Morgunblaðið - 30.12.1997, Page 60

Morgunblaðið - 30.12.1997, Page 60
J 50 ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Anand eða Adams gegn Karpov SKAK Gronlngcn og Lausannc, 8. dcs- ember 1997 — 9. janúar 1998 HEIMSMEISTARAMÓT FIDE Indveijinn Anand og Englending- urinn Michael Adams tefla til úr- slita um það hvor mætir Karpov i heimsmeistaraeinvígi FIDE. Þeir gerðu Qögur jafntefli og í dag ráðast úrslitin í styttri skákum. VYSWANATHAN Anand er stigahæsti keppandinn á mótinu í fjarveru Rússanna Garys Kasp- arovs og Vladímirs Kramniks. An- and er 28 ára gamall og tefldi ein- vígi við Kasparov árið 1995 um heimsmeistaratitil atvinnumanna. Adams er 26 ára og ekki eins leik- reyndur og Indveijinn. Þeir hafa báðir geysilega mikla hæfíleika, en Anand er öllu betur heima í fræð- unum. Mesti styrkur Adams er stál- taugar hans og fullyrða má að möguleikar hans batni eftir því sem umhugsunartíminn verður styttri. Stuttu skákirnar í dag ráða því hvor tryggir sér a.m.k. 54 milljóna króna verðlaun, en sá sem tapar fellur úr keppni og fær 27 milljónir í sárabætur. Þeir tefldu Qórar kappskákir í úrslitunum, þá síðustu í gær. Þeim lauk öllum með jafntefli, eftir mjög líflega taflmennsku og harða bar- áttu. Það eru viss þreytumerki far- in að sjást á þeim enda hafa þeir báðir þurft að slá út fímm mjög öfluga andstæðinga til að ná svona langt. Sá sem sigrar mætir Ana- tólí Karpov óþreyttum og hefst heimsmeistaraeinvígið strax 2. jan- úar á Ólympíusafninu í Lugano í Sviss. Fóru Rússarnir á taugum? Skákmenn frá Rússlandi og öðrum fyrrum Sovétlýðveldum voru fjölmennir í Groningen og þóttu sigurstranglegir. Það er mik- ið í húfí fyrir þá, verðlaunin eru há og kaupmáttur vestrænna gjaldmiðla mikill þar eystra. Það hefur vafalaust aukið á taugaó- styrkinn. Úkraínumanninn snjalla Vasílí ívantsjúk virtist t.d. alveg skorta einbeitingu og féll út þegar í annarri umferð. Sovétmennirnir fyrrverandi týndu svo tölunni einn á eftir öðrum og sá síðasti þeirra var Hvít-Rússinn Boris Gelfand sem mætti Anand í undanúrslitun- um. Þessi staða kom upp í skák þeirra. Anand var að bjóða upp á peðsfóm á a2 og Gelfand hefði líklega átt að manna sig upp í að hirða peðið. Staðan er þá mjög óljós og tvísýn. En í stað þess þá lék hann mjög gróflega af sér: Svart: Gelfand i hmé&m m mmx E ■ -i<mm m A 'Í'-'M \ A '%;■?' 'vM': jÉÉ^ , •*. Wk , WM fir ii fe im Hvítt: Anand 18. - h6?? Þvingar hvít hreinlega til að framkvæma hótun sína. Þetta hef- ur stundum verið kallað að leggj- ast á höggstokkinn. 19. Bxf6 - Bxf6 20. Rd2 - Bxg2 Gefur mann fyrir ófullnægjandi bætur, en 20. - Bf5 21. Hxe8 - Dxe8 22. Rc7 var engu betra. Úrslitin eru nú ráðin. 21. Bxg2 - Hxel+ 22. Dxel - Hxa2 23. Hal - Hb2 24. Hbl - Ha2 25. Rf3 - Dd7 26. De4 - Adams Anand Kg7 27. c4 - h5 28. h3 - Ra5 29. Bfl - Ha4 30. Hel - Hb4 31. Kg2 - Hb3 32. He3 - Hb4 33. De8 - Dxe8 34. Hxe8 - Rxc4 35. Bxc4 - Hxc4 36. Rxd6 - Hcl 37. Hc8 og svartur gafst upp. I hinu undanúrslitaeinvíginu áttust við Englendingarnir Adams og Short. Þeir unnu hvor sína kappskákina á hvítt, síðan gerðu þeir jafntefli í tveimur atskákum, en Adams varð fyrri til að vinna bráðabanahraðskák og komst því áfram. Súrt í brotið fyrir Short, sem tefldi heimsmeistaraeinvígi við Kasparov í London 1993 eftir að hafa slegið sjálfan Karpov út í einvígi. Fjórða skákin Adams hætti sér út á refilstigu þrætubókarfræðanna í gær og beitti Marshall árásinni frægu í spánska leiknum. Anand hefur nýlega ritað bók um hana og tók vel á móti. Adams missti þráðinn og stóð uppi með peði minna án þess að eiga neinar sjáanlegar bætur. En þá slakaði Indveijinn á klónni, Adams náði að lagfæra illa staðsettan biskup og ná mótspili sem dugði til jafnteflis: Hvítt: Anand Svart: Adams Spánski leikurinn 1. e4 - e5 2. Rf3 - Rc6 3. Bb5 - a6 4. Ba4 - Rf6 5. 0-0 - Be7 6. Hel - b5 7. Bb3 - 0-0 8. c3 - d5 9. exd5 - Rxd5 10. Rxe5 - Rxe5 11. Hxe5 - c6 12. Hel - Bd6 13. d3 - Dh4 14. g3 - Dh3 15. He4 - Df5 Marshall sérfræðingarnir Kam- sky, Nunnog Ivan Sokolov hafa kosið að leika hér 15. - Dd7 á undanförnum árum. 16. Rd2 - Dg6 17. Hel! - Bg4 18. f3 - Bh3 19. Re4 - Hae8 20. He2 - h5 21. Bg5 - Bc7 22. Dd2 - Kh8 23. Hael - f6 24. Rf2! - Hxe2 25. Hxe2 - Bf5 26. Bxd5 - cxd5 27. Bf4 - Bxf4 28. Dxf4 - Bxd3 29. Hd2 - Bbl 30. Dd6! - He8 31. Dxd5 ͧ '4m», '///////, ' ai t : & w® m. m és.m,ÉI 31. Dxa6 kom reyndar einnig til greina, en er djarfari leikur. Nú hefur svartur engar teljandi bætur fyrir peðið og átti þar að auki lítið eftir af umhugsunartíma sínum. En nú lætur Anand drottn- ingu sína hrekjast í óvirka stöðu og á meðan flytur Adams biskup sinn yfír á löngu skálínuna a8-hl. Þar ógnar hann veikleika hvíts á f3 og það dugir til jafnteflis: 31. - Kh7 32. Kg2?! - He5 33. Db3 - De8 34. a3 - Bf5 35. Db4 - Bd7 36. Dd4 - Bc6 37. Dd3+ - Kh6 38. Dd4 - Da8 39. Hd3 - De8 40. g4 - He2 41. Df4+ - Kh7 42. Df5+ - Dg6 43. Dxh5+ - Dxh5 44. gxh5 - Hxb2 45. Hd6 - Be8 46. Hxa6 og hér var samið jafntefli. Margeir Pétursson Daði Örn Jónsson I DAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Hver er sá Árni? MEÐ jólapósti mínum barst mér svohljóðandi bréf frá Bergen, Noregi. „Ef þú ert sá Árni, sem gafst út ljóðabók þegar þú varst ungur, þá vinsamleg- ast skrifaðu til: Guðbjartar Heimlys, Manikollen 10, Mjelkeraaen, 5088 Bergen, Norge.“ Af því að ég er ekki sá Árni, sem Guðbjartur leitar að, væri ég þakklátur ef einhver sá nafni minn, sem hlut kann að eiga að máli og gefið hefur út ljóðabók á yngri árum, setti sig í samband við Guðbjart Heimlys í Bergen. Árni Kr. Þorsteinsson, Smyrilsvegi 29, 17 Reykjavík. Fyrirspurn til borgarstjórnar ÞAÐ eru slæm tíðindi sem leigjendur hjá borginni fengu nýlega. Þokkaleg jólagjöf. Okkur er gert að fara úr íbúðum okkar beint á götuna, eða hvað? í fyrsta lagi er húsaleigan hækkuð um helming og að auki er leigjendum gert að taka þátt í ýmsum lagfær- ingum, án samráðs við þá. Eftir því sem ég hefí hlerað hefur borgin selt fyrirtækinu Félagsbústöð- um hf., áður í eigu bæjar- ins, stærstan hluta íbúða sinna. Nú vil ég fá skjót og skýr svör við eftirfarandi: Hvað verður um okkur fátæka fólkið? Hvaða kosti hafa aldraðir og öryrkjar? Er borginni stjómað með félagshyggju og mannúð að leiðarljósi? Hvað líður kosningaloforðum ykkar R-listafólks? Þið emð gleymin, ekki við. Kristín E. Þorleifsdóttir, Síðumúla 21, Reykjavík. Tapað/fundið Armband tapaðist GULLARMBAND (keðja með hlekkjum) týndist í Vesturbænum á Þorláks- messu, kannski neðst á Ásvallagötu. Finnandi er vinsamlega beðinn að hringja í síma 562 5417. Fundarlaun. Barnastóll týndist BLÁR barnastóll af gerð- inni Maxi Cosi týndist frá Miklubraut 21. desember sl. Viti einhver hvar stóll- inn er niður kominn er hann vinsamlega beðinn að hringja í síma 562 4151. Nýtt úr týndist ASKJA með Lacroix-úri á svartri ól týndist í Kringl- unni rétt fyrir hádegi á aðfangadag. Hafí einhver fundið úrið er hann vin- samlega beðinn að hringja í síma 551 2481. Bíllykill fannst BÍLLYKILL á kippu merktri Sjóvá-Almennum fannst í leigubíl helgina 19.-20. desember sl. Upp- lýsingar í síma 566-8456. Gæludýr Týndur köttur GRÁBRÖNDÓTT og hvít læða hvarf frá Gautlandi í Fossvogi á aðfangadags- kvöld, en þar var hún gest- komandi. Hún á heima í Grafarvogi. Hafi einhver orðið ferða hennar var er hann beðinn að hafa sam- band við Lindu í síma 561 4031 eða 567 1330. Páfagaukur tapaðist GULGRÁR einlitur páfa- gaukur, heldur stærri en gárategundin, flaug út um glugga á Flókagötu 60 á aðfangadag. Hafí einhver orðið var við hann er hann vinsamlega beðinn að hringja í síma 552 1299. Köttur fæst gefins HÁLFSÍÐHÆRÐUR svartur og hvítur eins og hálfs árs fressköttur fæst gefíns á rólegt heimili. Upplýsingar í síma 555 4695. Læða í óskilum GRÁBRÖNDÓTT læða með hvíta hálsól og bjöllu hefur gert sig heimakomna í Víðinesi á Kjalamesi. Kannist einhver við kisu er hann beðinn að hringja í síma 566 7890, 566 8844 eða 566 8766. Páfagaukur tapaðist BLÁR gárapáfagaukur týndist frá Grensásvegi á jóladag. Hafí einhver orðið ferða hans var er hann beðinn að hringja í síma 561 1911. Læða hvarf HVÍT, mjóslegin, heyrnar- laus læða með glimmeról hvarf frá Lindargötu á Þorláksmessu. Hafí ein- hver orðið ferða hennar var er hann vinsamlega beðinn að hringja í síma 551 1742. Páfagaukur tapaðist LÍTILL grænn og gulur páfagaukur tapaðist frá Meistaravöllum 7 fyrir tæpum tveimur vikum. Viti einhver hvar hann er er hann beðinn að hringja í síma 552 9963. Týndur köttur SVARTUR fressköttur sem gegnir nafninu Nikki hvarf frá Tjarnarmýri á Seltjarnarnesi fyrir rúmri viku. Hafi einhver orðið ferða hans var er hann beðinn að hringja í síma 552 3775. SKÁK Umsjðn Margeir Pétursson STAÐAN kom upp í fyrstu skákinni í undanúrslita- viðureign Englending- anna Michael Adatns (2.680) og Nigel Short (2.660). Short var með svart og átti leikinn í erf- iðri stöðu: 38. - Df5+? 39. g4 - Dd5 40. Hd3 - Hf6 41. Dc7+ og hann gafst upp. Björgunarleiðin er þannig: 38. - fxg3!! og nú: a) 39. exf7 - Df5+ 40. Kxg3 - Df2+ 41. Kg4 - h5+! 42. Kh3 - Df5+ 43. Kg2 - Df2+ og jafn- tefli með þráskák. b) 39. hxg3 - Df5+ 40. g4 - Df3+ 41. Dg3 - Bf2! 42. Dxf3 - Hxf3+ 43. Kg2 - Bxel 44. Kxf3 - Bh4! og það er hvítur sem er í miklum vandræðum. Short jafnaði dag- inn eftir, og atskákum þeirra lauk síðan með jafntefli. Þá voru tefldar bráðabana- skákir og Adams varð fyrri til að sigra og komst í úrslitin gegn Anand. SVARTUR leikur og heldur jafntefli. Víkveiji skrifar... Á ERU blessuð jólin afstaðin. Gjafaflóðið, sem fylgir þeim, er að baki, en krítarkortin bíða hin- um megin áramóta. Svoddan smá- munir teljast vart til tíðinda hjá þjóð, sem talar í gemsa daginn lang- an — og hefur marga fjöruna sopið. Átveizlur eru á hinn bóginn ekki úr sögu, guði sé lof! Landinn á m.ö.o. eftir að drekka út gamla árið. Að auki þarf hann að skjóta nokkrum milljónahundruðum í líki flugelda upp í himingeiminn - yfír sjúkrahús í fjársvelti. Ætli að fljúgi ekki yfir hátæknisjúkrahúsin á höf- uðborgarsvæðinu langleiðina í þau verðmæti er á skortir til viðunandi rekstrar þeirra! Eins gott að herleg- heitin reynist heilsubót fyrir fjár- festa í þeim - og aðra áhorfendur. Síðan tekur þorrinn við, hákarlinn og brennivínið. Ekki má slaka á klónni. Nýta þarf heimsins lysti- semdir meðan tími gefst, nema hvað? xxx LANDIÐ okkar er stundum sagt á mörkum hins byggilega heims. Og áður en tæknibylting 20. aldar kom til sögunnar bar það naumast nema 60 til 80 þúsund manna byggð. í þúsund ára sögu, frá seinni hluta 9. aldar fram yfir síðustu aldamót, fór og íbúatala þess ekki yfir fyrrnefnd mörk. Þeg- ar fyrsta manntal var tekið hér á landi 1703 voru íslendingar 50.358. Fæstir urðu þeir trúlega 1785, 40.623. Það var ekki fyrr en á þriðja áratug líðandi aldar að við skriðum yfír hundrað þúsundin. Það segir síðan sitt um lífskjarabatann á 20. öldinni að í dag erum við rétt rúm 270.000! Þrátt fyrir þennan vöxt erum við samt dvergþjóð, þótt það gleymist oftar en skyldi. XXX AÐ ER sjávarauðlindin sem gerir landið byggilegt. Án hennar lifðum við þunnan þrett- ánda. Hún er undirstaða eigna og afkomu landsmanna. Tæknibylting- in gerði okkur kleift að gjörnýta þessa auðlind, sem og gróðurkrag- ann umhverfis hálendið, jafnvel of- nýta hvoru tveggja. Enn má setja samasemmerki á milli físka í sjó og lífskjara og vel- ferðar í landi. Tæknin veldur því að við drögum æ stærri sjávarfeng að landi. I fyrra fór heildaraflinn í fyrsta sinn í íslands sögu yfir tveggja milljóna tonna markið. Lík- ur standa til að hann verði enn meiri í ár, að nýtt aflamet verði slegið! En eitt er að afla og annað að kunna með að fara. Svartur sandur uppblástursins rúmar mörg strútshöfuðin. XXX SÍÐUSTU fimm, sex árin hefur margt breytzt til hins betra í þjóðarbúskapnum. Á erfiðleikaár- unum, 1988 til 1992, dróst fjárfest- ing og neyzla saman, gjaldþrot voru tíð og atvinnuleysi óx hratt. Síðan hefur verið sígandi bati - í stöðug- leika efnahagslífsins. Flest hefur gengið okkur í haginn. Helztu hættuteikn um áramótin eru nokkur viðskiptahalli og nánast enginn áætlaður afgangur í ríkisbúskapn- um í fjárlögum komandi árs, þrátt fyrir dijúgmikinn tekjuauka í efna- hagsbatanum. Efnahagsbatinn skilar sér m.ö.o. í auknum tekjum ríkisins. Gert mun ráð fyrir að heildartekjur ríkissjóðs á komandi ári verði ekki undir 140 milljörðum króna, sem er mikil hækkun frá líðandi ári. Þennan tekjuauka hefði þurft að nota í mun ríkara mæli en áætlað er til að greiða niður skuldir ríkissjóðs - og hafa þannig borð fyrir báru á sigl- ingu þjóðarskútunnar inn í nýja öld. Það er skoðun Víkveija að þannig hefðum við bezt tryggt okkur gleði- leg ár í næstu framtíð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.