Morgunblaðið - 07.12.1997, Side 25

Morgunblaðið - 07.12.1997, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 1997 25 RÖNTGENMYND af ósæðagúl GÚLLINN hefur þarna verið fyrir aðgerð. meðhöndlaður með innæð. ÞARNA hefur innæðin verið þrædd í gegnum æðarnar í náranum og upp í ósæðina. INNÆÐINNI hefur verið komið fyrir inn í gúlnum á vinstri myndinni. Á hinni sést að innæðar er hægt að nota til að þrengja eða víkka æðar. ósæðina í gegnum aðra æðina í náranum. Eftir að innæðin hefur verið dregin alla leið niður er önn- ur minni innæð svo dregin í hina æðina í náranum og fest við innæð- ina í ósæðinni. Aðalvandinn felst því í því að tengja stuttu innæðina í náranum við innæðina í ósæð- inni,“ segir hann. Hann segir að í Svíþjóð hafi þurft að sauma eftir máli hverja einustu gerviæð enda séu engir tveir með eins æðar. „Nú hefur bandarískt fyrirtæki hafið fram- A golfvöllinn viku eftir aðgerð „ÉG KVARTAÐI yfír því við Sigur- geir Kjartansson, æðaskurðlækni, að eiga erfitt með að dansa vegna verkj- ar í fætinum. Hann æt.lað að láta þræða og mögu- lega blása æðar. Einn dag var hringt frá sjúkra- húsinu og ég beð- inn um að konia. Eftir æðarannsókn og ómskoðun tók ég liins vegar eftir því að hik kom á fólkið. Mér var sýndur tæpiega 5 sm gúll á röntgenmyndinni,“ segir Emil Sigurðsson 73 ára elliiífeyris- þegi og emn af fyrstu íslend- ingunum til að fara í innæða- aðgerð vegna gúis á kviðar- holshluta ósæðar. Emil sagði að sér liefði ver- ið sagt frá því að eðlilegt væri að gera á honum aðgerð af þvi að gúllinn myndi stækka og 5 sm stór gúll væri hættu- legur. Aðgerðin var svo gerð fyrir tæpum tveimur vikum. „Ég fór á sjúkrahúsið á mánu- daginn. Fyn-ihluta dags var ég í rannsóknuin og kom svo aftur um kl. 8 um kvöld- ið. Aðgerðin tók um tvo og hálfan tíina daginn eftir. Ég var deyfður og var því frekar sljór á meðan. Annars man ég að læknarnir báðu stúlkuna, sem ann- aðist inig, um að láta mig ekki finna til. Ég fann voða lítið tU. Eftir aðgerðina svaf ég til morguns á vöknunardeild- inni. Eftir að ég vaknaði var mér rúllað niður á legudeild og mátti borða,“ segir Emil. A dansleik um helgina Emil fór lieim á þriðja degi eftir aðgerðina. „Mér leið fijótlega mjög vel og fór í golf nimri viku eftir aðgerðina. Síðan var ég að láta mér detta í hug að fara að (lansa með eldri borgurum í Sigtúninu á sunnudaginn. Ég hef ehis og ég sagði gaman að því að dansa og flnnst Ieiðinlegt að missa úr.“ Emil Sigurðsson. Haldið sofandi „ALLT í einu fann ég fyrir sánim verk í kviðarholinu einn hversdagslegan vinnudag í septem- ber í fyrra. Ég lét keyra mig heim og var sárþjáður alla leiðina. Einhvern veginn tókst mér að klöngrast inn og hringja í neyðar- númerið 112. Sem betur fer hafði ég vit á að skilja hurð- ina eftir opna svo að sjúkraflutnhiga- menniniir kæmust inn,“ segir Gunnai- Sigurðsson, 58 ára deildar- stjóri hjá VIS, um aðdragand- ann að því að hann fór í opna bráðaskurðaðgerð vegna sprungins giíls í kviðarhols- hluta ósæðarinnar fyrir rúmu ári. Gunnar segir að eftir á að hyggja hafi liann verið búinn að finna fyrir einkennum. „Ég hafði tcngt verk í fótum og nára við skurð eftir hjartaað- gerð frá árinu 1983. Annað hvarflaði ekki að mér og alls ekki að ég ætti á hættu að æð opnaðist." Kátur að ganga 10 metra Hann segist ekki muna eftir komunni á sjúkrahúsið. „Ég veit að í snarhasti var hóað santan læknum og lyúkrunar- liði til að gera á mér bráða skurð- aðgerð enda var æðin farhi að leka. Aðgerðin gekk { sjálfu sér vel og á meðan var mér haldið gaugandi með blóðgjöf. Efth' að- gerðina var mér haidið sofandi í átta daga.“ Hann segist hafa vaknað al- gjörlega máttlaus. „Á gjörgæslu var ég viku til viðbót- ar áður en ég var fluttur á alntenna deild. Eg get nefnt til marks um ástand mitt að fyrstu dagana á al- mennu deildinni var ég voða- lega kátur ef ég gat gengið svona 10 m í göngugrind. Eft- ir mánuð á sjúkrahúsinu var ég útskrifaður og tókst með herkjum að fá að leggjast inn á Grensás til endurhæfingar. Þar vai- ég í þrjár vikur,“ seg- ir hann og tekur fram að hon- um þyki forsendan fyrir því að sjúklingar nái sér eftir jafn ei*fiða aðgerð að fá notið end- urhæfingar undir handleiðslu fagmanna. Hann hafí reynslu af hinu og viti að nánast ógjömingur sé að vinna einn að eighi cndurhæfingu. Vinnufær varð Gttnnar þrem- ur og hálftim mánuði eftir að- gerðina. Gunnar Sigurðsson. leiðslu og sölu á innæðunum. Sala er háð ákveðnum skilyrðum og þvi hafa ekki öll sjúkrahús fengið vör- una afgreidda. Við vorum sam- þykktir enda gat ég vísað til vinnu minnar í Svíþjóð og Jón er virtur röntgenlæknir hér. Okkur hafði svo tekist að tryggja okkur liðsinni tveggja reyndra sænskra lækna, röntgenlæknis og æðaskurðlækn- is, við fyrstu aðgerðirnar hér,“ segir hann og tekur fram að lækn- unum til aðstoðar hafi því til við- bótar verið röntgentæknir, skurð- hjúkrunarfræðingur, svæfingar- læknir og svæfingarhjúkrunar- fræðingur. Skemmst er frá því að segja að 4 aðgerðir vegna gúla á kviðarhols- hluta ósæðar og nærliggjandi æð- um tókust eins og best varð á kos- ið. Jón segir að aðgerðirnar hafi tekið um tvo og hálfan tíma hver. „Sjúklingarnir voru aðeins deyfðir og fóru heim á þriðja degi. Allir fjórir voru orðnir vinnufærir að- eins viku eftir aðgerðirnar," segh' hann. Stefán minnir á að ekki aðeins sjúklingarnir hagnist á hinni nýju tækni því að meðhöndlunin sé þjóðhagslega hagkvæm. Heildar- kostnaður sé á bilinu 600-700.000 kr. á meðan hver dagur á gjör- gæslu kosti um 120.000 kr. Ótalin sé þar með allur annar sjúkrahús- kostnaður vegna opinnar aðgerðar og margfalt vinnutap. Þörf á innæðaskurðstofú Sérfræðingar í æðasjúkdómum sjá fram á að verkefnum eigi eftir að fjölga töluvert í nánustu framtíð og var t.d. 35% fjölgun í framan- greindum sjúklingahópi á Sjúkra- húsi Reykjavíkur á milli áranna 1996 og 1997. Skýringamar eru annars vegar fólgnar í því að fleiri þjást af sjúkdómum í slagæða- og bláæðakerfinu, t.d. vegna hækk- andi aldurs þjóðarinnar, og hins vegar að með innæðatækni er sí- fellt hægt að hjálpa fleirum. Nú þegar er innæðatækni notuð til að „blása“ og „fóðra“ æðar og leysa upp blóðtappa. Stefán segir að á Sjúkrahúsi Reykjavíkur hafi verið safnað saman dýrmætri þekkingu á sviði æðasjúkdóma. Hápunkturinn hafi hins vegar án efa verið að fram- kvæma aðgerðirnar fjórar enda geti ekki öll hátæknisjúkrahús í heiminum státað af slíkum aðgerð- um. „Okkar Akkilesarhæll er hins vegar hreint hörmulegur tækja- búnaður. Hin nýja tækni þrýstir á að komið verði á fót fullkominni aðstöðu til innæðaaðgerða á sjúkrahúsinu. Innæðaaðgerðastof- an yrði búin fullkomnu æðar- öntgentæki og sérútbúnu gegnum- lýsanlegu skurðarborði. Þar yrðu að vera hjálpartæki til æðarann- sókna, s.s. þrýstimælitæki, blóð- flæðimælitæki, innæðaómskoðun- artæki æðasjá o.fl. Fullkomin að- stamaða yrði til allra svæfinga og deyfinga eins og á öðrum skurð- stofum." síðurnar i eru í... símaskránni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.