Morgunblaðið - 11.09.1997, Page 38
-#38 FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
RAÐAUGLÝSINGAR
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
Kjötiðnaðarmenn
Kjötiðnaðarmenn óskasttil starfa í kjötvinnslu
okkar á Selfossi.
Umsóknir, ertilgreini menntun, aldurog fyrri
störf, óskast sendar í síðasta lagi 15. september.
Höfn Þríhyrningur hf.,
Eyrarvegi 37,
800 Selfossi.
1
Rafveita Hafnarfjarðar
Rafvirki
Rafveita Hafnarfjarðar óskar eftir að ráða
rafvirkja til starfa sem fyrst.
Umsóknir berist Rafveitu Hafnarfjarðar Strand-
götu 6, 220 Hafnarfirði fyrir 15. september nk.
Nánari upplýsingar veita rafveitustjóri eða
verkstjóri í síma 565 2935.
Rafveita Hafnarfjarðar.
YMISLEGT
VINALÍNAN
Sjálfboðaliðar
Reykjavíkurdeild Rauða kross íslands leitar að
sjálfboðaliðum sem vilja starfa með Vinalínunni.
Vinalínan er símaþjónusta ætluð öllum 18 ára og
eldri sem eiga í vanda eða hafa engan að leita til í
sorg og gleði. Sjálfboðaliðar svara í síma öll kvöld
kl. 20.00-23.00.
Kynningarfundur verður haldinn sunnudaginn
14. september kl. 14.00 í Fákafeni 11,2. hæð.
Nánari upplýsingar og skráning
í síma 551 8800 og 561 6464.
-* Myndlistargagnrýni
Morgunblaðið vill ráða myndlistargagnrýn-
anda til starfa með núverandi gagnrýnanda
blaðsins. Æskilegt er að umsækjendur hafi
góða menntun og þekkingu á myndbanda-
og hljóðlist, innsetningum o.fl.
Til greina koma myndlistarmenn, listsögufræð-
ingar og aðrir þeir, sem hafa staðgóða þekk-
ingu á myndlist, innlendri og erlendri.
Umsóknirsendist ritstjórum Morgunblaðsins
fyrir 17. september nk.
i
i
i
i
i
í
Vestmannaeyjabær
Byggingarfulltrúi
Vestmannaeyjabær auglýsir lausttil umsóknar
embætti byggingarfulltrúa. Byggingarfulltrúi
^»>,skal vera arkitekt, byggingartæknifræðingur,
byggingarverkfræðingur eða byggingarfræð-
ingur. Framangreindiraðilarskulu hafa að
minnsta kosti tveggja ára starfsreynslu, sem
byggingarnefnd meturgilda. Byggingarfulltrúi
mun jafnframt vinna að hönnunar- og skipu-
lagsmálum m.a. á áutisvæðum bæjarins. Hann
mun einnig hafa eftirlit með húseignum í eigu
| Vestmannaeyjabæjar.
Starfið hentar konum sem körlum. Nauðsyn-
legt er að viðkomandi hafi staðgóða þekkingu
; á tölvuvinnslu og reynslu af byggingareftirliti.
Byggingartæknifræð-
» ingur
Vestmannaeyjabær óskar að ráða sem fyrst
byggingartæknifræðing við tæknideild Vest-
mannaeyjabæjar.
Viðkomandi mun m.a. hafa umsjón með göt-
um, holræsum, landmælingum og almennu
byggingareftirliti.
Starfið hentar jafnt konum sem körlum.
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi staðgóða
þekkingu á landmælingum, tölvuvinnslu og
reynslu af byggingareftirliti.
Nánari upplýsingar veitir Guðjón Hjörleifs-
^«son bæjarstjóri í síma 481 1088 og Ólafur
Ólafsson bæjartæknifræðingur í síma 481
1323.
Umsóknarfrestur er til 21. september
1997.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um fyrri
störf, skal senda til Vestmannaeyjabæjar,
Ráðhúsinu, pósthólf 60, 902 Vestmanna-
éyjum.
TILKYNNINGAR
Kosningar um sameiningu
sveitarfélaga við utanverð-
an Eyjafjörð
Sveitarstjórnir Árskógshrepps, Dalvíkurkaup-
staðar og Svarfaðardalshrepps hafa ákveðið
að fresta áður auglýstum kosningum um sam-
einingu þessara sveitarfélaga sem fram áttu
að fara 4. október 1997.
Nýr kjördagur hefur verið ákveðinn laug-
ardagurinn 18. október 1997.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram svo
sem áður hefur verið auglýst og lýkur henni
á kjördegi 18. október nk.
Kjörstjórnir Árskógshrepps,
Dalvíkurkaupstaðar og
Svarfaðardalshrepps.
Menntamálaráðuneytið
Námsorlof framhaldsskóla-
kennara og stjórnenda
framhaldsskóla
Athygli er vakin á því að umsóknir um náms-
orlof framhaldsskólakennara fyrir skólaárið
1998—1999 þurfa að berast menntamálaráðu-
neytinu fyrir 1. október nk. Sækja skal um á
sérstökum eyðblöðum sem fást í menntamála-
ráðuneytinu og skólunum. Athugið breyttan
umsóknarfrest.
Menntamálaráðuneytið,
9. september 1997.
ÍÞRÓTTIR
Skíðadeild Víkings
Haustæfingar eru hafnar í Víkinni:
9 ára og yngri laugardaga kl. 10 — 11
10 — 12 ára þriðjud. og fimmtud. kl. 18 — 19
13 — 16 ára mánud., þriðjud., fimmtud.,
laugard.
Nánari upplýsingar á símsvara: 558 8010.
Nýir félagar velkomnir
Ath. kynnignarfundur í Víkinni nk. mánudag
15. sept. kl. 20.00.
TIL SÖLU
Bækur og rit
Evrópusambandsins.
Bókabúð Lárusar Blöndal,
Skólavörðustíg 2.
TILBOO/UTBOe
Hjúkrunarheimili á Fáskrúðsfirði
Framkvæmdasýsla ríkisinsf.h. heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytisins, Búðahrepps,
Fáskrúðsfjarðarhrepps og Stöðvarhrepps, óskar
eftirtilboðum í byggingu hjúkrunarheimilis á
Fáskrúðsfirði.
Verkið nær til nýbyggingar á 850 m2 húsi á einni
hæð. Grafa skal fyrir húsi, steypa upp, ganga
frá húsi að utan, innrétta húsið og skila því full-
búnu. Einnig skal ganga frá lóð, bílastæðum,
hellulögn og gróðri.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júlí 1999.
Útboðsgögn verða til sýnis og sölu á kr. 6.225
frá 15. september 1997, hjá Ríkiskaupum, Borg-
artúni 7, 150 Reykjavík. Tilboðin verða opnuð
á sama stað þann 1. október 1997 kl. 11.00 að
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
RÍKISKAUP
0 t b o & s k i I a árangril
BORGARTÚNI 7, 705 REYKJAVÍK SÍMI 552-6844,
B r é f a s í m i 562-6739-Netfang: rikiskaup@rikiskaup.is
BATAR SKIP
Fiskiskip til sölu
Fiskiskipin Aðalvík KE 95, skipaskrárnúmer
971, stálskip, 211 brúttórúmlestir og Njarðvík
KE93, skipaskrárnúmer219, stálskip, 132
brúttórúmlestir, eru til sölu ásamt veiðileyfum,
veiðiheimildum og veiðarfærum.
Nánari upplýsingar gefur Jakob Bjarnason í
síma 560 5931.
KENN5LA
Stýrimannaskólinn
í Reykjavík
Námskeið í verklegri sjóvinnu:
Gagnlegir hnútar, splæs, tó og vír, netavinna,
bætingar og hnýting til viðhalds veiðarfæra.
Kennari: Lárus Þ. Pálmasson netagerðarmeist-
ari. Kennt 2 kvöld í viku kl. 18.00. — 21.30.
þriðjudaga og föstudaga. Hentar mjög vel með
30tonna námskeiði, sem erfrá kl. 18.00. —
21.00. mánudaga, miðvikudaga og fimmtu-
daga, en er einnig unnt ad taka sjálfstætt.
Námskeiðið er áformað í 8 vikur og hefst
þriðjudaginn 16. septembernk. kl. 18.00.,
ef næg þátttaka fæst. Hámarksfjöldi 12 þátttak-
endur, þátttökugjald kr. 12.000.
GMDSS - námskeið:
22. sept. — 1. okt.
13. okt. — 22. okt.
3. nóv. — 12. nóv.
í framhaldi eru haldin 4ra daga ARPA —
ratsjárnámskeið
Upplýsingar og skráning í síma 551 3194,
bréfsími (fax) 562 2750.
Skólameistari.
Þýskunámskeið Germaníu
Námskeiðin hefjast 15. september. Boðið er
upp á byrjendahóp, fimm framhaldshópa
ogtalhóp. Innritað verður á kynningarfundi
í Lögbergi, Háskóla íslands, stofu 102, í dag,
fimmtudaginn 11. september.
Upplýsingar eru einnig veittar í síma 551 0705
kl. 17 — 19 á virkum dögum.
Geymið auglýsinguna.
Stjórn Germaníu.