Morgunblaðið - 26.11.1997, Page 53
t-
morgunblaðið
MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1997 53
FRÉTTIR
i
i
l
0
I
I
0
Í
0
i
i
Í
€
i
0
;
Í
Í
i
Í
i
]
i
i
i
i
i
J
Morgunblaðið/Kristinn
ARNA Sigríður Sæmundsdóttir og Kolbrún Stefánsdóttir, eig-
endur Blómabúðar Reykjavíkur.
Eigendaskipti á Blóma-
búð Reykjavíkur
NÝIR eigendur hafa tekið við
rekstri Blómabúðar Reykjavík-
ur, Hótel Sögu, en það eru þær
Arna Sigríður Sæmunsdóttir og
Kolbrún Stefánsdóttir.
í tilkynningu segir að þær
Arna og Kolbrún sérhæfi sig í
fallegum og öðruvísi brúðkaups-
og útfararskreytingum, þurr-
skreytingum auk þess að selja
gjafavörur.
Verslunin er opið frá kl.
10-19 mánudaga til fimmtu-
daga, kl. 10-21 föstudaga og
laugardaga og frá kl. 10-18 á
sunnudögum.
Afmælis-
kvöldvaka
Ferðafé-
lagsins
HALDIN verður afmæliskvöldvaka
á vegum Ferðafélags íslands í kvöld
ki. 20.30 þar sem náttúrufræðing-
arnir Hjörleifur Guttormsson og
Oddur Sigurðsson fjalla í máli og
myndum um efni nýrrar bókar sinn-
ar, Leyndardómar Vatnajökuls.
Undirtitill bókarinnar er Víðerni,
fjöll og byggðir. Flutt verður yfirlit
um Vatnajökul, gosið í Gjálp og
Skeiðarárhlaupið, en síðan verður
lýsing og myndasýning af svæðinu
frá Dyngjuhálsi vestur og suður um
til Skaftafells. Sýndar verða myndir
úr bókinni og einnig myndir sem
ekki hafa birst áður.
Kvöldvakan verður í félagsheimili
Ferðafélagsins í Mörkinni 6. Allir
eru velkomnir meðan húsrými leyfir.
Kaffiveitingar verða í hléi.
Á næsta sunnudag kl. 17 mun svo
Sverre A. Larsen sýna myndir úr
Qallahéruðum Noregs, einnig í
Mörkinni 6, en báðir þessir viðburð-
ir eru í tilefni 70 ára afmælis Ferða-
félagsins.
Opinn borgara-
fundur um bæj-
armálefni í
Kópavogi
UNDIRBÚNINGSHÓPUR nýs bæj-
armálafélags, Félags um jafnaðar-
stefnu, félagshyggju og kvenfrelsi,
boðar bæjarbúa til kynningar- og
málefnafundar fimmtudaginn 27.
nóvember kl. 20.30 í Féiagsheimili
Kópavogs.
„Að fundinum standa Aiþýðu-
flokkur, Alþýðubandalag og
Kvennalisti í Kópavogi en þessi
stjórnmálasamtök hafa gert með sér
samkomulag um að stofna nýtt
bæjarmálafélag í Kópavogi og bjóða
fram sameiginlegan lista til næstu
bæjarstjórnarkosninga. Félagið
verður opið öllum bæjarbúum, bæði
flokksbundnum og óflokksbundnum,
sem áhuga hafa á að starfa að bæj-
armálefnum í Kópavogi undir merkj-
um jafnaðarstefnu, félagshyggju og
kvenfrelsis," segir í fréttatilkynn-
ingu.
LEIÐRÉTT
Ekki til sölu
ÞAU mistök urðu í fasteignablaði
Morgunblaðsins í gær, að birt var
umfjöllun um hús við Vesturbrún
ásamt mynd af húsinu Vesturbrún
26. Hið rétta er, að húsið Vestur-
brún 26 er ekki til sölu. Beðizt er
velvirðingar á þessum mistökum.
Umf. Þórsmörk
80 ára
UNGMENNAFÉLAGIÐ Þórsmörk
í Fljótshlíð er 80 ára á árinu. í til-
efni þess verður haldið kaffisam-
sæti í félagsheimilinu Goðalandi
laugardaginn 29. nóvember kl. 21.
Allir félagar, sveitungar og velunn-
arar félagsins, eru velkomnir.
Umf. Þórsmörk var stofnað 10.
nóvember 1917 af nokkrum fram-
takssömum aðilum í Fljótshlíð.
Starfsemi félagsins hefur verið fjöl-
breytt í gegnum tíðina. Allt frá
fyrstu tíð hafa verið stundaðar
íþróttir og rekin öflug leikstarfsemi
þar sem nú síðast var sett upp leik-
ritið Með vífið í lúkunum. Um
margra ára skeið hefur verið staðið
fyrir álfadansi og skógrækt. Einnig
stóð félagið fyrir sundkennslu þar
sem Fljótshlíðungum var fyrst
kennt sund eftir því sem best er
vitað, segir í fréttatilkynningu.
Rætt um sam-
starf í landbún-
aði á norðurslóð
HALDINN verður fundur á Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins mið-
vikudaginn 26. nóvember kl. 14
vegna samstarfs stofnunarinnar og
systurstofnunar hennar í Magadan
í Austur-Síberíu.
Á þessum fundi mun dr. Leo
Ernst, varaforseti Rússnesku land-
búnaðarvísindaakademíunnar, af-
henda Þorsteini Tómassyni, for-
stjóra Rala, skjal frá akademíunni
til staðfestingar á því að hann hef-
ur verið kosinn erlendur félagi í
akademíunni.
Á dagskrá eru ræður og erindi.
Jólakort Barna-
hjálpar SÞ
JÓLAKORT Barnahjálpar Samein-
uðu þjóðanna UNICEF eru komin
á markaðinn. UNICEF hefur selt
jólakort til ijár-
öflunar fyrir
starfsemi sína
síðan 1949.
Fyrsta UNICEF
kortið var mynd
eftir tékkneska
stúlku en hún
sendi mynd sína
í þakklætisskyni
fyrir þá aðstoð sem þorpið hennar
varð aðnjótandi í kjölfar síðari
heimsstyrjaldarinnar.
Allar götur síðan hafa UNICEF
kortin verið listaverkamyndir. Þessi
listaverk eru frá yfir 200 þjóðlönd-
um en ágóðinn af sölunni fer allur
til starfsemi Barnahjálparinnar
meðal barna víða um heim.
Hér á íslandi er það Kvenstúd-
entafélag íslands sem sér um sölu
jólakorta Barnahjálparinnar. Skrif-
stofa félagsins er að Hallveigarstöð-
um, Túngötumegin og er opin fram
að jólum milli kl. 16 og 18. Þar er
hægt að nálgast jólakortin og aðra
hluti sem Bamahjálpin selur auk
þess sem kortunum hefur verið
dreift í helstu bókabúðir landsins.
Boðað til stofnfundar Hollvina-
samtaka Sjómannaskóla Islands
PYRRVERANDI nemendur í Sjó-
mannaskóla íslands og aðrir vel-
unnarar skólans hafa undanfarið
unnið að stofnun samtaka til að
efla tengsl sín við Sjómannaskólann
í þeim tilgangi að leggja málefnum
skólans lið. Samtökin hafa hlotið
nafnið Hollvinasamtök Sjómanna-
skóla íslands.
Stofnfundur samtakanna verður
haldinn í hátíðasal Sjómannaskól-
ans miðvikudagskvöldið 26. nóvem-
ber og hefst kl. 20.30. Allir velunn-
arar skólans geta gers' stofnfélagar
og eru hvattir til að koma á fundinn.
Meðal frummælend;. v< rða Guð-
mundur Kjærnestend fyrrv. skip-
herra, Örnólfur Thorlacius, formað-
ur Hollvinafélags Raunvísindadeiid-
ar Háskóla íslands. Helgi Laxdal,
formaður Vélstjórafélags íslands,
og Guðjón Arnar Kristjánsson, for-
seti Farmanna- og fiskimannasam-
bands íslands. Fundarstjóri verður
Kristján Pálsson, alþingismaður.
Samtökunum er ætlað að vera
breiður vettvangur umræðu og
aðgerða varðandi málefni Sjó-
mannaskólans. Einkum munu þau
láta til sín taka þróun menntunar
fyrir þær starfsstéttir sem skólinn
hefur þjónað frá öndverðu. Á fund-
inum verður gengið frá lögum fyr-
ir samtökin og kosin stjórn þeirra
og fulltrúaráð.
Meginefni fundarins verða þær
hugmyndir sem nefnd á vegum
menntamálaráðherra hefur kynnt
þess efnis að starfsemi Sjómanna-
skólans verði flutt í húsnæði við
Höfðabakka.
„Svo sem kunnugt er hafa hug-
myndir nefndarinnar mætt mikilli
andstöðu. Stjórnendur og nemendur
Stýrimannaskólans og Vélskólans
eru mótfallnir hugmyndunum og
samtök sjómanna hafa ályktað
gegn þeim. Fjöldi einstaklinga úr
ýmsum starfsstéttum hefur látið í
sér heyra. Þá hafa margir þingmenn
lýst andstöðu sinni. Þetta mál er
því efst í huga allra velunnara Sjó-
mannaskólans um þessar mundir,"
segir í frétt frá undirbúningsnefnd.
Að undirbúningi stofnfundarins
hafa m.a. unnið: Asgeir Guðnason,
Björn Herbertsson, Elís Jónsson,
Garðar Pálsson, Georg Árnason,
Guðmundur Hallvarðsson, Guð-
mundur Kjærnested, Guðmundur
Lýðsson, Gunnar Guttormsson,
Gunnar Hafsteinsson, Hannes Þ.
Hafstein, Haukur Óskarsson,
Haukur Þórhallsson, Hálfdán Henr-
ysson, Helgi Hallvarðsson, Jóhann
Ólafur Ársælsson, Kristján Pálsson,
Magni Sigurhansson, Unnþór
Torfason, Þorsteinn Gíslason og
Ævar Guðmundsson.
Konur og'
alnetið
DR. ANNE Clyde, prófessor í bóka-
safns- og upplýsingafræði við Há-
skóla íslands, flytur rabb um konur
og alnetið fimmtudaginn 27. nóv-
ember.
í rabbinu mun Anne annars veg-
ar gefa yfirlit yfir upplýsingaveitur
á alnetinu sem koma að gagni við
rannsóknir í kvennafræðum. Hins
vegar mun hún á grundvelli nýrra
rannsókna fjalla um konur sem
notendur alnetsins.
Rabbið er á vegum Rannsókna-
stofu í kvennafræðum við Háskóla
íslands og er öllum opið. Það fer
fram í stofu 201 í Odda kl. 12 til
13 og er flutt á ensku.
Fyrirlestur
um rafgas og
smárásir
EÐLISFRÆÐIFÉLAG íslands
stendur að fyrirlestraröð þar sem
ungir eðlisfræðingar kynna við-
fangsefni sín. Fyrirlestrarnir eru
öllum opnir.
Fimmtudaginn 27. nóvember
heldur Jón Tómas Guðmundsson,
Raunvísindastofnun, erindi sem
nefnist Rafgas og smárásir, í Lög-
bergi, stofu 101, kl. 16.15.
Rafgas gegnir lykilhlutverki í
framleiðslu smárása. Það er notað
til að æta raufar og óæskilegar
húðir og með því eru ræktaðar
þunnar húðir, einangrandi og leið-
andi. Farið verður yfir nokkrar
helstu gerðir afhleðslna, sem notað-
ar eru við framleiðslu smárása,
kennistærðir þeirra og uppbygg-
ingu. Einkum verður lögð áhersla
á flata spanaða afhleðslu.
Fyrirlestur um
gróður- og jarð-
vegseyðingu
JÓN Geir Pétursson, skógfræðingur
hjá Skógræktarfélagi íslands, held-
ur fyrirlestur um gróður- og jarð-
vegseyðingu fimmtudaginn 27. nóv-
ember nk.
Fyrirlesturinn verður haldinn í
Tækniskóla íslands klukkan 17 og
eru allir sem áhuga hafa boðnir
velkomnir.
Glæpur og
refsing í
Hrafnkels sögu
HERMANN Pálsson fyrrverandi
prófessor flytur fyrirlestur á vegum
Rannsóknastofnunar Kennarahá-
skóla Islands
fimmtudaginn
27. nóvember kl.
16.15. Fyrirlest-
urinn nefnist:
Glæpur og refs-
ing í Hrafnkels
sögu.
Hermann Páls-
son var um árabil
prófessor í ís-
lenskum fræðum
við Edinborgarháskóla. Hann hefur
skrifað fjölda rita um íslenskar forn-
bókmenntir, m.a. bókina Siðfræði
Hrafnkels sögu sem á sínum tíma
vakti mikla athygli. Með fyrirlestr-
um um víða veröld og þýðingum fjöl-
margra fornrita á ensku hefur Her-
mann verið einn helsti framvörður
íslenskrar menningar um áratugi,
segir í fréttatilkynningu.
Fyrirlesturinn verður haldinn í
stofu M-201 í Kennaraháskólanum
við Stakkahlíð. Öllum er heimill
aðgangur.
Gengið um
austurbæ
HAFNARGÖNGUHÓPURINN fer
frá Hafnarhúsinu kl. 20 miðviku-
dagskvöldið 26. nóvember yfir
Þingholt og Skólavörðuholt upp á
Miklatún og um Hiíðarnar inn í
Kringlumýri.
Þar verður val um að fara með
SVR eða ganga til baka. Allir eru
velkomnir.
Hádegisfundur
Orators
ORATOR heldur hádegisfund
fimmtudaginn 27. nóvember í stofu
101 í Odda, Háskóla íslands kl.
12:15.
Umræðuefni fundarins er frið-
helgi einkalífsins og skráning og
meðferð persónuupplýsinga með
sérstakri skírskotun til lífsýna.
Frummælendur verða: Páll Sigurðs-
son, prófessor við lagadeild HÍ, og
Kári Stefánsson, forstjóri íslenskr-
ar erfðagreiningar.
Röng ummæli
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Jóni
Magnússyni, varaformanni Neyt-
endasamtakanna:
„í Morgunblaðinu hinn 22. nóv-
ember 1997 er frétt um fund Neyt-
endafélags Akureyrar sem fram fór
fimmtudagskvöldinu áður. í nefndri
frétt eru eftirfarandi ummæli höfð
eftir Drífu Sigfúsdóttur, formanni
Neytendasamtakanna. „Drífa sagði
það aðeins hálfan sannleik því að
þeir (Viihjálmur Ingi og Jón Magn-
ússon) hefðu beðið sig að taka við
starfí framkvæmdastjóra samtak-
anna en hún afþakkað. Því mót-
mælti Vilhjálmur Ingi og sagði þá
félaga aðeins hafa leitað til Drífu
um að taka að sér formennsku."
Tilvitnun í einkasamtöl í opin-
berri umræðu fínnst mér almennt
ekki góður siður. Það að vitna rang-
lega í einkasamtöl í opinberri um-
ræðu er svo vægt til orða tekið al-
ger ósiður.
Tildrög þess að við Vilhjálmur
ræddum við Drífu á sinum tíma
voru þau að Jóhannes Gunnarsson
hafði lýst því yfir þá nokkru áður
að hann teldi eðlilegt að skil yrðu
gerð milli formennsku og fram-
kvæmdastjórastarfs og væri sér
formennskan ekki föst í hendi. Ég
var Jóhannesi sammála um að eðli-
legt væri að skil yrðu gerð milli
formennsku og framkvæmdastjóra-
starfs. Ýmsir stjórnarmenn úr síð-
ustu stjórn leituðu þá eftir því við
mig að ég tæki að mér formennsku
í samtökunum en þvi neitaði ég á
þeim forsendum að ég hefði hvorki
tíma né fyndist mér það eðlilegt
vegna þess að ég gegndi for-
mennsku í samtökunum á undan
Jóhannesi. Þar sem ég taldi á þeim
tíma að Drífa Sigfúsdóttir hefði
töluverða reynslu í félagsmálastörf-
um virtist mér sem hún gæti verið
góður kostur í formennsku. Ég
leyfði mér því að orða það við hana
hvort hún mundi geta og treysta
sér til að taka að sér formennsku
í Neytendasamtökunum, ef til
kæmi, m.a. hvort hún hefði tíma
til þess. Hún sagðist myndu athuga
það mál og ræddum við það síðan
ekki frekar. Aldrei var rætt um
stöðu framkvæmdastjóra enda
hefði það verið í andstöðu við þá
hugmynd sem ég stóð fyrir og
hægt að fá staðfestingu ýmissa úr
síðustu stjórn að eindreginn viiji
minn var sá að Jóhannes Gunnars-
son yrði áfram framkvæmdastjóri
Neytendasamtakanna eða formað-
ur ef hann kysi það heldur. Þá ligg-
ur líka fyrir að mér hefur aldrei
dottið í hug að Drífa Sigfúsdóttir
gæti verið góður kostur sem fram-
kvæmdastjóri Neytendasamtak-
anna.
Ég reikna með að þessi röngu
ummæli Drífu Sigfúsdóttur um
samtal okkar Vilhjálms Inga og
hennar séu til komin í hita leiksins
og vænti þess að hún leiðrétti um-
mæli sín hvað þetta varðar hið
fyrsta.“