Morgunblaðið - 16.11.1997, Side 22

Morgunblaðið - 16.11.1997, Side 22
22 SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Jólagardínur, jóladúkar og annað jólaskraut Álnabær Mítfyrir gCuggannfyrirjótin Síðumúla 32, Reykjavík, sími 553 1870, Tjarnargötu 17, Keflavík, sími 421 2061 Þitt eigið heimili Eignarlóðir. J Masa International hefur geysiúrval af nýjum og notuðum eignum til lengri eða skemmri dvalar. 2ja svefn^ herberga með garði, eignarlóð með allri búslðð. ^Verð frá kr. 2.7 millj.^ Masa International er eitt af stærstu fyrir- tækjum í Evrópu sem þegar hefur selt yfir 11.000 heimili á Sértilboð: Einbýlishús á eignarlóð ásamt bifreiða á ca kr. 5,1 miilj. kr. Costa Blanca. Skoðunarferð farin 26.-30. nóv. nk. MASA INTERNATIONAL Ábyrgir aðilar i áratugi - Sýning á Hótei Esju, 2. hæö, sunnudaginn 16. nóvember frá ki. 14.00-18.00. SKIPTIÐ VIÐ FAGMANN if Félag Fasteignasala gróðurhúsaáhrifum muni hiti hækka mest fjærst miðbaug. Hækkunarinnar muni gæta mest á heimskautasvæðunum. Þóra Ellen segir að menn hafí áhyggjur af því hvaða áhrif þetta muni hafa á þessi arktísku vistkerfi. En er það ekki bara til bóta að hitinn hækki? Hún segir alls ekki víst að það sé til bóta. Fleira kemur til. Ef sífrer- inn fer að bráðna á þessum stóru túndrusvæðum Kanada og Alaska, þar sem sífrerinn getur t.d. verið 500 m þykkur sums staðar, þá sé- um við í vondum málum. A þessum svæðum er hringrás efna ákaflega hæg og rotnun lífrænr.a leifa er flöskuháls í hringrásinni. Plöntu- leifarnar rotna ekki heldur safnast saman sem mór og feiknarlega mikið magn af kolefni er bundið í mó á þessum heimskautasvæðum. Ef hitastigið fer að hækka og sífrerinn tekur að bráðna, þá rofnar gróðurþekjan og yfirborðið gengur allt til. Þá rotna þessi lög hraðar en fyrr. Þar með tæki að losna mikið magn af kolefni sem síðan sleppur út í andrúmsloftið sem kol- tvísýringur, og bætir þannig enn við gróðurhúsaáhrifin. Hitinn hækkar þá enn meir og meira bráðnar. Ahrifin gætu þannig orðið keðjuverkandi. Lítið eftir af mýrunum Nú ertu búin að gera úttekt á mýrum á Suðurlandi. Er þar ekki sami gangurinn og í túndrunum? „Jú, þetta sama gerist þegar ræst er fram. Meðan jarðvegurinn er vatnsósa og loftfirrður þá er öll rotnun svo hæg vegna þess að þær Hvemig komust þið að þeirri niðurstöðu að aðeins 3% væri eftir af mýrum á Suðurlandi miðað við aldamótin? „Við stóðum þannig að því að ég valdi fyrst af loftmyndum þau svæði sem sýndust vera blaut og enn votlend. Síðan var farið á öll þessi 48 svæði. Með mér í því unnu aðallega líffræðingarnir Jóhann Þórsson og Svafa Sigurðardóttir. Gerður var listi yfir þær háplöntur sem þama uxu og lýst hverju svæði með uppdráttum. Síðan gerð til- raun til að flokka þau. I a-flokk fóru nánast alveg óröskuð svæði, í b- flokk svæði með skurðum, en þar sem framræslan hafði mistekist þannig að vatnsstaðan var enn há og í c-flokk svæði með skurðum þar sem vatnsstaðan hafði greinilega lækkað. Rétt er að taka fram að við tókum einungis svæði sem vora ennþá blaut og gátu talist votlend. Síðan áætluðum við hvað hefði verið mikið votlent í byrjun aldar- innai’. A þessu svæði sem við tókum fyrir taldist okkur það vera 1.100 ferkm. Við gáfum okkur að það land sem enn er mýri hafi verið það um aldamótin og í öðru lagi að það sem sýnt er sem mýri á gömlum kortum og er núna með skurðum hafi þá verið blautt. Núna sýnist okkur vera eftir í a-flokki, þ.e. óraskað eða lítt raskað votlendi, aðeins 9 svæði, flest smá og til sam- ans eru þau aðeins um 30 fer- kílómetrar eða minna en 3% af flat- armáli votlendisins. Talsvert meira er eftir í b-flokki, sem aðallega stafar af því að Ölfusforir og mýrarnar þar í kring lenda í þeim hækkuðu hitastigi vegna aukinna gróðurhúsaáhrifa, segir hún. „Vitað er að oft er geysilega mik- ill forði af lifandi fræjum neðan- jarðar. I mörgum plöntusam- félögum t.d. í tempraða beltinu ei heildarfjöldi einstaklinga sem ei neðanjarðar sem fræ oft miklu meiri en heildarfjöldi einstaklinga ofanjarðar. Þetta er eitt af því sem hefur valdið mér nokkrum heila- brotum uppi í Þjórsárvemm. Þegar ég var að vinna fyrir Landsvirkjun reyndi ég að kanna hve fræforðinn væri mikill og hvaða tegundir það væra sem ættu lifandi fræ i jarðveginum. Þetta getur skipt miklu máli þar, því ef tímabundin flóð koma í miðlunarlóni og gróður- inn ofanjarðar drepst þá er eðlilegt að spurt sé hvort í jarðveginum séu einhver fræ, sem geta komið upp tii að bæta þar úr. Þá fann ég lítið aí fræjum í jörðu, minna en ég bjóst við út frá því sem menn hafa fundið annars staðar í svipuðum vistkerf- um, t.d. í Alaska og Kanada. Tvær ástæður gætu verið fyrir því að svona lítið sé af lifandi fræjum í jarðvegi uppi í Þjórsárverum og gildir raunar fyrir allt miðhálendið. Það gæti annað hvort stafað af þvi að fá fræ ná fullum þroska. Annað sem ekki er ólíklegt er að áfoksj- arðvegurinn uppi á íslenska hálend- inu sé mjög slæmt umhverfí fyrir fræ, svo að þau lifí mjög stutt í hon- um. Frosthreyfingar era tíðar og mikið af áfoksefnum sem geta sorfið fræin og kannski skemmt þau. Því gæti lítill fræforði einnig stafað af því að fræin lifa stutt.“ „Ef hitnar getur mjög margt í ÞJÓRSÁRVERUM. í tilraunum til að finna hvað takmarkar þroska fræja, er sett glært plastskýli utan um plöntuna, sem sýnist hækka lofthitann um 1-2 gráður. jarðvegsörverur sem eru mikil- virkastar við að brjóta plöntuleif- amar niður þrífast ekki í vatnsósa og loftlausum jarðvegi. Þegar ræst er fram þá lækkar vatnsstaðan og loft leikur um jarðveginn og rotn- unin verður miklu hraðari. Þá ger- ist alveg það sama. Þegar leifarnar af plöntunum, sem eru að svo mikl- um hluta úr kolefni, rotna þá losnar þetta kolefni og skilar sér út í andrúmsloftið sem koltvísýringur.“ Nú er verið að veita stórfé í að rækta tré til þess að binda kolefni og hækka okkar mengunarkvóta. Mundi ekki gilda það sama ef við ynnum aftur mýrarnar, sem lítið er eftir af eins og kemur fram í könn- un þinni? Er nokkuð farið að gera í því að endurvinna mýrar? „Það er rétt, það ætti að hafa sömu áhrif og binding kolefnis í skógum hvað þetta varðar. A veg- um Rannsóknastofnunar landbún- aðarins og umhverfisráðuneytisins var byrjað með því að fyllt var upp í skurði í mýri í Borgarfírði. Svo er nú að fara í gang mjög áhugavert samstarf Fuglavemdarfélagsins, Eyrarbakkahrepps og Líffræði- stofnunar Háskólans í Flóagafli austan Ölfusárósa, þar sem byrjað var í haust að fylla upp í skurði." flokki. Þar er mikið af skurðum, en það er samt víða ansi blautt. Það er stærsta svæðið sem eftir er.“ Þóra Ellen segir að ætlunin sé að sækja um til Vísindasjóðs til að byrja rannsóknir í Flóagaflinum. I þeim rannsóknahópi eru dýrafræðingarnir Jón S. Ólafsson og Þóra Hrafnsdóttir og grasa- fræðingamir Rannveig Thoroddsen og hún sjálf. Vonast þau til að geta hafist handa næsta sumar, ef þau fá styrk til þess. Mikill fræforði neðanjarðar Allt er þetta í samhengi og við víkjum aftur talinu að arktísku há- lendisplöntunum og afdrifum þeirra ef hitastigið hækkar. Þá er- um við að tala um plöntur sem sjaldan mynda fræ eða það gerist ekki nema með löngu millibili að fræ komist upp. Þóra Ellen segir að ekki sé óhugsandi að bæði sé sjaldgæft að fræ þroskist og líka sjaldgæft að planta komist upp. Gerist þá aðeins þegar koma ein- staklega góð sumur. Þá geti til dæmis verið að allur sá fræforði sem er í jarðveginum sé meira og minna orðinn til á einu eða tveimur sumrum. Það gæti þó breyst með gerst,“ heldur Þóra Ellen áfram. „í fyrsta lagi getur blómgunartíminn breyst og mínar niðurstöður benda til þess að það muni gerast. Þá get- ur orðið miklu meiri og almennari blómgun. Tegundir sem ekki gera það núna gætu til dæmis farið að blómgast á sama tíma. Blómgunar- tímarnir gætu hliðrast mismikið og það gæti hugsanlega haft áhrif á það hvemig frjóberar hegða sér. Þetta gæti síðan haft þau áhrif að plöntur fari að eyða stærri hluta af orku sinni í æxlun en áður og hafi lengri tíma til að þroska fræ, þannig að framleiðsla á þroskuðum fræjum yrði meiri.“ Allt er þetta í samhengi og hefur áhrif hvað á annað. Eftir því sem maður heyrir meira um há- fjallaplönturnar, vekur það meiri furðu hvemig þær yfirleitt hafa lifað af við svo hörð kjör og haldið sér við og fyllist jafnframt aðdáun á þessum íslenska gróðri, sem hefur þraukað hér um aldir. Væntanlega geta vísindakonurnar frætt okkur meira um það þegar fram líða stundir. Það skiptir máli ef við ætl- um að búa í þessu landi, kannski við breytilegar aðstæður. Gera við eftir áföll og rask og rækta upp auðnir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.