Morgunblaðið - 07.12.1997, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 07.12.1997, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 1997 37 v ELLIÐAVATN. Myndin er tekin um 1900. Búið er að byggja timburhús við vesturgafl steinhússins (fjær á myndinni) en í því fæddist Einar. HÚSIÐ Glasgow á Vesturgötu 5a. Það þóttu mikil tíðindi í höfuðstaðn- um 1895 þegar Einar Benediktsson sem ekki var talinn eiga krónu með gati, keypti þetta hús en það var talið hið stærsta á land- inu. Einar og Vaigerður hófu búskap í húsinu sumarið 1899. EINAR Benediktsson um þrítugt. flytja málið, að hann hafí bitið í sín eigin hom svo fast að úr hvoftinum hafí hrokkið tvær vígtennur. Það var skaði.“ Einvega í kvensöðli Lækjarbotnar eru áningarstaður ferðamanna og þar dvelur Einar um kvöldið... Blaðið Reykjavík, sem fylgist með hverju fótmáli Einars, segir um dvöl hans í Lækjarbotnum: „Þar hitti hann 20-30 austan- menn, er voru á suðurleið, og „trakteraði“ þá alla á því góðgæti, sem á Lækjarbotnum fæst keypt, og voru menn glaðir þar. Hreyfing- in virðist hafa haft heldur góð áhrif á heilsu sýslumannsins því að lítt bar þar á helti hans. Þaðan lagði hann upp ríðandi og reið einvega í kvensöðli. Er vonandi að hann liðk- ist við ferðalagið svo að hann geti ekið og riðið í kvensöðli um Rang- árvallasýslusléttlendið." Fregnin um að Einar Benedikts- son láti sig hafa það að ríða í kven- söðli flýgur með eldingarhraða um landið og verður tilefni umtals og háðsglósa um sýslumanninn. En fátt sýnir kannski betur hugrekki þessa einstaka manns. Hann hefur gaman af því að ögra fólki. Um svipað leyti og Einar fer austur send- ir hann bréf til Stjórnarráðsins þar sem hann biðst lausnar. Hann er kominn aftur til Reykja- víkur í byrjun apríl og 9. apríl fær hann lausn frá embætti með 400 króna eftir- launum. Þá ligg- ur hann í lungnabólgu á Hótel Reykja- vík. Þegar Einar stendur upp úr veikindunum tekur hann að skrifa greinar í blöð um banka- mál og sést af þeim hvert hug- urinn stefnir. Fyrstu greinina ritar hann undir dulnefninu Reykvíkingur í Isafold 4. maí. Nefnist hún Peningaþörfin. Hann kvartar þar sáran undan peninga- skorti í landinu og segir að þeir tveir bankar sem fyrir eru í land- inu, Landsbankinn og hinn nýstofn- aði íslandsbanki, séu ekki nógu léttvígir. Þar á hann við að þeir séu svo háðir löggjöfinni að þeir geti „ekki víkkað út starfssvið sitt né leitt lífsstraum peningamagnsins inn í atvinnugreinar almennings að neinum mun“. Hann segir að Landsbankinn eigi að vera þjóð- banki með seðlaútgáfurétti en ís- landsbanki eigi að „losast undan seðlaútgáfu og gjörast „prívat- banki“ og gæti hann átt ekki síður arðberandi starf fyrir höndum því hér er sannarlega mikið að vinna, ekki síður en í nágrannalöndunum sem eru úttroðin af peningum frjálsra, léttvígra banka“. Til bráðabirgða vill Einar hins vegar stofna víxilbanka. I utanför sinni um veturinn hafði Einar komist að því eða öllu heldur fengið staðfestingu á því hvað létt hann á með að afla pen- inga til fyrirtækja á Islandi og hversu auðvelt hann á með að fá erlenda áhrifamenn á mál sitt. Smám saman verður það staðfast- ur ásetningur hans að flytja til út- landa og spreyta sig á því verkefni að afla fjármagns til Islands. Hug- myndir um til hvers á að nota það hefur hann nógar. „Þér djöfuls vegadónar“ Einar fer til útlanda seint í júní til þess að ræða við ýmsa vini sína, bankamenn og kaupsýslumenn og til þess að greiða fyrir flutningi fjöl- skyldu sinnar til Edinborgar. Þar hyggst hann setjast að til að byija með, miðja vegu milli Kristjaníu, Kaupmannahafnar og London. Hann kemur til baka með Skálholti 26. júlí 1907. Einar fer austur að Stóra-Hofi í síðasta sinn skömmu eftir að hann kemur heim. Hann fer til að sækja nauðsynlega búsmuni sem fjöl- skyldan þarf að hafa með sér til út- landa. Hann fær undir sig tví- hjólaðan fjaðravagn, innfluttan fr-á Noregi, svokallaðan lystivagn með bólstruðum sætum sem tveir menn geta setið í en einum hesti er beitt fyrir. Slíkir vagnar þykja ákaflega fínir og eru einungis notaðir af stórhöfðingjum. Vagninn kemst þó ekki nema austur að Ægissíðu. Þaðan verður Einar að fara ríðandi - í kvensöðli - þann spöl sem eftir er að Hofi. Beygur er í Einari er hann kem- ur austur að Stóra-Hofi. Það er svo óhreint þar. Hann er sannfærður um að Sólborg hin svarthærða, sem dó í höndunum á honum norður í Þistilfirði fyrir 15 árum, hafist við í húsinu og fylgi honum. Fólk heyrir til hennar. Nú ætlar hann að gera ráðstafanir til að skilja hana eftir, losna við hana í eitt skipti fyrir öll. Gamall maður og vitur hefur ráð- lagt honum um hvemig hann eigi að fara að. Þegar hann er búinn að gera ráðstafanir til að fá flutning á hluta af búslóð sinni og hefur fengið Tómasi Þórðarsyni ráðsmanni bús- forráð á Stóra-Hofi ríður hann rak- leiðis niður að Odda og fer þar til altaris hjá séra Skúla Skúlasyni. Samkvæmt ráðleggingum gamla mannsins má hann aldrei koma að Stóra-Hofi aftur. Og það gerir hann ekki. Einar er léttur í skapi er hann heldur af stað frá Ægissíðu í fjaðra- vagni sínum 31. júlí 1907. Hann er með hressingu á pela og góðglaður. Heyskapur stendur sem hæst og það er ilmur úr jörðu. Á bæjum er fólk að slá, raka eða binda hey í bagga. Vinnukonur með skuplur á höfði, svo að rétt sér í andlit þeirra, og sólbrenndir vinnumenn með hattkúfa á kolli sjást hvarvetna á engjum og túnum. Á vagnveginum er hópur vegavinnumanna að störf- um. Þeir eru að undirbúa komu Friðriks VIII, sjálfs konungsins, sem von er á austur eftir örfáa daga. Vegavinnumennimir gera augnablikshlé á vinnu sinni þegar Einar Benediktsson nálgast á vagni sínum. Um leið og hann ekur hjá á fleygiferð kallar hann glettnislega: „Þér djöfuls vegadónar." Og svo er hann horfinn í reykskýi. • Bókartitill er Einar Benedikts- son I en höfundur er Guðjón Frið- riksson. útgefandi er Iðunn. Bókin er alls 391 bls. með fjölda mynda. JÓLALÍNAN 1997 Fatnaöur íþróttagaliar Barnafatnaður Swoosh peysur UTILIF Glæsibæ - 581 2922 http://www.nike.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.