Morgunblaðið - 12.09.1997, Page 24

Morgunblaðið - 12.09.1997, Page 24
24 FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLA.ÐIÐ LISTIR Morgunblaðið/Þorkell VERKIÐ vekur ákveðnar spurningar um tengsl ástar og dauða og ástar og ofbeldis. Kristín Ómarsdóttir segir að í raun sé ekki hægt að horfa fram hjá dauðanum þegar fjallað er um homma. „Ástin er líka óhjákvæmilega tengd ofbeldinu; þú elskar og meiðir þig, þannig er það.“ SÖGUMAÐUR bregður sér í fjölmörg hlutverk. „Honum er kannski að vissu leyti stefnt gegu grallaraskap, gróf- leika og ofbeldi Hrafns og Geirs í Öskjuhlíðinni." Ast, dauði og ofbeldi Þetta er klassískt leikrit; það hefur bæði ást og dauða, ofbeldi, kynlíf og spennu, segir Auður Bjamadóttir leikstjórí Ástarsögu 3 eft- ir Kristínu Ómarsdóttur sem verður frumsýnd í Borgarleikhúsinu í kvöld. Þröstur Helgason fylgdist með æfíngu á leikritinu sem fjallar um viðkvæmt efni á teprulausan hátt. STARSAGA 3 eftir Kristínu Ómarsdóttur er í raun fleiri en ein saga sem gerast á fleirum en einu sviði. Það eru marg- ar sögur í sögunni, leikrit í leikrit- inu. Allar fjalla þessar sögur á ein- hvern hátt um ástina, ástina á ólík- um sviðum, í mismunandi ljósi. Um leið fjallar leikritið með ýmsum hætti um skil eða mót leikrits og veruleika og um áhrif leikritsins, eða skáldskaparins, á veruleikann. Stundum vita leikararnir ekki einu sinni hvort þeir eru að leika eða ekki. Eða eru þeir kannski alltaf að leika? Leikritið fjallar um tvo leikara og vini, Hrafn og Geir, sem leika saman í leikriti um tvo homma sem eiga stefnumót í Öskjuhlíðinni. Milli þess sem við fáum að fylgjast með þeim í hlutverkum sínum er brugðið upp myndum af þeim í búningsher- bergi leikaranna. Þar er skyggnst inn í einkalíf þeirra sem stundum virðist vera undir áhrifum frá leik- húslífinu og skáldskapnum. Sá sem tengir svo þessa tvo heima saman er sögumaðurinn sem er raunar ekki allur þar sem hann er séður. Spurning um hlutverk „Það sem hreif mig mest við verkið í upphafi,“ segir Auður Bjarnadóttir leikstjóri, „voru and- stæðurnar á milli annars vegar hins léttleikandi og fyndna texta og svo hins vegar alvarleikans og ljóðræn- unnar. Við vinnum mjögmikið með þessar andstæður og látum þær kallast á í verkinu. Svo eru þarna tvær sögur sem skarast á mjög spennandi hátt í miðju verki, leikritið sem leikararn- ir eru að leika fer að hafa áhrif á einkalíf þeirra. Og það er raunar ekki nóg með að við höfum leikrit í leikritinu heldur er múrinn milli áhorfenda og leikara rofinn, við gerum veruleikann að hluta af leik- ritinu. Leikritið snýst að verulegu leyti um hlutverk; hvenær er ég leikari og hvenær ekki, hvenær er ég hommi og hvenær ekki, hvað er að vera vinur og hvenær snýst vin- átta upp í ást, það vakna enda- lausar spurningar um hlutverk. Og svo var hlutverk sögumanns mjög opið, við gátum eiginlega gert það sem við vildum við hann. Ég lagði mikla áherslu á að flétta hann inn í söguna. Honum er kannski að vissu leyti stefnt gegn grallaraskap, grófleika og ofbeldi Hrafns og Geirs í Öskjuhlíðinni. Sögumaðurinn á sér nefnilega líka sögu sem er undir- liggjandi í leikritinu og afskaplega ljúfsár. Stundum hefur verið svolítið erf- itt að fóta sig í þessu verki því það er svo margþætt. Textinn er bæði ástríðufullur, fyndinn, grófur og grallaralegur en um leið leynast tragískir þættir á bak við. Leikritið er ögrandi á margan hátt.“ Þetta er bara ástarsaga Verkið vekur upp ákveðnar spurningar um tengsl ástar og dauða og ástar og ofbeldis. Kristín Ómarsdóttir segir að í raun sé ekki hægt að horfa fram hjá dauðanum þegar fjallað er um homma. „í ljósi síðustu tveggja áratuga er ekki hægt að horfa fram hjá dauðanum í lífi homma. Ástin er líka óhjá- kvæmilega tengd ofbeldinu; þú elskar og meiðir þig, þannig er það. Kynlíf og ofbeldi eru sömuleiðis tengd." „Sagði ekki Oscar Wilde að allir drepi yndið sitt,“ bætir Auður við. „Þetta er klassískt leikrit; það hefur bæði ást og dauða, ofbeldi, kynlíf og spennu." Mér þykir líka sérstaklega vænt um að vera með nýtt íslenskt leikrit íhöndunum; hér er Öskjuhlíðin, 17. júní og fleira sem við þekkjum, þetta er okkar samtími og okkar veruleiki o g því snertir verkið okkur ef til vill meira en ella. Umfjöllunarefnið er líka svolítið viðkvæmt. Sjálf hef ég kynnst heimi homma töluvert sem ballettdansari og það eru miklir for- dómar í gangi; kannski vinnur leik- ritið að einhverju leyti á móti þeim en við hræðumst hins vegar ekki hommaklisjurnar." Kristín segir að leikritið eigi ekki að vera ádeila. „Og það á ekki að sjokkera, það er ekkert í þessu leik- riti sem myndi teljast gróft eða hneykslandi ef það kæmi fram í leik- riti um gagnkynhneigða. Þetta er bara ástarsaga." Árni Pétur Guðjónsson og Þórhall- ur Gunnarsson leika Hrafn og Geir í verkinu en Þorsteinn Gunnarsson fer með hlutverk sögumanns. Lýs- ingu annast Lárus Björnsson, hljóð er í höndum Ólafs Arnar Thoroddsen og Hákons Leifssonar. Leikmynd og búninga gerði Þórunn Jónsdóttir. Sýningum lýkur Gallerí Ingólfsstræti 8 SÝNINGU þýsku listakonunnar Lore Bert sem staðið hefur yfir í Galleríi Ingólfsstræti 8 frá 14. ágúst lýkur nú um helgina. Yfírskrift sýningarinnar er Meng- enlehre - Mengjafræði, og sýnir Lore Bert verk unnin í handunninn pappír frá Nepal og Japan, og neón- Ijósverk. Gallerí Ingólfsstræti 8 er opið fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 14-18. Norræna húsið Tvær sýningar hafa staðið yfir í Norræna húsinu undanfamar vikur. Þær eru: On Iceland 1997, sem er alþjóðleg sýning sem einkum lýtur að tímatengdri myndlist og sýning á ljósmyndum frá Samabyggðum Finnlands sem Jukka Suvilehto hefur tekið. Báðum þessum sýningum lýkur nú um helgina þ.e. sunnudaginn 14. september. On Iceland er opin frá kl. 14-9 og ljósmyndasýningin er opin alla daga frá kl. 9-18 nema sunnudaga frá kl. 12-18. Lónakot Sýningu Sigurrósar Stefánsdótt- ur í Lónakoti, Skagafirði, lýkur nú um helgina. Viðfangsefni myndanna er daglegt líf og landslagstónar. Inga Elín sýnir skúlptúra INGA Elín Kristinsdóttir opnar sýningu á morgun, laugardag kl. 15-17, á skúlptúrum úr stein- steypu og gleri í Galleríi Horninu, Hafnarstræti 15. Sýningin ber yf- irskriftina „Leyndarmálið". Inga Elín stundaði listnám við Myndlistaskóla Reykjavíkur 1972-74 og við MHÍ 1974-78 og '81-82. Þá hélt hún til Danmerkur í framhaldsnám við Danmark De- sign skole og stundaði þar nám 1983-88. Lokaár sitt í Danmörku hlotnaðist Ingu Elínu „Kunst- haandværkerprisen". Inga Elín hefur haldið fjölda einkasýninga hér heima og erlendis. Hún er nú bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 1997. Sýningin stendur til 1. október og verður opin alla daga frá kl. 11-23.30. Verk Ingu Elínar Kristinsdóttur. Dönsk mynd í Norræna húsinu DANSKA kvikmyndin „Busters verd- en“ verður sýnd sunnudaginn 14. september kl. 14. „Busters verden" er margverð- Iaunuð dönsk bama- og fjölskyldu- mynd eftir Bille August, byggð á sögu Bjame Reuter. Buster Oregon Mortensen er 10 ára gutti, hann er mikill draumóramaður og hefur fjör- ugt ímyndunarafl. Buster er einnig nokkuð fær töframaður og úrræða- góður með eindæmum. Myndin er með dönsku tali, og er 91 mín. að lengd. Aðgangur ókeypis. Brúðuleik- sýning og fyrirlestrar á Jakútíu- dögum í TENGSLUM við myndlistarsýn- ingu Alexöndru Kjuregej og Jóns Magnússonar í MIR-salnum, Vatnsstíg 10, mun Hallveig Thorlacius sýna brúðuleik sinn „Minnsta tröllastelpan í heimi“ í bíósal MÍR við Vatnstíg, á morg- un, Iaugardag kl. 14.30. Að- gangseyrir rennur óskiptur til greiðslu á kostnaði við ferðir listamannanna frá Jakútíu, þeirra Nikolaj Pavlovs og Júrí Spiri- donovs sem nú sýna verk sín í Ráðhúsinu við Vonarstræti og Nýlistasafninu við Vatnsstíg. Daginn eftir, sunnudag kl. 14.30, verða listamennirnir gestir MÍR í bíósalnum og spjalla þá um heimaland sitt Sakha-Jakútíu, eitt víðlendasta hérað Rússlands, segja frá landi og landkostum, þjóðlífi og menningu. Mál þeirra verður túlkað á íslensku, en að- gangur er ókeypis. Margrét Ulrich Bóasdóttir Eisenlohr Ljóðatónleik- ar í Listasafni Kópavogs MARGRÉT Bóasdóttir sópran- söngkona og Ulrich Eisenlohr píanóleikari halda tónleika í Listasafni Kópavogs sunnudags- kvöldið 14. september kl. 20.30. Efnisskrá tónleikanna er að mestu sú sama og var á tónleik- um er þau héldu í ýmsum borgum Þýskalands fyrr á árinu; íslenskar þjóðlagaútsetningar eftir Fjölni Stefánsson, ljóðasöngvar eftir F. Schubert, Jórunni Viðar, E. Gri- eg, Jónas Tómasson og Jón Hlöð- ver Áskelsson. Margrét Bóasdóttir og Ulrich Eisenlohr stunduðu samtímis nám við ljóðadeild Tónlistarhá- skólans í Stuttgart og hafa hald- ið fjölmarga tónleika saman. Veflist í Stöðlakoti FRÍÐA S. Kristinsdóttir opnar sýningu í Stöðlakoti, Bókhlöðu- stíg 6, Reykjavík,_ á morgun, laugardag kl. 15. Á sýningunni eru myndverk og þrívíð verk úr vír, pappír, roði og hör, ofin með tvöföldum vefnaði. Fríða er mynd- og hand- menntakennari við Handíðabraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Hún er með vinnustofu í Listhús- inu við Engjateig. Hún rekur ásamt sjö listakonum Kirsubeija- tréð Vesturgötu 4. Sýningin er opin alla daga frá kl. 14-18 og henni lýkur 28. september. Myndlistarsýn- ingáCafé 17 GUÐMUNDUR Helgi mynd- verkamaður hefur opnað sýningu á verkum sínum í Café 17, Laugavegi 91. Á sýningunni eru myndir unnar með blandaðri tækni. Þetta er þriðja einkasýning Guðmundar Helga. Sýningin er opin til 6. október á opnunartíma Café 17.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.