Morgunblaðið - 06.01.1998, Síða 1

Morgunblaðið - 06.01.1998, Síða 1
88 SÍÐUR B/C STOFNAÐ 1913 3. TBL. 86. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuters Fossett lentur BANDARÍSKI ævintýramaður- inn Steve Fossett lenti loftbelg sinum, Solo Spirit, nærri rúss- nesku borginni Krasnodar, skammt frá Svartahafí, í gær og lauk þar með þriðju tilraun hans til að verða fyrstur manna til að fljúga loftbelg umhverfis jörð- ina. Fosset hóf för sína í St. Louis í Bandaríkjunum á gamlársdag. Bilun varð í fjarstýringu eins gasbrennara loftbelgsins og einnig var eldsneytisskortur far- inn að há Fossett eftir að honum tókst ekki að nýta sér vestan- vinda til að flýta förinni. fsraelsþing samþykkir fjárlög eftir afsögn Levys Netanyahu stóðst fyrstu eldraunina Moi sver embættiseiðinn Jerúsalem. Reuters. ÍSRAELSKA þingið samþykkti í atkvæðagreiðslu í gær fjárlagafrumvarp ríkisstjómar Benjamins Netanyahus og stóðst forsætisráðherrann þar með fyrstu eldraunina eftir afsögn Davids Levys utannldsráðherra og brott- hvarf fjögurra flokksfélaga hans úr stjórnarliðinu. Israelskir fréttaskýrend- ur spáðu því að samsteypustjórn Netanyahus myndi brátt falla en forsætis- ráðherrann kvaðst telja að ekki þyrfti að boða til kosninga á næstunni þótt stjórnin nyti aðeins stuðnings 61 þingmanns af 120. Úrslit atkvæðagreiðslunnar í gær urðu þau að 58 þingmenn greiddu atkvæði með frumvarpinu og 52 á móti. Einn sat hjá. Levy og félagar hans í Gesher-flokksbrotinu voru meðal þeirra sem greiddu atkvæði gegn frumvarpinu. Einn þingmaður Likudbanda; lagsins, flokks Netanyahus, sat hjá við atkvæðagreiðsluna. Pað var Benny Begin, sonur fyrrverandi forsætisráðherra, Menachems Beg- ins. Benny hefur lengi verið harður keppinautur Netanyahus. Netanyahu brosti breitt þegar úrslit atkvæðagreiðslunnar voru til- kynnt, veifaði til stuðningsmanna sinna á áheyrendapöllum þingsins og heilsaði þingmönnum sem ósk- uðu honum til hamingju með sigur- inn. „Þeir hafa flutt útfararræður um mig að minnsta kosti átján sinn- um síðustu átján mánuðina - og ég er hér enn,“ sagði hann. Þarf á allri sinni stjórnvisku að halda Afsögn Levys tekur gildi í dag og segja stjórnmálaskýrendur að hún geti valdið Netanyahu vandkvæð- um er kemur að brottflutningi her- liðs Israela frá heimastjórnarsvæð- um Palestínumanna á Vesturbakk- Reuters Reuters DAVID Levy, fráfarandi utan- ríkisráðherra Israels, og Benja- min Netanyahu forsætisráð- herra fylgjast með fjárlagaum- ræðu á þinginu. anum. Forsætisráðherrann þurfi á allri sinni stjórnvisku og reynslu að halda til þess að koma í veg fyrir að stjórnin, sem er samsett úr flokkum hægri harðlínumanna, hófsamra og trúaðra, liðist í sundur. „Hann stendur nú mjög höllum fæti fyrir þrýstingi úr öllum áttum,“ segir Mark Heller við Háskólann í Tel Aviv. „Þrýstingurinn kemur úr svo andstæðum áttum að það þyrfti töframann til að jafna ágreining- I Palestínumenn fagna/22 DANIEL arap Moi, forseti Kenýa, hóf í gær fimmta og síðasta kjörtímabil sitt með því að sveija embættiseið við hátíðlega athöfn í Nairobi. Moi er 73 ára og hefúr verið við völd í tvo áratugi. Helstu frambjóðendur Svarar því hverjir eigi olíuna Þrirshöfn. Morgunblaðið. POUL Nyrup Rasmussen, forsætis- ráðherra Danmerkur, fer til Færeyja i dag og hyggst m.a. svara því hvemig danska stjórnin túlki stöðu Færeyja í ríkjasambandinu við Danmörku og hver eigi auðlind- irnar undir yfir- borði jarðar í lög- sögu Færeyja. Færeyingar bíða svarsins með mikilli eftirvæntingu, eink- um vegna áforma um olíuvinnslu í færeyskri lögsögu. Gert er ráð fyrir að færeyska lög- þingið afgreiði lagafrumvarp um olíuvinnsluna í vor og Færeyingar vænta þess að byrjað verði að bora eftir olíu á næsta ári. ■ Óumbeðin heimsókn/21 stjórnarandstöðunnar hafa sakað flokk forsetans um kosningasvik og sniðgengu innsetningarathöfnina. Þeir kröfðust þess að mynduð yrði þjdðsljórn til að afstýra hættu á deirðum í landinu en Moi hafnaði þeirri kröfu. Umdeild reyk- ingalög í Noregi NY OG hert reykingalög sem tóku gildi um áramótin í Noregi hafa vakið litla hrifningu þar í landi. Veitingastaðir og kaffihús eru víða hálftóm, á nokkrum stöðum kom til slagsmála um helgina og gestir á kaffihúsi í Ósló voru staðnir að því að sturta skiltum um reykingabann niður um salemin að því er segir í Aftenposten. Reykingalögin í Noregi eru lík- ast til þau ströngustu á Norður- löndum en samkvæmt þeim verður að minnsta kosti helmingur allra borða á veitingastöðum, börum og kaffihúsum að vera algerlega reyk- laus. Finni menn reykjarlykt á reyklausa svæðinu geta þeir kvart- að við eigendur eða snúið sér til yf- irvalda. Eigendumir eru ókátir vegna bannsins enda reyndist víða hálf- tómt á stöðunum um helgina. Þá eru gestir lítt hrifnir enda reykja Norðmenn mikið og þá ekki síst á kaffihúsum og börum. Á nokkrum veitingastöðum varð að kalla út aukamannskap í dyravörslu og til eftirlits, þar sem gestir stálust til að reykja, og til handalögmála kom er verðirnir hugðust banna reyk- ingarnar. Reyklausu svæðin tóm Sumir bareigendur segja tómt á reyklausu svæðunum en troðfullt þar sem reykja má. Aðrir segja úti- lokað að framfylgja reykingabann- inu á þéttsetnum stöðum og þar sem engir öskubakkar séu til staðar noti gestir gólfið sem öskubakka. Líklega eru orð eins bareigand- ans um reynsluna af reykingalög- unum nokkuð dæmigerð en hann sagðist ekki hafa heyrt eitt einasta jákvætt orð frá gestunum. „Og þeir sem eru fylgjandi reykingalögun- um halda sig heima.“ Forsetakosningarnar í Litháen Adamkus sigrar með 0,6% mun Vilnius. Reuters. VALDAS Adamkus, sem flutti bú- ferlum frá Bandaríkjunum til Lithá- ens í fyrra, var kjörinn forseti Eystrasaltslandsins á sunnudag. Sigur hans var mjög naumur því munurinn á fylgi fram- bjóðendanna tveggja var aðeins 0,6%. Adamkus fékk 49,9% atkvæðanna en Arturas Paulauskas, fyrrverandi ríkissaksóknari, fékk 49,29%. Algirdas Braz- auskas, fráfarandi for- seti, sem studdi Paulauskas í kosninga- baráttunni, óskaði Adamkus til hamingju með sigurinn. Adamkus tekur við embættinu 25. febrúar. Forsetinn hefur ekki mikil völd en skipar for- sætisráðherra og getur neitað að staðfesta lög. Adamkus lofaði að beita sér fyrir því að Litháen fengi aðild að Evr- ópusambandinu og Atlantshafs- bandalaginu. Litháar hafa lagt mikla áherslu á að fá aðild að ESB og NATO frá því þeir fengu sjálfstæði árið 1991 en ljóst er að Lit- háen verður ekki á með- al fyrstu ríkjanna sem fá inngöngu. Áhersla á vinsamleg tengsl við Rússa Adamkus er 71 árs og flúði til Bandaríkjanna þegar sovéskar her- sveitir hemámu Litháen árið 1944. Hann kvaðst í gær ætla að leggja áherslu á að tryggja góð samskipti við Rússa. „Rússland, sem er að byggja upp lýðræði, er sérlega mikil- vægt fyrir Litháen og við ætlum að gera allt sem við getum til að sam- skiptin verði í samræmi við það.“ Valdas Adamkus ■ Kjósendur völdu/23

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.