Morgunblaðið - 09.10.1997, Qupperneq 52
52 FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
(jarðpCöntustöcHn
□iTO3iil
VÍÖ veg llnr 3741 Hvammur)|
í Ölfusi
Garöyrkjufólk !
Stertcar víðiplöntur
ípottum fyrir
Haustgróðursetningar.
Hagstætt verö.
Sími 483 4840"
Tölvuþjálun
Windows • Word
Internet • Excel
Það er aldrei of seint að byrja!
60 stunda námskeið þar sem þátttakendur
kynnast grundvailarþáttum töivuvinnslu
og fá hagnýta þjálfun.
Vönduð kennslubók innifalin í verði.
Innritun stendur yfir.
Fjárfestu í framtíðinnil
Tölvuskóli íslands
BÍLDSHÖFÐI 18, SÍMI 567 1466
ÍDAG
SKÁK
Umsjön Margcir
Pétursson
Svartur leikur
og vinnur.
STAÐAN kom upp á Fon-
tys mótinu í Tilburg, sem
nú er að ljúka. Ungveij-
inn Peter Leko (2.635)
var með hvítt, en Hollend-
ingurinn Jeroen Piket
(2.630) hafði svart og
átti leik.
28. - Dg4! 29. Dxd4 -
Df3?? (Afleikirnir gerast
ekki öllu ljótari. Eftir 29.
- Hxf4! Hefði
hvítur mátt gef-
ast upp, því hann
getur ekki forðað
máti til lengdar.
í staðinn verður
Piket nú sjálfur
leggja niður
vopn) 30.
Dxd7+! og Piket
gaf, því eftir 30.
- Kxd7 31.
Bb5+ - Ke6 32.
Hxf3 hefur hann
tapað manni
bótalaust.
Slíkir hroðalegir
fingurbijótar sjást líka á
bestu bæjum.
Norræna VISA bikar-
keppnin: Onnur umferð
í dag á Grand Hótel
Reykjavík. Aðgangur
ókeypis í boði VISA.
HÖGNIHREKKVÍSI
„þtiia. gefar Gosa gamUx nög ptíts iií ab
rtilca. um."
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Góð þjónusta
hjá Sím-
virkjanum
„ÉG VIL senda þeim
hjá Símvirkjanum í
Alfabakka mínar bestu
þakkir fyrir góða þjón-
ustu. Ég fór til þeirra
með bilaðan Panasonic-
síma sem ég hafði ný-
lega keypt annars stað-
ar. Ekki aðeins gerðu
þeir við símann endur-
gjaldslaust heldur lán-
uðu þeir mér síma end-
urgjaldslaust í heilan
mánuð. Ég tel að þetta
sé alveg einstaklega
góð þjónusta sem vert
sé að þakka fyrir.
Jóhannes.
Hvenær byrjar
nóvember?
PATREKUR hafði sam-
band við Velvakanda
vegna greinar í „Bréfi
til blaðsins" sl. þriðju-
dag þar sem Ómar
Ragnarsson skrifar um
tímatal. Vill hann beina
einni spurningu til Óm-
ars: Byijar nóvember
31. október eða 1. nóv-
ember? En báðir dagar
enda á tölustafnum 1.
Vantar mynd
af gamla
félagsheimili
Fram
ER einhver sem á mynd
af gamla félagsheimili
Fram sem var við Sjó-
mannaskólann. Helst
þyrfti myndin að vera
af húsinu öllu. Þeir sem
gætu lánað slíka mynd
eru vinsamlega beðnir
að hringja í Halldóru í
síma 561-1911 eða Sig-
rúnu í síma 557-8161
eftir kl. 18 á kvöldin.
Dýrahald
Læða týnd í
Grafarvogi
BRÚNBRÖNDÓTT
læða týndist úr Rósa-
rima í Grafarvogi sl.
laugardag, 4. okt. Hún
er eyrnamerkt R3H 230
og einnig með endur-
skinsól um hálsinn sem
gæti þó hafa týnst. Þeir
sem gætu hafa orðið
hennar varir vinsamleg-
ast látið vita í síma
587-4075.
Kisa er týnd
BRÚN og svört, brönd-
ótt kisa með gulllitaða
ól og fjólubláa bjöllu
týndist í byijun septem-
ber. Hennar er sárt
saknað. Ef einhver hef-
ur upplýsingar um kisu
vinsamlega hafið sam-
band við Ceciliu í síma
554-2966.
MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynn-
ingar um afmæli, brúðkaup, ættar-
mót og fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynningar þurfa
að berast með tveggja daga fyrir-
vara virka daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynningum
og/eða nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréfsíma
569-1329, sent á netfangið ritstj-
@mbl.is Einnig er hægt að skrifa:
Arnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík.
Víkveiji skrifar...
AÐ verður Víkverja ógleyman-
leg stund þegar síðasta haftið
var sprengt í Hvalfjarðargöngunum
og víst mun svo verða um alla þá
sem voru viðstaddir þann merkilega
atburð. Að standa undir miðjum
Hvalfirði, 165 metra undir sjávar-
máli, og hlýða á hljómfagra tónlist
jazztríós Ólafs Stephensen verður
einnig viðstöddum ógleymanlegt.
Hver sagði við annan, aldrei hafði
ég ímyndað mér að ég ætti eftir
að upplifa þetta!
Það kom fram í ræðuflutningi
þennan dag að menn sjá ekki alveg
fyrir sér hvaða áhrif göngin munu
hafa í för með sér. En víst er að
þau verða gríðarleg. Mest verða
áhrifin fyrir íbúa Vesturlands, sem
komast í miklu meiri nálægð við
höfuðborgarsvæðið en áður.
Frábær frammistaða bormanna
og annarra sem unnu að Hvalfjarð-
argöngum hlýtur að hvetja íslend-
inga til frekari dáða á þessu sviði.
xxx
GÓÐ tónlist og traustar fréttir
er það eina sem skiptir máli,
auglýsir ein af frjálsu útvarpsstöðv-
unum. Víkveiji vill ekki gera lítið
úr tónlist og fréttum en það er svo
ótalmargt annað sem skiptir máli í
upplýsingamiðlun dagsins í dag.
Menningarefni og frásagnir ýmiss
konar úr fortíð og nútíð er ómiss-
andi í fjölmiðlun ef við eigum að
heita menningarþjóð.
xxx
KUNNINGI Víkveija segir farir
sínar ekki sléttar af viðskipt-
um við Póst og síma. Fyrir nokkru
keypti hann tölvu á tilboði hjá Ný-
heija þar boðið var upp á svokallað-
an pakka sem mikið hafði "erið
auglýstur. Meðal þess sem boðið
var upp á var ISDN-tenging og
samband við Netið. Leið nú og beið
og eftir rúma viku fór kunningjann
að lengja eftir tengingunni og
hringdi í þjónustufulltrúa hjá Pósti
og síma til að athuga hvort ekki
væru væntanlegir menn til að koma
tölvunni í samband við umheiminn.
Hún sagði að mikið væri að gera
en það hlyti að gerast fljótlega.
Enn leið og beið og ekkert gerð-
ist. Þegar einn dag vantaði upp á
að þijár vikur væru liðnar frá kaup-
unum og ekkert farið að bóla á
starfsmönnum Pósts og síma var
enn slegið á þráðinn til að athuga
hvernig mál stæðu. Þjónustufulltrú-
inn var vinsamlegur líkt og í fyrra
skiptið, sagðist athuga málið og tók
niður nafn og síma. Hringdi hún
skömmu síðar og sagði mennina
koma undir lok næstu viku. Betur
gæti Póstur og sími ekki boðið.
Kunningi Víkveija var ekki ánægð-
ur með þetta svar og maldaði í
móinn og sagðist lýsa yfír furðu
sinni yfir þessum vinnubrögðum
Pósts og síma. Konan ítrekaði að
betur væri ekki hægt að gera.
xxx
MEÐ ólíkindum er að Póstur
og sími skuli ekki leggja meiri
metnað í þjónustu sína við við-
skiptavini en raun ber vitni um og
að það þurfi að bíða í fjórar vikur
eftir einföldum hlut sem þar á ofan
hefur verið mikið auglýstur og al-
menningur þannig hvattur til að
nota. I fyrra skiptið sem kvartað
var sagði þjónustufulltrúinn að það
væri svo mikið að gera að ekki
væri hægt að komast yfir að anna
eftirspurn. Vera kann að rétt sé,
en skal ekki mæta þeirri eftirspurn
á einhvern annan og vænni hátt?
Þá er'einkennilegt að Nýheiji skuli
taka þátt í selja viðskiptavinum
sínum tölvu með því fororði að
aðeins nokkra daga taki að fá teng-
ingu þegar raun ber vitni um ann-
að.