Morgunblaðið - 12.09.1997, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1997 21
undanskildu er borgaraflokkarnir
tóku við völdum skamma hríð. Leið-
togi hans, Thorbjörn Jagland, er
ekki á því að komin sé þreyta í
stjórnarflokkinn þrátt fyrir þetta en
segir atlögu mið- og borgaraflokk-
anna að Verkamannaflokknum hafa
orðið til þess að hann hafi kallað á
endurnýjað umboð kjósenda til að
halda áfram. Það gerði Jagland með
því að segjast myndu fara frá, fengi
flokkurinn minna fylgi en fyrir íjór-
um árum.
Þögn um Norska húsið
Jagland segir stóru málin vera
heilbrigðis- og öldrunarmál, nokkuð
sem stjórn hans hefur verið sökuð
um að hafa vanrækt. Hafa þessi
mál raunar orðið stærstu kosninga-
málin og nú segir Jagland kominn
tíma til að takast á við þau. Hann
telur núverandi ástand með löngum
biðlistum ekki skammarlegt eins og
margir hafa haldið fram, segir
Norðmenn eiga við sama vandamál
að stríða og fjölmargar aðrar þjóðir,
og kennir nútímatækni um hina
löngu biðlista án þess
útskýra það nánar. Þá
kveðst forsætisráðherr-
ann fylgjandi því að ýmsir
þeir hópar sem minna
megi sín í þjóðfélaginu,
innflytjendur, fatlaðir
o.s.frv. njóti sérréttinda.
Af öðrum málum má nefna
umhverfismál og stuðning við
iðnfyrirtæki en forsætisráðherrann
kvartar yfir því að enginn áhugi sé
á að ræða utanríkismál í kosninga-
baráttunni og er ekki einn um það,
af lesendabréfum dagblaðanna að
dæma. Hins vegar hefur hann aðeins
einu sinni, og þá mjög stuttlega,
minnst á aðalhugsjónamál sitt frá
því að hann tók við völdum, Norska
húsið. Háleita framtíðarsýn um hús
með fjórum veggjum: utanríkis- og
varnarmálavegginn, velferðarvegg-
inn, viðskipta- og atvinnulífsvegginn
og rannsókna-, menntunar- og
menningarvegginn. Norska húsið
átti greinilega ekki upp á pallborðið
hjá kjósendum.
Jagland þvertekur fyrir
það að Verkamannaflokk-
urinn hafi útilokað sam-
starf við aðra, það séu hin-
ir flokkarnir sem segist
vilja nýja stjórn. „Við höf-
um aukinheldur slæma
reynslu af samsteypustjórn, okkur
hefur tekist býsna vel upp og við
viljum fá að stjórna áfram. Við höf-
um árangurinn _af hægristjórn fyrir
augunum hér í Ósló, þeir eru á góðri
leið með að einkavæða velferðar-
kerfið."
Þrátt fyrir slæma byijun á kosn-
ingabaráttunni hafa Jagland og
flokkur hans sótt í sig veðrið á loka-
sprettinum og fylgið er á hægri en
að því er virðist öruggri uppleið.
Hægriflokkurinn
mótmælir stjórn miðjuflokka
Jan Petersen ber sig vel þrátt
fyrir að kosningaspárnar séu dapur-
legar fyrir flokk hans, Hægriflokk-
inn. „Við stefnum að því að halda
okkar hefðbundna hlutverki sem
næststærsti flokkurinn og við stefn-
um að því að mynda stjórn með
Kristilega þjóðarflokknum og Vens-
tre, þar sem baráttumál okkar eru
svipuð. Þátttaka Hægriflokksins í
miðjuflokkastjórn er útilokuð, svo
og samvinna við Framfaraflokkinn,"
segir Petersen.
Ástæða þess síðastnefnda er, að
sögn Petersens, skortur þeirra á
umburðarlyndi, of mikil harka gagn-
vart t.d. flóttamönnum, skortur á
pólitískum gildum, óstöðugleiki og
lítill skilningur á mikilvægi öflugrar
menningarstefnu. Þá greinir of
margt að hægrimenn og Miðflokkinn
og segir Petersen miðflokksmenn
sammála sér um það. Miðflokkurinn
standi ennfremur svo höllum fæti
að vilji Venstre og Kristilegir kom-
ast í stjórn, geti þeir ekki horft fram
hjá Hægriflokknum, stærðar hans
vegna. Petersen vill hins vegar ekki
ræða líkleg forsætisráðherraefni,
segir það ekki tímabært en tekur
það fram að hann útiloki ekkert.
Sama dag er fullyrt í blöðunum að
Petersen hafi boðið Bondevik stól
forsætisráðherra ef hann snúi baki
við Miðflokknum og snúi sér að
Hægriflokknum í staðinn en Bonde-
vik er sagður hafa tekið því fálega.
Stefnumál Hægriflokksins eru
kunnugleg, einkavæðing, fjölskyldu-
vænni stefna, aðstoð við iítið fyrir-
tæki. „Við gagnrýnum stefnu stjórn-
arinnar í heilbrigðismálum, varnar-
málum, skólamálum og í baráttunni
gegn glæpum en hún hefur alls ekki
staðið sig nógu vel í þeim. Þá viljum
við draga úr þróunarhjálp, við teljum
ekki að hún sé rétta leiðin til að
aðstoða þriðjaheimsríki, og við vilj-
um skera niður í sjúkratrygginga-
kerfinu og færa peningana yfir til
sjúkrahúsa, elliheimila og skóla.“
Hagen segist þora
þegar aðrir þegi
Á því leikur enginn vafi að Carl
I. Hagen er sá maður sem mesta
athygli vekur í norskum stjórnmál-
um. Umdeildur en þrautþjálfaður
stjórnmálamaður sem á sér mörg
andlit. Stefnuskráin rennur upp úr
honum, snyrtilega innpökkuð í frasa
sem hljóma vel, enda viðurkennir
einn andstæðingur hans að ein að-
alástæða góðs gengis
Hagens sé sú að honum
hafi tekist það sem öllum
öðrum flokkum hefur mis-
tekist, sem sé að útskýra
stefnu sína fyrir fólki.
Ekki þar fyrir, stefna
Hagens er alls ekki öllum
ljós enda hefur hann iðulega verið
sakaður um tækifærismennsku.
Stefnumál Framfaraflokksins eru
að útvíkka velferðarkerfið svo að það
nái betur til eldra fólks og að færa
aðhlynningu aldraðra frá sveitarfé-
lögunum til ríkisins. Að berjast gegn
glæpum og þyngja refsingar, að
styrkja íjölskylduna með breytingum
á skattkerfinu, lækka gjöld hins
opinbera á olíu, hækka ellilífeyri,
auka framlög til sjúkrahúsa og skóla
og að herða löggjöf um innflytjendur
og flóttamenn. Gerðar verði kröfur
um að þeir kunni norsku og að eng-
inn verði norskur ríkisborgari sem
ekki kunni málið. Þá hefur Hagen
hvað eftir annað lýst því yfir að
kennsla á samísku máli og menningu
eigi ekki að vera á nám-
skrá skóla, hún eigi að
fara fram utan hefðbund-
innar kennslu.
„Fólk er búið að fá nóg
að því að heyra að við
séum svo rík, þegar
ástandið er eins og það er. Við þurf-
um ekki að hegða okkur eins og við
séum fátækasta þjóðin í Evrópu þeg-
ar kemur að hinum þurfandi. Það
er alltaf verið að tala um að safna
verði í sjóð fyrir lífeyrisþega framtíð-
arinnar en ég spyr, hvað með þá sem
eru orðnir gamlir nú? Tillögur okkar
um að nota olíuauðinn í þeirra þágu
ganga alls ekki nærri ríkiskassan-
um,“ þrumar Hagen.
Hann hefur að því er virðist litlar
áhyggjur af því að enginn hinna
flokkanna vilji samstarf við Fram-
faraflokkinn. „En þeir munu vilja
stuðning okkar og sumir, t.d. Hægri-
flokkurinn, þora ekki að úthrópa
mig af ótta við að missa kjósendur,"
segir Hagen. Hlutverk Framfara-
flokksins er að hans sögn að koma
með nýjar hugmyndir sem fyrst sé
hæðst að en þær síðan teknar upp'.
„Við höfum óbein áhrif, knýjum
fram breytingar, t.d. í innflytjenda-
málum en stjórnin hefur tekið upp
strangari löggjöf í þeim málum. Hún
þorir ekki að opinbera áætlanir sínar
um að auka innflytjendastrauminn
aftur, af ótta við reiði kjósenda. Við
erum eini flokkurinn sem þorir að
mótmæla flölda innflytjenda."
Hagen mótmælir því að honum
sé líkt við hægriöfgamenn í Evrópu,
svo sem Jean Marie Le Pen í Frakk-
landi, og aftekur að Framfaraflokk-
urinn hafi tengsl við erlenda stjórn-
málaflokka, utan lauslegra sam-
skipta við Framfaraflokkinn danska.
Framfaraflokkurinn sé norskur
flokkur sem endurspegli þá skoðun
að Norðmenn beri aðalábyrgðina
heimafyrir, ekki á alþjóðavettvangi.
Og hann segist ekki leggja höfuðá-
herslu á að komast í stjórn, flokkur
sinn hafi áhrif og sækist ekki eftir
völdum valdanna vegna. „Eg mun
sætta mig við 10% fylgi, verða
ánægður með 13% en draumur minn
er 15% atkvæða." Það bendir ýmis-
legt til að honum verði að ósk sinni.
Miðflokkur
vill draga úr
olíufram-
leiðslu
Verkamanna-
flokkur í
hægri upp-
sveiflu
Viðskiptakort BYKO
er einföld leiö til aö koma
þeim lagfæringum og
breytingum á kortiö sem
þú hefur verið aö hugsa um.
Hvort sem þú vilt
staðgreiðsluafslátt eða
komast í reikning þá er þetta kortið
sem kemur þér af staö. Og ef þú hyggur á
stærri framkvæmdir ættir þú aö hafa samband
við Viðskiptaráðgjöf BYKO ísíma 515 4000
□334000
Þar er alltaf svigrúm til samninga.
Sláðu til því allt sem þú þarft aö gera er að fylla út
umsókn hjá okkur eða hringja og Viðskiptakortið er þitt.
habitat
KRINGIUNNI
I KRINGLUNNI
Viöskiptakort BYKO gildir I öllum BYKO verslunum, I Byggt og Búiö og I Habitat.
WEBffl