Morgunblaðið - 12.09.1997, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 12.09.1997, Blaðsíða 34
34 FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1997 IVIINIMINGAR MORGUNBLAÐIÐ GRETA SIG URÐARDÓTTIR + Gréta Sigurð- ardóttir fædd- ist á Akureyri 2. nóvember 1933. Hún lést 4. septem- ber síðastliðinn. Kjörforeldrar hennar voru Guð- rún Sigurbjörns- dóttir, f. 1. ágúst 1905, d. 20. feb. 1978, og Sigurður Helgason, raf- magnseftirlitsmað- ur, f. 13. feb. 1902, d. 21. ágúst 1990. Bróðir hennar er Svanbjörn Sigurðsson, raf- veitustjóri, f. 1. jan. 1937. Hann er kvæntur Margaretu Sigurðsson, f. 23. ágúst 1941. Þau eiga þrjú börn. Hinn 30. des. 1961 giftist hún Aðalgeiri Aðal- steinssyni kennara, f. 28. júní 1934. Foreldrar hans voru Helga Jakobs- dóttir, f. 11. sept. 1900, d. 18. des. 1967, og Aðalsteinn Aðalgeirsson, f. 18. maí 1899, d. 12. des. 1979. Dætur Grétu og Aðalgeirs eru: Sigrún, f. 18. maí 1960, Helga, f. 30. des. 1964, gift Oskari Inga Sig- urðssyni, sonur Sindri Geir, og Kristín, f. 5. maí 1970, gift Robert William Jagerson, sonur Aron Daníel. Utför Grétu fer fram frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15.30. Gréta Sigurðardóttir, systir mín, lést fimmtudaginn 4. september. Hún hefur átt í langri og erfiðri baráttu við miskunnarlausan sjúk- dóm, sem gaf engin grið. í slíkum tilfellum er gott að fá að kveðja 3b> þennan heim, verða laus við þján- ingarnar og halda áfram á þeirri braut sem okkur öllum er ætlað að fara. Hjá okkur sem eftir lifum leitar hugurinn til baka og hjá mér vakna fagrar minningar, um góða systur sem ég á svo margt að þakka. Gréta var stóra systir mín og gætti mín af einstakri samvisku- semi og umhyggju, siðaði mig til og kenndi mér fyrstu lífsreglurnar. Við ólumst upp á góðu heimili __og nutum ástar og umhyggju for- eldra okkar í ríkum mæli. Það var mjög gestkvæmt á heimilinu og við kynntumst mörgu góðu fólki, ekki síst fólki úr sveitunum, sem kom og fékk að gista hjá okkur. Við höfðum mikil tengsl við frændfólkið okkar í Máskoti í Reykjadal og þar dvaldist Gréta oft sumarlangt og undi hag sínum vel. Einnig dvöldu systurnar, frænkur okkar úr Máskoti, hjá okkur í Brekkugötu 39, nokkra vetur þegar þær stundu vinnu á Akureyri. Gréta lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskólanum á Akureyri og síðar stundaði hún nám við Hús- mæðraskólann á Laugum í Reykjadal. Hún giftist Aðalgeiri Aðalsteinssyni frá Laugavöllum í Reykjadal og áttu þau þrjár dætur, Sigrúnu, Helgu og Kristínu. Gréta var einstaklega góð móðir, um það eru dætur hennar sammála og vin- konur þeirra, til Grétu fannst þeim alltaf gott að koma. Þegar við Margareta fórum að búa hér á Akureyri árið 1963, hófst strax mjög gott samband milli fjöl- skyldnanna. Margareta kunni vel að meta Grétu og urðu þær góðar vinkonur og sá vinskapur hélst alla tíð, einnig hefur mikið og gott sam- band ríkt milli bama okkar og okk- ar allra. Gréta og Aðalgeir höfðu mikinn áhuga á ferðalögum um landið og eru þær ófáar ferðirnar og útileg- urnar sem fjölskyldur okkar fóru saman. Margar góðar minningar eru frá þessum ferðum og margar eru myndirnar til, sem sýna börnin okkar á mismunandi þroskastigum. Fyrir um tíu árum veiktist Gréta af krabbameini og gekk í gegnum langa og erfiða læknismeðferð. Hún tók sjúkdómnum með æðru- leysi og sýndi mikinn hetjuskap í baráttunni við hann og hafði sigur. Skömmu síðar fór að bera á öðrum * SIGURFINNA EIRÍKSDÓTTIR + Sigurfinna ríksdóttir, Dvergasteini Vestmannaeyjum, var fædd 21. júlí 1915. Hún lést á Hrafnistu í Hafn- arfirði 24. ágúst síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Eiríkur Ögmunds- son og Júlía Sig- urðardóttir. Sigur- finna var elst al- systkina, hin eru Gunnar (látinn), Guðmundur (lát- inn), Margrét, búsett í Reykja- vík, Þórarinn, búsettur í Vest- mannaeyjum, og Laufey (lát- in). Hálfbræður sammæðra eru Óskar, búsettur í Hafnar- firði, og Sigurbjörn (látinn). Eiginmaður Sigurfinnu var Þorleifur Jónasson, skipstjóri frá Dagsbrún, Neskaupstað, f. 11. okt. 1914, d. 1. apr. 1994. Börn þeirra eru: 1) Jónas Pét- ur, látinn, 2) Guð- mundur, skipstjóri, kvæntur Bertu Kjartansdóttur og eru börn þeirra tvö og barnabörn sex. Fyrir á Guðmund- ur tvo syni og fyrir á Berta eina dótt- ur. 3J Sigurbjörg, gift Olafi G. Gísla- syni útgerðar- manni og eru börn þeirra fimm og barnabörnin fimm. Fyrir á Ólafur einn son. 4) Eiríkur, skipstjóri, kvæntur Þóru Er- lendsdóttur, þau eiga einn son og 2 barnabörn. 5-6) Tvíbura- bræður, Herbert, bygginga- verkamaður, í sambúð með Hrefnu Guðmundsdóttur, og Jónas Pétur, sjómaður, kvænt- ur Gínu Cuizon. Útför Sigurfinnu fór fram frá Víðistaðakirkju 1. septem- ber. Þegar mamma hringdi og sagði okkur að Minna amma væri dáin, ieituðu minningar á hugann. Minningar um sumrin sem við systurnar dvöldum hjá ömmu og afa á Neskaupstað, bílferðunum inná Hérað, kleinubaksturinn með ömmu, og margar tilraunir ömmu til að kenna okkur að hekla, með misjöfnum árangri þó. Eftir að amma og afi fluttu í Hafnarfjörð var oft komið við í kaffi og alltaf átti amma heimabak- aðar kleinur og fleira góðgæti. I sjúkdómi, sem enn erfiðara var að ráða við. Það var alzheimersjúk- dómurinn. Síðustu árin hefur Gréta dvalist á Dvalarheimilinu Hlíð og þökkum við starfsfólkinu þar fyrir góða umönnun. Þar hafa allir lagst á eitt, til að henni mætti líða sem best. Við Margareta og börnin okkar kveðjum Grétu með söknuði og trega og vottum fjölskyldu hennar samúð okkar. Svanbjörn Sigurðsson. Ég minnist þín með þakklæti, Gréta mín. Við þekktumst frá fyrstu tíð, því foreldrar okkar voru vinir og svo giftust þið Aðalgeir bróðir minn, eignuðust þrjár mann- vænlegar dætur og þá urðu sam- skiptin enn þá meiri. Það var ætíð snyrtilegt heimili á Brekkugötu 39 og gott andrúms- loft sem allir á heimilinu hjálpuð- ust að við að skapa. Það voru margir sem áttu þar höfði sínu að halla. Ég var ávallt velkomin og fékk að vera, t.d. þegar ég beið eftir að eiga eldri börnin mín. Þú varst með Sigrúnu á fyrsta ári í fyrra sinnið og ég var að reyna að læra af þér meðferð á ungbörnum, því ég hafði enga reynslu á því sviði. Það var mér og börnum mínum til góðs, því þú varst bæði nærfærin og umhyggjusöm. Svo var ég að reyna að pijóna, en ég hafði ekki haft áhuga á pijónaskap fyrr. Þá sagðir þú mér til við það. Þú hafðir gaman af því að ferð- ast og varst í Ferðafélagi Akur- eyrar og svo varst þú líka í Slysa- varnafélaginu til styrktar því. Aðal- geir var í Karlakór Akureyrar svo þú varst stundum að baka fyrir þá eða ferðast með þeim. Síðustu árin hafa verið erfið vegna veikinda þinna, bæði þér og þínum. Þegar æviröðull rennur, rökkvar fyrir sjónum þér, hræðstu eigi, Hel er fortjald, hinum megin birtan er. Höndin, sem að hingað leiddi, himins til þig aftur ber. Drottinn elskar, Drottinn vakir, daga og nætur yfir þér. (Sig. Kr. Pétursson) Við Skúli sendum Aðalgeiri og öðrum aðstandendum innilegar samúðarkveðjur. Hólmfríður Aðalsteinsdóttir. bytjun sumars fór Böddi í pössun til langömmu sinnar og áttu þau góðar stundir saman og úr þessum heimsóknum kom Böddi heim með smáhluti sem hann á nú til minn- ingar um þær. Fyrir stuttu áttum við fjölskyld- an ánægjulega kvöldstund hér á heimili okkar með ömmu sem við erum nú mjög þakklát fyrir, því skömmu síðar veiktist hún og fór í aðgerð sem tókst vel. Hún virtist vera á batavegi og höfðum við vonast til að fá að njóta samvista við hana lengur, þegar kallið kom. Við vitum að afi tekur vel á móti henni í nýjum heimkynnum og biðjum góðan Guð að blessa minningu hennar. Bryndís, Páll, Grétar, Björn Berg og Aron Berg. SIGURÐUR ÓSKARSSON + Sigurður Ósk- arsson fæddist á Akureyri 17. ágúst 1948. Hann lést 3. september síðastlið- inn. Hann var sonur hjónanna Sigur- laugar Njálsdóttur, f. 4.12. 1924, og Óskars Friðjóns Jónssonar, f. 1.6. 1921, d. 15.5. 1991. Bræðurnir voru fjórir, elstur þein-a var Sigurður, þá Þorsteinn, Jón Þór- ir og Ólafur Njáll. Sigurður var í sambúð með Bergþóru Reynisdóttur og eiga þau saman tvö börn, Sigurð Frey, 14 ára, og Lilju Ósk, 10 ára. Auk þess sem hann átti tvö fósturbörn, Bjarna Bæring Bjarnason og Önnu Lindu Bjarnadóttur. Sigurður og Bergþóra slitu samvistir. Útför Sigurðar fer fram frá Glerárkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Ekki datt mér í hug að ég væri að faðma þig í seinasta sinn þrem- ur dögum fyrir andlát þitt. Þú hef- ur alltaf verið svo góður við okkur systkinin. Nokkur undanfarin sum- ur hef ég verið hjá ykkur Sigurði Frey í nokkra daga í einu, og verða þær minningar geymdar vel og lengi. Elsku Sigurður Freyr, þú hefur misst mikið því þið feðgar voruð svo miklir vinir, ákvarðanir voru alltaf teknar af ykkur báðum varð- andi húsið ykkar, fótboltann og allt sem þið gerðuð saman. En þú hefur ömmu Lillu þér við hlið núna eins og alltaf. Elsku amma Lilla, Lilja Ósk, Bjarni, Anna Linda og aðrir að- standendur, geymum góðar minn- ingar. Þín frænka, María Hlíf. Elsku Siddi. Margar minningar koma í huga minn núna þegar ég sest niður og skrifa nokkrar línur til þín. Það eru orðin 25 ár síðan ég kynntist þér og kom inn í fjöl- skylduna þína. Við vorum lengi bara tvær mágkonurnar en urðum þijár eftir nokkur ár. Oft og tíðum varst þú fámáll en talaðir með aug- unum, en þetta átti eftir að breyt- ast með árunum. Fyrir 14 árum fæddist fyrsta barn þitt, Sigurður Freyr, og fjór- um árum seinna Lilja Ösk sem er 10 ára. Erfitt tímabil áttir þú þeg- ar þið Bergþóra slituð samvistir, en alltaf birtir um síðir. Þú áttir dásamlega fallegt heim- ili með Sigurði Frey og þar var allt á sínum stað. í vor þegar þú sagðir okkur að þér hefði verið sagt upp í vinnunni höfðum við áhyggjur af þér, en þú sagðir að þú ætlaðir að vera í fríi í sumar og athuga með vinnu í haust. í minningunni verður sonur þinn ævinlega þakklátur fyrir þetta sumar sem þið áttuð saman. Fótboltinn var ykkar áhugamál og eydduð þið ykkar tíma í leik og sstörf hjá Þór: Hamar var ykkar annað heimili, þar voruð þið ef þið voruð ekki heima í Mánahlíðinni. Eftir að þið feðgar urðuð tveir, fórum við oft í ferðir saman. Við vorum hjá ykkur helgina áður en þú lést. Þá var það ákveðið að við mund- um ekki koma í réttirn- ar þessa helgi eins og við höfðum gert síð- ustu 13 ár. Börnin okk- ar urðu ekki ánægð með þær ákvarðanir, en^æðri máttur tók af okkur völdin. Á morgun förum við með þau í réttirnar. Elsku Siddi, við kveðjum þig með söknuði, þetta verða erfið spor í kirkjuna í dag. Elsku Sigurður Freyr, Lilja Ósk, Bjarni Bæring, Anna Linda, Lilla og bræðurnir og fjölskyldur okkar, Begga og fjöl- skylda. Guð styrki okkur öll á þess- um erfiðu tímamótum. Þín mágkona, María Kristinsdóttir. Manni bregður alltaf þegar frétt- ir berast um að félagi, sem er á besta aldri, sé fyrirvaralaust kvadd- ur frá okkur. Þegar þær fréttir bár- ust inn á miðstjórnarfund í Rafiðn- aðarsambandinu fyrir helgi, að Siggi Óskars væri fallinn frá setti menn hljóða og fundurinn stöðvað- ist um nokkurn tíma. Hann átti þar félaga og vini i hveiju sæti og naut mikillar virðingar meðal forystu- manna Rafiðnaðarsambandsins. Sigurður tók sveinspróf í raf- virkjun 1971 og hann hefur allan sinn starfsaldur starfað við iðn sína. Hann fór snemma að skipta sér af félagsmálum og varð fljót- lega einn af helstu forystumönnum Rafvirkjafélags Akureyrar, síðar Rafiðnaðarfélags Norðurlands. Hann var meðal annars gjaldkeri félagsins um langt skeið og gegndi mörgum trúnaðarstörfum fyrir samtök rafiðnaðarmanna. Hann var einn af þeim mönnum sem hafa komið að ákvarðanatöku um málefni Rafiðnaðarsambands ís- lands um langt skeið. Hann sat flest þing sambandsins og var sam- bandsstjórnarmaður. Sigurður var rólegur maður sem ekki fór mikinn, en hann hafði sín- ar skoðanir og fylgdi þeim eftir og gerði það mjög vel án þess að halda gífuryrtar ræður með miklum há- vaða á fundum. Þannig menn eru ákaflega verðmætir í öllu félags- starfi og er óhætt að segja að hann féll vel í þann_ hóp manna sem mótaði störf RSÍ og stofnana þess. Sigurður átti þátt í að gera sam- bandið að því sem það er í dag. Ég vil fyrir hönd rafiðnaðar- manna þakka fyrir verðmætt fram- lag Sigurðar til okkar samtaka og flyt aðstandendum innilegar sam- úðaróskir. Guðmundur Gunnars- son, form. Rafiðnaðar- sambands íslands. HJÖRTUR HJARTARSON Hjörtur H. Hjartarson lögfræð- ingur hjá Reykjavíkurborg er látinn á 69. aldursári. Fráfall hans bar brátt að, og má með sanni segja að hann hafi helgað borginni starfskrafta sína fram á síðasta dag, þegar heilsa hans gaf sig. Starfsaldur hans hjá Reykjavíkur- borg var langur og farsæll. Hann hóf störf á skrifstofu borgarstjóra árið 1968 og starfaði lengst af sem deildarstjóri innheimtudeildar. Áður hafði Hjörtur verið fulltrúi borgarfógeta með aðsetur hjá Gjaldheimtunni í Reykjavík. Auk venjubundinna stjórnunar- starfa í innheimtudeild hafði Hjörtur lengi vel umsjón með lóða- samningum. Hann sá um samn- ingagerð og uppgjör vegna kaupa og sölu Félagsmálastofnunar Reykjavíkur á leiguíbúðum borg- arinnar, annaðist lánaumsýslu fyr- ir Lífeyrissjóð starfsmanna Reykjavíkurborgar og sinnti ýms- um öðrum lögfræðilegum verkefn- um. Öllum þessum störfum gegndi hann af stakri samviskusemi og prúðmennsku. Hjörtur var þægilegur í viðmóti og greiðvikinn og einkar vinsæll meðal samstarfsmanna. Þeir sem gleggst þekktu Hjört tala um að hann hafi verið næmur á spaugileg- ar hliðar mála og einkar hnyttinn í tilsvörum og athugasemdum. Hjartar er nú sárt saknað af samstarfsmönnum í Ráðhúsi Reykjavíkur. Fyrir þeirra hönd votta ég eiginkonu Hjartar, Rósu Björgu Karlsdóttur, og fjölskyldu hans, innilega samúð. Hirti eru þökkuð vel unnin störf í þágu Reykjavíkurborgar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.