Morgunblaðið - 12.09.1997, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1997 11
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ásdís
LEIKSKÓLAKENNARAR
fjölmenntu á baráttufund Fé-
lags íslenskra leikskólakenn-
ara og lýstu fulium stuðningi
við sljórn félagsins og samn-
inganefnd en boðað verkfall
mun hefjast 22. september
hafi samningar ekki náðst
fyrir þann tíma.
Fundur í Félagi
íslenskra leik-
skólakennara
Pólitískt
kjörnir full-
trúar beri
ábyrgð
FJÖLMENNUR fundur í Félagi ís-
lenskra leikskólakennara lýsti full-
um stuðningi og trausti á samninga-
nefnd félagsins og hvatti hana til
að halda áfram á sömu braut.
Björg Bjarnadóttir, formaður fé-
lagsins sagði að ef koma ætti í veg
fyrir verkfall 22. september yrðu
pólitískt kjörnir fulltrúar sveitarfé-
laganna að hætta að skýla sé bak
við embættismannakerfið. Þeir yrðu
að bera ábyrgð og gefa launanefnd
skýr skilaboð um að hækka laun
leikskólakennara umfram annarra.
Síðasta tilboð
16,25% hækkun
Björg fór yfir stöðuna og sagði
að samninganefndin væri að skoða
síðasta tilboð launanefndar sem lagt
var fram á fundi hjá sáttasemjara
en það fæli í sér 16,25% hækkun á
núgildandi launatöflu eða rúmar 94
þús. krónur í byijunarlaun í upphafi
árs 2000. Jafnframt að leitað yrði
leiða til að ná 100 þús. króna byijun-
arlaunum í lok samningstímans.
Björg sagði að engu væri líkara
en að viðsemjendur gerðu sér ekki
grein fyrir að leikskólum yrði lokað
um leið og leikskólastjórar og leik-
skólakennarar leggja niður vinnu og
að ekki yrði tekið við börnum jafn-
vei þótt meirihluti starfsmanna væri
réttindalaus og því ekki í verkfalli.
Veik staða
sveitarstj órnarmanna
Björg sagði að pólitískir fulltrúár
sveitarfélaganna ættu hagsmuna að
gæta því það yrði þeirra að svara
foreldrum þegar öryggið og festan
sem leikskólinn skapar væri ekki
lengur til staðar. „Það verða fjöl-
margir foreldrar sem ganga að kjör-
borðinu í væntanlegum sveitar-
stjórnarkosningum á komandi vori
svo ekki sé talað um alla leikskóla-
kennarana og þá verður fólk ekki
búið að gleyma kjaradeilu leikskóla-
kennara, hvernig sem hún endar,“
sagði hún.
„Sveitarstjórnarmenn eru í veikri
stöðu. Ennþá ætla ég að leyfa mér
að vona að þeir komi sér ekki í það
klandur sem af því hlýst ef verkfall
skellur á. Þetta segi ég ekki af ein-
skærum hlýhug mínum til sveitar-
stjórnarmanna almennt heldur
vegna þess að verkfall er aldrei tak-
mark í sjálfu sér, það er neyðar-
úrræði.“
Jafningjafræðslan í Fjölbrautaskóla Vesturlands hlýtur viðurkenningu menntamálaráðherra
Morgunblaðið/Þorkell
NEMENDUR og starfsfólk skólans fjölmenntu á sal til að fylgjast með þegar viðurkenningarnar voru veittar.
MENNTAMÁLARÁÐHERRA af-
henti í gær tengiliðum Jafningja-
fræðslu framhaldsskólanna í Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi og nemendafélagi skólans við-
urkenningarskjöl og 200 þúsund
króna ávísun fyrir frábært starf í
þágu Jafningjafræðslunnar á vor-
önn 1997. Athöfnin markaði enn-
fremur upphaf hátíðahalda vegna
tuttugu ára afmælis skólans en í
kvöld verður hátíðarsamkoma á sal
skólans á Akranesi og á morgun,
laugardag, verður opið hús í skól-
anum frá kl. 13-17.
Á sl. vori var gert sérstakt átak
i sex framhaldsskólum, sem fólst í
því að setja saman þriggja daga
dagskrá sem miðaði að því að bæta
forvarnastarf í skólunum og fá
nemendur til að taka virkan þátt í
starfinu.
Einna ánægjulegast að fylgjast
með Jafningjafræðslunni
Árangur tengiliða Fjölbrauta-
skóla Vesturlands þótti skera sig
úr. Bar þar hæst að stofnaður var
Jafningjafræðsluklúbbur en hlut-
verk hans er að virkja nemendur í
starfi Jafningjafræðslunnar og
ferðaklúbbsins Flakks. í klúbbinn
skráðu sig á mettíma 238 nemend-
ur en í dagskólanum á Akranesi
eru rúmlega 600 nemendur.
í ræðu sinni við afhendingu við-
urkenninganna sagði Björn Bjarna-
son að á þeim rúmu tveimur árum
sem hann hefði starfað sem
menntamálaráðherra hefði honum
verið einna mest ánægja að því að
fylgjast með þróun og framvindu
J afningj afræðslunnar.
Verður eytt í eitthvað sem mun
gagnast vel í baráttunni
Um leið og hann afhenti tengilið-
unum viðurkenningarnar og nem-
endafélaginu 200 þúsund kr. styrk
til enn frekari eflingar starfsins
minnti hann á að ekkert væri mikil-
vægara fyrir ungt fólk, fyrir utan
það að afla sér góðrar menntunar,
en að komast hjá því að hún færi
í súginn vegna fíkniefna.
Tengiliðir Jafningjafræðslunnar
á Akranesi, þeir Erling Ormar
Vignisson og Óli Örn Atlason,
þökkuðu ráðherra frábæra viður-
kenningu og lofuðu því að henni
yrði eytt í eitthvað sem myndi
gagnast vel í baráttunni gegn eitur-
lyfjum.
Ivar Öm Benediktsson, formaður
nemendafélagsins, þakkaði einnig
og sagði þessa viðurkenningu mikla
hvatningu til enn frekari eflingar
heilbrigðs félagslífs í skólanum.
Mættu á baðslopp-
um með vegg-
spjöld á bakinu
ÞEGAR þeir Erling Ormar og
Óli Örn voru spurðir hvernig
þeir hefðu farið að því að virkja
svo marga samnemendur sína til
þátttöku í starfi Jafningjafræðsl-
unnar, litu þeir sposkir hvor á
annan. Sögðu síðan frá því að á
þriðja degi átaksins í vor, þegar
ýmislegt hafði verið gert til að
vekja athygli á vandanum, t.d.
haldinn kynningarfundur og
sýndur sjónvarpsþáttur Jafn-
ingjafræðslunnar, og þeim þótti
sem þátttakan væri ekki nógu
almenn, þá hefðu þeir gripið til
sinna ráða.
„Við mættum í skólann á bað-
sloppum, með plaköt frá Jafnin-
gjafræðslunni á bakinu og vegg-
fóðruðum salinn nieð plakötum.
Síðan gengum við um og fengum
fólk til að skrá sig í Jafningja-
fræðsluklúbbinn. Þetta virkaði
og strax í hádeginu sama dag
gátum við hringt suður til aðal-
stöðva Jafningjafræðslunnar í
Reykjavík og tilkynnt að við
værum búnir að stofna klúbb og
þegar komnir með 215 félaga,"
rifja þeir upp. Félagatalan komst
raunar upp í 238 seinna um dag-
inn.
Síðan hefur ýmislegt verið
gert á vegum klúbbsins, m.a. far-
ið í eftirminnilega ferð niður
Hvítá. Þá var komið á samstarfi
við Vinnuskóla Akraness í sum-
ar, þar sem um 150 krakkar
fengu fræðslu um vímuefni. Þeir
eru sammála um að viðurkenn-
Morgunblaöið/Þorkcll
TENGILIÐIR Jafningjafræðslunnar á Akranesi, þeir Erling
Ormar Vignisson og Oli Örn Atlason, taka við viðurkenningar-
skjölum frá Birni Bjarnasyni menntamálaráðherra.
ingin nú sé himnasending fyrir
vetrarstarfið, þar sem margt er
á döfinni, t.d. fleiri flakkferðir,
myndbandasýningar og kaffi-
húsakvöld.
Aðspurðir um vímuefnavanda-
mál á Akranesi segja þeir það
vissulega til staðar og að mesta
áhyggjuefnið sé að neyslan fari
sífellt neðar í aldri. Því sé draum-
urinn að koma á virku samstarfi
við grunnskólann.
Hvatning til enn frekari efl-
ingar heilbrigðs félagslífs