Morgunblaðið - 09.10.1997, Side 26
26 FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1997
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
TVIRÆÐNI
V Jí
- T’ .....
GUNNAR Kristinsson: Málverk.
MYNPLIST
II n f n a r b o r £
MÁLVERK
GUNNAR KRISTINSSON
Opið alla daga frá kl. 12-16. Lokað
þriðjudaga. Til 13. október. Aðgang-
ur 200 krónur.
ÞAÐ er borðleggjandi skyldleiki
milli tónlistar og myndlistar, eink-
um hvað sértækan tjáningarhátt
snertir. Tónlistin er óáþreifanleg,
en skilar sér á margan og mótaðan
hátt til skoðandans og hugsæi
myndlistarmannsins er einnig óá-
þreifalegur heimur sem sér stað I
öllu sem hann skapar. Því dýpra
og þjálfaðra innsæi og margræðari
lifanir, þeim mun magnaðara tjá-
ferli í báðum tilvikum.
Gunnar Kristinsson er tónlistar-
maður sem nam myndlist í Vínar-
borg, eða getum við sagt, myndlist-
armaður sem nam tónlist í háborg
valsanna. Borg Habsborgaranna,
þar sem gleðin og léttleikinn réðu
ríkjum og nafnkenndustu kaffíhús
og konditori heimsins seldu og selja
sitt vínarbrauð með meiru. Inn-
gangurinn er ekki út í hött, því
það er líkast sem pentskúfur lista-
mannsins valsi létt um dúkana í
upphafinni stemmningu á milli
þess sem hann sest niður og fær
sér kaffí og vínirbrauð, ens og
Laxness nefndi mungátið.
Gunnar er ekki tiltakanlega
þekktur á heimaslóðum, er mennt-
aður í myndlist og tónlist í Vínar-
borg Basel og Reykjavík. Hefur
starfað á báðum sviðum í tvo ára-
tugi og haldið fjölda sýninga og
tónleika víða um álfuna. Um ára-
bil hefur starfsvettvangurinn verið
Sviss og Frakkland, og hann hafði
að auk um tveggja áratuga skeið
vinnustofu í Skriðufelli í Þjórsár-
dal. Hefur lítið sýnt hér heima
undanfarin ár utan einu sinni í list-
húsi Ofeigs 1995, eða var það
kannski heldur í listhúsinu, einn
einn, (Antlitzj, en þar áður í Ný-
listasafninu, Asmundarsal og list-
húsinu Borg.
Það er sem áður dijúgur spuni
heilabrota að baki vinnubragðanna
með pentskúfín og það lýsir sér
sennilega best í eftirfarandi hug-
leiðingum gerandans; „Spennan er
einkenni hins lífræna. Það hreyfíst
í og kringum formin sem sjálf eru
afstæðulaus, aðeins spuming.
Hvað er hið stóra? Hvað er hið litla?
Hvar byijar lífíð og hvar endar
það?. Hvað er náttúrulegt? hvað
leyfílegt og hvað óleyfilegt? Hvað
er vitund?“ I heimspekinni felst
ákveðið óþol tvíræðni og óvissa,
og eftir öllum sólarmerkjum að
dæma hefur Gunnar farið offari
með pentskúfinn á undanfömum
misserum og áram, lætur sér ekki
nægja minna en samanlagt rými
Hafnarborgar. Vinnubrögðin
sækja skyldleika til nýbylgjumál-
verks níunda áratugsins, en Gunn-
ar er mun óhlutbundnari í túlkun
sinni og hugnist honum að koma
að frásögn í dúkum sínum eru vís-
anirnar einkum tónrænar, jafnvel
einstök tákn af nótnablöðum sbr.
björtu samstæðuna á endavegg í
aðalsal, sem grípur skoðandann
sýnu mest.
Hvort það sé gert af ásettu
ráði eða ekki, virka mörg málverk-
anna helst sem upphaf að ein-
hveiju, sem gerandinn vill höndla,
brotabrot tónverks eða einhvers í
umhverfinu sem hefur leitað á, í
þá og þá stundina. Síður sem full-
gerð og mótuð verk sem legið
hefur verið yfir, þótt spurningin
hvenær verk sé fullgert sé í raun
afstæð. En svo eru það nokkrar
myndir þar sem vinnsluferlið er
mun þróaðra svipað og í fyrr-
nefndu myndunum, einkum á það
við um „Tjöld“ (21) í Sverrissal
og rauðleitu myndinni nr. 23, svo
og 13 í aðalsal...
Bragi Ásgeirsson
Tímarit
• ÚT er komið 1. hefti 67. ár-
gangs Náttúrufræðingsins, tíma-
rits Hins íslenska náttúrufræðifé-
lags, sem gefið er út í samvinnu
félagsins við Náttúrufræðistofnun
íslands. Meðal efnis í heftinu er
m.a. eftirfarandi:
Ný kenning um myndun Vatns-
dalshóla. Árið 1936 ritaði Jakob
H. Líndal grein í Náttúrafræðinginn
og setti fram kenningu sína um
myndun Vatnsdalshóla. Jakob taldi
hólana myndaða við berghlaup, þ.e.
að bergskriða hafi hlaupið fram úr
Vatnsdalsfjalli og hefur sú kenning
hingað til þótt fullnægjandi. Ágúst
Guðmundsson jarðfræðingur setur
fram nýja kenningu um myndun
þeirra.
Mykjuflugan. Dr. Hrefna Sigur-
jónsdóttir, dósent við Kennarahá-
skóla íslands, gerir grein fyrir rann-
sóknum sínum á hegðun flugnanna.
Tijábolaför frá tertíer. Jarðfræð-
ingarnir Magnús Á. Sigurgeirsson
og dr. Sveinn P. Jakobsson gera
grein fyrir athugunum sínum á sjö
tijábolaafsteypum og fimm tijá-
bolaförum sem fundust árið 1987
í hraunlagi efst í fjallinu Skriðna-
fellsnúpi á Barðaströnd.
Gróður í íslenskum túnum. Guðni
Þorvaldsson Ph.D., ráðunautur hjá
Rannsóknastofnun landbúnaðarins,
gerir grein fyrir úttekt sem gerð
var á gróðri í íslenskum túnum á
árunum 1990-1993.
Ennfremur eru m.a. greinar eftir
Guðmund Guðmundsson, Jónbjörn
Pálsson, Sólmund Tr. Einarsson,
Huga Ólafssonar, Helga Hallgríms-
son og minningarorð um Óskar
Ingimarsson, fyrrum ritstjóra Nátt-
úrfræðingsins.
Náttúrufræðingurinn er félagsrit
Hins íslenska náttúrufræðifélags
og'kemur út fjórum sinnum á ári.
Argjald ársins 1997 er 3.300 kr.
en nemendafélagsgjald erkr. 2.200.
I. hefti 1997 er64 bls. aðstærð.
Það fæst á skrifstofum félagsins
og Náttúrufræðistofnunar við
Hlemm 3 íReykjavík ogHafnar-
stræti 97, Akureyri. Ritstjóri Nátt-
úrufræðingsins er Álfheiður Inga-
dðttir.
------»■ »-»-----
Óróar í Hnossi
GALLERÍ Hnoss, Skólavörðustíg
22, sem rekið er af sjö ólíkum lista-
mönnum, stendur fyrir sýningu á
óróum í októbermánuði. Listamenn-
irnir sýna þar ýmsar útfærslur á
óróum úr mismunandi efnum, allt
frá gleri og roði til brúðarslörs og
grænmetis. Opið er á opnunartíma
verslunarinnar, alla daga nema
sunnudaga frá kl. 12-18.
Woody Allen syngur um ástina
KVIKMYNDIR
Rcgnboginn
ALLIR SEGJA AÐ ÉG
ELSKI ÞIG „Everyone Says
ILove You“ ★ ★ ★
Leikstjóm og handrit: Woody Allen.
Kvikmyndatökustjóri: Gordon Willis.
Aðalhlutverk: Woody Allen, Alan
Alda, Goldie Hawn, Drew Barry-
more, Julia Roberts, Edward Norton,
Lucas Haas, Tim Roth, Natalie Port-
man. Miramax. 1996.
RÓMANTÍSKA gamanmyndin
Allir segja að ég elski þig eftir
Woody Allen er líka söngva- og
dansamynd, sú fyrsta frá hendi
höfundarins. Inn á milli leikinna
atriða skýtur hann ljúfum söng-
og dansatriðum sem minna á Fred
Astair-myndirnar eða samskonar
myndir frá fjórða áratugnum; þær
eru næstum í jafnmiklu uppáhaldi
hjá Allen og myndir Groucho
Marx og bræðra hans. Formið
minnir einnig á nýlegri söngva-
myndahöfund, Bretann Dennis
Potter, sem blandaði með frábær-
um árangri raunsæi og söngleikja-
hefð.
Allen tekst vel upp. Hann fær
leikara sem þekktir era fyrir allt
annað en söng til þess að hefja
upp raust sína og fellir það
skemmtilega saman við frásögn-
ina. Að öðru leyti er Allir segja
að ég elski þig dæmigerð mynd
fyrir Allen nú í seinni tíð, fyndin
og skemmtileg, ákaflega róman-
tísk, kaldhæðin og full af snjöllum
tilsvörum og athugasemdum, sem
aðeins Allen gæti hafa samið.
Yrkisefnin eru þau sömu og í
öllum myndum leikstjórans en ein-
hvern veginn tekst honum sífellt
að finna nýtt sjónarhorn. Hann
fjallar um dauðann að sjálfsögðu,
hjónabandið og hjónaskilnað en
fyrst og fremst ástina í sögu um
ríkisbubbafjölskyldu í New York.
Allen sjálfur leikur sama gamla
taugabúntið við það að fara yfir-
um. Nú er hann fráskilinn rithöf-
undur og fyrrum eiginmaður
Goldie Hawn. Nýi eiginmaður
hennar er Alan Alda. Drew Barry-
more er dóttir hans við það að
giftast Edward Norton og Julia
Roberts er nýja konan í lífi Al-
Iens. Hann fær ómetanlegar upp-
lýsingar um hana frá dóttur sinni,
sem er í aðstöðu til þess að hlera
tíma hennar hjá sálfræðingi, og
gerir sér far um að láta drauma
Roberts rætast - og vinnur hana
á sitt band.
Allen skapar ljúft og rómantískt
andrúmsloft sem söngurinn ýtir
undir þótt taki tíma að venjast
því að sjá t.d. Alan Alda halda
lagi í mansöng. Eða Goldie Hawn,
Roberts og Tim Roth (hugsa sér!).
Roth er stórkostlegur í litlu hlut-
verki sakamanns sem látinn hefur
verið laus og duflar við Barrymore
en yfirleitt er leikurinn með mikl-
um ágætum undir stjórn Allens
og leikarasamsetningin hin at-
hyglisverðasta. Fyrir Allen-aðdá-
endur er myndin hin besta
skemmtun.
Arnaldur Indriðason
V.P W-V
f/U Aí^
Fyrirlestlr í
Norræna húsinu
í DAG KL. 17.15
Sjötti fyrirlestur „Laxnessársins“ í Norrœna húsinu í dag \l. /7. /5:
/
ISLENSKA AKADEMÍAN
- Viðar Hreinsson rœðir um andófsmenn í torfkofum
í verfjum Halldórs Laxness
Viðar Hreinsson bókmenntafræðingur heldur í dag fyrirlestur á vegum
Laxnessklúbbsins og Vöku-Helgafells í Norræna húsinu sem nefnist:
íslenska akademían. Um andófsmenn í torfkofum í verkum Halldórs Laxness.
Erindið hefst klukkan 17.15, er öllum opið og aðgangur ókeypis.
í erindi sínu mun Viðar ræða um það lífsviðhorf í bókum Nóbelsskáldsins
sem kenna má við uppreisnargjörn heilindi og birtist m.a. í smásögunni
Fugl á garðstaurnum.
Viðar Hreinsson lauk mag. art. prófi í bókmenntafræði frá Kaupmannahafnar-
háskóla og hefur m.a. skrifað. um íslenskar fornbókmenntir í íslenskan
söguatlas. Þá var hann meðal ritstjóra á enskri útgáfu íslendingasagnanna sem
nýlega kom á markað.
*
VAKA HELCAFELL
Laxncssklúbburinn
Upplestrarkvöld
á Súfistanum
FYRIR réttu ári var bókakaffihús-
ið Súfistinn opnað í Bókabúð
Máls og menningar á Laugavegi
18.
Síðastliðið haust efndu Mál og
menning og Forlagið til vikulegra
bókmennta- og tónlistarkvölda á
Súfistanum. Þar var lesið úr nýút-
komnum bókum og flutt tónlist af
nýjum hljómdiskum. Nú verður
þráðurinn tekinn upp á ný og frá
og með næsta fimmtudegi og fram
til jóla verða haldin upplestrar- og
kynningarkvöld á Súfístanum þar
sem fólk getur hlýtt á kafla úr
spánnýjum bókum, þýddum eða
framsömdum, í lausu máli eða
bundnu. Auk þess kemur Súfístinn
til með að standa fyrir léttklassísk-
um tónleikum á löngum laugardög-
um í haust.
Klassískar heimsbókmenntir
í kvöld, fimmtudag, verður les-
ið úr þremur klassískum heims-
bókmenntaverkum, nýrri íslenskri
skáldsögu og nýrri íslenskri ljóða-
bók. Björn Th. Björnsson les úr
heimildaskáldsögunni Solka, Ingi-
björg Haraldsdóttir les úr þýðingu
sinni á skáldsögunni Minnisblöð
úr undirdjúpunum eftir rússneska
skáldjöfurinn Fjodor Dostojevskí,
Erlingur E. Halldórsson les úr
þýðingu sinni á fornrómversku
skáldsögunni Satrýrikon eftir
Petróníus, Árni Bergmann les úr
þýðingu sinni á ígorskviðu og seg-
ir frá henni og Kristján Þórður
Hrafnsson les úr nýrri ljóðabók
sinni, Jóhann vill öllum í húsinu
vel.
Upplestrarkvöldið hefst klukk-
an 20.30 og stendur til 22. Að-
gangur er ókeypis. Nánari upp-
lýsingar fást hjá Birgi Finnboga-
syni
og Friðriki Rafnssyni.