarðsunginn frá Áskirkju föstudaginn 12. september kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeir sem vilja minnast hans, vinsamlega láti hjúkrunar- þjónustuna Karitas, í síma 551 5606, njóta þess. Anna Björg Viðarsdóttir, Magnús Friðriksson, Inga Skarphéðinsdóttir, Linda Rún Skarphéðinsdóttir, Þröstur Eriingsson, Magnús Birkir Skarphéðinsson, Ævar Ingi Skarphéðinsson, Inga Rut Skarphéðinsdóttir, Margrét Magnúsdóttir, Friðrik Magnússon, Leifur Magnússon, Sólveig Magnúsdóttir, Viðar Benediktsson, Bára Jóhannsdóttir. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, GRÉTA SIGURÐARDÓTTIR, Brekkugötu 39, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn 12. september kl. 15.30. Aðalgeir Aðalsteinsson, Sigrún Aðalgeirsdóttir, Helga Aðalgeirsdóttir, Óskar Ingi Sigurðsson, Kristín Aðalgeirsdóttir, Robert William Jagerson Sindri Geir Óskarsson, Aron Daníel Robertson. t Útför systur okkar, GUÐRÚNAR ÞÓRÐARDÓTTUR frá Ljósalandi, Vopnafirði, Stigahlíð 28, Reykjavík, verður gerð frá Fossvogskirkju föstudaginn 12. september kl. 13.30. Fríða Þórðardóttir, Helgi Þórðarson, Guðbjörg Þórðardóttir, Steingrímur Þórðarson. Systir okkar, + UNNUR BJARNADÓTTIR, Kleppsvegi 34, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag, fimmtudaginn 11. september, kl. 13.30. Guðrún, María og Guðfinna Bjarnadætur. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, HALLDÓRA ÞORSTEINSDÓTTIR, Smáratúni 3, Selfossi, verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardag- inn 13. september kl. 13.30. Guðrún Bjarnadóttir, Olaf Lillaa, Guðborg Bjarnadóttir, Kári Jónsson, Valgerður Bjarnadóttir, Kristinn Sveinbjörnsson, Þorsteinn Bjarnason. t Elskuleg föðursystir mín, KATRÍN GÍSLADÓTTIR fyrrverandi yfirhjúkrunarkona, Blómvallagötu 13, sem lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 5. september síðastliðinn, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 12. septem- ber kl. 15.00. Fyrir hönd systur, ættingja og vina, Gunnar Smári Þorsteinsson. INGIBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR + Ingibjörg Björnsdóttir fæddist á Bakka, Skagaströnd, 21. október 1896. Hún lést 2. september síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Björn Benónýsson bóndi og kona hans Ingibjörg Stefáns- dóttir. Þau bjuggu lengst á Illugastöð- um í Laxárdal. Alls eignuðust þau 12 börn, Stefanía, f. 1.4. 1894, Tómas, f. 28.8.1895, Ingibjörg, f. 21.10. 1896, Þorsteinn, f. 1.11. 1898, Margrét, f. 26.12. 1899, Ingiríð- ur, f. 14.11. 1902, Þorvaldur f. 23.5. 1905, Friðberg, f. 11.6. 1906, Björn, f. 29.1.1909, Gunn- ar, f. 26.6. 1910 og Lovísa f. 21.1. 1912. Ingibjörg giftist 1915 Agli Gottskálkssyni, Bakka í Vall- hólma, f. 31.1. 1892. Börn þeirra eru Oddný, f. 8.4. 1916, gift Ragnari Björnssyni, bónda Elsku amma mín er nú dáin eftir langa og góða ævi. Margar ljúfar minningar streyma fram þegar ég hugsa um allt sem ég fékk að njóta og læra hjá henni. Þær eru ótaldar vísurnar og öll þau spil sem hún kenndi okkur. Eg minnist ömmu minnar sem góðrar konu með góða lund og hlýtt hjarta. Ég man fyrst eftir henni þegar ég kom í torfbæ- inn hennar á Miðgrund. Það var alltaf mikil tilhlökkun þegar til stóð að fara í sveitina hennar og ég gleymi ekki hvað það var gam- an og minnist þess hvað gamli bærinn var alltaf jafnfínn og vina- legur. Við systkinin ærsluðumst og lékum okkur og fórum oft mik- inn þegar við hlupum fram og aft- ur um göngin í gamla torfbænum. Eftir að amma flutti til Akureyrar hafði hún það fyrir venju að heim- sækja dætur sínar og var það allt- af mikil tilhlökkun þegar hún og afi ásamt bræðrunum voru vænt- anleg í heimsókn. Ég ætla að rifja upp æviferil elsku ömmu minnar með nokkrum línum. Amma fór ung í fóstur til föður- systur sinnar Sigríðar Benónýs- dóttur og manns hennar Magnúsar Hjálmarssonar. Þau bjuggu fyrst á Bjamastöðum í Blönduhlíð 1897 - 1904, Brekkukoti fremra 1904 - 1907, Ingveldarstöðum á Reykjaströnd 1907 -1909, fluttu þaðan til Sauðárkróks. Þar lést Magnús 14.5. 1912. Magnús og Sigríður áttu engin börn. Amma var í barnaskóla á Sauðárkróki og fermdist þar. Vorið 1913 fór hún að Bakka í Vallhólma sem vinnu- kona til Gottskálks Egilssonar og konu hans Guðlaugar Árnadóttur sem síðar urðu tengdaforeldrar hennar. Þar kynntist hún eigin- manni sínum Agli Gottskálkssyni. Afi var með hærri mönnum, grann- vaxinn en samsvaraði sér vel. Hann var góður verkamaður, sí- Garðakoti, d. 28.5.1990, eiga fimm börn, Magnea Sigríður, f. 10.8. 1917, gift Bjarna Sigurðssyni iðn- verkamaður, Akur- eyri, eiga fimm börn, Guðlaug, f. 23.7. 1920, giftMar- inó Sigurðssyni bónda, Álfgeirsvöll- um, eiga sex börn, Gottskálk, f. 29.10. 1921, ógiftur iðn- verkamaður, Akur- eyri, Steingrímur, f. 30.8. 1924, ógiftur iðnverka- maður, Akureyri, Arni Helgi Hólm, f. 15.10. 1926, d. 30.11. 1928, Árný Lilja, f. 15.8. 1928, gift Halldóri Jónssyni, bónda, Mannskaðahóli, eiga sex börn, og Birna Ingibjörg, f. 13.10. 1934, gift Sigurði Sigmarssyni verslunarmanni, Akureyri, eiga fósturson. Útför Ingibjargar fór fram frá Akureyrarkirkju 9. septem- ber. vinnandi, hirðusamur og nýtinn, góður skepnuhirðir, átti jafnan miklar heybirgðir og tryggar af- urðir. Afi var greindur og glaðlynd- ur, góðmenni sem átti hvers manns vinsældir, fastlyndur og tryggur, hógvær hversdagslega, traustur í öllum viðskiptum og var góður þegn. Amma var myndarkona í meðallagi á hæð, vel vaxin, mikil starfskona, fjölhæf til allra verka, utan- sem innanbæjar og hagvirk með ágætum. Hún var búkona, hagsýn í besta lagi, myndarleg í allri umhirðu heimilisins svo að í orði var haft, var þó í slæmum húsakynnum, í torfbæjum, allt þar til hún flutti til Akureyrar. Gest- risni hennar og myndarlegum veit- ingum var vel við brugðið. Amma var greind meira en í meðallagi, mjög vel læs og las mikið og las alltaf húslesturinn meðan sá siður var við hafður. Þá var víða siður að einhver las upp- hátt fyrir fólkið í baðstofunni eftir að ljós var kveikt á vökunni og fólk var sest með handavinnuna sína. Kom það oft í hlut Ingibjarg- ar og sat hún þá og pijónaði af fullum krafti og lét stundum fletta bókinni fyrir sig. Var þá afí með ýmsa handavinnu svo sem að flétta reipi, gjarðir eða þæfa pijónles. Amma var geðprúð, átti virðingu og vinsældir þeirra sem kynntust henni. Hún var lífsförunautur sem stóð eins og bjargið við hlið manns síns. Þau bjuggu á ýmsum jörðum ætíð sem leiguliðar. Fyrst bjuggu þau á Hvammkoti á Skaga 1917 - 1921. Þar var erfitt að búa, ör- reitis kot, ekki vænlegt til afkomu fyrir fjölskyldu, var því fjárhagur þröngur. Heyskapur var lítill heimavið svo það þurfti að afla heyja uppi á Skagaheiði, um lang- an veg að fara. Lá afi þar við annan mann í tjaldi en að morgun- verkunum loknum söðlaði amma 'ua í stómm og rúmgóðum sýningarsal okkar eigum við ávallt fyrirliggjandi margar gerðir legsteina og minnisvarða. Hvergi meira úrval. Yfir 45 ára reynsla Verið velkomin til okkar, eða fáið mynclalista. SKEMMUVEGI48, 20Ö”KÓR, SIMI: 557-6677/FAX: 557-8410 hest og færði þeim mat og diykk og vann að heyskap með manni sínum á milli mála. Sigríður, fóstra ömmu, fór til hennar að Hvamm- koti og var hjá henni upp frá því. Hún andaðist á Miðgrund 30.7. 1941, 87 ára. Næst lá leiðin að Ytri-Ingveldarstöðum á Reykja- strönd og voru þar frá 1921 - 1926. Þar var betra að vera, þægi- legri jörð, afkomumöguleikar meiri og styttra í kaupstað. Báðar þessar jarðir liggja að sjó og nýttu þau sér það vel, reru til fiskjar þegar færi gafst og var amma vel feng- sæl. Afi var við fuglaveiði á Drang- eyjarfjöru þessi vör og kom því öll úti- sem innivinna á hennar hend- ur. Frá Ingveldarstöðum flytja þau í Hjaltastaðakot, Grænumýri í Blönduhlíð 1926 og eru þar í níu ár. Þá voru börnin orðin fimm svo það var í nógu að snúast. Jörðin var þægileg til búskapar. í Hjalta- staðakoti eignuðust þau þtjú börn og þar sitt yngsta. Guðlaug fór mjög ung í fóstur til nöfnu sinnar og ömmu á Bakka. Vorið 1935 flytja þau að Miðgrund í sömu sveit. Miðgrund var að mörgu leyti góð jörð, alveg í þjóðbraut. Sil- ungsveiði var í Héraðsvötnum, góðar engjar og tún grasgefin. Sléttuðu þau túnin og stækkuðu mikið svo heyöflun var orðin mikil og búið gaf af sér góðan arð. Börn- in voru að komast upp og fóru að hleypa heimdraganum um styttri og lengri tíma. Bræðurnir voru alltaf heima og bjuggu með for- eldrum sínum. Á Miðgrund efnuðust þau vel og bjuggu þar góðu búi. Éftir að þau komu í Blönduhlíðina og börn- in komin upp fór afi að vinna í vegavinnu og hélt því áfram meðan þrek entist. Þegar hey var bundið og flutt heim á hestum tók amma ævinlega á móti heyinu og hlóð því upp, hífði baggana upp í reipi. Þegar heyið fór að hækka bar hún það svo vel upp að til fyrirmyndar var og þegar hey voru þakin torfi hífði hún það upp og ekki var frá- gangurinn lakari á því enda drápu þau hey aldrei. Miðgrund stóð við vegamót og þess vegna var oft mikill gestagangur svo baðstofan var oft þétt setin. Þar voru oft haldnar miklar hrútasýningar því bræðurnir voru búnir að koma upp góðri aðstöðu til að reka fé og hross á bíla þegar þeir flutningar komu til sögunnar. Var komið með rekstra af ýmsum bæjum til að setja á bíla. Oft kom það fyrir að fólk kom með mjólkurbílnum þegar hann kom framan úr firðinum og fékk að bíða meðan bíllinn fór í úthlíðina. Þessir farþegar þurftu að sitja á pallinum hjá brúsunum og var því heitur drykkur oft vel þegin hjá ömmu og afa. Eins voru margar vinaheimsóknir til þeirra og þá var alltaf glatt á hjalla og mikið spilað. Amma var virkur féiagi í kvenfélagi Akrahrepps. Miðgrund fékkst ekki keypt og í lokin var bærinn orðin óíbúðarhæfur og þó fyrr hefði verið. Árið 1968 flytja þau ásamt bræðrunum til Akur- eyrar að Ægisgötu 6. Afi lést 15.12. 1973. Bræðurnir fóru að vinna í Slippstöðinni og unnu þar meðan aldur leyfði. Hugsaði amma um heimilið meðan aldur og þrek entust. Síðustu árin hennar önnuð- ust þeir bræður hana af mikilli umhyggju. Eftir að amma kom tii Akureyrar gat hún snúið sér að hannyrðum af fullum krafti og eru þær ótaldar allar þær fallegu myndir sem hún saumaði út og prýða veggi margra heimila ætt- ingja og vina hennar. Elsku amma mín. Ég bið algóð- an Guð að vernda þig. Hvíl í friði. Sigríður Halldórsdóttir. Elsku langamma. Nú ert þú komin til guðs. Ég veit að þér líð- ur vel þar en ég sakna þess að geta ekki tekið utan um þig og komið við mjúka skinnið þitt. Bless, elsku amma mín. Halldór Snær.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.