Morgunblaðið - 26.11.1997, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1997 15
AKUREYRI
Dótturfélag Sæplasts á Indlandi
Tilraunaframleiðsla
hefst í febrúar
UPPBYGGING hins nýja dótturfé-
lags Sæplasts á Indlandi, Sæplast-
India Pvt. Ltd., hefur gengið sam-
kvæmt áætlun. Verksmiðjuhúsið er
tilbúið og uppsetning vélbúnaðar er
að hefjast. Gert er ráð fyiir að
henni ljúki um eða upp úr áramót-
um og að tilraunaframleiðsla hefjist
í febrúar 1998.
Um 15 manns munu starfa hjá
félaginu á Indlandi og verður lögð
megináhersla á framleiðslu ein-
angraðra kera til notkunar í físk-
iðnaði og öðrum matvælaiðnaði.
Einnig verða framleiddir vatns-
Bókmennta-
vaka og
myndlistar-
sýning
BÓKMENNTAVAKA og myndlist-
arsýning er yfirskrift „Heits
fimmtudags" í Deiglunni, annað
kvöld, fimmtudagskvöldið 27. nóv-
ember, en hún hefst kl. 21. Kvöldið
er að þessu sinni í boði Máls og
menningar, Bókvals og Café Karó-
línu.
Peir sem lesa úr verkum sínum
eru Steinunn Sigurðardóttir úr
Hanami, Rúnar Helgi Vignisson úr
Astfóstri, Kristín Omarsdóttir úr
Elskan mín ég dey, Kristjón Kor-
mákur Guðjónsson úr Óskaslóðin og
Erlingur Sigurðarson úr Heilyndi.
Húsið verður opnað kl. 20 og
verða þá opnuð samsýning tveggja
myndlistarkvenna, Sigurdísar
Hörpu Arnardóttur og Dagnýjar
Sifjar Einarsdóttur, en þær lærðu
báðar í Myndlistarskólanum á
,\kureyri og hafa tekið þátt í sam-
sýningum og efnt til einkasýninga á
verkum sínum. Yfu'skrift sýningar
Sigurdísar er Bækur, en myndir
Dagnýjar fjalla um land og fólk.
Aðgangur er ókeypis.
tankar og önnur hverfisteypt ílát,
líkt og hjá móðurfélaginu á Dalvík.
Þetta kemur fram í nýju fréttabréfi
Sæplasts.
Aðstandendur hins nýja félags
eni fullir bjartsýni á gott gengi
þess. Einsýnt þykir að miklir mögu-
leikar eni fyrir hendi á indverska
markaðnum og viðbrögð væntan-
legra kaupenda lofa góðu. Sæplast
leggur félaginu m.a. til tækniþekk-
ingu og sér um þjálfun starfsfólks.
Fyrir nokkru voru þrír af yfirmönn-
um Sæplast-India staddir hér á
landi til að kynna sér starfsemina.
W -
Morgunblaðið/Kristján
KK í Grímsey
Grímsey. Morgunblaðið.
TÓNLISTARMADURINN
Kristján Kristjánsson, KK, er
nú á tónleikaferð um landið og
gerði hann sér lítið fyrir og
brá sér út í Grímsey. Eyjar-
skeggjar fjölmenntu í félags-
heimilið Múla þar sem hann
lék lög sín við góðar undirtekt-
ir og voru þeir sammála um að
þetta hefði verið hin besta
skemmtun.
Stikuþvottur í stað
snjómoksturs
STARFSMENN Vegagerðarinnar
á Akureyri hafa haft lítið af snjó-
mokstri að segja á þessu hausti
enda veðrið verið með allra besta
móti að undanförnu. Kristján Þor-
kelsson, starfsmaður Vegagerðar-
innar, var þess í stað að sápuþvo
vegstikur í Glæsibæjarhreppi
norðan Akureyrar er ljósmyndari
Morgunblaðsins var þar á ferð.
Stikurnar voru það skítugar að
endurskinsmerkin á þeim sáust
ekki fyrir drullu og gerðu þar af
leiðandi ekki það gagn sem til er
ætlast. Þeir starfsmenn Vega-
gerðarinnar sem sjá um snjó-
mokstur eru komnir á vaktir og
þar sem enginn er snjómokstur-
inn þótti upplagt að nota tímann
til þrifa á stikunum.
Starfsmaður
Neytendasamtakanna
Sex um-
sóknir
bárust
SEX umsóknir hafa borist um starf
hjá Neytendasamtökunum á Akur-
eyri en umsóknarfrestur rann út
um helgina. Eins og komið hefur
fram var Vilhjálmi Inga Árnasyni,
formanni Neytendafélags Akureyr-
ar og nágrennis nýlega sagt upp
störfum hjá Neytendasamtökunum
og var óskað eftir því að hann hætti
strax.
Líklega áfram 80% staða
Vilhjálmur Ingi var í 80% starfi
og segir Jóhannes Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Neytendasam-
takanna að ekki hafi verið rætt um
breytingar á stöðugildinu. „Við úti-
lokum þó ekkert en munum fara í
að ræða við umsækjendur og ég
vonast til að hægt verði að ráða í
starfið mjög fljótlega."
Jóhannes sagði að skrifstofa sam-
takanna yrði í Alþýðuhúsinu við
Skipagötu og að hún væri þegar til-
búin fyrir nýjan starfsmann.
Heldur slakari verkefnastaða hjá Slippstöðinni síðustu tvo mánuði
Nóg að gera á næstunni
VIÐRÆÐUR standa nú yfir við
forsvarsmenn útgerðar í Murmansk
í Rússlandi og Slippstöðvarinnar á
Akureyri um að stöðin taki að sér
smíði á flakavinnslubúnaði í tvo tog-
ara íyrirtækisins.
Ingi Bjömsson framkvæmda-
stjóri Slippstöðvarinnar sagði að
heldur minna hafi verið að gera hjá
fyrirtækinu síðustu tvo mánuði en
annars hefði árið í heild verið mjög
gott. „Síðustu tveir mánuðir hafa
verið heldur slakari en verið hefur
mánuðina á undan en við horfum nú
fram á betri tíð,“ sagði Ingi.
Tvö stór verkefni
framundan
Nýlega hefur verið samið um tvö
stór verkefni sem verða uppistaðan
í starfsemi stöðvarinnar næstu tvo
mánuði. Annars vegar er um að
ræða endurbætur á togaranum
Gullveri, m.a. endurnýjun á togþil-
fari og bobbingagörðum, sandblást-
ur, klæðningu á vinnslurými og
uppsetningu á nýjum vélgæsluklefa.
Togarinn kemur til Akureyrar síðar
í vikunni. Þá hefur verið samið um
að Slippstöðin vinni við togara Ut-
gerðaifélags Akureyringa, Slétt-
bak, en setja á nýtt vinnsludekk um
borð í hann. Það verður smíðað nú á
næstu vikum og sett um borð eftir
áramót.
Að auki sagði Ingi að fyrir lægi
viljayfiriýsing um að Slippstöðin
ynni við fleiri togara rússneska fyr-
irtækisins Karel Rybflot. Þegar
hefur stöðin unnið að endurbótum á
tveimur togurum þess og sá þriðji
liggur við Torfunefsbryggju.
Byrjað á rússneska
togaranum fljótlega
„Vonandi verður hafist handa við
það skip fljótlega, en fjármögnun er
hins vegar ekki að fullu ft-ágengin
enn,“ sagði Ingi. „Við höfum einnig
verið í viðræðum við annað fyrir-
tæki í Murmansk um breytingar á
tveimur skipum þess.“
Andrésar andar-leikarnir
upphaf skíðaferils Kristins Björnssonar
Erum stolt af kappanum
og finnst við eiga í honum
Ólafsfírði. Morgunblaðið.
NEFNDARMENN Andrésar and-
ar-leikanna á skíðum sem lialdnir
hafa verið í Hlíðarfjalli við Akur-
eyri gerðu sér ferð til Ólafsljarð-
ar á mánudagskvöld til að heiðra
og samgleðjast foreldrum Krist-
ins Björnssonar skíðamanns,
þeim Margréti Toft og Birni Þór
Ólafssyni.
Kristinn hóf skiðaferil sinn
með þátttöku í Andrésar andar-
leikunum í Illíðarfjalli 6 ára
gamall, árið 1979 og varð 3. í
svigi og stórsvigi. Keppti Krist-
inn á leikunum í sjö ár samfleytt
og þykir Andrésarmönnum þeir
eiga töluvert í Kristni. Árangur
snáðans var oftast nær góður og
tók hann þátt í ýmsum greinum,
svigi, stórsvigi, stökki og
göngu. Síðast keppti Kristinn á
Andrésarleikum árið 1985, 12
ára gamall og varð þá annar í
stórsvigi, 33. í svigi og fyrstur í
stökki.
„Við erum afar stolt af kapp-
anum,“ sagði Gísli Kristinn
Lórenzson formaður nefndarinn-
ar við foreldra hans, „og okkur
finnst við eiga svolftið í honum.
Við teljum að þessi árangur hans
afsanni þær kenningar að óhollt
Ataksverkefni um bætt aðgengi
Létt hurð,
greið leið
„LÉTT hurð, greið leið,“ er
átaksverkefni sem staðið hefur
yfir á Akureyri frá því í byrjun
september en því lýkur formlega
1. desember næstkomandi.
Verkefnið er á vegum Sjálfs-
bjargar á Akureyri og nágrenni
og er fólgið í áskorun til íbúa, fyr-
irtækja og stofnana á Akureyri
og víðar um að bæta aðgengi að
húsakynnum sínum með sjálf-
virkum opnunarbúnaði hurða.
I tilefni af alþjóðadegi fatlaðra,
3. desember næstkomandi verður
fjölbreytt dagskrá í endurnýjuð-
um húsakynnum Sjálfsbjargar í
kjallaranum Bjargi við Bugðu-
síðu. Þar verða m.a. veittar viður-
kenningar til þeirra sem orðið
hafa við áskorun félagsins um
sjálfvirkan opnunarbúnað hurða,
en enn gefst færi á að öðlast slíka
viðurkenningu með því að taka
slíka ákvörðun fyrir 1. desember
og láta forsvarsmenn félagsins
vita.
Morgunblaðið/Guðmundur Þór
ANDRÉSARNEFNDIN á heimili Margrétar Toft og Björns Þórs
Ólafssonar foreldra Kristins Björnssonar. Frá vinstri eru Þóra Leifs-
dóttir, Gísli Kristinn Lórenzson, ívar Sigmundsson, Friðrik Adolfs-
son og Kristinn Steinsson. Margrét og Björn eru sitjandi fyrir miðri
mynd með gjöf frá Andrésarnefndinni.
sé fyrir börn að keppa á skíð-
um.“
Mikils virði
Margrét móðir Kristins vildi
koma á framfæri innilegu
þakklæti til allra þeirra sem
sýnt hefðu fjöiskyldunni vel-
vild, hringt, sent skeyti, fært
þeim blóm og gjafir af þessu
tilefni. Það væri þeim afar mik-
ils virði.
Síðustu sýningar
á Hart í bak
UM NÆSTU helgi verða síðustu
sýningar Leikfélags Akureyrar á
Hart í bak eftir Jökul Jakobsson.
Verkið var frumsýnt 10. október
og hefur verið sýnt við afbragðs að-
sókn og góðar undirtektir, en fjöldi
áhorfenda nálgast nú þriðja þús-
undið.
Leikritið verður sýnt á fimmtu-
dags-, fóstudags- og laugardags-
kvöld kl. 20.30 og á laugardag kl. 16.
Enn eru til miðar á þessar sýning-
ar, sem verða þær síðustu á þessu
vinsæla verki. Sýnt er á Renniverk-
stæðinu við Strandgötu.
Sigurður Hallmarsson, Guðbjörg
Thoroddsen, Marta Nordal og Hall-
dór Gylfason fara með aðalhlutverk-
in, en Eyvindur Erlendsson leik-
stýrir.
Jólaverkefni Leikfélags Akureyr-
ar, Á ferð með frú Daisy eftir Al-
fred Uhry verður frumsýnt á
Renniverkstæðinu á annan í jólum,
Sigurveig Jónsdóttir, Þráinn Karls-
son og Aðalsteinn Bergdal leika að-
alhlutverkin, en Ásdís Skúladóttir
leikstýrir.