Morgunblaðið - 26.11.1997, Síða 20

Morgunblaðið - 26.11.1997, Síða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI REKSTRARHAGNAÐUR Swissair jókst um 145% á fyrri árshelmingi. Betri afkoma hjá erlend- um flugfélögum íár Helmingur Breta gegn auglýsingum London. Reuters. TÆPUR helmingur Breta tekur neikvæða afstöðu til auglýsinga af öllu tagi samkvæmt skoðanakönn- un rannsóknarhópsins CIA MediaLab. Samkvæmt könnuninni eru 22% neytenda tortryggnir að eðlisfari. Þeim fínnist auglýsingar uppá- þrengjandi og séu oft fjandsamleg- ir þeim. Þá eru 22% neytenda tvíræðir og óvirkir. Þeim stendur yfirleitt á sama um auglýsingar samkvæmt- könnuninni. „Þessir hópar eru slæmar fréttir fyrir þá sem starfa að auglýsinga- og markaðsmálum," sagði Anthony Jones, forstöðumaður CIA Media- Lab. „Hinir tvíræðu er erfiðastir og hættulegastir að mínu mati af því er erfítt er að hrófla við þeim,“ sagði Jones. „Þeim fínnst sköpun- argáfa engu máli skipta og eru yfirleitt lítt hrifnir af auglýsingum, þótt þeir sætti sig við að þær muni ekki hverfa." „Um þá tórtryggnu segir Jones að þeir tortryggi allt og alla - þar á meðal auglýsingar. ------» ♦ ♦----- Intel skiptíhluta San Francisco. Reuters. INTEL, kubbarisinn frægi, hefur boðað meiriháttar endurskipulagn- ingu á fyrirtækinu. Intel mun meðal annars koma á fót fjórum nýjum fyrirtækjum og segir að nauðsynlegt sé að snúa sér að skjótri hlutun PC-geirans. AFKOMA flestra stærri flugfélaga í Evrópu og Bandaríkjunum batnaði umtalsvert fyrstu 9 mánuði þessa árs samanborið við sama tímabil í fyrra, að því er fram kemur í vikut- íðindum Búnaðarbankans verðbréfa. Er þessi bati sagður skýrast af betri sætanýtingu og hagstæðara verði á eldsneyti en verð þotueldsneytis mælt í dollurum er nú 19% lægra en það var í upphafi þessa árs. A sama tíma minnkaði rekstrar- hagnaður Flugleiða um 61%, m.a. vegna hærri launakostnaðar, óhag- stæðrar gengisþróunar og aukins eldsneytiskostnaðar, eins og fram hefur komið í fréttum. Ef litið er til evrópsku flugfélag- anna þá jókst hagnaður af reglu- legri starfsemi fyrir skatta SAS um 22% á fyrstu níu mánuðum ársins, samanborið við sama tímabil í fyrra. Aukningin varð enn meiri hjá Swissair og KLM, en hagnaður þess fyrrnefnda jókst um 145% á fyrri árshelmingi og á tímabilinu mars til október jókst hagnaður KLM um 190% ef borið er saman við sama tímabil á síðasta ári. Hins vegar hefur ekki árað vel hjá British Airways á þessu ári og kemur þar til ágreiningur við starfs- fóik sem stóð yfir allt síðasta sumar og áætlað er að kostað hafi félagið um 125 milljónir punda eða um 15 milljarða íslenskra króna. Þá er u.þ.b. 17% hækkun pundsins gagn- vart helstu gjaldmiðlum Evrópu á þessu ári talin hafa kostað félagið annað eins og í Economist er leitt líkum að því að heildartap félagsins á þessu ári vegna gengisþróunarinn- ar verði um 26 milljarðar króna. Megnið af rekstrarkostnaði félagsins er í pundum en 60% af tekjum fé- lagsins eru í erlendri mynt. Gott ár hjá bandarískum flugfélögum Afkoma bandarískra flugfélaga hef- ur einnig batnað umtalsvert á þessu ári. Hagnaður USAir af reglulegri starfsemi jókst þannig um 76% á fyrstu níu mánuðum þessa árs, sam- anborið við sama tímabil í fyrra, hagnaður Southwest jókst um 32% og hagnaður United Airlines jókst um 22% á sama tíma, en þar hefur þó ekki verið tekið tillit til fjár- magnsliða. Saudi-prins kaupir 5% í News Corp og Netscape Sydney. Reuters. SAUDI-arabíski prinsinn A1 Waleed bin Talal bin Abdul hefur keypt 5% hlut í fjölm- iðlafyrirtæki Ruperta Murdochs, News Corp Ltd, og netbúnaðarfyrirtækinu Netscape Communications Corp. A1 Waleed prins sagði í við- tali við bandaríska tímaritð Time að hann hefði keypt 5% hlut sinn seint í október. Hann kvaðst einnig hafa keypt ótiltekinn, en töluverð- an, ijölda hlutabréfa í tækni- fyrirtækinu Motorola Inc. „Ég vil einbeita mér að fjarskiptum, tækni, afþrey- ingu og fréttum," sagði hann í viðtalinu. „Þetta er framtíðin,“ sagði hann. „News Corp er eina raunverulega hnattræna frétta- og skemmtifyrirtækið. Netscape lætur mikið að sér kveða á netinú. Motorola er mjög hnattrænt fyrirtæki á sviðum síma og gervihnatta. Þessi fyrirtæki munu gegna úrslitahlutverki." Hver sá sem kaupir meira en 5% í fyrirtæki skráðu í Astralíu eins News Corp verð- ur að tilkynna eignarhlut sinn áströlsku kauphöllinni. Engin slík tilkynning hefur borizt frá A1 Waleed á síðastliðnum fjór- um vikum. Helga Kristín Einarsdóttir blaðamaður og Ásdís Ásgeirsdóttir Ijósmyndari drepa niðurfæti á yfirráðasvæði karlmanna Daglegt líf í blaðinu á föstudaginn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.