Morgunblaðið - 30.12.1997, Qupperneq 72
Atvinnutryggingar
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Ráðherra útilokar ekki aukafjárveitingu vegna ungra lækna
Utilokar breytingar
á gerðum samningi
Kveikt í
áramóta-
brennu í
s
Arbæ
KVEIKT var í áramótabrennu á
Fylkisvelli í Arbæjarhverfi í
Reykjavík á tíunda tímanum í
gærkvöldi. Þeir sem voru að
verki hlupust á brott.
Slökkvilið var kallað til og
var reynt að slökkva í brenn-
unni en nokkru síðar var ákveð-
ið að láta hana loga, þar sem
ástæðulaust var talið að aka
vatni um langan veg til þess að
■'^%lökkva í rusli sem hvort eð er
ætti að kveikja í, að sögn Guð-
brands Bogasonar hjá Slökkvi-
liðinu í Reykjavik.
Slökkviliðsmenn rifu bálköst-
inn í sundur, svo u.þ.b. helming-
ur hans varð eftir, en brennan
var ekki fullmótuð. Slökkvilið
og Fylkismenn hugðust hafa
auga með brennunni í nótt en
þá var farið að hvessa.
FRIÐRIK Sophusson fjármálaráð-
herra segir ekki koma til greina að
breyta nýgerðum kjarasamningi
lækna vegna óánægju ungra lækna
með hann. Til greina komi hins veg-
ar að breyta starfsfyrirkomulagi á
spítölunum. Hann útilokar ekki að
ríkissjóður muni reiða fram þá fjár-
muni sem slík lausn kostar.
„Það standa engar kjarasamnings-
viðræður yfír við unglækna. Þeir eru
hluti af félögum sem þegar hafa
samið. Það hafa verið gerðir heildar-
samningar við lækna sem gengu út á
tilteknar hækkanir og tilfærslur og
það þýðir lítið að koma eftir á og
segja að tiltekinn hópur innan fé-
lagsins sé ekki ánægður og vilji
breytingar. Ef það væri hægt að
taka upp kjarasamninga með þeim
hætti myndu fáir samningar halda.“
Friðrik sagði að ungir læknai'
hefðu fengið verulega hækkun í síð-
ustu samningum, sem hefði verið
meiri en margir aðrir launþegar
hefðu fengið. Þeir hefðu hins vegar
eins og margir aðnr þurft að skila
einhverju til baka. I samningi lækna
hefði yíirvinnuprósenta verið lækkuð.
„Þeir sem stjórna sjúkrahúsunum
hafa áhyggjur af því að það verði
erfitt að fá unga lækna til starfa,
ekki síst vegna þess að þeir eru færri
sem útskrifast úr Háskólanum á
næsta ári. Stjórnendur spítalanna
hafa verið í óformlegum viðræðum
um lausn. Viðræðumar snúast m.a.
um hvort breytingar á starfsfyrir-
komulagi á spítölunum gætu leyst
deiluna."
Friðrik sagði of snemmt að segja
fyrir í hverju slík lausn fælist eða
hvað hún myndi kosta. Ef samkomu-
lag tækist við unga lækna um breytt
vinnufyrirkomulag yrði að skoða
áhrifin af slíku samkomulagi og
hvernig það yrði fjármagnað.
Rætt um breytingar á
framhaldsmenntun
Friðrik sagði að ræddar hefðu
verið ýmsar leiðir til að styrkja
kennslu háskólasjúkrahúsa hér á
landi. Menn þyrftu að skoða sérstak-
lega hvort hægt væri að lengja tím-
ann sem ungir læknar gætu verið við
nám og störf á sjúkrahúsum hér á
landi. Þetta myndi þýða að læknai-
dveldu skemmri tíma í sérfræðinámi
erlendis, sem vonandi myndi leiða til
þe_ss að fleiri kæmu til baka til starfa
á Islandi. A vegum stjómvalda væri
því verið að huga að langtímabreyt-
ingum á stöðu ungra lækna.
Lausn ekki/4
Morgunblaðið/Golli
Geir íþrótta-
maður ársins
GEIR Sveinsson, fyiirliði ís-
lenska landsliðsins í handknatt-
leik, var útnefndur íþróttamað-
ur ársins 1997 í hófi Samtaka
íþróttafréttamanna i gær-
kvöldi. Geir fékk 331 stig í kjör-
inu, Jón Arnar Magnússon,
frjálsíþróttamaður, var í öðru
sæti með 264 og Kristinn
Björnsson, skíðamaður, varð
þriðji með 263 stig.
B-1
Verð á
bensíni
lækkar
Morgunblaðið/Ingvar
ÞAÐ logaði glatt í Fylkisbrennunni í gærkvöldi, tveimur dögum á undan áætlun.
OLÍS og Skeljungur lækkuðu verð á
95 og 98 oktana bensíni í gær um 1,10
kr. á lítrann en Olíufélagið hf. lækk-
aði lítraverðið um samsvarandi upp-
hæð á Þorláksmessu. Bensínorkan
lækkaði verðið í gær um 1,10 kr. lítr-
ann af 95 oktana bensíni en 2,20 kr.
98 oktana. Verðlækkunina má rekja
til lækkandi heimsmarkaðsverðs.
Gunnar Karl Guðmundsson, yfir-
maður innkaupa- og áhættustýringar
hjá Skeljungi, segir að verð á bensíni
hafi farið lækkandi á heimsmarkaði
en verðið hérlendis stýrist fyrst og
fremst af birgðaverði. Hann sagði að
samningur sem Irakar hafa gert um
sölu á olíu hafi leitt til verðlækkunar
á heimsmarkaði í gær. Því virðist
frekar vera útlit fyrir áframhaldandi
verðlækkun strax á næsta ári.
Ný prentun 5 þúsund króna seðla
^Ekki vitnað í gildandi
lög á nýjum seðlum
mm F01027529
SAMKYÆMT LOGU.V NRÍO 29.WARS1961 SEÐLABÁNKI ÍSLANDS
EINS og sjá má undirrita þeir Tómas Árnason og
Davíð Olafsson eldri prentun á 5 þúsund króna seðl-
inum og þar er með réttu vitnað í lög frá 1961.
F03050103
SAMKVŒMrUjGUM NR.10
23H.1RS 1961
.jSi,. ,f /íL-...
SEÐLABANKI
ÍSLANDS
NÝ PRENTUN er undirrituð af Eiríki Guðnasyni
og Steingrími Hermannssyni og þar er einnig vitn-
að í lög frá 1961 í stað nýrra laga frá 1986.
I LJÓS hefur komið að ekki er vitn-
að í gildandi lög á nýrri prentun 5
þúsund króna seðla sem settir voru
í umferð nýlega. Á þeim stendur að
þeir séu gefnir út samkvæmt lögum
frá árinu 1961 en þau lög eru ekki
lengur í gildi og er því af sumum
talið eðlilegra að vísa til nýrra laga
*• um Seðlabanka íslands frá árinu
1986.
Að sögn Stefáns Þórarinssonar,
rekstrarstjóra Seðlabankans, er
það álit Iögfræðinga bankans að
seðlarnir séu löglegir. SeðiIIinn var
upphaflega gefinn út samkvæmt
þeim lögum sem á honum eru
nefnd.
^ „Þessir 5 þúsund króna seðlar
eru í fullu samræmi við auglýsingu
viðskiptaráðuneytisins um útgáfu
seðlauna frá 26. maí 1986 og þar af
leiðandi eru seðlarnir fullkomlega
lögmætur gjaldmiðill," sagði hann.
„Þeir eru að öllu leyti eins í útliti
með áframhaldandi hlaupandi núm-
erum frá fyrri útgáfu en þetta er
önnur prentun þessarar seðlastærð-
ar og að sjálfsögðu með undirskrift
núverandi bankastjóra."
Löglegur gjaldmiðill
Sagði Stefán að árið 1993 hefði
verið ákveðið að breyta lagatilvitn-
un á þeim seðlum sem yrðu prent-
aðir eftir þann tíma en Seðlabanka-
lögin eru frá nóvember 1986 og
þótti eðlilegt að breyta einnig tilvís-
un í lög á þeim seðlastærðum, sem
gefnar höfðu verið út fyrir gildis-
töku iaganna.
„Prentsmiðjan var beðin að
breyta þessu árið 1993 og það ít-
rekað nokkru síðar og síðan hefur
þetta komið eins og óskað hefur
verið eftir þar til nú þegar gömlu
lögin koma þar fram með undir-
skrift bankastjóra sem eni við störf
hér í dag,“ sagði hann. „Samkvæmt
áliti lögfræðinga eru seðlarnir full-
komlega löglegur gjaldmiðill. Við
teljum því ekki ástæðu til að hætta
við að selja þá í umferð en hins
vegar höfum við áskilið okkur allan
rétt gagnvart prentsmiðjunni í
þessu máli. Þetta er prentsmiðja
sem við höfum skipt við frá 1933 og
við núverandi eigendur hennar frá
1986.“
Kostnaður við prentun seðlanna
var um 19 milljónir og voru prent-
aðar 2 milljónir seðla.