Morgunblaðið - 03.01.1998, Side 18
18 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
| mest seldu fólksbíla- ^ Itegundirnar Breyt,frá S’. J ðllt áríð 1997 fyrraári Fjöldi % %
1. Toyota 1.757 17,3 +12,7
2. Volkswagen 1.103 10,9 +9,9
3. Subaru 1.039 10,2 +93,8
4. Mitsubishi 953 9,4 +55,0
5. Hvundai 756 7,5 +31,9
6. Nissan 743 7,3 -2,5
7. Opel 679 6,7 +48,3
8. Suzuki 551 5,4 +9,8
9. Ford 418 4,1 +16,4
10. Renault 403 4,0 +29,6
11. Honda 349 3.4 +87,6
12.Ssanavona 203 2,0 +153,8
13 Peuaeot 176 1|7 +109,5
14. Daihatsu 165 1.6 +120,0
15. Mazda 150 1,5 +26,1
Aðrar teg. 701 6,9 -14,0
Samtals 10.146 100,0 +26,2
VÖRU-,
SENDI- og
HÓPFERÐA-
BÍLAR, nýir
1996 1997 1996 1997
Fjórðungi meiri innflutningur
Rúmlega tíu þúsund nýir fólksbílar voru fluttir til landsins á nýliðnu ári
og nemur aukningin 26,2% á milli ára. Toyota er sem fyrr í fyrsta sæti
með um 13% innflutningsins eða 1.757 bíla, Volkswagen er í öðru sæti
en Subaru í hinu þriðja. Af meðfylgjandi töflu sést að innflutningur
eykst mismikið eftir tegundum. Aukningin nemur um 10% á
Volkswagen, 94% hjá Subaru og 55% á Mitsubishi bifreiðum.
Innflutningur á Ssangyong jeppum jókst um 153% á árinu. 1.164 nýir
vöru- sendi- og hópferðabifreiðar voru fluttar til landsins á árinu og
nam aukningin 31,5%.
Síðnstu dagar
Síðasta tækifæri! — Vegna mikils lagers
framlengjum við útsölu okkar á
Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni.
Opið laugardaginn 3. janúar frá kl. 12-19 og
sunnudaginn 4. janúar frá kl. 14-19.
Dæmi Teppi
Hjónarúm, útskorið 200 x 200
Danmörk, 1820
áður 79.800
nú 59.8.30
Brúðarkistill, 140 x 63 x 80
Danmörk, 1870
áður 89.800
nú 67.350
Skápur, Kína ca 1900
163 x 48 x 63
áður 69.800
nú 52.350
Bochara Pakistan
369 x 285 (rauður)
áður 168.800
nú 126.600
Afghan ca 200 x 300
áður 75.600
nú 56.700
Balutch bænamottur
áður 9.800
nú 7.380
Pakistan ca 125 x 180
áður 34.800
nú 26.100
VIÐSKIPTI
Navísog Landstein-
ar IS sameinast
GENGIÐ hefur verið frá samein-
ingu hugbúnaðaríyrirtækjanna
Navís hf. og Landsteina IS ehf. og
hófst starfsemi í sameinuðu félagi
þann 1. janúar síðastliðinn.
Hluthafar í nýja félaginu eru
Landsteinar Intemational, sem
eiga helmingshlut, Tæknival hf,
sem á ríflega 30% og starfsmenn
sem eiga tæp 20%. Heiti nýja fé-
lagsins er Navís-Landsteinar hf. og
verður það með sameiningunni eitt
stærsta Navision-fyrirtækið hér á
landi ef horft er til fjölda sérfræð-
inga í Navision-hugbúnaði, að því
er segir í frétt.
Einn útbreiddasti viðskipta-
hugbúnaður í Evrópu
Navís hf. hefur starfað sem sölu-
aðili Navision-hugbúnaðar á ís-
landi um nokkurt skeið. Navision
er einn útbreiddasti viðskiptahug-
búnaður í Evrópu og hefur félagið
starfað samkvæmt sérstakri sölu-
og þjónustuvottun frá framfram-
leiðanda kerfisins, Navision
Software a/s í Danmörku. Meðal
viðskiptavina Navís hf. eru Ikea,
Vaka-Helgafell, Póstur og sími,
Agæti hf, Rannsóknarstpfnun fisk-
iðnaðarins, Olíuverzlun Islands hf,
Fönn, Hátækni, DHL, OASIS, Hof
og Bónus-birgðir.
Landsteinar Intemational hefur
Verður hluti af
stærsta neti
Navision-fyrir-
tækja í Evrópu
á undanfómum árum byggt upp
net fyrirtækja í Evrópu sem sér-
hæfa sig í uppsetningu og ráðgjöf
fyrir Navision-hugbúnað. Innan
þeirra raða eru Landsteinar ÍS á
Islandi, Landsteinar DK í Dan-
mörku, Landsteinar CI á Jersey og
Alpha Landsteinar í Englandi.
Landsteinar Intemational eiga
einnig þróunarfyrirtækið NaviPlus
sem sérhæfir sig í þróun staðal-
kerfa fyrir Navision Financials og
er vottað sem Navision Develop-
ment Partner. Sú vottun gerir fyr-
irtækinu kleift að hanna sérlausnir
í Navision Financials sem síðan era
prófaðar, vottaðar og seldar af
móðurfyrirtækinu, Navision
Software a/s. Þetta gerir það að
verkum að samsteypan á milliliða-
laus samskipti við Navision
Software a/s í Danmörku auk þess
sem samsteypan vinnur með dreif-
ingaraðilum kerfisins um allan
heim og með fjölda annarra hug-
búnaðarhúsa í Navision geiranum.
Starfsmenn innan Navís-Land-
steina hf. hafa unnið við aðlögun,
þróun, þýðingar, staðfæringu og 1
þjónustu við Navision hugbúnað )
frá upphafi, eða frá árinu 1987 og \
tekið þátt í mörgum stærstu upp-
setningum á Navision-kerfum í
heiminum. Aðild Navís-Landsteina
að Landsteina-samsteypunni gefur
einnig aðgang að reyndum sér-
fræðingum í Evrópu en heildar-
fjöldi hugbúnaðarsérfræðinga í
Landsteina-samsteypunni er nú
um 70 manns og meðal viðskipta-
vina hennar era Tele Danmark,
The Jersey Electricity Company, I
Manx Electricity Authority, UK j
Civil Aviation Authorities, London
Underground, European Centre
for Medium-Range Weather For-
ecasts, Philips Electronics UK,
Bahrain Duty Free og Damaskus
Duty Free.
Framkvæmdastjóri Navís-Land-
steina hf. er Þorsteinn Guðbrands-
son, markaðsstjóri er Jón Örn )
Guðbjartsson, tæknilegur fram-
kvæmdastjóri er Jón Hörður Haf-
steinsson. Stjómarformaður er I
Magnús Sigurðsson.
Framkvæmdastjóri Landsteina
International er Aðalsteinn Valdi-
marsson og tæknilegur fram-
kvæmdastjóri er Guðbjartur Páll
Guðbjartsson. Stjómarformaður er
Sigurður Smári Gylfason.
* )
Arið 1997 umrótasamt og !
sögulegt í Wall Street
New York. Reuters.
ÁRIÐ í fyma var umrótasamt í
Wall Street og nokkur met vora
slegin.
Sérfræðingar höfðu spáð hófleg-
um hækkunum árið 1997, en á ár-
inu varð mesta lækkun, sem orðið
hefur á Dow Jones vísitölunni á
einum degi, og síðan mesta hækk-
un, sem orðið hefur á henni einum
degi.
Arið var umrótasamt, en hag-
stætt venjulegum fjárfestum að
sögn markaðssérfræðings J.C.
Bradford.
Verð hlutabréfa hækkaði um
33% 1995 og 26% 1996, svo að ekki
var búizt við hækkandi verði í Wall
Street í byrjun ársins. í 101 árs
sögu Dow Jones vísitölunnar hafði
aldrei orðið yfir 20% hækkun þrjú
ár í röð.
Dow Jones vísitalan mældist
6448,27 punktar í ársbyrjun 1997
og á gamlársdag mældist hún
mill itannburstar
Hálsinn beinn eða boginn?
Þú mótar hann fyrir
þínar tennur, með
heita vatninu.
/TePel
Óhreinindi milli tanna
valda skemmdum.
Þessi tekur það sem
tannburstinn rsður
ekki við!
Gripið er ótrúlega gott
Fæst í öllum helstu apótekum
7908,25 punktar, sem var 22,6%
hækkun.
Standard & Poor 500, vísitala
sem margir fjárfestingarsjóðir
fylgjast með, hækkaði um 31% á
árinu.
Nasdaq vísitalan, sem nær til
margra hátæknifyrirtækja, þar á
meðal Microsoft og Intel, hækkaði
um 21,6%.
Verð hlutabréfa hækkaði jafnt
og þétt í ársbyrjun og Dow komst í
yfir 7000 punkta 13. febrúar.
Hlutabréf lækkuðu þegar
bandaríski seðlabankinn hækkaði
skammtímavexti um 0,25% 25.
marz. Um miðjan apríl hafði Dow
lækkað um 9,8%.
Við tók bjartsýni fjárfesta á
aukinn hagnað fyrirtækja og 16.
júlí fór Dow yfir 8000 punkta.
Hæst komst Dow í 8259,31 punkt
6. ágúst.
Þá tók við gjaldeyris- og mark-
aðsumrót í Asíu og líkur á minni
hagnaði bandarískra fyrirtækja.
Áhyggjurnar náðu hámarki í októ-
berlok, viku eftir að minnzt var 10
ára afmælis kauphallarverðfallsins
í Wall Street 1987.
Verðfallið 27. október í Hong
Kong og víðar í Asíu dró dilk á eft-
ir sér annars staðar og lækkaði
Dow um 554 punkta, eða 7,2%, í 1
7161, sem var mesta punktalækk- I
un á einum degi. í fyrsta skipti var |
farið eftir reglum frá því eftir
verðfallið 1987, og viðskiptum
hætt í 30 mínútur þegar Dow
lækkaði um 350 punkta. Eftir aðra
550 punkta lækkun var viðskiptum
aftur hætt í hálftíma.
Söluæðið minnti á verðfallið
1987, en lækkunin var innan við
einni þriðji af 22,6% lækkun sem |
varð á „svarta mánudegi" 1987.
Hinn 28. október hækkaði Dow
um 337 punkta, eða 4,7%, í 7498, I
sem var mesta hækkun sem orðið
hafði á henni á einum degi. í fyrsta
sinn skipti yfir einn milljarður
verðbréfa um eigendur í kauphöll-
inni í New York - 1,2 milljarðar
alls.
Nú telja sérfræðingar að búast
megi við áframhaldandi óstöðug-
leika 1998 og að fjárfestar verði að >
vera vandlátari og velja hlutabréf í i
fyrirtækjum sem geti staðizt um- \
rótið.
Ernst & Young
og KPMG sameinast
ERNST & Young og KPMG hafa
farið þess á leit við samkeppnisyfir-
völd í Briissel að þau samþykki
sanruna þeirra í eitt helzta endur-
skoðenda- og ráðgjafarfyrirtæki
Evrópu.
Fyrirtækin starfa víða um heim
og aðalstöðvar þeirra verða í Am-
sterdam eftir sameininguna.
Stjórnarformaður hins nýja fyrir-
tækis, Colin ShuiTnan, sagði í yfir-
lýsingu að það mundi geta aðstoðað
evrópsk fyrirtæki stór og smá, gef-
ið hæfu fólki kost á góðri atvinnu í
Evrópu og veitt mikilsverða aðstoð
við þróun nýrra markaða í Austur- *
Evrópu og fyrrverandi sovétlýð- }
veldum.
Einn framámanna Ernst &
Young í Bretlandi sagði að samruni
væri hafinn í Evrópu og að í júní á
næsta ári yrði vonandi hægt að
ákveða hvenær samruni starfsem-
innar um allan heim yrði að vera-
leika.
Starfsmenn hins sameinaða fyr- \
irtækis verða 163.000 í 135 löndum,
þar af yfir 56.000 í 300 borgum á
meginlandi Evrópu. }