Morgunblaðið - 26.11.1997, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1997 51
MINNINGAR
+ Hildur Svava
Jordan fæddist á
Ærlæk í Öxarfirði 7.
júlí 1947. Hún lést í
Reykjavík 17. nóv-
ember síðastliðinn
og fór útför hennar
frani frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík 25.
nóvember.
Okkur setti hljóðar
þegar við fengum þær
sorglegu fréttir að vin-
kona okkar, Hildur
Svava Jordan, hefði
orðið fyrir hörmulegu
slysi og þá ótímabært andlát henn-
ar nokkrum dögum seinna. Þá tóku
minningarnar að streyma fram um
samveru okkar frá bamæsku á Isa-
firði og síðan í Reykjavík. Hiddý
var sjálfstæð og byrjaði snemma
að bjarga sér. Ung fór hún til Eng-
lands og þaðan til Frakklands til
tungumálanáms sem nýttist henni í
ævistarfi sínu. Hiddý var trú sínum
vinum, greiðvikin, góð og hugul-
söm og mundi alla afmælisdaga,
stóra sem smáa. Hiddý var dugleg
við að halda hópnum að vestan
saman og driffjöður í ýmsum uppá-
komun. Síðastliðin 30 ár höfum við
verið saman í saumaklúbb sem
misjafnlega mikið hefur verið
saumað í.
Hiddý kynnti okkur framandi
rétti frá öðram löndum þar á meðal
ostakökuna frægu og pizzur sem
enginn hafði smakkað áður. Þá var
setið til borðs langt fram eftir
nóttu bg hlegið og skemmt sér. Óg-
leymanleg er okkur Parísarferðin
sem Hiddý skipulagði og stjómaði
sem á heimavelli væri. Síðast en
ekki síst vora það end-
urfundir okkar sl..
sumar j>ar sem stór
hópur Isfirðinga, sem
fæddir era 1947, ákvað
að hittast.
Þetta er annað áfall-
ið sem okkar litli
saumaklúbbur verður
fyrir því fyrir sjö árum
lést Birna Eyjólfsdótt-
ir. Þeirra beggja er nú
sárt saknað.
Við kveðjum nú
kæra vinkonu en á
þeirri stundu er okkur
efst í huga þakklæti
fyrir liðnar samversustundir og
söknuðurinn yfir því að hafa hana
ekki lengur okkar á meðal. Við
sendum móður hennar og öðram
ættingjum okkar dýpstu samúðar-
kveðjur með ósk um að góðu minn-
ingarnar megi létta ykkur sorgina.
Saumaklúbburinn.
Þegar ég sest niður til að skrifa
nokkur kveðjuorð um Hiddý
frænku, kemur orðið ótrúlegt aftur
og aftur fram í hugann. Mér finnst
svo ótrúlegt hvað hefur gerst.
Hiddý dáin, það getur varla verið,
En maður verður minntur á það æ
og enn hvað lífið er í raun óútreikn-
anlegt. Minningarnar streyma
fram í hugann, eins og þær gera á
svona stundum. Hún var mín stóra
fyrirmynd þegar ég var lítil, alltaf
svo fín og frönsk eitthvað. Þá vora
útlönd og flugfreyjustarfið sveipuð
einhvers konar dýrðarljóma og fyr-
ir mér var Hiddý frænka ímynd
alls þess sem framandi og spenn-
andi lífsstíll stóð fyrir. Það vora nú
ekki alvöra Parísardömur á hverju •
strái í þá daga. Með Edith Piaf á
fóninum og kunni textann. Þegar
ég var um það bil fimm ára spurði
ég hana af hverju hún væri með
svona sítt og svart hár. Hún svar-
aði mér því til að afi sinn hefði ver-
ið indíánahöfðingi. Ekki minnkaði
þetta ljómann og ég trúði þessu í
mörg ár. Ég veit svo sem alveg
hvar ég fékk útþrárfluguna í haus-
inn. En þegar ég fór að minnast á
að ég vildi líka fara til útlanda, þeg-
ar ég yrði stór, þreyttist hún ekki á
að reyna að sannfæra mig um að
ég ætti frekar að mennta mig, þá
yrðu mér miklu fleiri vegir færir.
Ég er nú búin að því og veit ég að
hún var stolt af mér fyrir að hafa
loksins drifið mig í nám, eins og
hún sagði sjálf þegar ég hitti hana
síðast.
Nú er komið að kveðjustund
Hiddý mín, ég þakka þér fyrir allt
það sem þú hefur gert fyrir mig,
ekki síst þegar ég bjó hjá þér hér
um árið, þegar örlögin höguðu því
þannig að móðir þín sá um móður
mína á spítalanum úti í Ameríku.
Þá stóð þitt heimili mér opið hér
heima á Laugateignum. Ég geymi
minningarnar um þig í hjarta
mínu. Friður sé með þér.
Elsku Adda, Guð gefi þér styrk
til að komast í gegnum þennan
stóra missi. Og Hanna mín, þú sem
hefur alltaf verið eins og önnur
móðir fyrir okkur Hildarnar, ég
veit að þetta er erfiður tími fyrir
þig. Guð gefi þér líka styrk. Ég
hugsa til ykkar.
Hildur.
Mann setur hljóðan. Ekki Hiddý
af öllum manneskjum. Þú sem varst
svo frábær. Öll jákvæð lýsingarorð í
íslenskri tungu áttu við um þig. Þú
varst sérstök og engri lík.
Við kynntumst í París og héldum
sambandi í gegnum árin. Þú komst
í brúðkaupið mitt og fylgdist með
hvemig fjölskyldan stækkaði. I
haust komstu svo loksins í heim-
sókn til okkar í Danmörku og
dvaldir í nokkra daga. Þú flaugst
svo með okkur heim og við kvödd-
umst með kossi fullvissar um að
hittast fljótt aftur. Örlögin tóku í
taumana og við sjáumst víst ekki
framar, ekki í þessu lífi að minnsta
kosti.
Eftir stendur minningin um þig,
einstaka og yndislega vinkonu sem
ég þakka fyrir að hafa kynnst.
Því miður kemst Guðmundur
ekki í jarðarfor þína, honum þótti
ekki síður vænt um þig. Við mun-
um taka fram glösin sem þú gafst
okkur í brúðkaupsgjöf, fylla af kon-
íakinu sem þú færðir okkur frá
Ungverjalandi og skála fyrir minn-
ingu þinni. Þannig hefðirðu viljað
hafa það.
Blessuð sé minning þín.
Brynhildur Pétursdóttir.
„Þó ég sé látinn harmið mig ekki
með táram. Hugsið ekki um dauð-
ann með harmi og ótta. Ég er svo
næiri að hvert eitt ykkar tár snert-
ir mig og kvelur, þótt látinn mig
haldið. En þegar þið hlæið og
syngið með glöðum hug, sál mín
lyftist upp í mót til ljóssins. Verið
því glöð og þakklát fyrir allt sem
lífið gefur, og ég, þó látinn sé, tek
þátt í gleði ykkar yfir lífinu.“ (Höf-
undur ókunnur.)
Okkur vinkonurnar úr litla
antikþorpinu Wellenstein langar að
minnast þín með nokkrum orðum.
Leiðir okkar lágu saman í Lúx-
emborg í gegn um vinnu. Allar
höfðum við þekkst áður, líka í sam-
bandi við vinnu. Við voram flug-
freyjur á leið í ævintýri, heilt ár til
starfa á erlendri grund. Fyrstu
dagamir fóra í að finna sér sama-
stað og þá uppgötvuðum við antik-
þorpið og íbúðina við samkomutorg
HILDUR SVAVA
JORDAN
þorpsins. Þarna var kirkjan sem
alltaf sló fleiri högg en klukkan
sagði til um svo allir færu öragg-
lega snemma á fætur. En Hiddý
var nú ekki lengi að snúa á klukk-
urnar og fann sér lausn til að fá
sinn svefnfrið. Þetta var hennar
aðalsmerki, að finna lausnir á öll-
um hlutum með útsjónarsemi og
einstakri næmni á umhverfið og
fólk.
Mikið var hlegið og spjallað yfh’
morgunkaffinu sem við kölluðum
morgunspána því alltaf var bollum
hvolft til að sjá inn í framtíðina,
jafnvel hvenær farið yrði í næsta
flug. Förðunarpenslar vora mund-
aðir af stakri list og skipst á skoð-
unum um hvað væri það nýjasta í
þeim málum. Tíska og listir vora
Hiddý hugleikin, allt sem sýndi
fegurð. Svo fríður var hópurinn á
Grand Rue að skoða í búðlr og
vísitera kaffihúsin.
Ekki er hægt að minnast Hiddý-
ar öðravísi en að París komi upp í
hugann. Við nutum þess allar að
fara með henni um uppáhaldsborg-
ina hennar. Þarna var hennar ann-
að heimili og hún þekkti allt eins og
lófann á sér. Hún var endalaust að
finna staði með stemningu og góð-
um anda. Það var eins og hún
þekkti alla og við vinkonur hennar
nutum góðs af því. Örlæti hennar
og ræktarsemi var óþrjótandi í
garð þeirra sem komu við á lífsleið-
inni.
Eftir vera okkar í Lúxemborg
héldum við hópinn og hittumst oft
fyrstu árin þar sem svo sterk bönd
höfðu myndast. Þá var aftur hlegið,
spjallað og rifjaðar upp sögur
skemmtilegra tíma yfir matarpott-
um og kvöldspánni.
Elsku Hiddý, við þökkum þér
sámfylgdina og þær stundir sem
við fengum notið þín, minning þín
verður ávallt í hjörtum okkar.
„Gellen von Wellen“.
Jóhanna, Guðrún og Anna.
ATVIIMNUHÚSIMÆÐI
Lagerhúsnæði óskast leigt
Um 300—350 m2 rúmgott lagerhúsnæði óskast
í Reykjavík eða Kópavogi fyrir traust fyrirtæki.
Húsnæðið þarf að hafa stórar vörumóttökudyr,
góða lofthæð og rúmgóða aðkomu. Æskilegt
er að húsnæðið sé laust 1. febr. eða 1. mars nk.
Svör leggist inn á afgreiðslu Mbl., merkt:
„L - 2597".
ÝMISLEGT
Auglýsing á deiliskipu-
lagi á Breið, Akranesi
Með vísan í 4.4.1. gr. skipulagsreglugerðar nr.
318/1985 er hér með auglýst eftir athugasemdum
við deiliskipúlag á Breið.
Um er að ræða deiliskipulag iðnaðarsvæðis
á Breið, Akranesi.
Teikningar og greinagerð, ásamt frekari upp-
lýsingum, liggja frammi á bæjarskrifstofum
Akraneskaupstaðar, Stillholti 16—18, 3. hæð,
frá og með 25. nóvembertil 23. desember
1997.
Athugasemdir, ef einhverjar eru, skulu vera
skriflegar og berast byggingar- og skipulags-
fulltrúa eigi síðar en 23. desember 1997.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir við tillöguna
innan tiltekins frests, teljast samþykkja hana.
Akranesi, 21. nóvember 1997.
Byggingar- og skipulagsfulltrúi.
HÚSNÆÐI í BODI
Til sölu nýlegt einbýlishús
í Biskupstungum. Stærð 140 fm. Bílskúr47 fm
og lóð ca. 1.5 hektari.
Upplýsingar eru gefnar á kvöldin í símum
486 8757 og 852 0457.
TILKYIMNIIMGAR
RATSJÁRSTOFNUN
Lokað
Vegna flutnings verður skrifstofa Ratsjárstofn-
unar í Reykjavík lokuð fimmtudaginn 27. og
föstudaginn 28. nóvember nk.
Skrifstofan verður opnuð mánudaginn
1. desember í Síðumúla 28, 108 Reykjavík.
Nýtt símanúmer verður 553 8900.
Faxnúmer verður 553 8901.
Þeim, sem eiga brýnt erindi við skrifstofuna
á þessum dögum, er bent á að hringja í síma
421 4481.
Auglýsendur athugið
skilafrest!
Auglýsingatexta og/eða tilbúnum atvinnu-,
rað- og smáauglýsingum sem eiga að birtast
í sunnudagsblaðinu, þarf að skila fyrir kl. 12
á föstudag.
pl«jviöwnib1aíiií)
auglýsingadeild
sími 569 1111
símbréf 569 1110
netfang: augl@mbl.is
Símamenn! Símamenn!
Skrifstofa F.Í.S. erflutt í Álfabakka 12, 2. hæð.
pósthólf 9193, 109 Reykjavík.
Símar: 550 6561, 567 2355. Fax: 567 2398.
Skrifstofan er opin alla virka daga frá 9—12
og 13-16.
Stöndum vörð um
Sjómannaskólann
Stofnfundur Hollvinasamtaka Sjómannaskóla
íslands verður haldinn í hátíðasal skólans í
kvöld kl. 20.30.
Velunnarar fjölmennið.
Undirbúningsnefndin.
SMAAUGLYSINGAR
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 18 = 17811268 ■ Et. I.
Helgafell 5997112619 IVA/ H. 8i V.
I.O.O.F 9 s 17811268’/2 = E.T. 2
□ GLITNIR 5997112619 III 1
I. O.O.F. 7 = 17911268V2 =- E.T. 2.
II.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00
„Kraftur Krists í 12 sporun-
um." Sr. Anna S. Pálsdóttir flyt-
ur fyrirlestur í kvöld, 26. nóvem-
ber, kl. 20.30 i Loftstofu KFUM
og K, Austurstræti 20, efri hæð.
Allir velkomnir.
Samstarfshópurinn
Aðalfundur badmintondeild-
ar KR. verður haldinn þriðjudag-
inn 2. desember kl. 19.00.
Stjórnin.
FERÐAFELAG
# ÍSLANDS
MORKINNI 6 - SlMI 568-2533
Miðvikudagur 26. nóvember
kl. 20.30
Kvöldvaka/afmælisfyrirlestur
í Mörkinni 6.
Leyndardómar Vatnajökuls.
Víðerni, fjöll og byggðir.
Náttúrufræðingarnir Hjörleifur
Guttormsson og Oddur Sigurðs-
son fjalla í máli og myndum um
efni nýrrar bókar sinnar Leyndar-
dómar Vatnajökuls. Efni: Yfirlit yfir
jökulinn, gosið og Skeiðarár-
hlaupið, síðan lýsing og myndir af
svæðinu frá Dyngjuhálsi vestur og
suður um til Skaftafells.
Áhugaverð og fróðleg kvöldvaka
sem enginn ætti að missa af. Verð
500 kr., kaffi og meðlæti innifalið.
ÉSAMBAND (SŒNZKRA
____f KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Kristniboðssalurinn,
Háaleitisbraut 58.
Samkoma í kvöld kl. 20.30.
Ræðumaður: Margrét Hróbjarts-
dóttir.
Allir eru hjartanlega velkomnir.