Morgunblaðið - 30.12.1997, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1997
MORGTJNBLAÐIÐ
ERLENT
Þúsundir indíána hafa flúið heimili sín í Mexíkó í kjölfar fjöldamorðs í Chiapas-héraði
Deilt um
ástæður
morðanna
Polho, San Cristobal de Las Casas. Reuters.
ÞÚSUNDIR índíána í Chiapas-hér-
aði í suðurhluta Mexíkó hafa flúið
heimili sín af ótta við árásir vopn-
aðra hersveita eftir að 45 manns
voru myrtir í þorpinu Acteal í byrj-
un síðustu viku.
Mireille Racatti, formaður mexík-
önsku mannréttindasamtakanna,
sagði að 3.500 flóttamenn hefðu
komið til bæjarins Polho á laugar-
dag og Domingo Perez Paciencia,
forseti uppreisnarráðs Zaptista-
hreyfingarinnar í Chenalho, sagði
8.000 manns, á flótta undan vopnuð-
um mönnum, vera í bænum.
Fjölskyldudeilur
sagðar orsökin
Talsmaður skrifstofu ríkissaksókn-
ara tilkynnti á fóstudag að 16 menn
hefðu verið handteknir í tengslum við
rannsókn málsins auk þess sem máli
tveggja unglinga hafi verið vísað til
viðeigandi yfirvalda.
Einnig kom frarn í tilkynningunni
að 24 til viðbótar yrðu sennilega
handteknir innan nokkurra daga. Þá
voru öflugar hersveitir fluttar til hér-
aðsins á fimmtudag til vemdar
óbreyttum borgurum. Herflutningar
og handtökur eru þó ekki sögð hafa
róað flóttafólkið, sem er af Tzotzil-
ættbálki. Jorge Madrazo ríldssak-
sóknari sagði á fundi með frétta-
mönnum í Mexíkóborg á föstudag
að ástæður tilræðisins væru fjöl-
skyldudeilur sem gengið hafi frá
kynslóð til kynslóðar og snemst að
mestu um stjórnmálaleg og efna-
hagsleg völd.
Hann tók þó fram að áfram yrði
unnið að rannsókn málsins og því
hvemig árásarmennirnir hafi kom-
ist yfir AK-47 skotvopn sem einung-
is em ætluð hernum. A laugardag
var síðan borgarstjóri Chenalho
handtekinn og ákærður fyrir að
hafa útvegað árásarmönnunum
vopnin.
Skýringum stjómvalda um fjöl-
skyldudeilur hefur verið tekið með
mikilli tortryggni og m.a. hefur ver-
ið bent á að herflutningar séu sterk
viðbrögð við fjölskyldudeilum. Þá
hefur aðgerðarleysi stjómvalda
vakið upp spurningar en prestur á
svæðinu hringdi tvisvar á skrifstofu
héraðsstjóra á meðan á umsátrinu
stóð og bað um aðstoð. Julio Cesar
Ruiz Ferro héraðsstjóri segist hafa
bragðist við með því að hringja í
lögreglu en fengið þar þær upplýs-
ingar að allt væri með felldu. Há-
værar kröfur hafa verið á lofti um
Reuters
MOTMÆLENDUR söfnuðust saman fyrir utan lieimili Ernestos Zedillos, forseta Mexíkó, á sunnudag til að
mdtmæla fjöldamorðinu í Acteal í Chiapas-héraði í síðustu viku.
að Ruiz og Emilio Chuayffet innan-
ríkisráðherra segi af sér í kjölfar til-
ræðisins. Þeir segjast hins vegar
ekki hafa neitt slíkt í hyggju.
Bent á stjdrnvöld
Sjónarvottar að árásinni segja að
árásarmennirnir, sem allir vora
klæddir bláum einkennisbúningum,
hafi beðið Guð um velgengni áður
en þeir hófu árásina og haldið sigur-
reifir á braut eftir blóðbaðið sem
stóð í fimm tíma.
A meðal hinna föllnu, sem margir
vora skotnir í bakið, vora 14 böm
og 21 kona, þar af fjórar vanfærar.
Þetta var mesta blóðbað sem orð-
ið hefur frá því blóðug uppreisn
indíána hófst í héraðinu í janúar ár-
ið 1994. Mannréttinndahreyfingar
og þeir sem komust lífs af úr
árásinni hafa bent á hersveitir sem
njóti stuðnings Byltingarflokksins,
stjómarflokks landsins. Hugo Tra-
jillo, leiðtogi friðarhreyfingarinnar
CNOP, segir að útskýringum
stjórnvalda sé ætlað að draga at-
hygglina frá því sem raunverulega
sé að gerast. Romo Cedano, sem
starfar hjá mannréttindamiðstöð-
inni FBCHR í San Cristobal de Las
Casas, segir að um hljóðlátt stríð sé
að ræða þar sem herinn og ríkis-
stjórnin standi sameinuð gegn
indíánum sem flestir styðji
Zapatista-hreyfinguna sem berst
fyrir réttindum þeirra. Cedano
heldur því einnig fram að stjórnvöld
hafi staðið fyrir árásinni á Acteal í
þeim tilgangi að kalla fram viðbrögð
Zapatista og réttlæta herflutninga
til svæðisins.
Clausen, 8 ára
Rey'kiavík
Herdis er
semhlutuFr
Pósts og s
munnámið
Söagkoaa?
Framtíðarböm og Póstur og sími hófu í vetur samstarf um að
styrkja æsku landsins til náms í tölvu- og upplýsingatækni.
Framtíðarböm er alþjóðlegur tölvuskóli fyrir böm á aldrinum 4 -14
ára. Námsefnið byggist á þemavinnu þar sem bömin vinna með
tölvur og fræðast um tölvutengt efni á skemmtilegan og skapandi
hátt.
Nýskráningu í
skólann fylgiz...
... kvöldnámskeið fyrix
mömmu og pabba, i
boði Pósts og síma, þaz
sem Inteznetið og notk-
nn þess vezðuz kynnt
Útibú skólans em í Reykjavik, Keflavík, Vestmannaeyjum og á ... afsláttuz af Intemets-
ísafirði og Akureyri. Einnig er kennt í gmnnskólanum í Sandgerði. áskzift hjá Pósti og síma
Upplýsirigdr og skráaiog er í símd 553 3322
. Fzamtíðazbaznaboluz
RAMTÍDARBÖRN
Kaunda 1 hung-
urverkfalli
Lusaka, Höfðaborg. Reuters.
KENNETH Kaunda, fyrrverandi
forseti Zambíu og leiðtogi UNIP,
helsta stjórnarandstöðuflokks lands-
ins, er sagður veikburða vegna
hungurverkfalls. Kaunda, sem er 73
ára og var handtekinn á jóladag, hef-
ur sagt lögfræðingum sínum og fjöl-
skyldu að hann hyggist hvorki
bragða vott né þurrt fyrr en ákæra
hafi verið lögð fram á hendur sér.
Kaunda, sem enn hefur ekki verið
ákærður, er í haldi í rammgerðu
fangelsi í borginni Kabwe í miðhluta
Zambíu. Hann mætti til stuttrar yf-
irheyrslu á fóstudag og átti aftur að
mæta fyrir rétti í gær.
Kelly Walubita, utanríkisráð-
herrra Zambíu, hefur staðfest við er-
lenda stjómarerindreka að handtaka
Kaunda tengist uppreisnartilraun
nokkurra liðsforingja fyrir tveimur
mánuðum, en þeir eru taldir hliðholl-
ir honum. Bæði Kaunda, sem nýlega
sneri heim eftir að hafa yfirgefið
landið áður en uppreisnartilraunin
var gerð, og UNIP hafa staðfastlega
neitað nokki'um tengslum við upp-
reisnarmenn.
Leiðtogar Bandaríkjanna, Bret-
lands og Líbýu hafa harðlega mótr
mælt því að Kaunda sé hafður í haldi
án ákæra. Þá hafa leiðtogar ná-
grannaríkjanna þegar hafið tilraunir
til að fá Frederick Chiluba, forseta
landsins, til að finna friðsamlega
lausn á málinu. Stan Mudenge, utan-
ríkisráðherra Zimbabwe, fór til fund-
ar við hann á sunnudag með skilaboð
frá Robert Mugabe, forseta
Zimbabwe og formanni Einingarsam-
taka Afríkuríkja (OAU). Þá mun Juli-
us Nyerere, fyrrvemadi forseti Tanz-
aníu, halda til Zambíu í dag þar sem
hann mun reyna að miðla málum.
Kommiínistaflokkur Víetnams
Herforing’i skip-
aður formaður
Ilanoi. Reuters.
EINN af áhrifamestu mönnum innan
víetnamska hersins hefur verið skip-
aður formaður víetnamska kommún-
istaflokksins en það er valdamesta
pólitíska staða landsins. Undirhers-
höfðinginn Le Kha Phieu, tekur við af
hinum áttræða Do Muoi sem hefur
sagt af sér stöðu sinni í miðstjóm og
forsætisnefnd flokksins.
Phieu er lítt þekktur utan heima-
landsins og hefur litla reynslu í efna-
hagsmálum. Hann hefur áður varað
við hættunni á því að utanaðkomandi
öfl hyggist stuðla að efnahagslegu og
stjórnmálalegu frjálsræði til að grafa
undan kommúnisma og hefur hvatt
herinn til að vera á varðbergi gagn-
vart „heimsvaldasinnum" sem hvetji
til óróa og eyðileggi sósíalisma. Telja
vestrænir sendimenn í Víetnam að
Phieu sé Phieu sé afar flokkshollur
og ekki líklegur til að stuðla að efna-
hagsumbótum. Nú blasir hins vegar
við mesta efnahagskreppa sem Ví-
etnamar hafa staðið frammi fyi-ir frá
því að þeir hófu efnahagsumbætur á
síðasta áratug. A flokksþinginu um
helgina, þar sem Phieu var skipaður,
lýsti flokkurinn yfir áhyggjum sínum
vegna bágrar samkeppnisstöðu ví-
etnamsks iðnaðar, lítils sparnaðar,
spillingar og meiri munai- á tekjum
milli héraða. Því er ljóst að Phieu
bíður erfitt verkefni.