Morgunblaðið - 30.12.1997, Page 2

Morgunblaðið - 30.12.1997, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Almennar launa- og skattabreytingar um áramótin Laun flestra hækka um 4% um áramót Persónuafsláttur lækkar úr 23.901 kr. í 23.360 1. janúar Tveir skiptu 30 milljónum TVEIR heppnir eigendur miða í Happdrætti Háskóla íslands skiptu með sér 29,8 milljónum þegar dregið var í Heita pottin- um í gærkvöldi. Fékk annar þeirra 13,2 millj- ónir, þar sem hann átti fjóra einfalda miða með sama núm- erinu, en hinn fékk 16,6 milljón- ir á trompmiða. Vinningsmið- amir voru seldir í Reykjavík. Jólagjöfun- um skipt MIKIL örtröð var fyrir utan versl- un Hagkaups í Kringlunni í Reykja- vík í gær og biðraðir mynduðust þegar fólk kom til þess að skipta bókum og öðrum hlutum sem það hafði fengið í jólagjöf en hentuðu af ýmsum ástæðum ekki. Að sögn Páls Ársælssonar, versl- unarstjóra sérvöru Hagkaups í Kringlunni, er það ekki nýtt að fyrstu virku dagamir eftir jól séu erfiðir í stórum verslunum og telur hann fjölda þeirra sem koma til þess að skipta svipaðan og áður. „Við reynum að Ieysa eins fljótt og vel úr þessu og hægt er. í þeim til- gangi settum við upp fjóra kassa fyrir framan búðina og við hvern þeirra eru þrír starfsmenn, þannig að það eru tólf manns f þessu ein- göngu,“ segir Páll. ÖLL laun og launataxtar flestra launþega landsins hækka um 4% um næstu áramót samkvæmt ákvæðum kjarasamninga sem gerð- ir voru á árinu. Frá sama tíma hækka einnig allar bætur almanna- trygginga og bætur félagslegrar að- stoðar um 4%, skv. reglugerð sem heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra hefur gefið út. Um áramót lækkar tekjuskattshlutfallið í stað- greiðslu um tæp 1,9%. Skattleysis- mörk hafa verið óbreytt á árinu sem er að líða en eiga að hækka um 2,5% 1. janúar nk. en á móti mun per- sónuafsláttur lækka frá þessu ári úr 23.901 kr. á mánuði og verður 23.360 kr. samkvæmt upplýsingum ríkisskattstjóra og fjármálaráðu- neýtisins. I kjarasamningum allra félaga og landssambanda innan Alþýðusam- bandsins og samningum flestra op- inberra starfsmanna er kveðið á um 4% launahækkanir um þessi ára- mót. Laun á almenna vinnumarkað- inum breytast svo ekki aftur fyrr en 1. janúar 1999 en þá hækka laun í flestum tilvikum um 3,5-3,65%. Laun grunnskólakennara hækka hins vegar aðeins minna en annarra um áramót eða um 3,5% en þau hækka aftur um 1,5% 1. ágúst nk. í samningum flestra stéttarfélaga op- inberra starfsmanna er gert ráð fyrir að tekið verði upp nýtt launa- kerfi á árinu og hækka laun viðkom- andi starfsmanna yfirleitt um 1,5% til viðbótar á komandi ári. Mánaðar- laun meinatækna sem samið hafa um nýtt launakerfi hækka heldur meira um áramótin en flestra ann- arra eða um 5,56% en laun þeirra breytast ekki aftur fyrr en um ára- mótin 1998/99. 70 þús. kr. Iágmarkslaun frá áramótum 1. janúar tekur gildi regla sem ASI og samtök vinnuveitenda sömdu um í kjarasamningum um 70 þúsund kr. lágmarkstekjur fyrir þá starfsmenn, 18 ára og eldri, sem vinna fullar 173,33 stundir á mánuði eða 40 stunda vinnuviku. Greiða skal starfsmönnum sem ekki ná þessum tekjum mánaðarlega upp- bót á laun. VSÍ hefur beint þeim til- mælum til félagsmanna sinna í fréttabréfi samtakanna að þeir láti alla starfsmenn í 50% starfshlutfalli eða meira njóta þessarar reglu um 70 þúsund kr. lágmarkstekjur. Bent er á í blaðinu að til launa í þessu sambandi teljist allar greiðslur, þ.m.t. hvers konar bónusar, álags- og aukagreiðslur sem falla innan 173,33 vinnustunda. Hátekjuskattur 7% frá 1. janúar og barnabætur breytast Um áramótin hækkar sérstakur tekjuskattur, svokallaður hátekju- skattur, úr 5% í 7%. Jafnframt hækkar tekjuviðmiðun skattsins úr 234 þús. kr. í 260 þús. kr. hjá ein- staklingum og úr 468 þús. í 520 þús. hjá hjónum. Vegna almennra skattalækkana sem ákveðnar voru sl. vor og nú aft- ur um áramótin jafngildir þessi breyting því að hæsta skattþrep í tekjuskattskerfinu lækki úr 47% í 45%. Um áramótin koma einnig til framkvæmda töluverðar breytingar á barnabótakerfinu þegar almennar bamabætur og tekjutengdur barna- bótaauki verða sameinuð í eitt, tekjutengt bamabótakerfi. Eiga breytingarnar að leiða til þess að tekjuskerðingarhlutföll bamabóta- aukans lækki úr 15% í 11% með þremur börnum eða fleiri, úr 11% í 9% með tveimur börnum og úr 6% í 5% með einu bami. Morgunblaðið/RAX Orsök eldsvoðans sem dró mann til dauða á Vopnafírði Bensíni var blandað við steinolíuna Spáð bál- hvössu veðri um land allt VEÐURSTOFAN spáir miklu hvassviðri um land allt í dag, 9-10 vindstigum og sumstaðar jafnvel 11 vindstigum á austan og suðaustan, að sögn Unnar Ólafsdóttur, veðurfræðings. „Það má búast við bálhvössu veðri um allt land og það má alveg reikna með því að innan- landsflug falli niður,“ sagði Unnur í samtali við Morgun- blaðið í gærkvöldi. Hún gerði ráð fyrir að hvassviðrið myndi byrja suðvestan til í nótt og færast norðaustur yfir landið í dag. Þessu veldur mjög djúp lægð nokkuð nálægt suðvest- urströndinni, sem verður þar í allan dag. NIÐURSTÖÐUR rannsókna á sýn- ishomum af steinolíu frá bensínstöð umboðsmanns Olíufélagsins hf. á Vopnafirði staðfesta að bensfn hefur blandast saman við steinolíu í stein- olíutanki stöðvarinnar. Þeir sem hafa keypt steinolíu á bensínstöð umboðsmanns Olíufélagsins hf. á Vopnafirði á síðustu sex mánuðum og hafa hana enn í vörslu sinni era varaðir við notkun hennar. Lögreglurannsókn stendur yfír á ástæðum og afleiðingum blöndunar bensíns í steinolíutankinn. Banaslys varð á Vopnafirði um jólin þegar eldur læstist í aldraðan mann sem bætti steinolíu á lampa utan við hús sitt. Hálfum mánuði áður eyðilagð- ist hús mannsins í eldi sem kom upp við svipaðar aðstæður. Varað við steinoliu á Vopnafirði Steinolía verður mun eldfimari en ella sé bensíni blandað í hana. Olíu- félagið hf. hefur sent frá sér til- kynningu þar sem varað er við notkun steinolíu sem keypt hefur verið hjá umboðsmanni félagsins á Vopnafirði síðustu sex mánuði. Er skorað á eigendur steinolíunnar að skila henni til Olíufélagsins í skipt- um fyrir nýja steinolíu. „Olíufélagið hefur lagt mikla vinnu í að rannsaka málið á eigin vegum. Þrátt fyrir það liggur enn ekki fyrir hvenær og með hvaða hætti blöndunin hefur átt sér stað. Lögreglurannsókn stendur yfir á ástæðum og afleiðingum framan- greindrar blöndunar. Olíufélagið hf. mun leggja sitt af mörkum til að mál þetta verði upplýst að fullu hið fyrsta," segir í fréttatilkynningunni. Geir Magnússon, forstjóri Olíufé- lagsins hf., segir að félagið líti málið mjög alvarlegum augum. Hann kvaðst vera því ókunnugur hvort búast mætti við skaðabótakröfum í kjölfar þessa máls. Það væri í eðli- legum farvegi í höndum yfirvalda. Fargjöld í innan- landsflugi að hækka Uppsagnir hjáFÍ BÆÐI Flugfélag íslands og ís- landsflug ætla að hækka far- gjöld í innanlandsflugi á næsta ári en hafa ekki viljað upplýsa hve hækkunin verður mikil. Fram kom í fréttum sjónvarps- stöðvanna í gærkvöldi að starfsfólk Flugfélags íslands hefði fengið afhent uppsagnar- bréf vegna endurskipulagning- ar á rekstri félagsins. Páll Halldórsson fram- kvæmdastjóri Flugfélags ís- lands staðfesti í gær að verið væri að undirbúa breytingar á fargjöldum en mjög skiptar skoðanir væra hjá Flugfélagi Islands um upphæðir og skil- mála. Að sögn Ómars Bene- diktssonar, framkvæmdastjóra Islandsflugs verða fargjöld fé- lagsins hækkuð seinnipartinn í janúar. Skiptar skoðanir séu um breytingarnar innan félags- ins en ljóst sé að þær leiði ein- hverja hækkun af sér. Landi upp- tækur á Flúðum LÖGREGLAN á Selfossi gerði upptæka um 140 lítra af gambra, 15 lítra af landa og fullkomin suðutæki í húsi á Flúðum í gær. Einn maður er granaður um að eiga landann og tækin. Ekki er ljóst hvað hann hefur lengi stundað iðju sína. Brotist hefur verið inn í all- marga sumarbústaði á Suður- landi síðustu daga. Litlu fé- mætu hefur verið stolið, en talsverðar skemmdir hafa hins vegar verið unnar á nokkrum bústöðum. Skemmdir voru unnar á þremur bústöðum í Asabyggð, fjóram í Norður- kotslandi og bústöðum í Önd- verðarnesi. Þá var lögreglunni á Selfossi tilkynnt um eld við félagsmið- stöðina í Hveragerði í gær- kvöldi. í Ijós kom að eldur hafði verið kveiktur við úti- hurð. Eldurinn var slökktur áður en hann olli miklu tjóni, en hann hafði þó náð að læsa sig í klæðningu. Flugeldur inn um gluffffa FLUGELDUR fór mn um glugga á húsi við Rósarima í Reykjavík í gær og kveikti þar í gluggatjöldum og olli meiri skemmdum á baðherbergi. Engin slys urðu þó á fólki. Lögi-eglan í Reykjavík brýn- ir fyrir fólki að fara með gát þegar skoteldar era annars vegar og að fylgjast með að börn séu ekki að fikta við heimagerðar sprengjur. Segir lögreglan að óvenju mikið hafi verið um smábrana og óhöpp sem rekja megi til skotelda og ljóst sé að menn verði að taka sig á í þessum efnum. Biskupa- skipti um áramót VIÐHÖFN verður á Biskupsstofu föstudaginn 2. janúar kl. 10 þega1- Karl Sigurbjörnsson, verðandi bisk- up íslands, tekur við embættinu sf Ólafi Skúlasyni. Karl Sigurbjömsson kvaddi söfn- uð sinn með messu í Hallgrímskirkj11 síðastliðinn sunnudag og á gamlárs- dag messar Ólafur Skúlason í Bu' staðakirkju kl. 18. Fyrsta messa Karls sem biskups verður í Dóffl- kirkjunni á nýársdag kl. 11.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.