Morgunblaðið - 07.12.1997, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 1997 55 %
i
Vönduð
kristalsglös
15%
jólaafsláttur
er veittur af öllum
vörum yfir 2.000,-kr.
gegii stadgreiðslu
SILI UKBÚUIX
FÓLK í FRÉTTUM
Neistann
Jólabjallan 1997
Handmálaður safngripur
úrpostulíni kr. 1.980,-
Glcesileg postulínsstell
vantar
TÓNLIST
Gcisladisku r
ESKIMO
Eskimo, geislaplata Jóhanns Helga-
sonar. Öll lög eftir hann, textar eftir
hann og Reg Meuross. Útsetningar
eftir Jon Kjell Seijeseth og Jóhann.
Stjóm upptöku: Jon. Stjóni upptöku
á söng: Guðrún Einarsdóttir. Rindi
gefur út. 1.999 kr. 43 mín.
ÞETTA ER fimmta sólóplata
Jóhanns Helgasonar, eins okkar
reyndustu tónlistarmanna. Hann
hefur víða komið við, var m.a. í
hljómsveitinni Change, hefur unn-
ið mikið með Magnúsi Þór Sig-
mundssyni og oftsinnis tekið þátt
í Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva.
Jóhann hefur löngu sannað að
hann er fær lagasmiður, t.a.m.
með plötunni KEF sem hann sendi
frá sér um síðustu jól. En með
Eskimo, nýjustu plötu sinni, hefur
hann skipt um stíl. Travelling
Wilburys-poppið hefur vikið fyrir
mjúkum og dauðhreinsuðum
hljómi, sem minnir reyndar einna
helst á þátttökulög í Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva síðustu
ár. Að mínu mati er það ekki góð
þróun og ég veit ekki hvað veldur
henni, en ugglaust hefur val á
upptökustjóranum Jon Kjell Selje-
seth eitthvað að segja.
Jóhann er úrvals söngvari, með
ómþýða og mjúka rödd sem fellur
sem silkibindi að þeim slétta barmi
sem tónlist hans er. Þó verður að
segjast eins og er að enskan er
honum ekki nógu töm á tungu,
útkoman hefði orðið betri ef text-
arnir hefðu verið á móðurmálinu.
Lögin eru vel samin, en þau eru
einum of slétt og felld. Einhvem
neista vantar, sem t.d. er að finna
í laginu Keflavíkumætur, sem Jó-
hann samdi með Rúnari Júlíussyni
og er á plötu þess síðarnefnda.
Kannski er neistann að finna í
útsetningunni. Besta lagið er
Laugh or Cry sem minnir laga
mest á fyrri verk Jóhanns; afar
vel samið og grípandi popplag.
Textar em eftir breska tónlist-
armanninn Reg Meuross og em
margir hveijir miklir bálkar, ágæt-
lega samdir. Fáir em þó eftir-
Morgunblaðið/RAX
minnilegir eða ijalla um mikilsverð
málefni, en það hefur að vísu hing-
að til ekki verið talið æskilegt í
dægurtónlist.
Platan Eskimo er ekki í hópi
bestu verka Jóhanns Helgasonar,
enda þyrfti hún að vera góð til
að falla í þann hóp. Hún er þó ljúf,
kannski einum of ljúf, en unnend-
ur þægilegrar og áreynslulausrar
tónlistar verða ekki fyrir vonbrigð-
um með hana.
ívar Páll Jónsson
Nákvæmni.
Tækni er ekki eingöngu vísindi, heldur líka list.
Allt frá því fyrsta Samurai sverðið var smíðað, hefur
Japan verið þekkt fyrir að skapa heimsins vönduðustu
tækni. Hjá EPSON trúum við á það að lifa í samræmi
við þann orðstír, með því að gefa þér fremstu tækni
og hafa þannig áhrif á líf þitt og starf. Skuldbinding
okkar við stöðugar nýjungar hefur skipað EPSON
afurðum sess í fylkingarbroddi tækninnar.
PhotoReal™ blekdæluprentarar með einstakri
EPSON Piezo kristaltækni eru að gerbylta heimi
borðlitaprentara. Háþróuð tölvumyndspeglunartækni
leysir sköpunargleði þina úr læðingi. Feikn skýr,
hásamþjöppuð, margmiðla sýningarvél gæðir allar
hugmyndir þínar lífi. EPSON, því tækni er líka list.
http://www.epson.com
EPSON