Morgunblaðið - 16.11.1997, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 16.11.1997, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1997 37 Sæbjörn Valdimarsson hefur fylgst meðfyrirtæki þeirra komast á laggirnar. AÐ þarf tæpast að kynna þrennuna að baki Dream Works. Allir kannast við Steven Spielberg, undrabarnið sem geystist fram á sjónarsviðið á átt- unda áratugnum með hverja met- sölumyndina á fætur annarri. Jaws, Indiana Jones- bálkurinn, Jurassie Park og E.T., allar eru þær í hópi mest sóttu mynda sögunnar. Og margar fleiri. Þá hefur hann einnig framleitt fjölda mynda sem malað hafa ógrynni gulls. Það breytist flest í höndunum á þessum manni í eðalmálminn góða. Jafnvel þó hann geri slak- ari myndir inná milli, einsog Lost World - Horfinn heim, breytir það engu, þær sópa að sér áhorfendum. Jerry Katzenberg er annað „undrabarn" úr kvikmyndageiranum. Hans ferill hófst hjá Disneyveldinu, hann er maðurinn á bak við endurkomu vin- sælla teiknimynda fyrirtækisins og velgengni þeirra síðari árin. Ásamt Michael Eisner, hinum einráða for- stjóra þess, hörkutóli sem breytt hefur ímynd hins fjölskylduvæna Disneymerkis í gi-jótharða fjölmiðla- samsteypu sem orðin er ein sú öflug- asta í heimi, kölluð „mousechwiz" í kvikmyndabransanum. Gallinn við Eisner er sá að hann þolir ekki að aðrir skyggi á hann innan veldisins. Þegar Katzenberg krafðist stöðu- hækkunar lét Eisner hann róa, eftir standa söguleg málaferli þar sem Katzenberg fer fram á 600 millj. dala skaðabætur fyrir samningsrof. Því má bæta við að fyrir skömmu rak Eisner annan aðstoðarmann sinn og næst æðsta mann kvikmyndaarms Disney. Sá var enginn annar en Michael Ovitz, umboðsmaður og goð- sögn í kvikmyndaborginni enda með allar helstu stjörnur hennar á sínum snærum. Það dugði þó ekki til að halda um stýrimannstign í Disney brúnni. Þriðji eigandi DreamWorks kemur úr tónlistai’geiranum. David Geffen var í tvo áratugi að koma undir sig fótunum á hljómplötu- markaðnum, að lokum vai’ fyrirtæki hans, Geffen Records orðið það stærsta með flestar vinsælustu stjörnur dægurtónlistarinnar á samningi. Geffen hefur verið að snúa sér æ meira að kvikmyndafram- leiðslu undanfarin ár og vegnað vel. Hann mun þó fyrst og fremst stjórna tónlistarmálum DreamWorks og hefur þegar samið við Ge- orge Michael, hljómsveiti- ina Morphine, ofl. Hlutverk Katzenbergs verður honum kærkomið; að velgja teiknimyndum Disneys undir uggum, sem í gegnum árin hafa aldrei hlotið umtalsverða samkeppni. Nú er að verða heldur betur breyting á. 20th Century Fox er búið að byggja risavaxið teiknimyndaver undir stjóm fagmanna uppalinna hjá Disn- ey, fyi-sta framleiðsla þess verður Anastasia, ein jólamyndanna í ár. Eisner óttast ekki síður fyrsta fram- tak Katzenbergs í þessum geira, Pr- ince of Egypt, aðra stórbrotna teiknimynd sem verðm’ frumsýnd á jólum 1998. Líkt og nafnið bendir til er efnið sótt í Gamla Testamentið (þremenning- arnir eru allir gyðingar) og segir frá flótta Móse frá Egyptalandi. Valinn maður í hverju rúmi, m.a. sér Hans Zimmer um tónlistina, en myndin verður músikmynd einsog flestar vinsælustu teiknimyndirnar sem Katzenberg gerði á Disneyárunum. Raddirnar verða ekki af verri endan- um, þar koma m.a. við sögu Natalie Portman, Mel Brooks, Sandra Bull- ock, Ralph Fiennes, Jeff Goldblum, Helen Mirren, Steve Martin, Michelle Pfeiffer, Mai’tin Short og Val Kilmer sem Móses. Ekki stórleg- ur hópur. Spielberg verður aðalmaðurinn, framleiðandinn og leikstjórinn í al- menna kvikmyndageiranum og hefur þegar brett upp ermarnar og nú OBRÆÐURNIR Lars (Lee Evans) og Ernie (Nathan La- ne) króa sjálfa sig af úti í homi í miskuunarlausu stríði við mús sem hvergi ætlar að víkja úr arfleifð þeirra í Músaveiðum - Mouse Hunt. ©DR. Julia Kelly (Nicole Kidm- an) og Thomas Devoe ofursti (George Clooney) eiga fótum sínum fjör að launa er þau reyna að ljóstra upp um kjarnorkuvopnasmyglara rússnesku mafíunnar í Peacemaker. OLEIKSTJÓRINN Steven Spi- elberg fer yfir atriði úr Amistad með leikurunum Anthony Hopkins og Morgan Freeman. CLINQUE (Djimon Hounsou), forsprakki þrælauppreisnar- innar á Amistad, ásamt félög- um sínum fyrir rétti. sem leikstýrir og skrifar handritið. Hann á að baki tvær myndir, aðra góða, Field of Dreams og Sneakers, sem var öllu slakari. Deep Impact er geimvísindatryllir í anda Independent Day. Þrír einstaklingar verða að grípa til allra hugsanlegra ráða er þeir komast að því að hala- stjama stefnir á Móður Jörð með gjöreyðingarhættu í för með sér. Efnið minnir ekki síður á aðra mynd sem verður frumsýnd um svipað leyti, þ.e. Ai’mageddon, sem gerð er undir umsjón hasarmyndakóngsins Jerry Bruckheimer. Forvitnilegt verður að sjá hvor hefur betur. Deep Impact er gerð í samvinnu við ekki ómerkari framleiðendur en Richard Zanuck og David Brown. Leikstjóm- in er í höndum Mimi Leder en með stærstu hlutverkin fara Robert Du- vall, Morgan Freeman, Vanessa Redgrave og Elijah Wood. Spielberg leikstýrir sjálfur mynd úr seinna stríði sem mun heita Sav- ing Private Ryan og enginn annar en Frank Darabont skrifar handritið. Darabont vann eina af betri mynd- um síðari ára, The Shawshank Redemption uppúr smásögu efth’ Stephen King. 1999 kemur leikstjór- inn Joe Dante (Gremlins) fram á sjónarsviðið með Strek, fyrstu mynd sína um árabil. Ein önnur mynd hef- ur þegar verið ákveðin það árið, nefnist hún Straight Man. Gaman- mynd gerð af Brad Silberling, leik- stjóra Casper. Fyrsta myndin frá DreamWorks, Peacemaker, hefur nýlega hafið göngu sína hérlendis, en myndum fyrirtækisins er dreift af UIP í Evr- ópu þannig að þær verða á boðstól- um vítt um borgina. Það vakti mikla furðu að Spielberg skyldi velja Mimi Leder, nýliða í kvikmyndagerð, til að leikstýra þess- ari tímamótamynd „Hvað fær þig til að halda að ég geti stjómað spennu- mynd“, spurði hún framleiðandann þegar hann fékk henni verkefnið í hendumar. „Þú ert að leikstýra spennu alla daga í Bráðavaktinni". þegar eru 12 myndir komnar á mis- munandi framleiðslustig hjá Dr- eamWorks. Fyrsta myndin sem hann leikstýrir fyrir fyrirtæki þre- menninganna er Amistad, hún er þó gerð í samvinnu við Paramount og verður örugglega ein eftirtektar- verðasta jólamyndin í ár. Amistad var nafnið á þrælaskipi sem var vett- vangur blóðugrar uppreisnar fanga á leið frá Afríku til Bandaríkjanna. Ekki tókst þeim að snúa til síns heima heldur komust undir manna- hendur, Norðurríkjamannahendur, sér til láns. Nú vom þeir komnir uppá réttlæti framandi manna hjá framandi þjóð . Gerist myndin að mestu leyti í réttarsölunum en mála- ferlin sem fylgdu í kjölfar uppreisn- arinnar era sögufræg. Enginn annar en John Quincy Adams, (hafði þá ný- látið af embætti sem sjötti forseti Bandaríkjanna), tók að sér vömina. Adams var repúblíkani og skeleggur andstæðingur þrælahalds. Adams er í traustum höndum Anthony Hopk- ins og fleiri stórleikarar koma við sögu. Þ.á.m. Nigel Hawthorne sem fer með hlutverk sitjandi Banda- ríkjaforseta, Martins Van Buren, demókrata sem var reiðubúinn til að fóma Afríkumönnunum fyrir at- kvæði sunnanmanna. Pete Postlet- hwait leikur saksóknarann, Morgan Freeman fer með hlutverk þrælaaf- námssinnans Theodors Joadson, Matthew McConaughey leikur frjálslyndan lögfræðing og norðan- mann. Handritið skrifar Steven Za- illian og kvikmyndatakan er í hönd- um Januzar Kaminskis. Báðir komu þeir við sögu virtustu myndar Spiel- bergs, Lista Schindlers. A þessu ári verður sýnd myndin Mouse Hunt, andstaða Amistad, því hér era engin þekkt nöfn á ferðinni heldur nokkrir B-myndasmiðir. Þarna er kannske tónninn gefmn; stórmyndir í bland við verk efnilegra nýliða. Mouse Hunt er gamanmynd um harðsnúinn bardaga á milli út- smoginnar músar og manna.Why Can’t I be Audrey Hepburn, er svo nafn fjórðu myndarinnar sem fyrir- tækið frumsýnir í ár. Efnileg, ung leikkona, Tea Leoni, fer með aðal- hlutverkið. Á næsta ári er von á a.m.k. sex myndum frá DreamWorks. Ein þeirra er The Age of Aquarius þar sem gæðaleikararnir Han’ison Ford og KristinScott Thomas fara með að- alhlutverkin. Myndin er gerð í sam- vinnu við Universal og er stríðsmynd með rómantísku ívafi. Maðurinn á bak við hana er Phil Alden Robinson Leder er með þekktari sjónvarps- leikstjóram vestan hafs. Hefur hlotið tvenn Emmy verðlaun og á meðal spennuþátta sem hún hefur unnið við fyrir utan E.R. era L.A. Law, Hill Street Blues, Crime Story og China Beach. Hún hefur hlotið jákvæða dóma fyrir frumraun sína á tjaldinu, og Spielberg veðjað á réttan hest enn eina ferðina. Enda setti hann Leder beint í næsta verkefni, Deep Impact, einsog fram kemur að ofan. Þá hefur hann falið leikstjóranum þriðja við- fangsefnið hjá DreamWorks SKG, og nafnið, When Worlds Collide, segir okkur að það verði einnig úr geimtryllageiranum. Hún mun að öllum líkindum gera fjórðu mynd sína fyrir Draumasmiðjuna fyrir aldamót. Það verður persónulegt verkefni sem nefnist Sentimental Jo- m-ney. Handritið er eftir fóður henn- ar, sem er nýlátinn, og segir af reynslu hans sem hermanns í síðai’i heimsstyrjöldinni. Þar frelsaði hann m.a. verðandi eiginkonu sína og móð- ur Leder úr Auschwitz fangabúðun- um sem voru bakgrunnur Schindler’s List, myndarinnar sem veitti Spielberg þá virðingu sem hann átti löngu skilið í kvikmynda- heiminum. Geffen. Alkunnir risar í skemmtiiðnaðinum. er nafn þessa fyrsta kvikmyndavers í hópi risanna í áratugi, er það vel við hæfi, og á eftir því koma stafir eigendanna - SKG. Standa fyrir Spielberg, Katzenberg og Drauma- verksmiðjan fer í gang Á dögunum gerðist merkilegur atburður í kvikmyndasögunni. Nýtt dreifí- og framleiðslufyrirtæki markaðssetti fyrsta afraksturinn, spennumyndina Peacemaker, sem verður frumsýnd hérlendis í byrjun nóvember. DreamWorks
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.