Morgunblaðið - 12.09.1997, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1997 45
FRETTIR
Þj ónustumiðstöð
fyrir íbúa vígð
í Grafarvogi
BORGARSTJÓRI Reykjavíkur
mun vígja Miðgarð nk. laugardag,
13. september, kl. 14. Miðgarður
verður aðsetur nýrrar hverfis-
nefndar Grafarvogshverfis. Einnig
verður veitt þar margvísleg þjón-
usta til íbúa hverfisins.
Hverfamiðstöðin Miðgarður er
tilraunaverkefni á vegum Reykja-
víkurborgar til tveggja ára þar sem
meginmarkmið eru tvíþætt. Ann-
ars vegar að bæta og hagræða
þjónustu við íbúa Grafarvogshverf-
is og hins vegar með því að auka
lýðræði með starfrækslu Hverfis-
nefndar sem sækir bakland sitt til
Grafarvogsráðs.
Dagskrá vígslunnar verður snið-
in að allri fjölskyldunni. Mun
Furðuijölskyldan ásamt lúðrasveit
hverfisins aðstoða við að halda upp
á þennan dag. Á opnunarhátíðinni
mun m.a. Lúðrasveit Grafarvogs
leika, formaður Hverfisnefndar
býður gesti velkomna, Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri,
ávarpar gesti, miðstöðin verður
formlega opnuð. Gestum býðst að
ganga um skrifstofurnar og kynna
sér starfsemina. Einnig verður
kynning á starfsemi félaga og sam-
taka í hverfinu. Veitingar verða í
boði í tilefni dagsins. Barnakór 5
ára barna syngur. Dagskránni lýk-
ur kl. 15.
Framkvæmdastjóri verkefnisins
er Regína Ástvaldsdóttir. í
Hverfisnefnd ei*u: Guðrún Ög-
mundsdóttir, Sigrún Magnúsdóttir,
Hilmar Guðlaugsson, Knútur Hall-
dórsson og Friðrik Hansen Guð-
mundsson.
Norræn ráðstefna
um geðhjúkrun
RÁÐSTEFNA norrænna geðhjúkr-
unarfræðinga hefst á Hótel Loft-
Ieiðum í Reykjavík dagana 17.-20.
september nk. Ráðstefnan er haldin
annað hvert ár og nú í fyrsta sinn
á íslandi. Umsjón hafa Fagdeild
geðhjúkrunarfræðinga innan Fé-
lags íslenskra hjúkrunarfræðinga
og HH Ráðstefnuþjónusta. 480
manns eru skráðir á ráðstefnuna,
þar af 45 íslenskir hjúkrunarfræð-
ingar.
Aðalefni ráðstefnunnar er þáttur
geðhjúkrunarfræðinga í forvörnum,
meðferð og stuðningi við ungt fólk
með geðræna erfiðleika og fjöl-
skyldur þeirra. Meðal fyrirlesara
eru Stephen Haines RPN RN frá
Victoria í Ástralíu en hann er yfir-
hjúkrunarfræðingur miðstöðvar
forvarna og meðferðar fyrir ungt
fólk með byrjandi geðræna erfið-
leika og geðsjúkdóma, Per Lund,
forstjóri Sct. Hans Hospital í Hró-
arskeldu í Danmörku og Jóhanna
Bernharðsdóttir, lektor við náms-
braut í hjúkrunarfræði við Háskóla
íslands.
Á dagskránni er einnig móttaka
í boði Reykjavíkurborgar og heil-
brigðisráðuneytisins og skoðunar-
ferð til Þingvalla, Gullfoss og Geysi.
Ráðstefnan verður formlega sett
fimmtudaginn 18. september kl. 9
í þingsal Hótel Loftleiða.
Formaður fagdeildar geðhjúkr-
unarfræðinga er Guðbjörg Sveins-
dóttir, forstöðumaður^ Vinjar, at-
hvarfs Rauða kross íslands fyrir
geðfatlaða.
Lancia Y frumsýndur í Garðabæ
LANCIA Y, sem er nýr lúx-
ussmábíll, verður um helgina
sýndur hjá umboðinu, fstraktor,
í Garðabæ. Sýndir verða fimm
bílar, mismunandi litir, en alls
eru í boði 112 litir.
Meðal búnaðar í Lancia Y er
hemlalæsivörn, tveir líknar-
belgir, rafmagn í rúðum og
samlæsingar. Verðið er 1.180
þúsund krónur. Jafnframt bíia-
sýningunni verður snyrtivöru-
kynning á vörum frá Clarins
og Dior. Sýningin stendur laug-
ardag og sunnudag milli klukk-
an 10 og 17.
Úrslitakvöld í drag-keppni
URSLITAKVÖLD í drag-keppni
verður laugardaginn 13. septem-
ber á Nelly’s café, en undanfarin
tvö laugardagskvöld hafa farið
fram undankeppnir í drag-keppni
á Nelly’s café. 6 keppendur kom-
ust í úrslit og munu keppa um titil-
inn Drag-drottning íslands 1997.
í verðlaun er farandbikar og
ferð fyrir tvo til Manchester. Auka-
vinningar verða fjölmargir fyrir
aðra þátttakendur sem skara fram
úr.
Hörður Torfason tónlistamaður
er formaður dómnefndar, síðastlið-
ið laugardagskvöld fékk hann til
liðs við sig óvænta meðdómendur,
söngkonurnar Skin og Emilíönu
Torrini ásamt Ace og Rósu, segir
í fréttatilkynningu. Kynnir drag-
keppninnar er Jón Gnarr.
Húsinu verður lokað klukkan
22:00 úrslitakvöldið og keppnin
hefst klukkan 22:30. Ákveðið hef-
ur verið að keppt verði um titilinn
Drag-drottning íslands árlega.
Forsala aðgöngumiða er hafin á
Nelly’s.
1 J
Morgunblaðið/Ásdís
BJÖRG Skúladóttir og Jón Ásgeir Ríkharðsson í versluninni Koffortið.
Ný gjafavöruverslun í Hafnarfirði
OPNUÐ hefur verið ný gjafa-
vöruverslun að Fjarðargötu 11 í
Hafnarfirði og ber hún heitið
Koffortið. Eigendur eru Björg
Skúladóttir og Jón Ásgeir Rík-
harðsson.
í versluninni er hægt að fá
amerískar handunnar gjafavör-
ur í kántrýstíl, hurðakransa sem
letrað er á á íslensku, afskorin
blóm, endurunnin kerti frá Sól-
heimum í Grímsnesi og einnig
kerti og stjaka frá Danmörku,
smíðajárn frá Snorra Magnús-
syni og handunnar leirvörur.
Opnunartími verslunarinnar
er frá kl. 10-22 alla daga nema
sunnudaga.
Síðasta útivistar-
helgin í Viðey
FRAMUNDAN er síðasta útivistar-
helgin í Viðey á þessu sumri. Eftir
hana falla niður áætlunarferðir Við-
eyjarferjunnar og fastir afgreiðslu-
tímar veitingahússins í Viðeyjarstofu.
Bæði fyrirtækin sinna þó ætíð hópum
sem panta þjónustu fyrirfram.
Að venju verður gönguferð á laug-
ardagseftirmiðdag og síðan staðar-
skoðun heima fyrir eftir hádegi á
sunnudag. Síðasta kvöldgangan
verður nk. þriðjudag. Bátsferðir út
í Viðey heíjast kl. 13 báða dagana
og verða á klst. fresti til kl. 17, en
í land aftur á hálfa tímanum til kl.
17.30.
Á laugardag verður gengið frá
kirkjunni kl. 14.15 vestur með
Klausturhól, um Klifið niður á Eiðið
og þaðan yfir á Vesturey, þar sem
Áfangar, súlnapörin 9, umhverfis-
listaverkið sem R. Serra gaf á lista-
hátíð 1990 verður skoðað og síðan
genginn góður hringur um eyna
sunnanverða. Þar getur einnig að
líta steina með áletrunum frá 1810-
1842 og fleira er þar fornra minja.
Ferðin tekur rúma tvo tíma. Nauð-
synlegt er að vera á góðum skóm
og hafa annan búnað eftir veðri.
Á sunnudag verður staðarskoðun
sem hefst í kirkjunni kl. 14.15. Hún
Tónlistarskóli
Hafnarfjarðar
Nýtthús
vígt í dag
NÝTT hús Tónlistarskóla Hafnar-
ijarðar verður formlega vígt i dag,
föstudaginn 12. september.
Kl. 16.45 hefst skrúðganga frá
bifreiðastæði aftan við Strandgötu
6, þ.e. bak við Bæjarbíó. Gengið
verður suður Strandgötu inn á torg-
ið við nýja tónlistarskólann og
Hafnarfjarðarkirkju og inn í nýja
skólann, þar sem vígsluathöfnin fer
fram.
-----»-■♦ ♦---
Lokapredik-
anir í guð-
fræðideild HÍ
GUÐFRÆÐINEMARNIR, Hall-
dóra Ólafsdóttir, Sigurður Rúnar
Ragnarsson og Sigurður Grétar
Sigurðsson, flytja lokapredikanir í
Háskólakapellunni laugardaginnn
13. september.
Athöfnin hefst kl. 14.00 og eru
allir velkomnir.
er fróðleg og öllum auðveld því lítið
þarf að ganga. Þá verða gömlu Við-
eyjarhúsin skoðuð, fornleifaupp-
gröfturinn og annað í næsta ná-
grenni húsanna.
Veitingahúsið í Viðeyjarstofu er
opið frá kl. 14 en ljósmyndasýningin
í Viðeyjarskóla og hestaleigan eru
nú aðeins opnar fyrir hópa sem panta
fyrirfram.
LEIÐRETT
Gjábakki öllum opinn
VEGNA fréttar í Morgunblaðinu í
gær um félags- og tómstundastarf
fyrir eldri borgara í félagsheimilinu
Gjábakka í Kópavogi, vill forstöðu-
maður heimilisins taka fram að Gjá-
bakki er rekinn af Kópavogsbæ, en
þar hafa ýmsir hópar fengið að-
stöðu, þ.á m. Félag eldri borgara í
Kópavogi og Hana nú. Aðgangur
að Gjábakka er hins vegar ekki
bundinn af féiagsaðild að þssum
hópum og er öllum eldri borgurum
frálst að koma í Gjábakka og taka
þátt í því starfi sem þar fer fram.
Mistök í sultuuppskrift
KRISTÍN Gestsdóttir biður lesendur
sína fyrirgefningar á mistökum sem
henni urðu á í uppskrift að sólbeija-
hlaupi og segir við þá: Ég hefi því
miður engin sólber í mínum garði
og hefi litla reynslu af sultugerð
með þeim. Ég á mikið úrval mat-
reiðslubóka, þ.á m. danskra, sem
ég tók þessa sólbeijauppskrift úr.
Ég geri mjög lítið af því að taka upp
úr bókum og blöðum og ef það ger-
ist prófa ég það sjálf. En í þetta
skipti sveikst ég um og það sýnir
mér að það á maður aldrei að gera.
Kona hringdi í mig og kvartaði
yfir að ekki tækist að sía sólberin
og eftir mikil átök væri eldhúsið í
rúst. Mikið hefi ég á samviskunni.
En hin sama kona gaf mér gott ráð,
en það er að sía berin í rauðum
nælonpoka sem er utan um græn-
meti og setja sigti inn í hann og
setja meira en 1 dl af vatni saman
við berin. Ef allir hafa ekki gefist
upp ættu þeir að prófa þetta.
Ég vona að lesendur fyrirgefi mér
þetta, mér finnst þetta mjög leitt.
Gjafir til háskóla
í frétt í blaðinu fyrr í vikunni þar
sem sagði frá veglegum gjöfum til
Háskólans á Akureyri slæddist inn
ein villa. Harpa og Páll Árdal gáfu
háskólanum bækur og tímarit úr
heimspekisafni sínu í Kanada. Páll
var sagður Páll J. Árdal sem ekki
er rétt og eru hlutaðeigandi beðnir
velvirðingar á því.
Lisa Ner-
gaard á
Islandi
DANSKI rithöfundurinn Lise
Norgaard, höfundur sjónvarpsþátt-
anna Matador, gistir ísland á næstu
dögum í boði danska sendiráðsins
og^Norræna hússins.
í þáttunum styðst Lise Norgaard
að hluta til við bernskuminningar
og lýsingar á persónum og um-
hverfi tengjast æskuárum hennar í
Hróarskeldu. Þetta kemur vel í ljós
við lestur endurminninga hennar.
Lise Norgaard hefur verið afkasta- % .
mikill rithöfundur. Auk skáldsagna
hefur hún skrifað leikrit fyrir út-
varp og sjónvarp, t.d. „Huset pá
Christianshavn". Þá hefur hún
skrifað handrit að mörgum kvik-
myndum.
Lise Norgaard hefur gegnt ýms-
um trúnaðarstörfum og hlotið ýms-
ar viðurkenningar, t.d. Publicist-
verðlaunin 1982, Rithöfundur árs-
ins „De Gyldne Laurbær" 1992,
Árets kaffepris 1994.
Lise Norgaard er fædd í Hróars-
keldu 1917 og hefur starfað sem
blaðamaður við fjölda vikublaða og
dagblaða í Danmörku á löngum
starfsferli. ,
Hún talar í Norræna húsinu um -
starf sitt sem rithöfundur og blaða-
maður sunnudaginn 14. september
kl. 16. Mánudaginn 15. september
heimsækir hún tvo menntaskóla í
Reykjavík og verður viðstödd
endursýningu á kvikmyndinni „Kun
en pige“ í Háskólabíói kl. 19.30.
Lise Norgaard verður rithöfund-
ur mánaðarins hjá bókaverslun
Eymundsson. Hún áritar þar bækur
þriðjudaginn 16. september frá kl.
16.30-17.15.
rýmmjasölunnar
MIKILL
AFSLATTUR
Seljum uppsetningar
í verslun,
einnig rúmgafla,
náttborð,
DUX rúmdýnur,
yfirdýnur,
borðstoíúhúsgögn
og gjafavöru.
VIÐ FLYTJUM
í Ármúla 10
DUX
GEGNUM GLERIÐ
Faxafeni 7 - Sími: 568 9950