Morgunblaðið - 30.12.1997, Síða 65

Morgunblaðið - 30.12.1997, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1997 65 FÓLK í FRÉTTUM HELGA Þórarinsdóttir, Lára Long og Jóhanna Marteinsdóttir skála fyrir vel heppnuðu kvöldi. Jólagleði Viktoríanna yf»r s|é ®d i <> » ► VIKTORÍURNAR kallast fjélag glaðra kvenna sem stofnað var fyrir nokkrum árum. Aðspurðar segja þær tilefnið ekki hafa verið annað en það hvað þær væru skemmtilegar. Þær segjast djamma annan hvern mánuð og svo séu snúrufundir hina mánuð- ina svona til þess að „hittast líka edrú“. Þær brugðu undir sig betri fæt- inum fyrir skömmu og fóru á jóla- hlaðborð úti í Viðey. Byijaði það með stuttri jólastund í Viðeyjar- kirkju hjá séra Þóri Stephensen. Þaðan var haldið á Kaffí Reykja- vík þar sem mikið fjör var fram eftir nóttu í góðum félagsskap Norðmanna sem voru frá kók- verksmiðjunum þar í landi. Jóhanna Marteinsdóttir, núver- andi formaður Viktoríanna, segist vera ánægð með hvernig til tókst og þakkar skemmtinefndinni ánægjulega kvöldstund. AÐDÁANDI færir Viktoríunum kampavín á Kaffi Reykjavík. Þær eru frá vinstri: Gróa Ásgeirsdóttir, Jóhanna Marteinsdóttir, Jónína Kristjánsdóttir, Þorbjörg Albertsdóttir og Elísabet Traustadóttir. Brautryðj- andi deyr DAWN Steel, sem var fyrst kvenna til að vera í forsæti stóru kvikmyndaveranna í Hollywood, lést 20. desember sl. Steel stjóm- aði Columbia Pictures í tvö ár í lok níunda áratugsins en hætti þegar kvikmyndaverið var keypt af Sony- veldinu. Steel, sem hafði barist við ki-abbamein síðustu tvö árin, var 51 árs. Steel fæddist í New York 19. ágúst 1946. Hún var komin af verkafólki en stefndi á háskóla- nám. Hún lauk þó aldrei langskóla- námi vegna peningaleysis en réðst til Penthouse Magazine árið 1969, þar sem henni tókst að vinna sig upp í stjómunarstöðu. Arið 1978 söðlaði Steel um og fluttist til Hollywood. Hún fékk vinnu hjá Paramount Pictures sem yfirmaður deildar sem sér um allan söluvarning tengdan kvikmyndum og vakti athygli yfirmanna sinna með velheppnaðri herferð fyrir „Star Trek: The Motion Picture". Árið 1980 fékk Steel stöðuhækk- un og fluttist yfir í framleiðsludeild Paramount. Hún vann sig hratt upp og stóð bak við kvikmyndir eins og „Flashdanee", „Top Gun“, „The Accused", og „Fatal Attract- ion“. Steel þáði síðan að vera í forsæti yfir Columbia Pictures í nóvember 1987 þegar David Puttnam var vís- að frá. Hún hætti í janúar 1990 þegar Sony keypti fyrirtækið, og stofnaði sitt eigið fyrirtæki, Atlas Entertainment, ásamt manni sín- um Charles Roven. Tvær síðustu kvikmyndirnar sem hún framleiddi em „Fallen“ með Denzel Was- hington og „City Angels“ með Nicolas Cage og Meg Ryan, en báðar eru væntanlegar á markað- inn í byrjun næsta árs. ALMANAK Hins fslenzka þjóövinafélags 1998 Almanak Þ j óðvinafélagsins er ekki bara almanak I því er Árbók íslands með fróðleik um órferði, atvinnu- vegi, íþróttir, stjórnmól, mannalót og margt fleira. Fæsf í bókabúðum um land allt. Fóanlegir eru eldri órgangor allt fró 1946. SÖCUrtlAG Sögufélag, Fischersundi 3, sími 551 4620. 1902 „SVONA FÉLAGI, ENGAN AUMINGJASKAP Gamall og góður vinur sem alltaf veit allt betur. Reykir ekki Við vitum hvað er erfitt að hætta að reykja Fólk sem aldrei hefur reykt á ekki gott með að skilja hve þörfin fyrir sígarettu getur verið óbærileg. Jafnvel þeir sem hafa fullan hug á að hætta, geta lotið í lægra haldi þegar sígarettan er annars vegar. Þeir sem aldrei hafa reykt halda oft að það að hætta sé einungis spuming um að taka sjálfan sig taki og hafa viljann að vopni. En það að hætta að reykja hefur ekki bara með viljastyrk að gera. Til er eðlileg skýring á því afbverju erfitt er að bcetta Þegar þú hættir að reykja getur þú þurft að berjast við mikil fráhvarfseinkenni vegna þess að líkaminn saknar nikótínsins sem hann er vanur að fá. Til að standast reykbindindi með sem minnstum óþægindum, getur þurft meira en viljastyrk. Góð reyklaus leið er að nota nikótínlyf til að minnka þörf líkamans á nikótíni smám saman og komast þannig yfir erfiðustu vikumar eftir að reykingum er hætt. Að minnka þötfina er leið til að bætta Nikótíntyf innihalda nikótín í ákveðnum skömmtum sem nægja til þess að minnka nikótínþörfina og þú ert laus við tjöm og ' ? f Jj kolmónoxíð úr sígarettureyknum. Nikótín er ekki krabba- meinsvaldandi efni og þú munt ekki verða háður nikótíni með því að nota nikótínlyf; sem reykingamaður ert þú þegar orðinn háður nikótíninu en nikótínlyf vom þróuð til að draga úr fráhvarfseinkennum og auðvelda fólki að hætta að reykja. Að ná árangri Þú getur aukið möguleika þína á að standast reykbindindi með því að nota Nicorette®, leiðandi vömmerki um allan heim fyrir nikótínlyf, allt frá því Nicorette® nikótíntyggi- gúmmí, fyrsta nikótínlyfið, var markaðssett. Mismunandi einstaklingar, mismunandi þarfir, mis- mutumdi leiðir til að hætta I dag er hægt að fá Nicorette® sem tyggi- gúmmí, forðaplástur og innsogslyf án lyf- seðils. Nicorette® nikótínlyf koma ekki í stað _____ viljastyrks, en geta veitt þér stuðning þegar þú ákveður að hætta að reykja. S88BS NICDRETTC í NICDRETTE Við stöndum meðþér Nicorette® innsogslyf samanstendur af munnstykki sem í er sett rör sem inniheldur nikótín. Nicorette® innsogslyf er ætlaö til aö auövelda fólki að hætta að reykja. Algengur skammtur er a.m.k. 6 rör á dag en þó ekki fleiri en 12 á dag i a.m.k. 3 mánuöi og venjulega ekki lengur en 6 mánuöi. Nicorette® innsogslyf getur valdið aukaverkunum eins og hósta, ertingu i munni og hálsi. Höfuöverkur, brjóstsviöi, ógleöi, hiksti, uppköst, óþægindi I hálsi, nefstífla og blöörur i munni geta einnig komiö fram. Viö samtímis inntöku á gestagenöstrógen lyfjum getur, eins og viö reykingar, verið aukin hætta á blóötaþpa. Nikótín getur valdiö þráöum eitrunum hjá börnum og er efniö hví alls ekki ætlað börnum yngri en 15 ára nema í samráöi við lækni. Gæta skal varúöar hjá þeim sem hafa hjarta- og æöasjúkdóma. Þungaöar konur og konur mnö barn á brjósti ættu ekki aö nota lyfið nema í samráöi við laekni. Lesiö vp.idlega leiöbeiningar sem fylgja hverri pakkningu lyfsins. Markaösleyfishafi: Pharmacia & Upjohn AS, Danmörk. Innflytjandi: Pharmaco hf., Hörgatúni 2, Garðabær. t>

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.