Morgunblaðið - 09.10.1997, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1997
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Eldgos
í beinni
LEIKARAEFNIN átta.
Leikárið hafið
í Nemenda-
leikhúsinu
KVIKMYNPIR
Iláskólabíó/
Sa m bíó i n ,
Álfabakka/
Borgarbíó, Akureyri
„VOLCANO" ★ ★
Leikstjóri: Mick Jackson. Handrit:
Jerome Armstrong og Billy Ray.
Tæknibrellun Digital Magic Comp-
any/ Light Matter/ Video Image/
P.O.P Film/ Digiscope. Aðalhlut-
verk: Tommy Lee Jones, Anne
Heche, Gaby Hoffman, og Don
Cheadle. 102 min. Bandarísk. Donn-
er Production/ Fox 2000 Pictures/
Moritz Original. 1997.
ELDGOS, flóð, hvirfilbylir, jarð-
skjálftar. „Volcano" er enn ein
kvikmyndin þar sem náttúruhamf-
arir eru í aðalhlutverkinu. Fyrir
utan eldgosið eru nokkrar persón-
ur kynntar til sögunnar eins og
venja er í svona myndum. Hetjan
(Tommy Lee Jones) sem er nýskil-
inn og 13 ára dóttir hans (Gaby
Hoffman) er að sjálfsögðu í heim-
sókn, jarðskjálftafræðingurinn
(Anne Heche) sem grunar að ein-
hver ósköp séu að fara dynja yfir
en getur ekki sannað það, læknir-
inn (Jacqui Kim) sem leggur allt
í sölurnar fyrir sjúklingana og leið-
inlegur eiginmaður hennar (John
Corbett) sem vill að hún hætti að
leggja sig í hættu og hugsi ein-
göngu um ríka sjúklinga.
Jones er stórfínn sem hetjan,
karlmannlegur og traustvekjandi
með sitt krumpaða andlit, Heche
er kannski aðeins of glaðleg miðað
við kringumstæður en annars al-
veg slarkfær kvenhetja, aðrir í
myndinni gleymast um leið og
þeir hverfa út úr rammanum. Við
þetta má reyndar bæta að „Volc-
Bruna-
slöngu-
hjól
MARGAR STÆRÐIR
OG GERÐIR. EINNIG
í SKÁPUM.
1/2", 3/4", 1"
15-20-25-30-35-40-45-50
Mtr slöngur
Allar gerðir
eldvarnatækja. Pjónustum
slökkvitæki,
HAGSTÆTT VERÐ.
LEITIÐ UPPLÝSINGA.
□ HDVARNAMIÐSTttfllN I
ÓLAFUR GÍSLASON & CO. HF.
SUNDABORG 3 SÍMI 568 4800
ano“ svíkur áhorfandann um einn
af föstu þáttum hamfaramynda
með því að gleyma því að láta leið-
inlega persónu eins og eiginmann-
inn verða eldgosinu að bráð. Hvar
er gamla góða réttlætið? í staðinn
er áhorfendum drekkt í boðskapn-
um: menn leggja kynþáttahatur
og misklíð á hilluna til þess að
takast á við sameiginlegan óvin,
hraunelfina.
Það dregur úr ógn eldgossins í
„Volcano“ að frásögnin af því er
síuð í gegnum umfjöllun fjölmiðla.
I stað þess að auka raunsæi mynd-
arinnar dregur þessi frásagnarað-
ferð úr því og gerir gosið að
íþróttaviðburði. Alvöru sjónvarp-
skynnar leika sjálfa sig og fjalla
á sinn glaðlega og flata hátt um
þennan fréttaviðburð, eldgos í
miðborg Los Angeles. Maður fær
á tilfinninguna að enginn sé í raun
í hættu nema kannski þessar
nokkru hræður sem ösnuðust til
þess að taka nýja neðanjarðarlest
en almenningssamgöngur í Los
Angeles eru þekktar fyrir að vera
sérstaklega slappar.
Annars er „Volcano“ sæmileg-
asta hamfaramynd. Hún er á köfl-
um fyndin (stundum óviljandi) 0g
flott en sjaldan sérlega ógnvekj-
andi eða skelfileg. Hundi 0g lista-
söfnum er ógnað, útstillingargín-
ur í brúðarklæðum bráðna og
auglýsingaskilti með mynd af ít-
urvaxinni konu verður fyrir
sprengju. Tækniliðið Ieggur sig
allt fram við að skapa ógnar-
ástand með því að dúndra
sprengjukögglum yfir skelfdan
leikarahópinn og hraunelfurin
eyðir öllu sem á vegi hennar verð-
ur. Hún er eins og upphitað
„Blob“ úr gömlu hryllingsmynd-
inni með sama nafni.
Anna Sveinbjarnardóttir
Fyrirlestur í
Þjóðminja-
safni Islands
HJÖRLEIFUR Stefánsson, arkitekt
og minjastjóri Þjóðminjasafns ís-
lands, flytur fyrirlestur í anddyri
safnsins í dag kl. 17 um fyrstu kirkj-
ur og kirkjubyggingar á íslandi.
Erindið nefnist Islenskar miðalda-
kirkju og er hið síðasta þriggja sem
efnt er til í tilefni sýningarinnar
Kirkja og kirkjuskrúð. Miðaldakirkj-
an í Noregi og á íslandi sem stendur
yfir í safninu.
Hjörleifur skýrir gerð lítilla kirkna
eða bænahúsa eins og talið er að
tíðkast hafi fyrst eftir að kristni var
lögtekin hér á landi en jafnframt
mun hann Ijalla um hinar gríðar-
stóru dómkirkjur sem vitað er að
stóðu í Skálholti og á Hólum.
Á sýningunni Kirkja og kirkju-
skrúð er líkan af lítilli timburkirkju
í fullri stærð en jafnframt er líkan
af íslenskri dómkirkju í hlutfallinu
1:20. „Bæði þessi líkön sem og önn-
ur sem þar eru af norskum kirkjum
og af Stóru-Núpskirkju eins og hún
var á 18. öld hafa vakið mikla at-
hygli sýningargesta og er á sýning-
unni gott tækifæri til þess að kynn-
ast því hvernig kirkjubyggingar voru
í Noregi og á íslandi á miðöldum
þegar tengsl þessara þjóða voru
mjög náin á mörgum sviðum", segir
í fréttatilkynningu.
Síðasti dagur sýningarinnar
Kirkja 0g kirkjuskrúð er 18. október
en eftir það verða allir munirnir
fluttir til Noregs þar sem þeim verð-
ur komið fyrir í sýningarsölum
Norsk Folkemuseum á Bygdoy við
Ósló þar sem hún verður opnuð á
nýjan leik um miðjan nóvember.
LEIKÁR Nemendaleikhúss Leik-
listarskóla íslands 1997-98 er haf-
ið. Þetta er fjórða og síðasta ár
átta nemenda sem hófu nám við
skólann haustið 1994 og munu
þeir ljúka leikaranámi í maí á
næsta ári.
Samningar hafa tekist við Ríkis-
útvarpið um framleiðslu sjónvarps-
myndar sem sýnd verður nk. vor.
Það er Óskar Jónasson sem mun
stýra verkinu en Einar Kárason
skrifar handrit í samvinnu við Ósk-
ar og leikhópinn. Upptökur eru
hafnar en aðaltökutími er ekki fyrr
en í janúar. Þetta er í fyrsta skipti
sem ráðist er í samstarfsverkefni
af þessu tagi milli Leiklistarskóla
Islands og ríkissjónvarpsins og eru
vonir bundnar við að þetta geti
orðið fastur liður í framtíðinni.
TONLIST
Digrancskirkja
ORGELTÓNLEIKAR
Kjartan Sigurjónsson lék verk eftir
A. Garbrieli, Zipoli, Buxtehude, J.S.
Bach, Þorkel Sigurbjömsson, Cle-
rambault, Rerger og Franck. Sunnu-
dagurinn 5. október 1997.
KJARTAN Sigurjónsson orgelleik-
ari innsiglaði ráðningu sína sem oregl-
leikari við Digraneskirkju, með tón-
leikum sl. sunnudagskvöld og lék á
smíðisgrip Björgvins Tómassonar
orgelsmiðs, 18 radda orgel, sem er
hin besta smíð í alla staði. Kjartan
hóf tónleikana með Kansónu eftir
Andrea Gabrieli (1520-1586), er
lærði hjá Adrian Willaert (1490-
1562) flæmsku tónskáldi er lærði hjá
Josquin des Prés (1440-1521). Willa-
ert flutti til Ítalíu tækni þeirra Niður-
lendinga og var það upphaf þess að
Italir komust í fremstu röð tónskálda
og urðu mikils ráðandi í þeirri grein
um 200 ára skeið. Kansónan er
skemmtileg endurreisnar tónsmíð og
notaði Kjartan raddskipan er hæfir
mjög vel stíl þeim sem mótaður var
af gerðum hljóðfæra þeirra endur-
reisnarmanna.
Annað verkefni Kjartans var Pa-
storale (Hjarðljóð) eftir Domenico Zi-
poli ( 1688-1726) ítalskan orgelleik-
ara er lærði bæði hjá Alessandro
Scarlatti (1660-1725) og Bemando
Pasquini (1637-1710). Hjarðljóðið
Um miðjan september hófust
æfingar á Börnum sóiarinnar eftir
Maxim Gorki, í þýðingu Eyvindar
Erlendssonar undir stjórn Guðjóns
Pedersen. Leikmynd er í höndum
Helgu Stefánsdóttur og sér Ragna
Fróðadóttir um búninga. Lýsing
verður í höndum Lárusar Björns-
sonar. Frumsýning verður í byijun
nóvember.
Lokaverkefni Nemendaleikhúss-
ins er enn óákveðið en leikstjóri
verður Baltasar Kormákur og hefst
sú vinna í febrúarbyijun.
Leikaraefnin að þessu sinni eru:
Agnar Jón Egilsson, Edda Björg
Eyjólfsdóttir, Friðrik Friðriksson,
Guðmundur Ingi Þorvaldsson,
Helga Vala Helgadóttir, Linda
Ásgeirsdóttir, Ólafur Darri Ólafs-
son og Sjöfn Everts.
var samkvæmt venju registerað sem
næst hjarðpípuleik, er vakti þá hug-
mynd að Kjartani þætti mikilsvert að
nota sem best raddblæbrigði orgels-
ins. Nokkur munur er á formskipan
prelúdíunnar og fúgunnar hjá Buxte-
hude og Bach. Hjá Buxtehude eru
slík verk oft í mörgum köflum, þar
sem skiptast á fijálsir kaflar og fú-
gatóþættir, svipað því sem gjaman
átti sér stað í formskipan fantasíunn-
ar. Hjá Bach eru prelúdían og fúgan
tveir aðgreindir þættir og hver þeirra
mjög þéttir að formi til. Þennan mun
mátti heyra á prelúdíu og fúgu í g-
moll eftir Buxtehude og fantasíu og
fúgu í c-moll eftir Bach.
Sálmforleikur eftir Þorkel Sigur-
björnsson, sem hann byggir á sálmi
eftir Pétur Guðjohnsen er ekki sérlega
sannfærandi tónsmíð, ákaflega laus
í formi og samanstendur mikið af
þrásteíja endurtekningum. Tvíleikur
fyrir bassa og háan trompett, eftir
Clerambault var næst á efnisskránni
og þar eftir Benedictus, eftir Reger
en lokaverk tónleikanna var Choral í
a-moll, eftir Cesar Franck.
Kjartan er traustur orgelleikari.
Leikur hans í heild er nokkuð þungur
en skýrlega mótaður. Helst reyndi á
í verkinu eftir Bach, sérstaklega í
fúgunni, sem er löng og nokkuð snú-
in, en einnig í verkunum eftir Reger
og Franck, sem hann flutti ágætlega,
sérstaklega Choralinn eftir Franck
og með þeirri fallegu raddskipan, sem
er aðall hins ágæta orgels Digranes-
kirkju.
Jón Ásgeirsson
Sýning'um
að ljúka
Kjarvalsstaðir
Á KJARVALSSTÖÐUM standa
yfir sýningar á verkum listmál-
arans Kristjáns Davíðssonar,
samtímalist frá Litháen og sýn-
ing um Sigurð Guðmundsson
arkitekt. Þessum sýningum lýk-
ur nú á sunnudag. Leiðsögn
verður um sýningarnar á
sunnudag kl. 16, en einnig er
boðið upp á sérstaka leiðsögn
um byggingarlistasýninguna kl.
17 á föstudag.
Kjarvalsstaðir eru opnir alla
daga vikunnar frá kl. 10-18.
Listhúsið Hafnarfirði
Sýningu á myndvefnaðar-
verkum Auðar Vésteinsdóttur,
sem staðið hefur frá 27. sept-
ember, lýkur mánudaginn 13.
október nk.
Listhúsið er opið virka daga
frá kl. 10-18. Laugardag kl.
12-18 og sunnudag kl. 14-18.
Nýlistasafnið
Sýningum Hjartar Marteins-
sonar, Ásrúnar Tryggvadóttur,
Berit Lindfeldt og Eyjólfs Ein-
arssonar í Nýlistasafninu við
Vatnsstíg 3b í Reykjavík lýkur
á sunnudag.
Sýningarnar eru opnar frá
kl. 14-18 alla daga nema
mánudaga. Aðgangur er ókeyp-
is.
Menningarmiðstöðin
Gerðuberg
Sýningunni „Að skapa í og
með náttúrunni", ljósmynda-
sýning af listsköpun barna frá
Norðurlöndum, lýkur nú um
helgina.
Djass
í Múlanum
DJASSKLÚBBURINN Múlinn
hefur göngu sína að nýju eftir
sumarfrí með vikulegum djass-
kvöldum á Jómfrúnni, Lækjar-
götu 4. Þetta er önnur tónleika-
röð Múlans en klúbburinn hóf
starfsemi á vormánuðum.
Næstkomandi föstudagskvöld
munu gítarleikararnir Guð-
mundur Pétursson og Eðvarð
Lárusson bjóða upp á djass-
kokteil ásamt bassaleikaranum
Þórði Högnasyni og trommuleik-
aranum Birgi Baldurssyni. Tón-
listin er úr ýmsum áttum og
verður spuninn í fyrirrúmi.
Tónleikarnir hefjast stundvís-
lega kl. 21.
Myndlistar-
sýning- í tilefni
geðheilbrigð-
isdags
f TILEFNI 10. október, sern er
alþjóðlegur geðheilbrigðisdagur,
halda gestir Vinjar myndlistar-
sýningu í húsnæði Rauða kross
Islands, Efstaleiti 9.
Sýningin verður opnuð kl. 14
á morgun, föstudag, og verður
opin á skrifstofutíma til og með
17. október.
Ljóðalestur í
Gerðarsafni
TVÖ ung skáld, Sigtryggur
Magnason og Ása Marin Haf-
steinsdóttir, munu lesa úr ný-
útkomnum ljóðabókum sínum í
kvöld, fimmtudag, á vegum Rit-
listarhóps Kópavogs. Ljóðin
verða lesin í Kaffístofu Gerð-
arsafns, Listasafni Kópavogs.
Dagskráin stendur frá kl.
17-18 og er aðgangur ókeypis.
Traustur
orgelleikari