Morgunblaðið - 16.11.1997, Page 54
54 SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
I ÞJÓBLEIKHUS10 sími 551 1200
Stóra sOiiii kl. 20.00:
ÞRJÁR SYSTUR - Anton Tsjekhof
(kvöld sun. næstsíðasta sýning — fös. 21/11 siðasta sýning.
GRANDAVEGUR 7 - Vigdís Grímsdóttir
Leikgerð: Kjartan Ragnarsson og Sigríður M. Guðmundsdóttir.
7. sýn. sun. 23/11 uppselt — 8. sýn. fim. 27/11 uppseft — 9. sýn. lau. 29/11 uppselt —
10. sýn. sun. 30/10 — 11. sýn. fim. 4/12 — 12. sýn. fös. 5/12.
FIÐLARINN Á ÞAKINU - Bock/Stein/Hamick
Lau. 22/11 uppsett - fös. 28/11 uppselt - lau. 6/12.
Gestaleikur frá Þjóðleikhúsinu í Litháen:
GRÍMUDANSLEIKUR (MASKARAD) eftir Mikhail Lérmontov
Mið. 19/11 og fim. 20/11. Aðeins þessar 2 sýningar.
Smföaóerkstteðii kl. 20.00: Ath. txeyttan sýningartíma.
KRABBASVALIRNAR — Marianne Goldman
Lau. 22/11 —sun. 23/11 — lau. 29/11. Ath. sýningin er ekki við hæfi bama
Sýnt i Loftkastalanum kl. 20.00:
LISTAVERKIÐ - Yasmina Reza
Rm. 20/11 -fös. 28/11.
LjSTAKLÚBBUR LEIKHÚSKJALLARANS mán. 17/11
,Á mörkum þessa heims og annars". Dagskrá í tilefni af sýningu leikverksins Grandavegur
7. Húsið opnað kl. 19.30 — dagskrá hefst kl. 20.30 — miðasala við inngang.
Miðasalan er opin mán.-þri. 13—18, mið.-sun. 13—20.
Símapantanir frá kl. 10 virka daga.
FOLK I FRETTUM
5 LEIKFÉLAG <
REYKJAVÍKUR
BORGARLEIKHUSIÐ
Stóra svið kl. 14.00
eftir Frank Baum/John Kane
í dag 16/11, uppselt
AUKASÝN. sun. 16/11, kl. 17.00, uppsett
lau. 22/11, uppselt, sun. 23/11, uppsett
lau. 29/11, uppselt, sun. 30/11, uppselt
AUKASÝNING sun 30/11, kl. 17.00 örfá
sætí laus, lau. 6/12, laus sætí, sun. 7/12,
örfá sætí
Gjafakortin eru komin!
Stóra svið kl. 20:00:
toiJúfaiíF
eftir Benóný Ægisson með tónlist
eftir KK og Jón Ólafsson.
fös. 21/11 næstsíðasta sýning örfá
sæti,
lau 29/11 síðasta sýning, laus sæti.
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Litla svið kl. 20.00
eftir Kristínu Ómarsdóttur
fös. 21/11, lau. 29/11.
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Höfuðpaurar sýna á Stóra sviði:
HA%Hírr.
í kvöld 16/11 kl. 20.00, uppselt
mið. 19/11, kl. 20.00, örfá sæti laus,
fös. 21/11 kl. 23.15 örfá sæti laus,
lau. 22/11 kl. 20.00 uppselt.
fslenski dansflokkurinn
sýnir á Stóra sviði kl. 20.30:
TRÚLOFUN í ST. DÓMÍNGÓ
eftir Jochen Ulrich
4. sýn. fim. 20/11, 5. sýn. sun. 23/11.
Nótt & Dagur sýnir á Litla sviði
kl. 20.30:
OAi.r.r'.uí >
NTALA
fastÁ&NN
LISTAVERKIÐ
Sýning Þjóðleikhússins
í kvöld lau. 15. nóv. kl. 20.
Rm. 20. nóv. kl. 20
fös. 28. nóv. kl. 20
BEIN ÚTSENDING
sun. 16. nóv kl. 20. Allra síðasta sýning.
VEÐMÁLIÐ
mið. 19. nóv kl. 20 örfá sæti laus
mið. 26. nóv kl. 20
ÁFRAM LATIBÆR
sun. 23. nóv. kl. 14 uppselt
og kl. 16 aukasýning, uppsett
lau. 29.11 kl. 14 aukasýn., örfá sætí laus
sun. 30. nóv. kl. 14 uppselt
kl. 16 uppselt- síðasta sýnirtg
Á SAMA TÍMA AÐ ÁRI
fös. 21. nóv. kl. 23.30 örfá sæti laus
lau. 29. nóv. kl. 20 örfá sæti laus
Ath. aðeirts örfáar sýningar.
Miöasala s. 552 3000, fax 562 6775
Miðasala opin 10 — 18, helgar 13 — 18
Ath. Ekki erhleypt inn i sal eftirað sýning
er hafin.
Leikfélag
Akureyrar
HARTIBAK
í RENNTVERKSTÆÐINU ★ ★ ★
Sun. 16/11 kl. 20.30 laus sæti
Fös. 21/11 kl. 20.30 uppselt
Lau. 22/11 kl. 16.00 laus sæti
Lau. 22/11 kl. 20.30 uppselt
Næstsíðasta sýningahelgi
Fös. 28/11 kl. 20.30 laus sæti
Lau. 29/11 kl. 16.00 laus sæti,
næstsíðasta sýning
Lau. 29/11 kl. 20.30 laus sæti,
síðasta sýning
Missið ekki af þessari bráðskemmti-
legu sýningu.
Munið Leikhúsgjuggið
Rugfélag íslands, sími 570 3600
Miðasölusími 462 1400
Er lífíð blekking?
Metsölubókin
„Veröld Soffíu“ hefur
verið leikgerð og
er hádegisleikrit Rás-
ar 1 í þrjár vikur.
m
-ELKORKA Tekla Olafs-
dóttir er leiklistarráðu-
Lnautur Þjóðleikhússins.
Hún er höfundur leikgerðarinnar,
en hún hefur verið viðriðin leiklist-
ina á alla mögulega vísu frá því að
hún lauk meistaraprófi í leikhús-
fræðum frá Sorbonne-Nouvelle
háskólanum í París.
„Veröld Soffíu“ má heyra á Rás
1 á hverjum degi kl. 13.05, eða í
heildarflutningi á laugardagseftir-
miðdögum.
Guð eða
einhver annar?
-Hvernig kom hugmyndin að gera
leikgerð eftir bókinni „Veröld Soff-
íu“ ?
„Eg las þessa bók sem er eftir
Jostein Gaarder, og hafði mjög
gaman af. I samvinnu við leiklist-
arstjóra Ríkisútvarpsins, Maríu
Kristjánsdóttur, fékk ég þá hug-
mynd að vinna upp úr bókinni út-
varpsleikrit vegna þess að hún er
bæði aðgengileg fyrir allan al-
menning til að kynna sér heim-
speki, og líka einstaklega
skemmtilega skrifuð. Uppbygg-
ingin er óvenjuleg og viðfangsefnið
rennur á alveg sérstakan hátt
saman við atburðarásina. Þarna er
verið að velta fyrir sér spurning-
um um veruleika okkar; hvort
hann sé blekking eða hvort ein-
hver höfundur sé að baki þessarar
tilveru, hvort sem það er guð eða
einhver annar.
Hugmyndin á bakvið bókina er
að koma fróðleik um heimspeki-
söguna til almennings og líka að
hvetja aðra en skólafólk til að
velta fyrir sér spurningum um til-
veru okkar. Mér fannst því út-
varpið upplagður miðill til að
koma því á framfæri, því það er
mjög breiður hópur fólks sem
hlustar á það, og úr öllum stigum
þjóðfélagsins.“
Alltaf eitthvað nýtt
-Nú er bókin mikil og þykk, var
ekki mikið vandaverk að gera leik-
gerðina ?
„Jú, ég þurfti að velja kafla sem
ég vildi leggja áherslu á, því bókin
rekur heimspekisöguna frá Fom-
Grikkjum alveg til samtímans.
eftir Hlín Agnarsdóttur
I kvöld 16/11, fim. 20/11, lau. 22/11.
Miðasalan er opin daglega frá kl.
13—18 og fram aö sýningu
sýningardaga.
Símapantanir virka daga frá kl. 10
Greiðslukortaþjónusta
Sími 568 8000 fax 568 0383
Mennirnir í líf i Júlíu:
Nicíf, Leeds og Ron.
Einn heldur einkunnabók yfir hjásvæfur sínar.
Annar er vopnaður og hættulegur.
Sá þriðji er giftur Júllu.
ftllir vilja þeir Jiib'u-
Morgunblaðið/Kristinn
LEIKHIJ SFRÆÐIN GURINN
Melkorka Tekla gefur fólki tækifæri til að skyggnast inn í heim
héimspekinnar með útvarpsleikgerð sinni á „Veröld Soffíu".
Flutningur verksins hófst sl.
mánudag og þriggja vikna hádeg-
isleikrit þykir yfirleitt í lengii
kantinum. Þetta verk er hins veg-
ar þannig uppbyggt að söguþráð-
urinn er ekld aðalatriðið, heldur
fróðleikurinn á bakvið hann.
Þannig er hægt fyrir nýja hlust-
endur að koma inn í leikritið á
hvaða stað sem er, þótt það sé auð-
vitað skemmtilegast að fylgjast
með því frá upphafí til enda. En
hver þáttur fyrir sig geíúr hlust-
andanum innsýn í sjálfstæðan
kafla heimspekisögunnar.“
Dularfullur
bréfritari
-Hverjar eru persónur bókarinnar
fyrir utan beimspekingana?
„Aðalpersónan er unglingsstúlk-
an Soffía sem er ansi skynug. Hún
byrjar að fá bréf frá ókunnugum
einstaklingi sem reynist vera hinn
dularfulli Alberto Knox sem gerist
sjálfskipaður heimspekikennari
hennar. í leikgerðinni eru þessi
hlutverk í höndum Bergljótar Am-
alds sem leikur Soffíu, og Amars
Jónssonar sem er Alberto.
Þau em mjög færir leikarar, og
leikstjórn Hallmars Sigurðssonar
er afar góð. Eg vona að sem flestir
gefí sér tíma að hlusta á útvarps-
leikritið. Mér þætti einnig gaman
ef þetta gæti orðið til þess að vekja
athygli á bókinni. í leikgerðinni
get ég ekki komið á framfæri öllu
sem stendur í bókinni, og þeir sem
vilja læra meira um heimspeki
geta skoðað þessa skemmtilegu og
skýra bók.“
MYNDBÖND
Kraftlaus
spennumynd
Með mafíuna í sigtinu
(Hollow Point)_________
S p e n n u in y n d
Framleiðandi: Nicolas Clermont.
Leikstjóri: Sidney J. Furie . Handrits-
höfundar: Robert Geoffrion og James
H. Stewart. Kvikmyndataka:David
Franeo. Tónlist: Brahm Wenger. Að-
alhlutverk: Tia Carrere, Thomas Ian
Griffith, John Lithgow, Donald
Sutherland. 90 min. Bandaríkin.
Myndform 1997. títgáfudagur: 8.
nóvember. Myndin er bönnuð börnum
innan 16 ára.
MAFÍÓSINN Livingston er að
reyna að sameina rússnesk, kín-
versk og ítölsk glæpafélög. Með
þessu verða þau næstum ósnertan-
leg í Bandaríkjunum, en FBI
starfsmaðurinn Diane Norwood
ætlar að reyna allt til að stöðva
þessa sameiningu og til þess þarfn-
ast hún aðstoðar fíkniefnalögregl-
unnar Max Parish og leigumorð-
ingjans Garret Lawsons (Donald
Sutherland), þrátt fyrir að þau hafi
öll mjög ólíkar starfsaðferðir.
Spennan er
nánast engin í
þessari þriðja
flokks afþreying-
arvellu og leikar-
arnir era langt
frá sínu besta.
Aðalhlutverkið er
í höndum hinnar
snoppufríðu Tia
Carrere og er
hún lifandi sönnun þess að gott út-
lit og góður leikur fara ekki alltaf
vel saman. Lithgow og Sutherland,
sem em ágætis leikarar, ofleika
persónur sínar og virðast bara vera
í þessari mynd útaf launaseðlinum.
Sá eini sem má hafa gaman af er
Thomas Ian Griffith sem leikur
hinn þreytandi aðstoðarmann Car-
rere, en það segir kannski frekar
meira um gæði þessarar myndar en
leik hans. Leikstjórinn Sidney J.
Furie hefur varla gert góða
spennumynd síðan hann gerði „The
Iperess File“ árið 1965 og ekki
breytist það með þessari mynd.
Ottó Geir Borg