Morgunblaðið - 12.09.1997, Qupperneq 46
46 FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
4
BREF
TIL BLAÐSINS
Tommi og Jenni
Ferdinand
Smáfólk
5UPPERTIME! IT'S
SUPPERTIMEÍYE5,
IT'5 5UPPERTIMEÍ
Gjörið svo vel... Þrír Kvöidmatartími! Hvað var nú þetta? Mér þykir það
hundar... Þrír kvöld- Kvöldmatartími! Já, leitt... Hann býst eiginlega við
verðir! það er kvöldmatar- þessu ... A hverju kvöldi? En vand-
tími! ræðalegt.
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Simbréf 569 1329
Hætta á sauðfjár-
sjúkdómum vex
Frá Sigurði Sigurðarsyni:
RIÐUVEIKI í sauðfé hefur fundist
á u.þ.b. 10 bæjum hvert ár eftir
1990, aðallega á Norðurlandi og
Austurlandi. Á þeim svæðum er
hættan mest. Fram til 1. september
á þessu ári hefur veikin fundist á
5 bæjum, þar af eru 4 á Austur-
landi og 1 á Akureyri. Hér er um
að ræða sjúkdóm, sem getur borist
í kýr og líklega fleiri dýrategundir
t.d. geitur, ketti, loðdýr og hrein-
dýr, þótt tekist hafi að afstýra því
hér á landi enn sem komið er. Kom-
ist veikin í kýr er það áfall fyrir
landið út á við. Ekki er unnt að
útiloka smithættu fyrir fólk af kúa-
riðu, þótt ekkert bendi til hættu
fyrir fólk af riðuveiki í sauðfé. Það
er því áríðandi, að allir sem hlut
eiga að máli leggist á eitt um að
draga úr hugsanlegri útbreiðslu,
uppræta veikina í sauðfé með öllum
tiltækum og skynsamlegum ráðum
og draga eins og unnt er úr nánum
samgangi sauðfjár og nautgripa.
Það er eitur að hafa nautgripi og
sauðfé í sömu húsum þar sem riðu-
hætta er. Mikilvægt er að láta vita
um alla nautgripi sem sýna grun-
samleg einkenni frá taugakerfi,
hafa nautgripi og sauðfé í aðskild-
um húsum og draga eins og unnt
er úr nánum samgangi á túnum.
Garnaveiki
Garnaveiki sýkir öll jórturdýr.
Hún breiðist út um landið hægt og
sígandi en unnt væri að stöðva
hana og uppræta, ef samstilltum
átökum yrði við komið. Þar sem
garnaveiki hefur orðið vart ætti að
bólusetja ásetningslömb sem allra
fyrst, helst í september og hafa þau
ekki með fullorðnu fé á óhreinum
og smituðum túnum og halda
sauðfé og nautgripum aðskildum.
Því miður hefur komið fyrir að
sveitarstjórnir, sem bera ábyrgð á
framkvæmd varnarbólusetningar,
hafí vanrækt að láta framkvæma
hana í tæka tíð og stundum hefur
hún fallið niður. Fara þarf vel með
fénaðinn og ástunda hreinlæti í allri
umgengni.
Fram undan er fjárrag næstu
vikurnar um allt land við smölun,
réttir, flutninga. Minnt er á eftirfar-
andi atriði:
Fyrirhyggjan prýðir garp:
1. Hafíð tiltæka aðstöðu við rétt-
ir til að einangra þegar í stað kind-
ur úr öðrum vamarhólfum eða svæð-
um og kindur með grunsamleg ein-
kenni, þ.e. kindur sem eiga að fara
beint í sláturhús (sveitarstjóm).
Sótthreinsið einangmnarstaðinn.
2. Takið strax frá og flytjið í
einangmn til byggða og með smit-
gát, kindur sem sýna merki í smöl-
un eða réttum um riðu eða aðra
smitsjúkdóma (kláða, sletting eða
óstyrk í hreyfíngum, sljóleika,
hræðslu, vanþrif). Látið vita strax
um slíkar kindur, sem skilja verður
eftir. Þær skal sækja og koma til
rannsóknar í samráði við dýra-
lækni. Takið sýni (haus) af kindum,
sem finnast nýdauðar eða lóga verð-
ur í smölun.
3. Látið lóga og rannsaka allar
gmnsamlegar kindur, sem koma
fyrir í heimalöndum.
4. Hver sem verður var við gran-
samlega kind, hvar og hvenær sem
er, getur kallað á dýralækni sér að
kostnaðarlausu. Hafa má samband
við undirritaðan dag sem nótt.
5. Sveitarstjórnir eru hvattar til
að ná samkomulagi sín á milli um
að taka ekki heim heldur láta farga
flækingsfé, sem kemur fyrir í öðrum
afréttum en hinum eiginlegu og
öllu fé sem fer langt (t.d. yfir
hrepp).
6. Sé ætlast til bóta fyrir slíkar
kindur þarf að ræða um það fyrir
fram við yfirdýralækni eða fulltrúa
hans, áætla líklegan fjölda og fá
samþykki fyrir bótum. Þeir sem
senda slíkar kindur til slátrunar
verða að taka fram við réttastjóra
í sláturhúsi að um bótafé sé að
ræða og sláturleyfishafi (slátur-
hússtj.) gerir skýrslu um það sem
sent er ásamt sýnum (haus) að
Keldum.
7. Heilasýni á að taka úr full-
orðnu sláturfé í haust á riðusvæðum
og víðar.
8. Ekki skyldu menn hýsa
ókunnugar kindur með sínu fé held-
ur flytja beint í réttir (flytjið þó
ekki veikar kindur til rétta heldur
kallið á dýralækni) eða í sláturhús,
ef lógun er ákveðin.
9. Flytjið ekki líffé með slátur-
gripabílum. Bílstjórar eiga að sótt-
hreinsa bílana reglulega, hvern dag
og eftir flutning frá sýktum svæð-
um og bæjum. Sjá reglur sem
hengja skal upp í sláturhúsum og
dýralæknar hafa einnig fengið.
10. Haldið aftur af verslun og
öðmm flutningum sauðfjár til lífs
á milli bæja.
SIGURÐUR SIGURÐARSON,
dýralæknir á Keldum.
Kvittun og kveðja til
Onnu Maríu Þórisdóttur
Frá Ásgerði Jónsdóttur:
ÞAÐ væri mikil lukka fyrir þjóðina
ef allar meintar málfarsvillur reynd-
ust vera misheyrn. Því miður er
ekki svo vel þótt mér muni hafa
misheyrst orðið samþykktu í stað
samsinntu í morgunsögu þinni 22.
júlí sl., trúlega vegna óraddaðs
framburðar. Ég bið þig velvirðingar
á að hafa gert athugasemd án þess
að grennslast betur fyrir um efnið
hjá útvarpinu.
Þú vitnar í aðra meinta misheyrn
eða missögn mína: „Sumarbústað á
fimmtán hjólum." Ég heyrði ekki
þetta heiti á sögunni og í fmmriti
greinarkorns míns sem ég hef í
höndum er því að sjálfsögðu nefnt
hjól. Það er villa sem ég ber ekki
ábyrgð á. Umsögn mín um söguna
sem slíka voru þtjú orð, eitt lýsing-
arorð og tvö nafnorð. Ég finn enga
þörf til_ þess að fækka þeim eða
§ölga. Ég varð ekki vör við ofbeldi
eða æsing í umræddri sögu og hafði
því engin orð um það. Og tel ég
bæði lofs- og þakkarvert þegar
höfundar barnabóka og annars efn-
is sniðganga slíkt.
Ég er sein til svars því ég vissi
ekki um athugasemd þina fyrr en
nú nýlega.
ÁSGERÐUR JÓNSDÓTTIR,
Drápuhlíð 32, Reykjavík.
4.
€
C
€
w
;;
í
c
í
í
i
(
(
(
<
<
<
i
i
i
i