Morgunblaðið - 12.09.1997, Qupperneq 52
52 FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Djasshátíðin KU
Skorað á
lietjuinar
GAGARIN geimfari verður
í Tjarnarbíói í kvöld kl. 21.
Hann snýr óvænt aftur og
birtist á Rúrek-sýningu
þýska dans- og djassleik-
hússins Off-Off Theater
und Tanzwerkstatt.
„Hugmyndin að verkinu
kviknaði í leiksmiðju fyrir
leikmynda- og búningahöf-
unda í Dresden vorið
1996,“ segir Hlín Gunnars-
dóttir sem hannar einmitt
leikmynd og búninga og
gerir skúlptúr fyrir sýning-
arnar hér. Sú fyrri var í
gærkvöldi.
„VERKIÐ er áskorun fyrir alla sem standa að því
og reynir sérstaklega á næmni listamannanna og
samspil," segir Hlín.
Morgunblaðið/Kristinn
HLÍN Gunnarsdóttir er leikmynda- og búningahönnuð-
ur frá Accademia Albertina di Belle Arti í Torino á
ítaliu. Hún starfaði með Teatro dei Piccoli og Teatro
Approche í Aosta en flutti heim árið 1987 og hefur
unnið á fjórða tug leikmynda fyrir leikhúsin á höfuð-
borgarsvæðinu.
„Við fengum svo dansara og
leikstjóra til að vera með í vinn-
unni,“ segir hún. Gunter „Baby“
Sommer slagverksleikari og Inge
MiSmahl danshöfundur völdu
þetta verk til að vinna áfram með
Hlín og Kari Laakkonen leik-
myndahönnuði. Verkið var svo
flutt tíu mínútna langt í kastalan-
um í Dresden og sýnt eitt kvöld
með reglulegu millibili við góðar
undirtektir 200 þúsund áhorfend-
ur. Núna er það um klukkustund-
ar langt.
„Verkið er áskorun fyrir alla
sem standa að því og reynir sér-
staklega á næmni listamannanna
og samspil," segir Hlín, „það er
rammi um hetjur og goðsagnir,
og innan hans er rúm til að spinna
og gera eitthvað nýtt. Það á líka
að geta höfðað til margra því það
sameinar tónlist, dans og mynd-
list.“ Fyrsti þátturinn heitir Gag-
arin snýr aftur og leitar fortíðar
sinnar.
Hlín býr til víraskúlptur í upp-
hafi sýningarinnar í kvöld eins og
í gærkvöldi. í kvöld mun því Sovét-
maðurinn Gararin snúa aftur úr
geimnum og leita að hetjum menn-
ingarinnar sem ráfa gleymdar í
himingeimnum eða í rökkvuðum
hugarfylgsnum mannanna.
Kvikmyndir/Regnbofflnn sýnir The
Spitfire Grill sem fjallar um unga stúlku
á tímamótum í lífínu og leit hennar að
lífshamingju í bandarískum smábæ.
Fortíðin
í farteskinu
Ellen Burstyn á að baki langan
og fjölskrúðugan feril í kvikmynd-
um, sjónvarpi og á leiksviði, og
hefur hún unnið óskarsverðlaun,
Golden Globe-verðlaunin ___________
nefnd til verðlaunanna fyrir hlut-
verk sín í The Last Picture Show,
The Exorcist og Resurrection. Með-
al fjölmargra annarra mynda sem
_________ hún hefur leikið í eru
og Tony-verðlaun fyrir ÝmÍS levndar- ^arry and Tonto, Dying
frammistöðu sína. Eins -. .-t ______ Young, The Cemetary
ogElliott byijaði Burstyn . ® Club og How to Make an
sem fyrirsæta en fyrsta ins IJOS American Quilt.
sviðshlutverkið fékk hún
1957. Þekktust er hún fyrir sviðs-
leik í Á sama tíma að ári árið 1975,
en fyrir það fékk hún Tony-verð-
launin sem besta leikkonan það
árið. Árið áður krækti hún í óskars-
verðlaunin sem besta leikkonan fyr-
ir hlutverk sitt í myndinni Alice
Doesn’t Live Here Anymore. Hún
hlaut svo óskarstilnefningu fyrir
hlutverk sitt í kvikmynd sem gerð
var eftir leikritinu Á sama tíma að
ári, en að auki hefur hún verið til-
Marcia Gay Harden
hefur einnig komið víða við í kvik-
myndum, sjónvarpi og á leiksviði.
Fyrsta kvikmyndahlutverk hennar
var í myndinni Miller’s Crossing,
sem þeir Coen bræður gerðu, en
síðan lék hún m.a. í myndunum
Used People, Safe Passage og
Crush. Síðast sást hún á hvíta tjald-
inu í The First Wifes’ Club og næsta
mynd hennar er Desperate Measur-
es með þeim Andy Garcia og Micha-
el Keaton.
PERCY Talbot (Alison Elliot) er
nýlega laus úr fangelsi og ákveður
að setjast að í smábænum Gilead
þar sem hinar fáu hræður sem
ílengst hafa eru löngu hættar að
verða fyrir áhrifum af náttúrunni
umhverfis bæinn. Fljótlega flýgur
fiskisagan um fortíð Percy sem fær
samastað í Spitfíre grillhúsinu þar
sem Hannah Ferguson (Ellen
Burstyn) ræður ríkjum. í staðinn
þjónar Percy til borðs í grillhúsinu
og fljótlega bindast þær stöllur
tryggðarböndum ásamt Shelby
(Marcia Gay Harden), en hún er
tveggja barna móðir sem leggur
sitt af mörkum í grillhúsinu. Vin-
átta þeirra er ólík öllu sem þær
ÞÆR
Percy (Alison Elli-
ott) Hannah (Ellen Burstyn)
og Shelby (Marcia Gay Hard-
en) bindast fljótlega
tryggðarböndum.
ALISON Elliott leikur Percy
Talbott sem reynir að byrja
nýtt líf eftir að hafa afplánað
fangelsisvist.
hafa áður upplifað og smám saman
fara vel varðveitt leyndarmál að
líta dagsins ljós.
Alison Elliott vakti athygli árið
1995 þegar hún lék í mynd Ste-
ven Soderberghs, The Under-
neath, en næsta hlutverk hennar
var í sjónvarpsþáttunum The
Buccaneers sem sýndir hafa
verið hér á landi. Elliott byijaði
feril sinn sem sýningarstúlka
og í tengslum við starfíð ferð-
aðist hún víða um heiminn.
Fyrsta hlutverkið í kvikmynd
áskotnaðist henni árið 1993
þegar henni bauðst auka-
hlutverk í Wyatt Earp, sem
Kevin Costner gerði og lék
aðalhiutverkið í. Síðan
hefur hún leikið í sex
kvikmyndum.
PERCY fær húsaskjól og starf í grillhúsinu The
Spitfire Grill.
útsala
Skór frá kr. I .990,-
Háskólapeysur frá kr.2.000,-
15% afsláttur af nýjum vörum
Vorum að fá bakpoka, úlpur og margt margt fleira
iþrótt
Allt að
70%
afsláttur
errea ^sizmo
Verslunin íþrótt Skipholti 50d sími 562 0025
Á hátfðinni í dag:
Kl. 17.00 síðdegisjazz á
Jómfrúnni við Lækjargötu
Kl. 21.00 Off-Off Teater i
Tjarnarbiói siðari sýning á
djassverkinu Gagarín -
síðasta hetjan
Kl. 22.00 Jazzbræður og
Krafla i Sunnusal Hótel
Sögu
Kl. 23.00 RúRek á miðnætti:
Spuni i tali og tónum á
Jómfrúnni við Lækjargötu
Miðasala
i Japis Brautarholti
Miðapantanir
i sima 551 0100.
Námufélagar Landsbankans fá afslátt.
Frumsýning