Morgunblaðið - 26.09.1997, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1997 17
__________VIÐSKIPTI_______
Intel sætir rannsókn
yfirvalda vestanhafs
Santa Clara, Kaliforníu. Reuter.
INTEL Corp., umsvifamesti kubba-
framleiðandi heims, sætir víðtækri
rannsókn bandaríska viðskiptaráðs-
ins (FTC) vegna ásakana um óheið-
arlega viðskiptahætti að sögn fyrir-
tækisins.
Þetta er önnur rannsókn FTC á
Intel á þessum áratug og fer hún
fram á sama tíma og óttazt er að
fyrirtækið sé of valdamikið í grein-
inni, sem veltir 150 milljörðum doll-
ara, og of aðgangshart við keppi-
nauta sína að sögn kunnugra.
Að sögn talsmanns Intels kannar
FTC hvort Intel reynir að tryggja
sér einokunaraðstöðu eða hafa áhrif
á verð og samkeppni í sambandi
við þróun eða sölu örgjörva eða
annarra tölvuhluta.
Samkvæmt heimildum í greininni
er líklegt að FTC rannsaki mála-
ferli Intels og Digital Equipment
Corp. og söluaðferðir Intels, sem
eru framleiðendum einmenningst-
ölva hvatning um að kaupa fleiri
kubba frá Intel en keppinautum
fyrirtækisins.
Örgjörvar frá Intel eru notaðir í
um 80% PC-tölva í heiminum og
ný kynslóð öflugra Pentium kubba
fyrirtækisins tekur við hlutverki
annarra tegunda þannig að sala
annarra kubbafyrirtækja hefur orð-
ið fyrir þrýstingi. Talsmaður Intels
kvaðst ekki vita hvað leitt hefði til
síðustu rannsóknarinnar.
Árið 1991 stóð FTC fyrir svip-
aðri rannsókn, en hætti við hana
að tveimur árum liðnum. Intel
kveðst búast við sömu niðurstöðu
að þessu sinni. Intel heitir samvinnu
við rannsóknina og kveðst hafa til-
búna áætlun til að tryggja að við-
skiptahættir fyrirtækisins samrým-
ist öllum alríkislögum.
Ásakanir um þjófnað
FTC hefur skipað að minnsta
kosti einum keppinaut Intels að láta
í té upplýsingar vegna rannsóknar-
innar. Fyrirtækið Advanced Micro
Devices kveðst hafa fengið vitna-
stefnu frá FTC vegna málsins.
í maí fór Digital Equipment í
mál við Intel, sem var sakað um
að stela tækni er notuð væri í ör-
gjörvanum Digital Alpha, sem
keppir við Pentium-gjörva Intels.
Málið harðnaði þegar Intel höfðaði
mál og krafðist þess að skilað yrði
tækniskjölum, þar sem gerð væri
grein fyrir væntanlegum örgjörvum
Intels. Digital og aðrir framleiðend-
ur einkatölva þurfa slík skjöl til að
hanna væntaníega framleiðslu sína.
Intel hótaði einnig að hætta að út-
vega Pentium-gjörva og hefði það
komið niður á einkatölvuviðskiptum
Digitals.
I júlí sakaði Digital Intel um að
beita „einokunarvaldi" til að ná
aftur tækniskjölunum og dreifa at-
hyglinni. Keppinautar eins og AMD
og Cyrix Corp. hafa einnig gagn-
rýnt Intel fyrir svokallaða „Intel
Inside“ herferð.
Soros vill
ekki eiga
í deilum við
Mahathir
Hong Kong. Reuter.
GEORGE SOROS, hinn kunni fjár-
málamaður, hefur reynt að eyða
deilu um fjármálaerfiðleika Asíu við
forsætisráðherra
Malasíu, Mahath-
ir Mohamad, sem
eitt sinn kallaði
hann hálfvita.
Soros sagði í
sjónvarpi í Singa-
pore að fjárfest-
ingarsjóðir sínir
hefðu gegnt litlu
hlutverki í mark-
aðsumróti í Suð-
austur-Asíu sem Mahathir hefur
kennt honum um.
Soros var spurður um ummæli
hans þess efnis að Mahathir væri
hættulegur landi sínu og sagði: „Ég
vil ekki standa í stríði eða orða-
skaki. En þegar á mig er ráðizt
verð ég að svara fyrir mig.“
„Hann hefur gert mig að blóra-
böggli til að útskýra eigin mistök
en hann verður að axla ábyrgðina
á öllu því sem gerist í Malasíu,"
sagði Soros.
Hagnaðist lítið
Hann kvaðst hafa gegnt litlu
hlutverki á mörkuðum meðan á
umrótinu stóð en það hefði leitt til
lækkunar á gengi nokkurra gjald-
miðla. Hann hefði ekki reynt að
grafa undan jafnvægi og ekki selt
malasísk ringgit eða gjaldmiðla ann-
arra ASEAN-ríkja í að minnsta kosti
tvo mánuði áður en umrótið hófst
eða meðan á því stóð.
Einu viðskiptin hefðu verið með
10 milljónir tælenzkra baht. Hann
hefði jafnvel keypt ringgit og með
því stuðlað að stöðugleika.
Þegar Soros var að því spurður
í viðtali í BBC hve mikið hann hefði
grætt á umrótinu sagði hann: „Ekki
mikið, ekki nærri því eins mikið og
á erfiðleikum pundsins. Því er hald-
ið fram að Soros hafí hagnazt um
á einn milljarð punda 1992 þegar
sterlingspundið datt út úr gengis-
samstarfi Evrópu (ERM).
------» ♦ ♦
Neste selur
hlutsinn
íBorealis
Helsinki. Reuter.
FINNSKA olíu- og orkufyrirtækið
Neste hefur undirritað samning um
að selja 50% hlut í jarðgasfyrirtæk-
inu Borealis austurríska fyrirtæk-
inu OMV og fyrirtækinu IPIC í
Arabíska furstasambandinu.
Hluturinn verður seldur fyrir
fjóra milljarða finnskra marka og
kemur samningurinn til fram-
kvæmda um næstu áramót að sögn
Neste.
7 lJ )\
111
8 %j'j
oc oo O
Power Macintosh 7300/166
og AppleVision 1710AV
Power Macintosh 7300/166:
166 MHz PowerPC 604e (útskiptanlegur)
16 Mb vinnsluminni, stækkanlegt í 512 Mb
Skyndiminni 256 k, stækkanlegt í 1 Mb
2000 Mb harðdiskur
Tólíhraða geisladrif
16 bita víðóma hljóð
Þrjár PCI-raufar
Localtalk og Ethemet
Örgjörvi á dótturborði uppfæranlegur
AppleVision 1710AV-skjár:
17” Trinitron-myndlampi é
Innbyggður hljóðnemi
Innbyggðir tvíóma hátalarar ilMM 1 K_____________U
Skjáupplausn allt að 1280 x 1024 punktar .......
f / / I # t f rí i » • ii « t i — \ i
1
Tilboðsverð aðeins
176.704,- kr. stgr. án vsk.
220.© 00,
Apple Power Macintosh 7300-tölvurnar henta
einstaklega vel fyrir myndvinnslu, hönnun, teiknun,
umbrot, útreikninga og nánast hvað sem er...
Apple-umboðið
Skipholti 21, 105 Reykjavík, sími: 511 5111
Netfang: sala@apple.is Veffang: http://www.apple.is